Dagblaðið - 07.03.1977, Side 2

Dagblaðið - 07.03.1977, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. MARZ 1977. FA FJORMENNINGARNK ENGARBÆTUR? —embættismennirnir til að þjóna okkur, ekki við þeim Ég get ekki látið hjá líða að rita ykkur örfáar línur varðandi ummæli ráðuneytis- stjóra í dómsmálaráðuneytinu um bótakröfur þeirra sem sátu f gæzluvarðhaldi sakiausir vegna Geirfinnsmálsins. Eg leyfi mér að undirstrika þær setningar sem mér finnst furðulegastar og spyr síðan: Búum við í slíku „réttarfars- ríki“ að hægt er að benda á og bera sök á hvern sem er, við- komandi er síðan meðhöndlaður af embættis- mönnum sem ótfndur glæpa- maður um nokkurra mánaða skeið, atvinna, heimili og mann- orð lagt I rúst. Síðan kemur fram játning á viðkomandi af- broti frá öðrum aðila og þá er sagt við þann sem saklaus hefur orðið að líða: „Jæja, góði nú mátt þú fara og þú getur bara átt þig“. Bætur fyrir órétt- lætið? Kannski „táknrænar". Þetta minnir óneitanlega á það sem gerðist á tímabilinu 1933-1945 f Þýzkalandi og virðist viðgangast víða ennþá f svonefndum lögregluríkjum. Einstaklingar troðnir í svaðið að ósekju, þeirra líf allt eða stór hluti af því eyðilagt. Er hugsan- legt að ekki megi í þessu tilfelli (Geirfinnsmálið) rétta hlut þeirra, sem orðið hafa að líða saklausir, vegna þess að það þarf að bjarga andliti embættis- manna, sem framið hafa alvar- leg embættisafglöp? Eða hafa ráðuneytisstjórar og aðrir embættismenn gleymt Eftirleikur Geirfkinsmálsins—varðhald saklausra: Samningar um bætur fjarska ósennilegir - telur Baldur Möller ráðuneytisstjóri Hverfandi litlar llkur eru á þvi aö samið verði um greiðslu skaðabóta fyrir gæzluvarðhald að ósekju I Geirfinnsmálinu. „Það er augljóst að ekki kem- ur til mála að afneita þeirri hugmynd fyrirfram ef kröfuhafar verða mjög fara til dæmis aðeins fram á táfrnrænar ba-tur." saeði Baldur Möller. ráðuneytisstjóri i dómsmálaráðuneytinu. I sam- tali við DB I gær. Mór hvkir bvl fjarskalega ósennilegt að samningar verði gi-rðir um þi-ssar bæltir.'' Fjórir menn. Einar Bollason. Magnús Leópoldsson, Sigur- björn Eirlksson og Valdimar Olsen. hafa — eða réttargæzlu- menn þeirra fyrir þeirra hönd — gert sér hugmyndir um að ef til vill verði hægt að komast hjá málaferlum vegna gæzluvarð- haldsins sem þeir sættu vegna framburðar sakborninga I Geir- finnsmálinu. Einar Bollason hefur sagt I viðtali við Dagblaðið að hann. teldi það siðferðilega skyldu ríkisvaldsins að koma I veg fyrir sllk málaferli sem valda myndu öllum sárindum, ekki sizt aðstandendum sem búnir séu að fá nóg. Stefna fjármálaráðuneytisins I þessu máli er að semja ekki um meiriháttar bætur heldur sé betra að láta dómstóla skera úr um þær. að sögn Baldurs Möllers. t skaðabótamáli sem annar maöur stendur nú I gegn rlkis- valdinu vegna gæzluvarðhalds- að ósekju 1973, neitaöi lög- maður rikisins I gær að ræða sættir I málinu „nema krafan væri 60-80 þúsund krónur," einsog hann sagði. •ÖV því, að þeir eru þarna 1 þessum stöðum til að þjóna okkur, þegnum þessa þjóðfélags, en við þegnarnir eigum ekki að þjóna þeim, sem stólkonungar væru! Eða skyldi hæstvirtur ráðuneytisstjóri Baldur Möller halda að hann þjóni réttlætis- kennd þjóðarinnar með því að halda því fram að táknrænar bætur séu nægjanlegar handa fjórmenningunum í Geirfinns- málinu. Mér og öðrum þykir nóg komið af misrétti hér í okkar ágæta landi. Ég hef sjálfur orðið fyrir barðinu á dómskerfi okkar, ekki vegna afbrota, heldur ætlaði ég að koma yfir mig húsi og byggja mér upp atvinnuveg, en það tókst ekki. Af þeirri sögu eru margir kaflar óskiljanlegir, en látum það biða að sinni. Með þökk fyrir birtinguna. -BP. Templarar beita brögðum —óvandir á meðulin íbaráttunni gegn bjómum 28644 Mj.llfJH T 28645 1 AFDREP Fasteignasalan sem er íyðar þjónustu. Ath. Efþér feliö okkur einum að annastsöluá eignyðar, bjóðum viðyður lækkun á söluþóknun. MÓABARÐ HAFNARFIRÐI 3ja herb. 98 ferm íbúð á jarðhœð í tvíbýlishúsi, allt sér. Verð 7 millj. HRAUNBÆR 3ja herb. 90 ferm íbúð, mikið skápa- rými. Verð 8,5 til 9 millj. Okkur vantaraUar tegundir fasteignaáskrá. Nýsöluskrávæntanleg um mánaðamótin. ÁSBRAUT KÓPAVOGI 3ja herb. 96 ferm íbúð á jarðhœð. íbúðin er öll teppalögð, tvöfalt gler, nýleg eldhúsinnrétting. Verð 7.5 til 8 millj. í sama húsi 4ra herb. endaíbúð á annarri hœð. Bílskúr fylgir. Verð 9,5 til 10 millj. ðSdrep f