Dagblaðið - 12.02.1977, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977.
23
Utvarp
Sjónvarp
S>
Sjónvarp á morgun kl. 21.10:
Hertogahjónin komu
ekki til bruðkaupsins
N
Sjónvarp á morgun
kl. 16.00:
Hiísbændurog hjií
James
reyndist
foreldrum
sínum erfiður
Á síóasta sunnudag var
sýndur í sjónvarpinu fyrsti
þátturinn af sjö um ævi Jennie
Jerome, móður Winstons Chur-
chills. Annar þátturinn er á
dagskránni í kvöld og nefnist
hann Frú.
í fyrsta þættinum sagði frá
uppeldi Jennie á heimili for-
eldra hennar í New York. Faðir
hennar var auðugur kaupsýslu-
maður og móðir hennar var
mjög metnaðargjörn, en hún
var af indíánaættum.
Hún fluttist til Parísar með
dætur sínar þrjár, því hún vildi
fyrir alla muni gifta þær aðals-
mönnum af evrópskum upp-
runa. Eftir fimm ára dvöl í
París fóru þær mæðgur til
Englands og er þær höfðu
dvalið þar i nokkrar vikur, hitti
Jennie Randolph Churchill og
urðu þau yfir sig ástfangin.
Ekki var það þeim auðsótt að
fá leyfi foreldra sinna til að
ganga í hjónaband, en það tókst
þó eftir átta mánaða trúlofun.
Síðar vakti það mikið
hneyksli er elzti sonur þeirra
Jennie og Randolphs, Winston
Churchill, fæddist aðeins sjö
mánuðum eftir brúðkaupið.
Frá því var skýrt i blöðum að
hann hefði fæðzt tveimur mán-
uðum fyrir tímann.
Bandaríska leikkónan Lee
Remick fer með hlutverk
Jennie og er hún bæði fögur og
leikur vel. Þáttur þessi er ekki
sendur út í lit og er það miður,
en myndin er á filmu en ekki
myndsegulbandi. Því miður á
sjónvarpið okkar ekki enn
tæki til þess að senda litfilmur
út í lit.
Þýðandi er Jón O. Edwald
A.Bj.
Á morgun verður sýndur annar
þátturinn í næsta þrettánþátta-
flokki myndaflokksins vinsæla
Húsbænda og hjúa. Þátturinn er á
dagskránni kl. 16.00 og nefnist
Tveir útlagar. Þýðandi er Krist-
mann Eiðsson.
Lafði Bellamy berst skuld-
heimtubréf frá skartgripasala í
London vegna skartgripa sem
James sonur hennar hafði keypt.
Hjónin hafa miklar áhyggjur af
syni sínum, sem er í lífverði kon-
ungsins. Yfirmaður hans kemur í
heimsókn og segir þeim að James
stundi mikið fjárhættuspil og hafi
tapað miklu fé og sé auk þess
óreglusamur. Óska þau eftir að fá
hann heim til þess að tala alvar-
lega við hann. James hefur verið í
tygjum við Söru, fyrrverandi
vinnustúlku, og hann heimsækir
hana oft. Sara segir honum að
hún sé barnshafandi,
Þátturinn Húsbændur og hiú
er sendur út í lit. A.Bj.
I
Útvarp á morgun kl. 19.25: Framhaldsleikritið
Brúðkaupið í Kana
og fleiri kraftaverk
Þriðji hluti framhaldsleik-
ritsins Maðurinn, sem borinn
var til konungs, eftir Dorothy
L. Sayers, er á dagskrá útvarps-
ins annað kvöld kl. 19.25. Þýð-
andi er Vigdís Finnbogadóttir.
Þátturnn annað kvöld nefnist
Konungsmaður nokkur. Fjallar
sá þáttur um brúðkaupið í'
Kana og fleiri kraftaverk Jesú.
Leikstjóri er Benedikt Árna-
son, en með helztu hlutverk
annað kvöld fara Þorsteinn
Gunnarsson, Gísli Halldórsson,
Hákon Waage, Valur Gíslason
og Kristín Anna Þórarinsdóttir.
Flutningstimi er 45 mínútur.
A.Bj.
|!
l;
Lee Remick og Ronald Pickup i hlutverkum sínum, dansandi af
hjartans lyst, þótt Randoiph væri ekki sérlega menntaður í dansiist
inpi.
