Dagblaðið - 12.02.1977, Side 15

Dagblaðið - 12.02.1977, Side 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977. r A leið í réttarsalinn með fyrrverandi eiginmanni sínum Andy Williams (t.h.) og lögfræðingnum Rom Austin. Spider. Þetta var slys, ég ætlaði ekki að gera þetta.“ „I marga daga,“ segir hún, „var ég á barmi örvæntingar. Ég gerði mér ekki grein fyrir hvað gerzt hafði, og ég vissi ekkert af heiminum í kringum mig.“ Hún sagði lögreglunni að Sabich hefði verið að sýna henni hvernig nota ætti byssu er skot hljóp úr henni — og sér- fræðingar í meðferð skotvopna báru að öryggislásinn hefði verið bilaður. Hún var handtekin og látin laus gegn ábyrgð. Smám saman tókst henni að venjast hinu daglega lífi. „Ég fór i langar gönguferðir, — einn eða tvo klukkutíma á hverjum degi,“ segir hún. „Og eitt sinn á þess- um ferðum mínum tók ég eftir því aðgrasiðvar farið að gróa og ég gladdist. Það var komið vor.“ Andy Williams kom henni strax til hjálpar og var kominn við hlið hennar aðeins nokkr- um tímum eftir skotið. Hann studdi hana með ráðum og dáð allt fram til þessa dags. Hér áóur fyrr hafði hann oft þurft að róa þessa tilfinninganæmu konu. Márgir sjónvarps- áhorfendur minnast hve hann reyndi að hugga hana þegar hún byrjaði allt í einu að gráta stjórnlaust í jarðarför Bobby Kennedy. í júní síðastliðnum keypti hún hús í gamla borgarhluta Aspen. Hún byrjaði einnig að kenna frönsku tvisvar i viku I barnaskóla þar rétt hjá.,,Það eina sem hélt mér gangandi var ást barna minna og Andy,“ segir hún. Einhverjir furða sig á að hún hafi viljað dvelja í Aspen eftir þennan atburð, en hún segir: Ef ég hefði farið, þá hefði ég verið að hlaupast á brott, takandi sár mín eitthvað annað. Ég elska þessa borg og ég er hluti af henni. Ég vil ala börn mín upp hér i Aspen. Hún segist vera óhrædd við það fólk, sem talar illa um hana. „Ef einhver hefur kallað mig hóru og andstyggilega manneskju, þá er mér alveg sama“ og bætir við: „Heimili okkar er ekki heimili sorgar- innar. Sorg mín býr inni fyrir, í hjarta mínu. Hver veit hvað framtíóin mun bera í skauti sér, ég mun ekki taka þátt í neinu sýningar- standi framar. Ég vil stunda hestamennsku og eignast bóndabæ og ala upp kjúklinga og endur.“ í næstu andrá segist hún vilja fara til Tíbet og leggja stund á fornleifafræði. „Ég breytist eftir þeim sem ég er með í það og það skiptið og hvar. Mér þótti ofsalega gaman að fara á frumsýningar með Andy. Ég ímyndaði mér að ég væri prinsessa og svo gat ég hlegið að því að þremur dögum síðar var ég að velta mér upp úr drullunni í Aspen.“ Hún á sér engan fylgisvein þessa stundina og hún hefur samskipti við mjög fátt fólk og þá mjög nána vini sína. Éinnig hefur hún mikið samband við systur sína. Danielle, sem er 28 ára og býr I nágrenni Los Ang- eles. Umhugsunin um framtíðina minnir hana á fortíðina. „Spider og ég vorum virkilegir félagar," segir hún. „Þegar við vorum saman þá var lífið sf- felldur hlátur og ævintýri. Hann kenndi mér að fljúga, kanna landið, hlæja og leika. Ég veit ekki hvort nokkur getur nokkurn tíma fyllt plássið hans.“ kokkteiltími) á elliheimili einu kom í ljós að heilsufar vist-, fólksins batnaði stórlega. Og ekki nóg með það, öll líðan fólksins varð miklu betri. Það varð betra í umgengni hvort við annað og einnig við starfsfólk- ið. A öðru elliheimili var farið að gefa vistmönnum glas af koníaki með kvöldkaffinu. Allir urðu svo afslappaðir að með óllkindum var og neyzla róandi lyfja féll úr 40% niður í 18%. Þið skulið þvf ekki hafa nein- ar áhyggjur þótt amma gamla fái sér neðan í því svona af og til. Þýtt úr Daily Mirror, Á.BJ. urra bandarískra lækna er þeir voru spurðir um hvaða álit þeir hefðu á skaðsemi hófsamlega drukkinna áfengra drykkja. Skaðsemi? Ekki nokkur skaðsemi sem af slíkri drykkju hlýzt. Öllum kom saman um að áfengi drukkið i hæfilegu magni sé hverjum manni hollt. Læknarnir sögðu að áfengi I hæfilegu magni hefði hjálpað mörgum sjúklingum á leið til fullkomins bata og hefði hreinlega komið í veg fyrir að aðrir yrðu sjúklingar. „Hófdrykkjumenn eru lang- lífari og þeim er síður hætt við að fá hjartaáfall heldur en fyrr- verandi drykkjumönnum, eða þeim, sem aldrei hafa bragðað áfengi," segir bandariskur læknir í bók, sem hann hefur nýlega gefið út og nefnist .Drink to your health". Þar er einnig sagt frá tilraun sem gerð var á bræðrum, 94 alls. Þessir bræður áttu það sameiginlegt að annar drakk en hinn var bindindismaður. Þeir bræðurnir er brögðuðu áfengi lifðu allir lengur en hinir. Það varð að hætta tilrauninni þegar síðasti bindindisbróðirinn var allur. En á hvern hátt er áfengis- drykkja gagnleg fyrir heilsu- farið? Ef eitt eða tvö glös af víni eru drukkín með mat hjálpar það til við efnaskiptin og fæðan meltist betur og fljótar. Þess vegna eru hjarta- og æða- sjúkdómar ekki eins tiðir í löndum eins og Frakklandi og ítaliu þar sem vín er hluti af daglegri fæðu. Alkóhól vikkar út blóðæðarnar i kringum hjartað Loksins koma góðar fréttir fyrir þá, sem þykir bæði gott og gaman að fá sér í glas, eins og það er kallað. Smásopi af því sem þér finnst smakkast vel, lætur þér líða vel, er þér alveg skaðlaus. Nú hefur komið i ljós að það gerir þér líka heilmikið gott. Þetta er samdóma álit nokk- og minnkar því álagið á það. Bandaríski hjartasér- fræðingurínn Irving Wright ráðleggur sjúklingum sínum að fá sér eitt eða'tvo staup af viskí fjórða hvern klukkutíma. Hann segir að það séu fá lyf, ef það eru þá nokkur til, sem víkka æðarnar jafn vel út og viskí eða koníak. Afengið lækkar einnig blóðþrýstinginn verulega og heldur honum niðri í þrjá til fjóra klukkutima. Þess vegna ráðieggja margir læknar sjúklingum með hjartaverk að fá sér einn snafs. Þegar tekið var upp á þvi að framleiða kokkteil (kl. 5-7 sem erlendis er jafnan kallaður ........ Góðar fréttir fyrir hófdrykkjumenn: Áfengisdrykkja hefur góð áhrtf á heilsufarið Gef ið gamla fólkinu í glas — það hressir, bætir og kætir

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.