Dagblaðið - 14.02.1977, Side 14

Dagblaðið - 14.02.1977, Side 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. FEBROAR 1977. iþróttir íþróttir róttir Iþróttir ORÞREYTTIRISLENDINGAR AUÐVELD BRÁÐ SLASKARA! — Islenzka landsliðið tapaði þriðja leiknum gegn Slask í fslenzka landsliðið í handknatt- leik tapaði þriðja leik sínum fyrir pólska meistaraliðinu Slask í gær- kvöld suður i Hafnarfirði — nú skildu 7 mörk — 17-24. Leikur íslenzka landsliðsins var máttiaus — leikmenn greinilega örþreytt- ir, bæði andlega og líkamlega. Aðeins vika er nú síðan ís- lenzka landsliðið fylgdi eftir glæsilegum sigrum gegn Pólverj- um og Tékkum með því áð sigra V-Þjóðverja tvívegis. Já, aðeins vika siðan íslenzka landsliðið var reiðubúið til að takast á við allan heiminn — og sigra hann. En lið Slask hefur heldur en ekki kippt fótunum undan landsliðsmönnum okkar — komið þeim niður á jörðina með því beinlínis að rass- skella landslið okkar. gærkvöld, 17-24. Þrátt fyrir þrjú töp — slæm töp — er engin ástæða til að örvænta. Ef til vill eru töpin gegn Slask eðlilegt framhald af hinum stífu æfingum landsliðsmanna okkar. Þeir hafa undanfarið æft tvívegis á dag — síðan erfiðir leikir á kvöldin. Slíkt hlýtur að segja til sín — og það hefur sannarlega gert það. Skot leikmanna eru máttlaus — sóknarleikurinn lítt sannfærandi og vörnin eins og vængjahurð, markvarzlan því eðliiega í molum. Landsliðið leikur í kvöld sinn síðasta leik við Slask — og síðan fara leikmenn í fri — það er þeir munu hvíla sig fram að helgi. Þá verða haldnir fundir og málin rædd. Síðan verður aftur tekið til hendinni — tíminn er naumur og aðeins Ármann heldur ~n-deild íslands- -- —- - x j. mdtsmsi oruggn forustu kSrfuknattleik Ármann heldur forustu sinni í 1. deild íslandsmótsins í körfuknattieik — liðið sigraði Breiðablik 104-70 og er það raunar fyrsta sinn í vetur sem meistarar Ármanns skora meira en 100 stig í ieik. Njarðvík sigraði ÍS 80-69, KR iagði Fram 96-79 og ÍR sigraði Val 82-72. Öll efstu liðin sigruðu og staðan því óbreytt í kröfuknattleiknum. En leikir helgarinnar voru slakir, nánast formsatriði. Ármenningar lentu í erfiðleikum með Blikana í fyrri hálfleik — þá skildu aðeins 5 stig — 46-41. En i síðari hálfleik settu meistararnir hraðann upp og þá var ekki að sökum að spyrja — stigin hrönn- uðust upp og í lokin skildu rúm þrjátíu stig — 104-70. Þeir Jón Sigurðsson og Símon Ölafsson skoruðu flest stig Ármanns —26 hvor. Njarðvík átti í litium erfiðleik- um með að sigra ÍS — þó skildu aðeins fjögur stig í leikhléi, 47-43, en betri þjálfun og 'ögun Njarðvíkinga kom berlega i ljós í síðari hálfleik—öruggur sigur80- 69. Risarnir, ÍR og KR áttu heldur ekki í erfiðleikum með Val og Fram. KR lenti að vísu í vand- ræðum með Fram i fyrri hálfleik en undir lok hálfleiksins beinlínis sprakk Fram og KR hafði yfir í leikhléi, 40-33, eftir að Fram hafði haft yfir, 31-27. Lokatölur urðu siðan 96-79. Einar Bollason skoraði 27 stig fyrir KR og Guðmundur Böðvarsson 29 fyrir’ Fram. ÍR tók sín tvö skyldustig gegn Val 82-72. Jón Jörundsson skoraði flest stig ÍR, 14, en Kristján Agústsson skoraði 25 stig fyrir Val. Akurnesingar sigur- sælir á badmintonmóti Opið meistaramót í bad- minton var haldið í TBR-húsinu í gær á vegum TBR. Þátttaka var góð. Keppt var í tvíliðaleik og tvenndarkeppni. 