Dagblaðið - 07.02.1977, Síða 28

Dagblaðið - 07.02.1977, Síða 28
Áttu ófama 700 metra leið til næsta bæjar er þau fundust „Það er nú misskilningur að við Ingibjörg dóttir mín höfum lent í einhverjum hrakningum. Við áttum aðeins ófarna 700 metra að bænum Mælifellsá — efsta bæ í Mælifellsdal — er þyrlan fann okkur," sagði Sigutþór Hjörleifsson ráðu- nautur í samtali við Dagblaðið í morgun. Sigurþór og dóttir hans, sem er 12 ára göraul, fóru af stað frá L — Sauðárkróki um hálftvöleytið á laugardaginn og hugðust lesa af mælum sem Orkustofnun hefur sett upp sunnan Mæli- fellshnjúks vegna fyrirhugaðra línulagna. Fyrsta spölinn fóru þau í bifreið, en skiptu síðar yfir á vélsleða. Fundu slóð um kvöldið Er þau komu ekki heim um kvöldið var farið að undrast um þau. Tveir menn fóru þá af stað til leitar og komust á slóð. Þeir sneru þó við og biðu til morguns er Skagfirðingasveit Slysavarnafélagsins var kölluð út. Sveitin fór þegar til leitar og skildi eftir einn mann með talstöðvarsamband á Mæli- felli. Leitarmenn röktu slóð sleðans og fundu hann brátt mannlausan. Um hádegisleytið var Slysa- varnafélagið í Reykjavík beðið að útvega flugvél til að létta undir með leitarmönnum. Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóri félagsins, hafði þegar samband við Norðurflug á Akureyri og bað um aðstoð. Þar var enga flugvél að fá en hins vegar var þar stödd lítil þyrla, TF-AGN. Flugstjóri hennar, Guðbrandur Jónsson, fór þegar til leitar. Það var síðan um tvöleytið í Festu sleðann „Astæðan fyrir því að við yfirgáfum sleðann er sú að ég missti hann niður,“ sagði Sigur- þór í morgun. „Það var því ekki annað til ráða en að halda áfram fótgangandi." Sigurþór bætti því við að þau feðginin hefu verið búin að vera á gangi í 15 klukkustundir er þau fundust. Þá höfðu þau farið um 30 kílómetra leið — með hvíldum. Um nóttina var á þessum slóðum austan hvassviðri, um 4—5 vindstig og skafrenningur sem torveldaði þeim gönguna. Frostið fór mest upp í sjö stig. Þau Sigurþór og Ingibjörg dóttir hans höfðu næg matvæli meðferðis og sagði hann að það hefði ekki væst um þau. .,,í raun og veru var þetta engin svaðil- för og varla til þess að segja frá í blöðum," sagði hann. * ----------------------------- Feðgina leitað í Mælifellsdal: gær, sem Guðbrandur fann þau feðginin. Höfðu þau þá verið um það bil sólarhring á ferð. Tvær snjóskriður féllu í Önundarfirði: „Sá skriðuna koma æðandi með mikl- um gný og mekki” — raf magnslaust á Súgandafirði, snjóf lóðavarnir björguðu miklu „Eg heyrði miklar drunur úr Eyrarfjalli og þegar ég leit í áttina þangað sá ég hvar snjó- skriðan æddi nióur með mikl- um hraða og allt niður í sjó,“ sagði Þorsteinn Jónsson frétta- ritari DB á Flateyri við Öndundarfjörð í samtali við blaðið í gær. Skriðan fór yfir veginn skammt utan við þorpið og tók með sér fimm rafmagnsstaura svo rafmagnslínur til Súgandafj. slitnuðu. Mældist skriðan um hálfur kílómetri á breidd og fór um 6-700 metra leið niður úr fjallinu. Gerðist þetta um kl. 18 á sunnudags- kvöld. Um hádegi á sunnudag félf önnur skriða innar í önundar- firði. Var sú um 400 metra breið