)
Strauss-tónlist ílitum
Annað kvöld kl. 22.00 verður
sjónvarpað nýárskonsert í
Vínarborg, þar sem Fílhar-
moniuhljómsveit Vínarborgar
leikur. Eru það einkum verk
eftir Josef Strauss í tilefni af
því að liðin eru 150 ár frá
fæðingu hans. Stjórnandi er
Willi Boskowsky.
Þessi þáttur er í lit. Hann er
frá austurríska sjónvarpinu.
A.Bj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning.
ar.
12.25 Veðurfreghir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Viðvinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Móðir og sonur"
eftir Heinz G. Konsalik. Bergur Björns-
son þýddi. Steinunn Bjarman les (4).
15.00 MiAdegistónleikar: íslenzk tónlist. a.
„Endurskin úr norðri". hljómsveitar-
verk eftir Jón Leifs. Sinfóníuhljóm-
sveit Islands leikur: Páll P. Pálsson
stjórnar. b. „Helga fagra*1. laga-
flokkur eftir Jón Laxdal við texta
Guðmundar Guðmundssonar. Þuríður
Pálsdóttir syngur: Guðrún Kristins-
dóttir leikur á pianó. c. „Draumurinn
um húsið". tónverk eftir Leif Þórar-
insson. Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur: Páll P. Pálsson stjómar.
15.45 Um JóhannesarguAspjall. Dr. Jakob
Jónsson flytur niunda erindi sitt.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom.
17.30 Tónlistartími barnanna. Egill Frið-
leifsson sér um tímann.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mól. Helgi J. Halldórsson
flvtur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn. Erna
Ragnarsdóttir innanhússarkitekt
talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.25 íþróttaþóttur. Umsjón: Jón
Asgeirsson.
20.40 Ofan í kjölinn. Kristján Árnason sér
um bókmenntaþátt.
21.10 Konsert fyrir tvo gítara og hljómsveit
eftir Guido Santórsola. Sergio og
Eduardo Abreu leika með Ensku
kammersveitinni; Enrique Garcia
Asensio stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Blúndubörn" eftir
Kirsten Thorup. Nína Björk Arnadóttir
byrjar lestur þýðingar sinnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusólma
(7). Lesari: Sigurkarl Stefánsson.
22.25 Úr atvinnulífinu. Umsjón Magnús
Magnússon og Vilhjálmur Egilsson
viðskiptafræðingur.
22.50 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands og Söngsveitarinnar Fílharmoníu
í Háskólabíói á fimmtudaginn var; —
siðari hluti. Hljómsv.stj.: Karsten
Andersen. Kórstj. á æfingum: Mart H.
Friðriksson. Einleikur á trompet: Lárus
Sveinsson. Einsöngur: GuAmundur
Jónsson. a. Trompetkonsert í E-dúr
eftir Johann Nepomuk Hummel. b.
„Völuspá", kór- og hljómsveitarverk
eftir Jón Þórarinsson.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
Útvarp ífyrramálið kl. 9.00:
Nú vakna Borgnesingar snemma
Síðasta sunnudag voru það
íbúar Stykkishólms sem
hringdu í Einar Karl og Árna
Gunnarsson. 1 fyrramálið verða
íbúar Borgarness á beinni línu
til þeirra félaga.
Þátturinn er á dagskránni kl.
9 í fyrramálið. Heyrzt hafa þær
raddir 'að þetta sé kannski
heldur snemmt svona á sunnu-
dagsmorgni en ekki hefur borið
á öðru en að bæði stjórnendur
þáttarins og fyrirspyrjendur
séu vel vakandi. Hildur Eiríks-
dóttir og Ásta Jóhannesdóttir
standa sig einnig mjög vel við
að finna plöturnar sem leiknar
eru fyrir viðmælendur Einars
og Árna.
Pétur Gautur Kristjánsson
og Jón Guðmundsson bóndi á
Kollslæk í Borgarfirði hafa
samið spurningarnar. Er þetta
þriðji þátturinn með spurning-
um Jóns. Sannast sagna hafa
mér fundizt sumar spurning-
'arnar vera nokkuð langt sóttar,
t.d. þegar verið er að spyrja um
stjórnmálamenn og stjórnmála-
sambönd á dögum Rómverja.
Miklu skemmtilegra er að hafa
spurningarnar ,,léttar“ þannig
að allir „eigi“ að geta svarað
þeim. Fólk er samt furðu frótt
um hin ýmsu atriði sem spurt
er um. A.Bj.
