Dagblaðið - 21.03.1977, Qupperneq 1
3. ÁRG. — MANUDAGUR 21. MARZ 1977— 6 7. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMIILA 12, SlMl 83322. AUGtVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERIIOLTI 2, SÍMI 27022.
Fólskuleg áras
á gamlan mann
árásarmaðurinn fangi
íbæjarleyfi. Hefurþrisvar
veriðtekinnfyrir
líkamsárásirá aldrað fólk.
Eftir hádegið á lausardafí var
hringt d.vrabjöllu hjá 83 ára
manni sem býr í vesturbænum í
Reykjavík. Úti fyrir stóð ungur
maður og spurði eftir manni
sem gamli maðurinn þekkti
ekki og átti ekki heima i
húsinu. Þegar gamli maðurinn
gaf þau svör að í húsinu byggi
enginn með þessu nafni bað
komumaður um vatnsglas. Það
var auðfengið. en i stað þess að
taka við vatnsglasinu réðst ungi
ntaðurinn á húsráðandann
Sló hann gamla manninn
margoft og herti að hálsi hans
með hálsbindi. Þeim átökum
lauk svo að maðurinn fðll í öng-
vit. Þvi næst var hann rændur
þeim peningum, sem hann.
hafði í seðlaveski sínu, en
meðan ungi maðurinn var að'
gramsa í seðlaveskinu raknaði
gamli maðurinn úr öngvitinu.
Þá þreif gesturinn kaffikönnu
og hóf barsmiðar með henni.
Barði hann gamja manninn
margsinnis í höfuðiö með
henni. og hætti ekki fyrr en
hann hafði fallið í öngvit á ný.
Því næst hljóp árásarmaðurinn
á brott meö það. sem hann
hafði rænt af fórnarlambi sínu.
Um klukkan sex á Iaugar-
daginn er svo hringt í lögreglu.
Þaö var gamli maðurinn sem
hringdi og tilk.vnnti 'hvernig
komið var.
Var hann fluttur i skyndi á
slysavarðstofuna og má
furðulegt teljast að hann skyldi
komast lifandi frá þessum bar-
smíðum. Líðan hans mun vera
eftir atvikum góð. Hann mun
hafa marizt nokkuð en ekki
beinbrotnað.
Fljótlega grunaði lögregluna
ákveðinn mann og fannst hann
fyrir utan skemmtistað í
Reykjavík um miðnætti á
laugardag. Hafði hann þá eytt
mestu af þeim peningum, sem
hann stal frá gamla manninum.
Árásarmaðurinn er fangi á
Litla-Hrauni en hafði fengið
leyfi til Reykjavíkurferðar til
að vera við jarðarför. Hann var
dæmdur 1975 fyrir árás á gamla
konu og einnig mun hann hafa
ráðizt á tvær gamlar konur og
rænt þær. Þetta er því í þriðja
skipti sem hann ræðst á og mis-
þyrmir gömlu fólki. í öll skiptin
var unt rán að ræða.
-KP
„Skákpartf’
íHöfða:
Góð er vin-
áttan og
veitingarnar
— beztar þykja þó
fjárveitingarnar
„Gðð þykir oss vinátta yðar
og borgarstjórnar, en betri
þykja oss veitingar yðar — sér-
staklega fjárveitingar." sagði
Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambands islands, i stuttu
ávarpi í Höfða sl. föstudag.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Birgir Isleifur Gunnarsson.
hafði þar boð inni fyrir
keppendur í áskorenda-
einvíginu í Re.vkjavík. Auk
þeirra voru þar aðstoðarmenn.
aðrir gestir og starfsmenn
einvígishaldsins.
Sem kunnugt er lýsti Skák-
sambandið þvi yfir að án
stuðnings Reykjavikurborgar,
íslenzka rikisins og Flugleiða,
hefði verið með öllu útilokað að
halda einvígið milli Horts og
Spasskys hér. Jafnkunnugt er
að áskorendaeinvígið í Reykja-
vik hefur tekizt frábærlega vel.
