Dagblaðið - 07.02.1977, Side 26

Dagblaðið - 07.02.1977, Side 26
26 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 7. FEBRtJAR 1977. 1 TÓNABÍÓ Enginn er fullkominn (Some like it hot) „Some like it hot“ er ein bezta gamanmynd sem Tónabíó hefur haft til sýninga. Myndin hefur veriö endursýnd víða erlendis vió mikla aösókn. Leikstjóri: Billy Wilder. Aðalhlutverk: Marilyn Monroe, Jack Lemmon, Tony Curtis. Bönnuð börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. French Connection 2 íslenzkur texti Æsispennandi og mjög vel gerð ný bandarisk kvikmynd, sem alls staðar hefur verið sýnd við met- aðsókn. Mynd þessi hefur fengið 'frábæra dóma og af mörgum gagnrýnend- um talin betri en French Connect- ion I. Aðalhlutverk: Gene Hackman Fernando Ray. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7.T5 og 9.30. Hækkað verö HAFNARBÍÓ V_________________^ Frœknir félogar Sprenghlægileg ný gamanmynd í litum með Rodney Bewes og James Bolan. tslenzkur texti. Sýnd kl. 9 og 11. 1 GAMLA BÍÓ Sólskinsdrengirnir Víðfræg bandarísk gamanmynd frá MGM; samin af Neil Simon og afburðavel leikin af Walter Matthau og George Burns. íslenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 LAUGARASBÍO I Hœg eru heimatökin Ný hörkuspennandi bandarísk sakamálamynd um umfangsmikið gullrán um miðjan dag. Aðalhlutverk: Henry Fonda, Leonard Nimoy o. fl. tsl. texti. Sýnd kl. 5, 7, 9ogll. Bönnuð börnum innan 12 ára. 1 HÁSKÓLABÍÓ 3 Mánudagsmyndin: Sandkastalinn Japönsk verðlaunamynd. Leikstjóri: Yoshitaro Nomura. Sýnd kl. 5 og 9. AUSTURBÆJARBÍÓ Leikið við dauðann (Deliverance) tSLENZKUR TEXTI Æsispennandi kvikmynd, byggð á samnefndri sögu, sem kom út í ísl. þýðingu fyrir sl. jól: Aðalhlutverk: Burt Reynolds, John Voight. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 5, 7 og 9. Nýjung: Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.30 Hart gegn hörðu Hörkuspennandi litmynd með Robert Fuller og Sherry Bain og Ruddarnir Hörkuspennandi panavision litmynd, endursýnd. Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.30. ^WÓOLEIKHÚSIfl Dýrin í Hálsaskógi þriðjudag kl. 17, uppselt. Sólarferð miðvikudag kl. 20. GuIIna hliðið fimmtudag kl. 20, föstudag kl. 20. Litla sviðið Meistarinn þriðjudag kl. 21. Miðasala 13.15—20, sími 11200. STJÖRNUBÍÓ Okkar beztu ór (The Way We Were) íslenzkur texti Ný, viðfræg, amerísk stórmynd í litum og Cinema Scope með hin- um frábæru leikurum Barbra Streisand og Robert Redford. Leikstjóri Sidney Pollack. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Mannrónin Nýjasta mynd Alfred Hitchcock, gerð eftir sögu Cannings „The’ Rainbird Pattern". Bókin kom út í ísl. þýðingu á sl. ári. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 9. íslenzkur texti. BIAÐIB Umboösmann vantará Blönduós. Upplýsingar hjó Sœvari Snorrasyni, Hlíðurbraut 1 Blönduósi, sími 95-4122 og afgreiðslunni í Reykjavík, sími 22078. d Utvarp Sjónvarp i því að sit ja auðum hðndum — segir Sigurkarl Stefánsson fyrrum yfirkennari sem les Passíusálmana að þessu sinni í kvöld kl. 22.15 eftir lestur kvöldfrétta og veðurfregna, hefst lestur Passíusálmanna. Að þessu sinni er það Sigurkarl Stefánsson, fyrrum yfirkennari við Menntaskólann í Reykjavík, sem flytur okkur þessar perlúr sálmaskáldsins, Hallgríms