1 tvíliðaleiknum í meistara- flokki karla sigruðu þeir Akurnesingarnir Hörður Ragnarsson og Jóhannes Guðjóns- son, unnu Harald Kornelíusson og Steinar Pedersen, TBR, í úr- slitum 18-15, 6-15 og 15-2. í tvíliða- leik kvenna í meistaraflokki sigr- uðu Lovísa Sigurðardóttir og Hanna Lára Pálsdóttir, TBR, þær Kristínu B. Kristjánsdóttur, TBR, og Ernu Franklín, KR, 15-4 og 15-7. 1 tvenndarkeppni meistara- flokks urðu óvænt úrslit. Sigús Ægir Arnason og Vildís Krist- mannsdóttir (Guðmundssonar rit- höfundar) sigruðu Harald og Hönnu Láru í úrslitum 15-11 og 15-10 og höfðu unnið Steinar og Lovísu í undanúrslitum 15-7, 4-15 og 15-11. 1 A-flokki karla sigruðu Björgv- in Guðbjörnsson og Revnir Guð- mundsson, KR, þá Sigurð K. Niél- senog Halldór Snæland, KR 15-12, 15-8 og 15-10. 1 tvíliðaleik kvenna í sama flokki sigruðu Kristín Aðalsteinsdóttir og Jóhanna Steindórsdóttir, Akranesi, Hlað- gerði Laxdal og Þyri Laxdal, KR, í úrslitum, 15-10, 13-15 og 18-17. í tvenndarkeppni A-flokks sigruðu Víðir Bragason og Kristín Aðal- steinsdóttir, Akranesi, Walter Lentz, TBR, og Hlaðgerði Laxdal, KR, í úrslitum 15-13 og 15-9. í tvíliðaleik í B-flokki sigruðu Jón Bergþórsson og Ágúst Jóns- son, KR, þá Gunnar Aðalbjörns- son og Guðmund Adolfsson, TBR, í úrslitum 15-4, 7-15 og 15-12. 1 tvíliðaleik kvenna sigruðu Sigríður Jónsdóttir og Jórunn Skúladóttir, TBR, þær Grímu Blængsdóttur og Ólöfu Jóns- dóttur, Gerplu í úrslitum B-flokks með 9-15, 18-14 og 15-4. I tvennd- arkeppni B-flokks sigruðu Aðal- steinn Huldarsson og Jóhanna Steindórsdóttir, Akranesi, Grétar Hjartarson, Gerplu, og Þyri Lax- dal, KR, með 15-7 og 15-3. Mótið einkenndist mjög af því að nú voru færri TBR-sigrar en oftast áður. Akurnesingar og KR-ingar sækja mjög fram í bad- minton. tæpur hálfur mánuður í B-keppn- ina. En engin ástæða er til að ör- vænta né binda minni vonir við árangur landsliðsins. Þetta bak- slag sem liðið gengur nú í gegnum var sjálfsagt fyrirsjáanlegt — vegna hins stífa prógramms sem að baki er. Liðið nær sér áreiðan-. lega á strik aftur og komi meiðsli ekki til með að setja strik I reikn- inginn verður islenzka landsliðið áreiðanlega fært um að takast á við allan heiminn — i Austurríki. Nú, ef við snúum okkur að leiknum í gærkvöld þá kom ber- lega í ljós þegar í upphafi að Slask átti aldrei í vandræðum með sigra landsliðið. Liðið náði fljótt yfirburðastöðu — 7-3, síðan 11-5 en Hslenzka liðið náði að skora þrjú síðustu mörk hálfleiks- ins. En Pólverjarnir voru ekkert á að gefa eftir — náðu í síðari hálf- leik aftur heljartökum á íslenzka liðinu og sigruðu örugglega 24-17. íslenzka liðið misnotaði fjögur vítaköst — en mörk Islands skor- uðu Geir Hallsteinsson og Björg- vin Björgvinsson, 4 mörk hvor, Agúst Svavarsson 3, Þorbjörn Guðmundsson og Viggó Sigurðs- son 2, Þórarin Ragnarsson og Viðar Símonarson 1 mark hvor. Drög að samningi við Tony Knapp —liggja nú fyrir og líklegt að Knapp verði áfram landsliðsþjálfari Flest bendir nú til að Tony Knapp verði ráðinn landsliðs- þjálfari tslands í knattspyrnu á komandi sumri. Þeir