asteignasala Öldugötu 8 símar: 28644 : 28645 Solumaður Finnur Karlsson heimasimi 4 34 70 Valgarður Sigurdsson logfr örn Asmundsson hringdi: Ég horfði á umræðurnar um bjórinn í sjónvarpinu sl. þriðju- dag þar sem Jón Sólnes skýrði frá drukknum mönnum á rangli kringum Austurvöll. Það er gamalt bragð hjá templurum og bindindis- mönnum að ná sér í ménn f.t.v. úr eigin röðum, hella brenni- víni utan á þá og láta þá svo „skandalisera". Þetta veit ég, því einn bezti vinur minn er templari og hann hefur trúað mér fyrir þessu sem skeði þarna á Austurvelli. Þeir hanga fyrir framan þinghúsið og svo ef þingmaður birtist taka þeir að láta öllum illum látum. Þetta eru svívirðileg brögð til að hlúa að eigin málstað. Það er líka fáránlegt að lítill en hávær hópur ráði gerðum heildar- innar með brögðum. Það væri skiljanlegt í einræðis- eða kommúnistariki en ætti ekki að þekkjast hér. Hver vill ekki slíka kjara- bót? J.S.E. skrifar Nú i sumar verður gengið til nýrra kjarasamninga og byrjar þá sama strögglið og áður. Sam- ið verður um einhverja smá- hækkun sem hverfur aftur eftir nokkra daga í mesta lagi vikur og allir græða nema laun- þegarnir. Nú er hins vegar tækifæri til að breyta til batn- aðar. Ég legg til að ekki verði samið um neina hækkun í krónutölu heldur verði samið við ríkisstjórnina um skattfríð- indi til handa þeim sem lágar tekjur hafa, þannig að þeir ein- staklingar sem hafa lægri tekjur en t.d. tvær milljónir fengju engan tekjuskatt. Á það semyrðitimfram tvær milljónir legðist síðan 50% skattur. Sama hlutfall yrði fyrir hjón. Þannig næðust góðar kjara- bætur án verkfalla og engar verðhækkanir yrðu umfram þær sem af erlendum hækk- unum og gengissigi stöfuðu. Samningsaðili yrði auðvitað ríkisstjórnin og mætti hún vel við þessa lausn una þar sem litlar eða engar kostnaðar- hækkanir yrðu vegna .þessara samninga. En það sem tapaðist kæmi strax aftur í rikiskassann vegnaaukinnarpeningaveltu og meiri kaupmáttar • almennings. Kauphækkun til hins almenna launþega yrði milli eitt hundrað þúsund og þrjú hundr- uð þúsund krónur a.m.k. Hver vill ekki hafa slíka kjarabót? „Vakna þú íslenzka þjóð til hárra hugsjóna, af dróma efnishyggju og falskra vellystinga 77 — miðstöð heimsmenningar verði á íslandi Jóhann M. Kristjánsson skrif- ar: Vegna fyrirspurna sem beint hefir verið til mín síðan erindin voru flutt um möguleika tslendinga til framlags strax til slíks heimsmáls, þá skal reynt hér að árétta nokkur atriði sem hægt er að árétta á skömmum tíma. 1) Veita leyfi til umræddrar heimsútvarpsstöðvar og opna þannig aðgang að eyrum mannskyns alls frá orkumikilli útvarpsstöð á íslandi. 2) Með þvi að reisa eins sterka útvarpsstöð og tök væru á, tæknivædda til sambands við gervihnattakerfið, þá yrði hún lykillinn að heimssambandi því sem um er rætt og öllu hinu er koma skal, þannig hefðum við opnað flóðgáttina miklu til hins alheimslega sviðs. 3) Við getum boðið um- bjóðendum mannúðar og vísindastofnana víða um heim að halda þing sín hér og veitt þeim margs konar fyrir- greiðslu, svo sem útsendingu frá nefndri útvarpsstöð VOICE OF THE UNIVERSE eða COSMICAL BROADCAST. Við gætum lagt til margs konar þjónustu er nægði til að koma af stað margnefndu heimssam- bandi. Við gætum boðið vísindamönnum vist hér til að setja á stofn andlega vísinda- stofnun. I ORION, vfðlesið bandarlskt tímarit, ritaði ég grein fyrir fáum árum, er ég nefndi: LIFE DORMANT AND ACTIVE, þýðir á íslenzku í URVALI: BLUNDANDI LlF OG VIRKT, þar sem ég renni sterkum stoðum undir það að á tslandi sé náttúrugerð öllum þeim eiginleikum búin, að þar séu skilyrði til betri árangurs í and- legum vísindum en annars stað- ar á jörðinni. Þróunarstaða mannkynsins er á örlagaríkum vegamótum og kallar á fljót og róttæk viðbrögð. Aðstaða okkar og möguleikar leggja okkur_þunjga byrði á herðar ef við höfumst ekkert að. Látum umheiminn vita hvað það er sem við getum boðið. Eg vísa í nefnderindi 17. jan. í útdrátt úr bréfi hr. Warren Watters, minister director fyrir AGELESS LIGHTED WAY MINESTRY í Californíu. Hann segir: „I Bandaríkjunum er billjón dollara varið árlega í óeigin- gjörnum tilgangi. Geti lands- menn yðar hlaupið undir bagga og komið þessu af stað, þá hefir tekizt það sem stefnt var að. Ég hefi sagt í 15 ár, að ef við byrj- um tekur heimurinn undir."

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.