Dagblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977.
4
WASHINGTON: Stansfleld
,Turner aðmíráll, yfirmaður
herja Atlantshafsbandalagsins
í Suður-Evrópu, hefur verið
valinn til að taka við stöðu
Williams Colby hjá bandarísku
leyniþjónustunni, CIA. Turner
er gamali bekkjarbróðir
Jimmy Carters úr skóla banda-
riska flotans.
RÓDEStA: Þessar fjórar nunnur voru myrtar með köldu blóði síðasta sunnudag. Þær eru á aidrinum
42-71 árs. þrjár vestur-þýzkar en ein frá Englandi. Mikil leit hófst að morðingjunum siðla dags á
sunnudaginn nokkru eftir að þær voru skotnar ásamt þremur rómversk-kaþólskum prestum.
ENGLAND: Suður-afriski kappakstursmaðurinn ók þessum nýstárlega kappakstursbil i tilraunaskyni
í Silverstone í vikunni. Biilinn, sem nefnist March 2-4-0, er enn á tilraunastigi og ef hann reynist vel
verður hann notaður í Formula 1 keppni síðar á árinu. — Það sem er óvenjulegt við March 2-4-0 er að
hann er sexhjóla, hefur fjögur afturhjól með drifi og tvö framhjól. Þetta er fyrsti biliinn, með drif á
f jórum hjólum, sem reyndur er í kappakstri.
ENGLAND: Elisabet Bretadrottning gróðursetti á mánudaglnn
eikartré í Viktoria Tower Garden við hlið þinghússins. Tilefnið var
að drottningin hefur nú setið að völdum í 25 ár.
BEIRÚT, Líbanon: Kurt Waldheim aðaiframkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna hefur verið á ferða'.agi um nokkur Mið-austurlönd að
undanförnu og orðið taisvert ágengt i viðræðum sinum við valda-
menn. Hér sést hann virða fyrir sér húsarústir í Beirút — af-
leiðíngu borgarastyrjaldarinnar sem er opinberlega lokið, þó að
reyndar sé enn barizt víða.
MAYPORT, FLORIDA: Hópur strandgæzluliða og sjálfboðaliða vann að því aðfaranótt 7. febrúar að
halda lífinu í þessum smáhvolum sem syntu á land. Nauðsynlegt var að sprauta á þá vatni og ieggjá
yfir þá votar mottur til að halda þeim rökum. Um morguninn voru hvalirnir bornir út í sjó en þá höfðu
yfir 100 þeirra drepizt. — Svona strand er mjög sjaldgæft.
ASGEIR
TÖMASSON
Erlend myndsjá