^Sjónvarp
Laugardagur
12. febrúar
17.00 Holl er hreyfing. Norskur mynda-
flokkur um léttar líkamsæfingar
einkum ætlaðar fólki, sem komið^er af
léttasta skeiði. Hópur roskins fólks
sýnir æfingarnar. 2. þáttur. Þýðandi
og þulur Sigrún Stefánsdóttir. (Nord-
vision — Norska sjónvarpið).
17.15 iþróttir. Umsjónarmaður tíjarm
Felixson.
18.35 Emil í Kattholti. Sænskur mynda-
flokkur. Þegar Una fákk tannpínu. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögu-
maður Ragnheiður Steindórsdóttiri
19.00 íþróttir.
Hló.
20.00 Fréttir og veAur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Fleksnes. Norskur gamanmynda-
flokkur, gerður í samvinnu við sænska
sjónvarpið. Radíóglópurinn. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson. (Nordvision —
Norska sjónvarpið).
20.55 Gítarleikur í sjónvarpssal. Simon
ívarsson leikur lög eftir Bach og
Visée. Síjórn upptöku Tage Ammen-
drup.
21.10 RíkarAur þriAji. Leikrit Shake-
speares. kvikm.vndað árið 1955. Leik-
stjóri Laurence Olivier. Aðalhlutverk
Laurence Olivier, John Gielgud,
Ralph Richardson og Claire Bloom.
Leikurinn gerist í Englandi á siðari
hluta fimmtándu aldar. Skömmu eftir
að Játvarður fjórði hefur verið
krýndur konungur, hefur Rikarður
bróðir hans, sem er geðveill kroppin-
bakur, tilraunir tfl að sölsa undir sig
konungdóm. Textagerð Dóra Haf-
steinsdóttir.
23.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
13.febrúar
16.00 Húsbændur og hjú. Breskur mynda-
flokkur. Tveir útlagar. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
17.00 MannlífiA. Fimmtugsaldurinn.
Viðhorf manna til lífsins og tilver-
unnar taka oft ýmsum breytingum á
aldrinum milli 40 og 50 ára. Mjög er
misjafnt. hvernig fólk bregst við að-
steðjandi vanda. sumir kikna undir
byrðinni, aðrir glíma við erfiðleikana
og sigrast á þeim. I myndinni er m.a.
rætt við fólk, sem hefur fundið nýja
lífsfyilingu í starfi eða leik á fimm-
tugsaldrinum. Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjónarmenn:
Hermann Ragnar Stefánsson og
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.
Stjórn upptöku Kristin Pálsdóttir.
18.50 Enska knattspyman. Kynnir Bjarni
Felixson.
Hló.
20.00 Fróttir og veAur.
20.25 Auglysingar og dagskrá.
20.30 ÞaA er kominn bíll. Arni Johnsen
ræðir við Stein Sigurðsson um rafbil-
inn Rafsa og fleiri ökutæki sem Steinn
hefur teiknað og smíðað. Stjórn upp
töku Andrés Indriðason.
21.10 Janni* Breskur frámhaldsmynda
flokkur í sjö þáttum um ævi Jennie
Jerome, móður Winstons Churchills.
2. þáttur. Frú. Efni fyrsta þáttar:
Jennie elst upp á heimili foreldra
sinna í New York ásamt tveimur systr-
um sinum til ársins 1868, en þá heldúr
móðirin til Evrópu ásamt dætrunum.
Ætlunin er að finna þeim eiginmenn
af tignum ættum. Fyrstu fimm árin
eru þær í París, en fara siðan til
Englands. Eftir ríokkurra vikna dvöl
þar kynnist Jennie Randolph Chur-
chill, yngra syni hertogans af Marl-
borough. Þau hafa aðeins þekkst i
þrjá daga. er hann ber upp bónorð, og
átta mánuðum siðar ganga þau i
hjónaband gegn vilja hertogahjón-
anna og móður hennar. Þýðandi Jón
O. Edwald.
22.00 Nýárskonsart í Vínarborg. Að þessu
sinni leikur Fílharmoníuhljómsveit
Vínarborgar einkum verk eftir Josef
Strauss i tilefni þess, að í ár eru 150 ár
liðin frá fæðingu hans. Stiómancii
Willi Boskowsky. (Evróvision —
Austurríska sjónvarpið)
23.10 AA kvöldi dags. Séra Hjalti Guð-
mundsson, dómkirkjuprestur í
Reykjavík, flytur hugvekju.
23.20 Dagskráriok.