Dagblaðið - 12.02.1977, Page 2

Dagblaðið - 12.02.1977, Page 2
 2 r DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977. MEÐ FIÐRINGIMAGANUM —er farið að huga að „réttu ferðinni” —en hún finnst ekki nema fá prísana líka Nú líður undir enda þorra gamla, og ekki hefur hann verið grimmur við okkur að þessu sinni. Að visu hefur verið þyrkingsfrostgutlingur, en snjó er ekki að sjá hér syðra nema tína fram myndirnar síðan í fyrra. Mér varð það á í haust að kaupa mér ný snjódekk með súpermunstri, þótt gömlu dekk- in væru ekki búin að ná hámarkssliti, ég var orðinn leiður á því í fyrra að vera ekki á snjódekkjum nema að nafn- inu til. En ég þykist sjá í hendi mér, að þau hefðu dugað mér takk bærilega í vetur. Og ég er jafnnær um, hvort súper- munstrið er eins mikið súper og af er látið. Það verður senni- lega næstum horfið þegar það kemur í snjó. En þótt snjór komi kannski einhver það sem eftir er vetrar, verður það varla neitt til að bretta grönum yfir. Gamalt spakmæli segir: Illa stendur út- mánaðasnjórinn. Þó dreymdi mig þann veg á dögunum, að við myndum fá þriggja daga snjó einhvern tíma fyrir vorið, þar af einn verulegan snjódag en tvo minni. Nú er bara eftir að vita hvort mínir draumar eru spálegri en þeirra Kröflu- dreymenda. Já, maður er sosum farinn að hugsa eins og veturinn sé á undanhaldi. Og eins og venju- lega á þessum árstíma leitar hugurinn æ meira til sólar og hlýinda; maður má varia sjá flugvél svo maður fái ekki gamalkunnan fiðring í magann og hugsi með löngun til þeirra staða þar sem maður þarf ekki að vera dúðaður heldur getur farið út á brókinni svo að segja, án þess að blána af kulda eða vekja almenna undrun og jafn- vel hneykslun. Og ekki læknar auglýsingaél ferðaskrifstof- anna þennan fiðring, enda heldur ekki til þess ætlað. Árlegur útmánaðafiðringur i maga Háaloftsritara hófst rétt um áramótin, er Ferðaskrif- stofan Utsýn sendi honum daga- tal snotúrt í sniðum, með miklu af brjóstastóru og jafnvel brjóstaberu kvenfólki undir berum himni. Innan sviga má kannski skjóta því hér inn í, að mér er kunnugt um heimili með fimm stálpuðum sonum þar sem ennþá er verið að slást um þetta dagatal, jafnvel þótt nú séu nánast slitrurnar einar eftir af því. Nema hvað ef grannt er gáð í kringum kven- fólkið á þessu dagatali má sjá ýmislegt af því landslagi, sem hugurinn leitar til á þessum árstíma, en þó ennþá fremur því loftslagi og hitafari. Og þar við bætist, að fyrir utan mynd- irnar og sjálft dagatalið eru þarna nokkrar grundvallarupp- lýsingar um það, hvert sé hægt að komast á sumri komanda með téðri ferðaskrifstofu, meira að segja hvaða daga verði lagt upp. Síðan hef ég verið að þreifa fyrir mér um nánari upp- lýsingar ef vera kynni að hægt væri að spara fyrir einhverri upplyftingu af þessu tagi með því til dæmis að hætta að éta smjör eða hætta að reykja úr því maður vinnur nú aldrei í happdrætti. Eitt af því fyrsta er þá að vita hvað það kostar að fara þessar ferðir. Og alltaf er verið að hvetja mann til að velja réttu ferðina tímanlega. En til þessa dags hefur mér ekki tekist að fá upp- lýsingar um verð þeirra né heldur hvað sé falið í því verði. Það skal þegar í stað tekið fram, að þetta gildir ekki um Útsýn eina, heldur allar þær ferðaskrifstofur, sem ég hef haft samband við, — að Land- sýn undanskilinni, sem lofaði að póstleggja til mín allar upp- lýsingar fyrir lok þessarar viku.Annars staðar frá er þess víst ekki að vænta fyrr en undir mánaðamót eða kannski í mars. Og fyrr treysti ég mér ekki til að velja, ef ekki fer þá eins og venjulega að maður ýtir öllu frá sér mæðulega og vonar að nýtt skattalagafrumvarp hressi svolftið upp á fjárhaginn á næsta ári. Raunar skal ég játa það, að þrátt fyrir miklar vangaveltur um þessi efni og magafiðring langar mig svo sem ekkert ýkja mikið í smalferð með mörgum tugum landa minna á einhvern afmarkaðan stað. Ég hef raunar aldrei farið slfka ferð, en heyrt sögur af þeim og séð til hópa íslendinga á erlendri grund. Það er lítil von að fá að vera í friði eða geta hvfit sig ærlega, eins og draumurinn hneigist raunar tii, og fjarska litlu kynnist maður af liferni framandi þjóða í svona smalferð. Og hvað á maður sosem að gera til Kanaríeyja að hlusta á „er ég kem heim í Káaioftið SIGURÐUR HREIÐAR HREIÐARSSON Búðardal" af plötu? En illt er betra en ekkert, segir einhvers staðar, og fjár- hagurinn hlýtur að ráða að ein- hverju leyti. Því það er nú svo raunalegt með flugfargjöldin okkar, sem er fyrsti aðgöngu- miðinn að framandi