Dagblaðið - 12.02.1977, Page 6

Dagblaðið - 12.02.1977, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977. Hjólreidar stundaöar árið um kring í blíðviðrinu: HOLLT FYRIR LÍKAMA OG SÁL - OG SVO ER BENSÍNSPARNAÐURINN Það er hollt að hjóla. Þessu má slá föstu. Hreyfingin er hófleg, nema helzt í brekkunum, og útiloftið örvar ótrúlega mikið, segja okkur hjólreiðakappar sem Dagblaðsmenn hittu að máli einn þessara góðviðr- isdaga sem við höfum fengið þetta árið. Við ræddum við nokkra þessara hjólreiðamanna sem eru svo lukkulegir að búa við hestaheilsu, utan það að þeir þurfa aldrei að sveigja inn á bensínstöðvarnar með farartæki sín og eyða þar stórum peningi í eldsneyti á fararskjótann. Karl Guðmundsson leikari er meðlimur í reiðhjólaklúbbi leikara LR og hjólar einatt í leikhúsið. Ekki er furða þótt Karl sé hress í anda því auk hjólreiðanna syndir hann reglulega. tsleifur Þorkelsson, sem vinnur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, hefur hjólað i 30 ár og hyggst halda því áfram í a.m.k. önnur 30. „Þetta heldur heilsunni góðri og er oft mun fljótlegra en vera á bíl ef umferð er mikil. Arni Bergmann blaðamaður á Þjóðviljanum kveðst ekki kunna á bil en nefnir hjólið sitt GK 1, eftir bíl föður sfns, en það var 1. bfllinn I Gullbringu- og Kjósarsýslu. Arni sagði að margir yrðu lífhræddir á hjóli í umferðinni en sin reynsla væri að yfirleitt væru bflstjórar dauðhræddir við hjólreiðamenn. Hér sjáum við Arna með fararskjót- ann í tröppum. Hnallþór Ingason frá Lögleysu — þ.e.a.s. ungur maður sem virðir ekki nægjanlega umferðarreglurn- ar. DB-myndir Arni Páll. Lagarfoss kyrr enn um sinn — vonazt til að málin skýrist eftir hádegi Ekki tókst skreiðarútflytjend- veð í farminum og fara fram á unum, sem eiga farminn í Lagar- fossi, að ganga nægilega frá mál- um sínum í gær til að útflutnings- leyfi fengist og að skipið gæti haldið úr höfn áleiðis til Nígeríu. Eins og blaðið skýrði frá í gær var skipið ferðbúið fyrir siðustu helgi en fékk ekki að fara þar sem útflytjendurnir, SlS, Skreiðar- samlagið og tsl. umboðssalan, höfðu ekki fengið nægilegar bankatryggingar að utan fyrir að farmurinn yrði greiddur. Lands- og Utvegsbankinn eiga fyrrnefndar tryggingar, en út- flutningsleyfi eru ekki afgreidd fyrr en bankarnir hafa samþykkt fyrir sína hönd. Skv. upplýsingum frá Eimskip í gær var haldínn fundur um málið í morgun og að honum loknum var sú von látin í ljós að málið leystist eftir helgi en skipið getur haldið úr höfn fyrirvaralaust þegar tilskildir pappirar eru komnir í lag. -G.S. Guðmundarmálið þing- f est í byrjun marz Guðmundarmálið verður að líkindum þingfest í byrjun næsta mánaðar, að sögn Gunnlaugs Briem sakadómara sem verður dómsforseti. „Það er eftir töluverð vinna við þá frekari rannsókn málsins sem við óskuðum eftir,“ sagði Gunn- GÓLFTEPPI fyrir heimili—stigahús—skrifstof ur AXMINSTER Grensásvegi 8 — Sími 30676 laugur i „Fyrr en ekkert í um.“ samtali við DB i gær. henni er lokið gerist sjálfum málarekstrin- Fjórir menn hafa verið ákærðir fyrir að eiga aðild að bana Guð- mundar Einarsson í janúar 1974, þeir Kristján Viðar Viðarsson, Sævar Marfnó Ciesielski, Tryggvi Rúnar Leifsson og Albert Klahn Skaftason. Sá síðastnefndi er að- eins ákærður fyrir að hafa aðstoð- að við að koma llkinu undan og afmá verksummerki brotsins. -ÓV. Guðmundur Einarsson. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Simi 15105

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.