Dagblaðið - 01.03.1977, Qupperneq 6
Erlendar
fréttir
REUTER
Bukovsky
segist
hitta
Carter
ídag
Sovézki andófsmaðurinn
Vladimir Bukovsky sagði í
gærkvöld í Washington að
hann myndi hitta Jimmy
Carter Bandaríkjaforseta að
máli í dag. Hann tilkynnti
þetta á fundi með frétta-
mönnum, sem hann boðaði
til.
Bukovsky sagði við sama
tækifæri að fundurinn yrði
haldinn „vegna þess að ég
tel forsetann ekki vilja hitta
mig sem óbreyttan
einstakling heldur sem
fulltrúa mannréttinda-
hreyfingarinnar," svo að
notuð séu orð Bukovskys
sjálfs.
Bandarískur
mordingi:
Villað
aftöku
sinni
verði
sjón-
varpað
Bandarjskur morðingi
Joseph James, þrjátíu ára að
aldri sem hefur verið dæmdur
til dauða, segir að verði
náðunarbeiðni sinni ekki
sinnt, fari hann fram á að af-
tökunni verði sjónvarpað.
James fékk að halda blaða-
mannaíund fyrir stuttu og gaf
þar eftirfarandi skýringu á ósk
sinni.
„Það er mjög rlkt í eðli
mannskepnunnar að vilja ekki
deyja. En ef þjóðfélagiö
heimtar dauða minn, þá vildi
ég gjarnan að öll þjóðin fengi
að fylgjast með honum í sjón-
varpi. Sér í lagi ef hinn villi-
mannlegi rafmagnsstóll verður
notaður.
Bandaríkjamenn taka
hunda og ketti af lífi á
mannUðlegri hátt en menn.
Það tel ég ekki ná nokkurri
átt og það langar mig til að
sýna almenningi."
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1977.
Amin frestar fundum
—engar ástæður eru
gefnar upp í Uganda
Fundi Idi Amins Ugandafor-
seta með Bandaríkjamönnum,
bUsettum í Uganda, sem átti að
fara fram á morgun hefur verið
frestað. UgandaUtvarpið til-
kynnti um þessa breytingu en
sagði ekkert um hvers vegna
hUn hefði verið gerð. Hins
vegar var vitnað í talsmann
stjórnarinnar og sagt að nýr
fundardagur yrði ákveðinn
síðar.
Fundur þessi átti að fara
fram á þeim sögufræga stað,
Entebbe flugvelli. Honum
hefur einu sinni verið frestað
áður. Alls munu um 200 Banda-
ríkjamenn vera bUsettir í
Uganda, flestir trUboðar. — Idi
Amin fullyrti fyrir skömmu, að
það hefðu verið Bandaríkja-
menn sjálfir, sem stungu upp á
þessum fundi.
Cyrus Vance utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna bað um
skýringar frá Uganda þegar i
stað er hann frétti um frestun-
ina. Hann sagði blaðamönnum í
:Washington að ákvörðun
Amins kæmi sér mjög á óvart
og hann vissi ekkert hvað lægi
að baki.
Talið er að bandaríska utan-
ríkisráðuneytið hafi ætlað að
tilkynna í dag, hvaða mann það
hygðist senda til Entebbe-
fundarins sem fulltrUa sinn.
Síðustu fréttir herma að
UgandaUtvarpið hafi tilkynnt
að bandarískir borgarar hafi
fullt ferðafrelsi jafnt innan
Uganda sem utan. Jafnframt
var algjör þögn áfram um hvers
vegna fundinum var frestað.
»
Menn velta því nU fyrir sér,
hvað Amin Ugandaforseti hafi
meint með því að boða Banda-
rikjamennina 200 á sinn fund á
Entebbe-flugvelli. Var hann
gripinn augnabliks hefndaræði
vegna skammaryrða Carters
forseta í hans garð og hugðist
stytta fólkinu aldur, en sá sig
síðan um hönd? Þess háttar
spurningar og fleiri leita á hug-
ann. Frá Uganda berast engar
skýringar nema að Bandaríkja-
mennirnir hafi sjálfir beðið
um fundinn.
HÓTELBRUNINN í MOSKVU
Enn ,eru sovézk yfirvöld 'að
vinna að samningu’ lista yfir
nöfn þeirra, sem létu lifjð í hin-
um mikla bruna, er varð i stór-
hótelinu Rossija 1 Moskvu
aðfaranótt föstudagsins.
NU þegar er vitað að 18
manns létu lifið, en Sovétmenn
segja, að um 500 vestrænir
ferðamenn hafi verið á hót-
elinu, er bruninn varð, þar af
um 100 kaupsýslumenn, er
voru í norðurálmunni þar sem
eldurinn var hvað mestur.
Fimm Sviar sem komu til
Moskvu á föstudagsvöldið í
viðskiptaerindum fengu inni i
sendiráðinu og sömu sögu var
að segja um þrjá Dani.
Læknir, er reyndi eftir beztu
getu að aðstoða við hjUkrun
hinna særðu, segir, að a.m.k. 60
manns hafi látið lífið, ennþá
hafa Sovétmenn ekki viljað
segja neitt um málið.
Sonur Rudolfs Hess:
Þeir
reyna að
drepa
föður
minn
Sonur Rudolfs Hess,
nazistaforingjans fyrrver-
andi, ásakar valdamenn
landanna fjögurra, sem
sigruðu i heimstyrjöldinni
siðari um, að stuðla mark-
visst að því að myrða föður
sinn. Segir hann að Hess sé
nU synjað um lyf við maga-
krampa, sem hann þjáist af.
Talsmaður þjóðanna
fjögurra, sem sjá um gæzlu
Hess i Spandau-fangelsinu,
tilkynntu fyrir nokkru, að
hann hefði meiðzt á olnboga,
Ulnlið og fótlegg, er hann
reyndi að stytta sér aldur á
þriðjudaginn fyrir viku. Það
hefði hins vegar mistekizt og
væri Hess nU á batavegi.
Rudolf Hess hefur nU set-
ið í Spandau fangelsinu i
þrjátíu ár — og er eini fang-
inn, sem gistir þann stað.
Hann var staðgengill Adolfs
Hitlers á nazistatímanum.
Rudolf Hess