Péturssonar. Við hringdum í Sigurkarl og spjölluðum lítillega við hann. — „Nei, því miður kann ég ekki Passíusálmana utanbókar en hefði helzt viljað að ég gerði það,“ sagði Sigurkarl. „Mér fellur ágætlega vel að lesa sálmana, það er mjög gott sam- starf í útvarpinu og þetta gengur vel,“ sagði hann. „Það eru nú þrjú ár síðan ég hætti kennslu eftir að hafa verið við Menntaskólann í Reykjavík í rúm fjörutíu ár og við stærðfræðikennslu í Háskólanum í rúm þrjátíu ár. Nei, ég er ekki þannig maður að mér leiðist. Eg hef alltaf nó6 að stússa. Stundum er ég að grúska og stundum að smíða, bæði fyrir sjálfan mig og aðra í fjölskyldunni. Ég hef aldrei vanizt því að sitja auðum höndum,“ sagði Sigurkarl. Passíusálmar Hallgríms Péturssonar voru fyrst gefnir út árið 1666. Þeir hafa komið út í meira en sextíu útgáfum. Passíusálmarnir hafa verið lesnir á föstunni síðan í síðari heimsstyrjöldinni og hafa margir valinkunnir menn tekið þátt í að lesa þá upp, bæði lærðir og leikir. Það er jafnan mjög notalegt að hlusta á sálmana og þá veit maður líka að vorið er í nánd. A.Bj. Útvarp eftir kvöldf réttir næstu vikur: Hef ekki vanizt Sigurkarl Stefánsson kenndi stærðfræði um fjörutíu ára skeið við Menntaskólann i Reykjavík og í um þrjátíu ár við Háskóla islands. DB-mynd Bjarnleifur. Útvarp í kvöld kl. 19.40: Um daginn og veginn Bendir á ýmislegt sem betur má fara ítalmáli „Það má segja að aðalefnið í erindi mínu sé meðferð ís- lenzks máls og ég vek athygli á ýmsu sem mér finnst miður fara, frekast í talmáli, en eitt-. hvað minnist ég þó á ritað mál,“ sagði Eiríkur Stefánsson kenn- ari. Hann ræðir um daginn og veginn í útvarpinu í kvöld kl. 19.40. „Undanfarin ár hef ég haft með það að gera að leiðbeina börnum með framsögn og kann- ski er það hvatinn að umræðu- efni mínu,“ sagði Eiríkur. Okkur langaði til þess að vita um þessa framsagrrarleiðbein- ingu Eiríks og spurðum hann nánar út i hana: „Það var að vilja og ósk þáverandi skólastjóra Lang- holtsskóla, Kristjáns Gunnars- sonar núverandi fræðslustjóra, Eiríkur Stefánsson hefur verið barnakennari í fjörutíu ár og nú á síðustu árum leiðbeint börnum með framsögn. ► að þessi leiðbeining var tekin upp. Núverandi skólastjóri er Erling Tómasson og hefur ekki orðið nein breyting á þessu í hans tíð. Þetta er alls ekki hjálpar- kennsla fyrir þá nemendur sem orðið hafa afturúr heldur eru miklu frekar þau börn sem maður treystir til þéss að komast eitthvað áfram i flutn- ingi móðurmálsins valin í þessa hópa. Börnin eru valin í þetta þegar þau eru orðin þolanlega læs, svona átta til níu ára, átta til tíu börn í hverjum hópi og eru þrír hópar samtímis. Hver hópur fær tvo tíma á viku þannig að þetta eru sex tímar á viku í allt. Annað kenni ég ekki því ég er kominn yfir aldurs- takmörkin," sagði Eiríkur. Þetta er nítjánda árið sem Eirikur er við Langholtsskól- ann en áður var hann lengi barnakennari á Akureyri og þar áður á Húsavík. Kennslu- feril sinn hóf Eiríkur sem far- kennari í Skriðuhreppi í Eyja- fjarðarsýslu. Um tveggja ára skeið hafði Eiríkur umsjón með barnatíma útvarpsins og sagðist hann alltaf hafa gætt þess að hafa eitthvað af börnum til þess að flytja efnið og fyndist sér það mjög vel til fundið. A.Bj.:

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.