Dagblaðið - 12.02.1977, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977.
14
r
Lff mitt með Spider Sabich
--------------------------'
— Claudine Longet segir
frálífiogdauða
skíðakappans Sabich
v
Bærinn Aspen í Colorado 1
Bandaríkjunum komst sky'ndi-
lega í fréttir heimspressunnar
þegar Claudine Longet, fyrrum
frú Andy Williams, skaut friðil
sinn, skíðakappann Spider
Sabich til bana þar í bæ.
Nú skreyta bílar sig með lím-
miðum þar sem á er letrað:
Þetta er allt Claudine að kenna.
Réttarhöldin voru vart byrjuð
þegar bæjarbúar höfðu dæmt
hana. Sabieh, sem tvisvar hafði
orðið heimsmeistari at-
vinnumanna, var hetja í augum
allra bæjarbúa. Longet er 35
ára, fjórum árum eldri en
Sabich. Hún hafði flutt til hans
áður en hún var löglega skilin
við Andy Williams. Þessi fyrr-
verandi söngkona frá Las Vegas
varð eiturtungum bæjarins að
bráð. Hún var talin léttúðug og
sjálfselsk kona sem sveifst
einskis.
Það er skiljanlegt að
Claudine hafi séð Iíf sitt með
Spider í öðru og fallegra ljósi
en bæjarbúar.
„Þessi fjögur ár sem ég bjó
með Spider voru hamingjusam-
asti og bezti tími lífs míns,“
segir hún. „Við vorum að öllum
líkindum allt það sem maður og
kona geta verið hvort öðru.
Hann var bezti vinur minn.“
Þrátt fyrir þetta paradisarlíf
þeirra i Aspen, þar sem róman-
tíkin blómstrar og fölnar eftir
bankainnstæðum hverju sinni,
virtist utanaðkomandi sam-
band þeirra ekkert innilegra
en margra annarra. Að visu
stóð það kannske lengur. Hún
fór frá Andy Williams árið 1970
og hitti Sabich árið 1972 á
skíðamóti þar sem margt
frægra manna var viðstatt. Hún
,Við Spider lékum okkur eins og litil börn,“ segir Claudine.
Hér ieikur hún sér i snjónum ásamt börnum sínum og tveim vina þei»ra. Talið frá vinstri Jayne
Freeman, Christian, Bobby, Kell Johnson og Noelle.
. * landinu, .. . og víðtækari
geta haldið niðri öllum óeiroar- nanda forseta landsins. .
J
«-tL -trifi -k’ +:td
- ■• ■■• - ••••*« -
Franska sttngkonan Claudino stjðrnuna Vlidiinir' Sabich, til ,
Longet var dœmd l 30 daga dauða.
fangelsi f borginni' Aspen I Var tilkynnt við dómsupp- '
Colorado 1 gær fyrir óviljandi kvaðninguna, að hún gaKi setið
manndráp er hún skaut elsk- af sér dðminn.hvenær seinyseri:
huga sinn, fyrow sklða- fyrir sumarið. ■ . . j
Frétt í DB 1. febrúar sl. um dómsuppkvaðninguna.
flutti ásamt börnum sínum,
Noelle, 13 ára, Christian, 11 ára,
og Robert, 7 ára (hún á þau
með Andy Williams) inn í 250
þúsund dala villu sem Sabich
lét byggja í Aspen. Hún var
útbúin með saunabaði, vatns-
rúmi og fleiri slíkum lúxus
tækjum. Lífsstíll þeirra var
talsvert öðruvísi en hún átti að
venjast með Andy Williams.
Lífinu var tekið með miklu
meiri ró. „Við fórum að reiða
okkur betur hvort á annað,“
segir Claudine. „Noelle og ég
urðum betri vinir og við nutum
þess að gera hlutina saman,
eins og þégar við fórum út í
skóg og hjuggum okkur jólatré.
Það var mikil breyting frá því
sem áður var, þegar NBC út-
varpsstöðin sendi okkur jólatré
á hverjum jólum.“
Þau nutu þess að fara í
gönguferðir og á hestbak og
hann „var félagi og kennari
barnanna“ að því er hún segir.
„Við sáðum fræjum í garðinn
og bárum síðan áburð á. Eg get
ekki ímyndað mér Andy
liggjandi í moldinni og berandi
húsdýraáburð í garða. Börnin
elska og dá Andy, en þau gátu
farið í eltingaleik og gert
hlutina með Spider,“
Líf þeirra var í stil við tíðar-
anda Aspen. I þessari borg þar
sem á hverju voru er haldin
keppni um hver hafi fegurstu
brjóstin.Þar sem einn vínbar er
á meðaltali á eina stóra blokk.
Sabich og Longet voru ekki
mjög heimakær. Dagblað eitt í
Denver lýsti Aspen sem
„höfuðborg hvíta duftsins“ og
Spider og Claudine áttu marga
kunningja meðal þeirra sem
álitið var að kunnugir væru
duftinu.
Sabich var írá keppni vegna
meiðsla árin 1973 og ’74. Árið
1975 þénaði hann aðeins 800
dali , í skíðakeppnum. En
Longet fékk við skilnaðinn frá
Andy Williams um eina milljón
dala (190 millj. ísl.). „Spider og
ég töluðum aldrei um peninga,“
segir hún „og ég reyndi aldrei
að gefa honum peninga. Hann
var húsbóndi á sínu heimili.
Það var engin spurning um
það.“
Síðastliðinn vetúr fór sam-
band þeirra hríðversnandi og
hann gerði henni að flytja úr
húsinu fyrir 1. apríl. Þau rifust
iðulega opinberlega og eitt sinn
kippti hún stólnum undan hon-
um. Það var mikið talað um
samband þeirra. Aðfaranótt 21.
marz 1976 gerðist það sem
verjendur hennar kalla ,,slys“
en sækjendur „kærulausa
meðferð 22 kalibera skamm-
byssu“. Atvikið sem skildi
Sabich eftir látinn á baðher-
bergisgólfinu.
Longet segist nær ekkert
muna eftir þessari afdrifaríku
nótt. Á sjúkrahúsinu sat hún og
muldraði í sifellu. „Ég skaut
Bobby spurði hana hvort hún
væri í fangelsi. Claudine sagði
nei. — Augnabliki síðar var
hann farinn að leika sér að
bílunum sínum.
I desember 1975 virtust baeði
frami hans á skiðum og ástin tll
Claudine vera að renna út i
sandinn.