Kenist framkvæmd hinna
þriggja áskorendaeinvígjanna,
sem nú eru háð í Rotterdam,
Luzerne og II Giocco, í engan
samjöfnuð við einvigishaldið
hér.
-BS.þ
INDIRA FALLIN í INDLANDI
Chirac borgarstjóri Parísar -bis.6-7
Indira Gandhi, valda-
mesta kona heimsins, hefur
engin völd lengur. Hún
tapaði í indversku þingkosn-
ingunum fyrir mótherja sín-
um með um 55.000 atkvæða
mun og mun þvi ekki sitja
sem fulltrúi flokks síns,
Kongressflokksins, næsta
kjörtímabil.
Allt bendir einnig til þess
að þrjátíu ára valdatíma
Kongressflokksins sé lokið.
Tveggja mánaða gamalt
kosningabandalag, Janata-
sambandið, hafði algjöra
yfirburði í kosningunum frá
byrjun. Leiðtogar þess koma
saman í dag og velja for-
sætisráðherraefni sitt.
lndland, Kongressflokk-
urinn og ætt Indiru Gandhi
hafa verið eitt í auguni al-
heimsins síðan árið 1947 er
Bretar veittu Indlandi sjálf-
stæði. Þau tengsl eru nú
rofin.
í Frakklandi náðu vinstri-
menn miklu fylgi í borgar-
og bæjarstjórnakosningum
um helgina. 1 einni borg,
sjálfri höfuðborginni, París,
sigraði stjórnarmaður —
Jacques Chirac, fyrrum for-
sætisráðherra landsins og
helzti andstæðingur Forset-
ans Giscards d’Estaing. -AT-
Indira og Ganjay sonur
hennar i upphafi kosninga-
baráttunnar sem þau hafa
nú beðið lægri hlut í.
Milljón á
heimili
— Sjá kjallaragrein
Reynis
Hugasonar
ábls. 13
Sannleikur-
inn um
sjóslysin
— Sjá kjallaragrein
ábls.ll
Bæjarstjöri og
forseti
bæjarstjórnar
á Eskifirði segja
af sér
-Sjábls.4
Fangaklefar í Keflavík
„heilsuspillandi húsnæði”
—fjórir klefar ínotkun samkvæmt undanþágu en þeim verður
einnig lokað á næstunni
Þrir fangaklefar í lögreglu-
stöðinni i Keflavik hafa verið
teknir úr notkun og aðrir fjórir
klefar eru notaðir með undan-
þágu. Við blastr að þeim verði
lokað á næstu diigum. að sögn
Jóhanns Sveinssonar,
heilbrigðisfulltrúa i Keflavík.
Astæðan er sú. að húsnæðið er
taliö heilsuspillandi.
Lögreglan i Keflav.ik býr við
mjög lélegan húsakost og er
húsnæði hennar lóngu orðið
ttlll of litið fyrir þá starfsenti.
sem þar fer fram. Lögreglu-
stöðin er í gömlu múrhúðuðu
timburhúsi og er nú svo komið.
að raki i útveggjum hefur gert
nauðsvnlegt að taka úr umferð
þá klefa sem eru við þá.
Ilragi til tíðinda i Keflavík á
meðan nothæfir fangaklefar
eru uppteknir þarf að fara til
Grindavikur með þá menn, sent
réttara þvkir að hafa i vörzlu
lögreglunnar. í Grindavík er
pláss f.vrir fjóra fanga. en ef
þau þrýtur þarf að fara til
Revkjavikur með fanga.
-KP
Guðbjartur
Pálsson
er látinn
Guðbjartur Þ. Pálsson
varð bráðkvaddur að heimili
sínu sl. nótt, fimmtfu og
tveggja ára að aldri. Guð-
bjartur gekk ekki heill til
skógar undanfarin ár þótt
andíát hans hafi nú borið að
mjög fyrir aldur fram.
Guðbjartur Pálsson lætur
eftir sig fimm börn og móð-
1
A