slóðum, að fargjaldið eitt, fari maður upp á eigin spýtur, er nokkurn veg- inn jafnhátt og ferða- og hótel- kostnaður f meðal smalferð í hálfan mánuð, fyrir nú utan það, að átthagafjötrar gjald- eyrissölunnar gera manni ókleift að rangla um löndin á eigin spýtur nema kannski örfáa daga næst þeim flugvelli, sem lent kynni að verða á. Þetta er gert tíl að bjarga þjóðinni. Helvftis barlómur er þetta f manninum, sýnist mér sem éin- hver segi. Hvað þarf hann að vera að þvælast til útlanda? Hann getur bara hunskast þangað sem sólin skín á skerinu okkar góða. Rétt er það og satt, og ýmsa staði á ég þar óskoðaða. En það er bara dýrara heldur en utanflakkið, þegar dæmið er upp gert, með hótelkostnaði og mat — því annars er ekki um sambærilegan hlut að tala. Og það er ekki hætta á að heima- flakkið gleymist, þótt einhverju öðru kynni að verða skotið inn f. Og þess vegna bíð ég og vona að ferðaskrifstofurnar fari senn að hafa tölur sínar og upp- lýsingar til reiðu, svo póstinum fari að rigna inn um rifuna á hurðinni. Þá fyrst verður hægt að velja réttu ferðina — verði það á annað borð kleift með einhverju móti. r |4- 11 |n m nf ui um g ■ yoO ð Eiríkur nll mát wÆ ■ ■ t m*m M Einarsson DYKKUm mur fráHæli Vísur og vísnaspjall Jón Gunnar Jónsson Fáar munu þær stofnanir á íslandi þar sem skáld eða hagyrðingar koma ekki við sögu. Margir alþingismenn fyrr og sfðar hafa verið skáldmæltir. Einn þeirra var Eiríkur Einarsson frá Hæli í Gnúpverjahreppi. Hann var fæddur 1885 og dó 1951. Eiríkur var fyrst kosinn á þing 1920 og var síðan nær til æviloka, með nokkrum hléum, alþingismaður. Á dánarári Eirfks komu út Vfsur og kvæði, sýnishorn af kveðskap hans. Þaðan eru teknar eftir- farandi tækifærisvfsur. Eirfkur var lögfræðingur og borgara- leg staða hans, auk þingmennskunnar, var útibússtjóri banka á Selfossi, og sfðari ár starfaði hann í banka í Reykja- vík. Hann yrkir um þetta fjórar sam- felldar vfsur og kallar kvæðið Gisting. Fyrsta vfsan hljóðar svo: Einatt blíni ég augnasúr út um glygg á þykkum múr, múrinn sá er bankans búr, búrinu vil ég komast úr. Þannig lýsti Eirfkur manni, sem honum þótti beggja handa járn og nokk- uð viðsjáll: Best er að eiga undirtök á þeim góða vini, sem er eins og opin vök orpin mánaskini. Eiríkur og Jörundur Brynjólfsson kepptu lengi um hylli kjósenda austan- fjalls og veitti ýmsum betur. Lengi voru þeir báðir þingmenn fyrir Arnessýslu. Eirfkur sjálfstæðismaður, Jörundur fyrir Framsókn. Eftir kosningarnar 1937 skrapp þessi vísa af vörum Eirfks og varð landfleyg: Jafnan sigrar Jörundur, játum vorar nauðir. Hann er f jár- og f jörhundur, en fólkið mestu sauðir. Þannig lýsti hann þingmannahófi: Veisla þessi og vinahót verða ei nema prettir. Eftir skammvinnt skálamót skyrpa þeir eins og kettir. Einhverju sinni að loknum mörgum framboðsfundum varð Eiríki að orði: Ertu ei þreyttur, munnur minn? Mjög var reynt á þrekið. Nú höfum við í sjötta sinn sama rjómann skekið. Kannski er frægust vísna Eiríks sú, er hann nefndi Heybrækur: Man ég svona brækur best blásnar í rjáfri hanga. Nú hafa þær á þingi sést, þóst vera menn — og ganga. Margar vfsur orti hann á þingi. Ein var svona: Hjörðin, sem er dauf og dreifð, dugir ei móts við bítinn. Okkar fagra föðurleifð, frelsið, treðst í skítinn. Önnur var þessi. Övenjufá mál voru á dagskrá. Heiðri þingsins hrakar nú. Háttar dagskrá leiðri eins og væru eitt til þrjú egg í tittlingshreiðri. Hér er nýársvísa. Tímans fákur tygjaður, treður nýárshlaðið. Nú er hann skuggaskýjaður, skal þó lagt á vaðið. Svona lýsti hann að gamni sfnu sóknarpresti: Hér stendur stirðvaxinn klerkur, stóriax að ærunni. 1 sálinni er vaxtarverkur og vorull á gærunni. Hér er beðist gistingar. Sígur yfir heiminn húm; herra náðargjarni, Ijáðu hentugt legurúm lífsins tökubarni. Hér kemur kvenlýsing: Stúlkan er sem stærðarf jall, strandbergjuð og gljúframörg. Hún á að fá sér kræfan kall og kenna honum að síga i björg. A hernámsárunum orti hann: Drúpir þjóð í höndum hers, horfir út í biáinn. Býr á milli báru og skers blessuð frelsisþráin. Þessa þingvísu orti hann. I henni er nokkur orðaleikur. Eiríkur barðist fyrir bættum vegasamböndum f sínu kjör- dæmi, Árnessýslu, og var hinn svokall- aði Austurvegur honum mikið áhuga- mál, en samþingsmenn hans voru margir orðaðir við vesturveg, þ.e. sambönd við Ameríku. Enn held ég í austurveg, æsku minnar gestur, þó að ellin þreytuleg þokist öll í vestur. Jón Gunnar Jónsson S. 41046

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.