og fór yfir veginn og lokaði honum við Selaból. Hafði þar með verið klippt á vegasamband við innsveitina ogvarðað fara sjóleiðina á flug- völlinn. Grjótgarður, hlaðinn til varnar gegn snjóflóðum, barg^ símalínum þar. Þorsteinn sagði að mikill mökkur hefði staðið upp af skriðunni sem hann sá æða niður Eyrarfjall um 1 km utan við Flateyri. „Það hefur tekið skriðuna 2-3 minútur að falla," sagði Þorsteinn, „og var gnýrinn af henni mikill. Hann sagðist ekki hafa séð skriðuna fara af stað, heldur hafa litið upp þegar hann heyrði drunurnar. Unnið var að því að grafa upp rafmagnsstaura og síma- línur í gær, svo og að ryðja veginn þar sem skriðurnar fóru yfir. Engan sakaði í snjó-' flóðunum en maður nokkur á. Flateyri var nýiega kominn frá öskuhaugunum, þar sem skriðan fór yfir að hluta þegar síðari skriðan féll í fyrrakvöld. -ÖV/ÞJ, Flateyri. Ráðherrar við spennandi átök Meirihluti ríkisstjórnar mætti í Laugardalshöll Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins gjörsigruðu samráðherra sína úr Framsóknarflokknum á laugar- daginn þegar íslenzka landsliðið í handknattleik sigraði það v- þýzka. Fjórir Sjálfstæðisráðherr- ar mættu til landsleiksins gegn aðeins einum framsóknarráð- herra. Líklega hefur áhugi al- mennings á handbolta sjaldan eða aldrei verið meiri, enda hefur ís- lenzka liðið náð meiri og betri árangri en nokkru sinni fyrr, lagt þrjár af beztu handboltaþjóðum veraldar, Pólverja, Tékka og nú V-Þjóðverja tvívegis. Á myndinni sjáum við nokkur hundruð æsta handboltaáhorfendur, þar á meðal ráðherrana, fimm af áttá. Frá vinstri eru Gunnar Thorodd- sen, Einar Ágústsson, Matthías frfálst, óháð dagblað Völvan spáði snjó- flóðunum fsjón- varpinu Fleiri snjóflóð ættu ekki að falla á Islandi i ár, ef marka má völvu, Halldóru Björt Öskars- dóttur, sem viðtal var við í sjón- varpsþættinum „Úr einu f ann- að“ á sunnudagskvöldið. Sagði Halldóra Björt þar að snjóflóð ættu eftir að falla tvisvar í ár, annað á Aust- fjörðum og hitt fyrir vestan. A milli þess sem viðtalið var átt við völvuna og þess að það var sýnt, féllu þessi snjóflóð, þótt fréttir af skriðuföllunum í Önundarfirði bærust ekki fyrr en í gær. Virðist því sem spádómur völvunnar hafi rætzt jafnvel fyrr en hún sjálf átti von á. -ÖV. Bjarnason, Matthías Mathiesen og Geir Hallgrímsson. A myndinni má og sjá borgarfulltrúa Fram- sóknar, Kristján Benediktsson og Jón Skaftason þingmann sama flokks, ásamt aragrúa af öðru góðu fólki.(DB-mynd Bjarnleifur) Brezki sendlherrann SÓTTI HVAMMS- TANGA HEIM Sendiherra Breta á íslandi kom í heimsókn til Hvamms- tanga á laugardaginn. Daginn áður hafði hann verið á Akur- eyri. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem hann heimsækir þessar slóðir á þessum árstíma. Sendiherrann skoðaði ýmis mannvirki á Hvammstanga, svo sem Sjúkrahúsið og rækju- vinnsluna. Þá hélt Lionsklúbb-i urinn Bjarmi á Hvammstanga honum samsæti. Um nóttina gisti hann síðan á Tjörn á Vatnsnesi. Brezki sendiherrann var ákaflega heppinn með veður. Hér var logn og sólskin en mik- ill snjór. — Robert Jack/AT-

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.