Ellert B. Schram formaður KSt og Árni Þorgrímsson voru í síðustu viku í Englandi og áttu við- ræður við Knapp sem er fuilur áhuga á að koma. Þeir félagar komu með upp- kast að samningi sem lagt verður fyrir stjórn KSÍ í vikunni og væntanlega verður gengið að samningum við Knapp. Hins vegar eru menn ekki á-eitt sáttir í stjórn KSl um ráðningu Knapp — menn telja að hægt sé að ráða mann fyrir minni pening en Knapp; hefur haft hér — og eins að tími sé til kominn að skipta um þjálfara. Hitt er að aðrir í stjórn KSÍ — meirihlutinn — líta svo á, að Knapp sé byrjaður á verki. Það er, hann þjálfaði íslenzka liðið í fyrri hluta keppninnar og því sé eðlilegt að hann ljúki verkinu. Ekki verður deilt um þann árangur sem íslenzka landsliðið J hefur náð undir stjórn Knapp 1 og ber að sjálfsögðu hæst sigur gegn A-Þjóðverjum og sigur 1 Noregi. Tony Knapp starfar nú hjá Norwich, þar þjálfar hann og lítur á efnilega leikmenn fyrir félagið. h halls Tony Knapp Víkingur Islandsmeistari í fyrsta sinn innanhúss —eftir sigurgegn Þrótti íúrslitaleik íslandsmótsins íknattspyrnu Vikingur varð Islandsmeistari í innanhússknattspyrnu i fyrsta sinn i sögu félagsins er iiðið sigraði 2. deildarlið Þróttar í úr- slitum 5-2. Sigur Vikings var öruggur og verðskuldaður. Liðið hafði yfirburði gegn Þrótti. Víkingur hafði yfirburði í fyrri hálfleik gegn Þrótti — skoraði þá fjögur mörk gegn engu Þróttar. Þróttur réði hins vegar að rétta nokkuð sinn hlut í síðari hálfleik — enda Víkings að halda forskot- inu. íslandsmeistararnir frá í fyrra — Valur — voru mjög óvænt slegnir út í undanúrslitum en þá sigraði Þróttur 9-7. Virtust Vals- menn halda að leikurinn gegn Þrótti væri fyrirfram unninn. — M’istök sem reyndust dýrkeypt. Tveir af leikmönnum Vals mættu of seint til leiks. Víkingur sigraði hins vegar Akurnesinga í undan- úrslitum nokkuð örugglega, 5-3. í átta liða úrslitum sigraði Vík- ingur Reykjavíkurmeistara Fram í innanhússknattspyrnu, 9-6. Þá sigraði Valur lið ÍBK 8-6, Akur- nesingar sigruðu Hauka, 7-2, og Þróttur sigraði Tý frá Vest- mannaeyjum, 8-5, eftir að staðan hafði verið jöfn, 4-4, að loknum venjulegum leiktíma. Aður höfðu farið fram þrlr leikir í úrslitakeppni — Skaga- menn sigruðu KA frá Akureyri, 7-6, Keflvíkingar sigruðu FH, 6-3, og Fram sigraði KR, 6-4. Breiðablik sigraði í kv'enna- keppni — sigraði Akranes 5-1 1 úrslitum. UNI0N HRAPAR Við höfðum ekki möguleika gegn Boom í 2. deildinni í gær, töpuðum illa 3-0 á útivelli, sagði Marteinn Geirsson, þegar Dag- blaðið ræddi við hann i morgun. Royale Union, sem lengstum hefur haft forustu í deildinni i vetur, er nú komið niður í 4. sæti, þremur stigum á eftir efstu iiðum, Eisden og Boom, semhafa 27 stig. Maiines hefur 25 stig og Union 24. Við fengum tvö góð tækifæri í Ólaf ur slasaðist í Moskvu og MAI vann stóran sigur Óiafur H. Jónsson fékk slæmt spark í siðuna í Evrópuleik MAI og Dankersen á föstudagskvöld. Það var um miðjan fyrri hálfleik- inn og Ólafur varð að fara út af. 1 síðari hálfleiknum reyndi hann að leika en sá strax að það var tilgangslaust og hætti. MAI sigraði með 21-14 og vann því meira en upp fimm marka for- skot Dankersen úr fyrri leik lið- anna. Sigraði því samanlagt 40-38. — Ég var mjög slæmur í síðunni eftir leikinn og gat mig ekki hreyft á laugardag, en er nú aðeins betri, sagði Ólafur þegar blaðið ræddi við hann í gærkvöld. Eg fer til læknis á morgun, mánu- dag, eg get því ekki sagt um — fyrr en hann hefur skoðað mig — hve meiðslin eru alvarleg. Ég vona að ég hafi ekki brákazt — en þetta er greinilega talsvert slæmt. Við vorum miklir klaufar að tapa niður forskotinu í Moskvu, sagði Ölafur ennfremur. Mark- varzlan hjá Dankersen var sú lak- asta sem verið hefur í vetur — en það hefði þó ekki átt að ráða úrslitum. Sovézku leikmennirnir léku vel og nutu vissra forrétt- inda hjá dómurunum. Ég er ekki að afsaka neitt með því, en öll vafaatriði féllu til sovézkra. Það er erfitt að eiga við þá á heima- velli. Mai byrjaði með miklum látum og komst í 5-1. en okkur tókst að minnka muninn í eitt mark, 6-5. Þá fékk ég sparkið og varð að > yfirgefa völlinn. Leikurinn var mjög harður. Á markatöflunni mátti sjá tölurnar 10-7, 12-8 og 20-12 fyrir Mai. Síðustu fimm mínútúrnar var „leikinn maður á mann“ og greinilegt að Danker- sen hefði átt að byrja á því fyrr Þeir sovézku voru slappir á taugum í lokin en Dankersen tókst ekki að minnka muninn nógu mikið. Van Oepen, sem sovézkir tóku úr umferð, skoraði flest mörk Dankersen eða fjögur, öll úr vít- um. Ölafur, Axel Axelsson og Waltke skoruðu tvö mörk hver en aðrir færri. Hópferð var á leikinn frá Dankersen. 160 þýzkir áhorf- endur og vonbrigði mikil því við töldum okkur hafa góða mögu- leika að komast áfram. Á laugar- dag leikur Dankersen við Gummersbach í Bundeslígunni og sagðist Ölafur ekkert geta sagt um hvort hann yrði þá orðinn góður af meiðslunum. Fyrirhugað er svo á sunnudag að þeir Axel og Ölafur komi til móts við íslenzka landsliðið.í Austurríki. byrjun, sagði Marteinn ennfrem- ur, en þau voru ekki nýtt og svo náði Boom alveg yfirtökunum í leiknum. Komst í 2-0 fyrir hlé. Átti síðan allan síðari hálfleikinn, en Boom skoraði þó ekki nema eitt mark þá. Það er greinilegt að lið Union er að gefa eftir — og eftir að halla fór undan fæti hafa æfingar verið tvisvar á dag. Það hefur virkað öfugt. Þreyta sözt í leikmenn. Marteinn lék allan leikinn en Stefán Halldórsson síðari hálfleikinn. Standard vann góðan sigur gegn Winterslag á útivelli i 1. deild og Ásgeir Sigurvinsson átti skínandi leik, sagði Marteinn. Leikurinn var á laugardag og einn bezti leikur Standard í heild á leiktímabilinu. Þeir Riedel og Graf skoruðu mörk Standard. Charleroi tapaði illa á útivelli fyrir Malinois, 3-0, Guðgeir Leifs- son var varamaður hjáChaleroi. 20 umferðum er nú lokið I 2. deild og í annarri lotunni náði Louviere beztum árangri. Er með 21 stig en var í 3. neðsta sæti eftir 10 leiki. Allar líkur eru á því að það verði Royale Union og La Louviére sem leika um sæti í 1. deild og í annarri lotunni náði La árangur eftir fyrstu lotuna — 10 fyrstu leikina. Urslit í 1. deild um helgina urðu þessi: Antwerpen—Anderlecht 1-0 Malinois—Charleroi 3-0 Courtrai—Beringen 1-3 Ostende—Waregem 2-1 Molenbeek —Lierse 3-2 FC Liege—Beerschot 2-1 Beveren—FC Brugge 2-1 CS Brugge—Lokeren 1-4 Winterslag—Standard 0-4

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.