Dagblaðið - 21.03.1977, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 21.03.1977, Blaðsíða 7
DAliBl.AÐIÐ. MANUDACiUH 21. MAKZ 1977. 7 INDIRA FÉLL! Kongressflokkurinn virðist ætia að tapa miklu fylgi Valdamesta kona í heimi, Indira Gandhi, er nú valdalaus kona. I almennu þingkosning- unum í Indlandi tapaði hún fyrir keppinaut sínum Raj Narain í kjördæminu Rae Baeli í norðurhluta landsins með yfir 55.000 atkvæða mun. Jafnframt bendir allt til þess að 30 ára stjórnarferli Kongressflokksins sé nú lokið. Kongressflokkurinn tók við völdum í Indlandi árið 1947, er Englendingar veittu landinu sjálfstæði. Síðan þá hafa æðstu völdin nær samfellt verið í höndum ættar Indiru Gandhi. Hún tók við embætti forsætis- ráðhera i janúar 1966 en áður hafði faðir hennar, Jawahrlal Nehru, gegnt þessu æðsta embætti landsins um árabil. Indira Gandhi hafði ætlað yngri syni sínum, Sanjay, að taka síðar meir við embættinu en snöggur endi var bundinn á stjórnmálaframa hans, er hann tapaði fyrir andstæðingi slnum með meira en 75.000 atkvæða mun. Það var Janata bandalagið, samsteypa fjögurra stjórnar- andstöðuflokka, sem sigraði í indversku kosningunum. Bandalagið er aðeins tveggja mánaða gamalt og setti á odd- inn það kosningaloforó að af- nema neyðarástandslögin í landinu sem hafa verið við lýði í tæp tvö ár. Þá hugðist Janata- bandalagið jafnframt leyfa prentfrelsi á nýjan leik og að grundvallarmannréttindi yrðu endurreist. Um það bil klukkustund eftir að Indira Gandhi fré'tti um tap sitt aflétti hún neyðarástands- lögunum og óskaði eftir viðtali við forseta landins. Leiðtogar Janta bandalagsins koma saman síðar í dag og velja forsætisráðherraefni sitt. Indira Gandhi beitti þeirri röksemd helzt fyrir sig í kosningabaráttunni að Janata hefði ekki útnefnt forsætis- ráðherraefni sitt og kjósendur vissu því ekki hvað þeir væru að kjósa um. Þingsæti á indverska þinginu eru 542. Síðustu tölur hermdu að Janata bandalagið hefði fengið 135 þingmenn kosna en Kongressflokkurinn 109. Þá var eftir að telja atkvæði í mörgum norðurhéruðum landsins þar sem fylgi Jana- taflokksins var jafnvel enn meira en fyrir sunnan. Indverska þjóðin telur nú um 619 milíjón manns. Á kjörskrá voru 318 milljónir. Spánverjar vilja stjórnmálasam- band við Angóla —búizt við að Kúba hafi milligöngu milli ríkjanna Spænska ríkisstjórnin hefur óskað eftir viðræðum við yfir- völd í Angóla um að ríkin taki upp stjórnmálasamband. Að sögn talsmanns spænsku stjórnarinnar er farið fram á þetta vegna 32ja spænskra fiskimanna, sem hafa setið í haldi í Luanda. höfuðborg Angola, síðustu tvo mánuði. Þær upplýsingar láku út úr Auglýsing um áburðarverð 1977 Heildsöluverð fyrir hverja smálest eftirtalinna áburðartegunda er ákveðið þannig fyrir árið 1977 : Kjarni 33%N Magni 1 26%N Magni 2 20%N Græðir 1 14-18-18 Græðir 2 23-11-11 Græðir 3 20-14-14 Græöir 1 23-14-9 Græðir 4 23-14-9+2 Græðir 5 17-17-17 Græðir 6 20 10-10+14 N.P. 26-14 N.P. 23-23 Þrífosfat 45%P„05 Kalíklórið 60%K2<> Kalsísúlfat 50%KVD Uppskipunar- og afhendingargjald er ekki innifalið í ofangreindu verði fyrir áburð kominn á ýmsar hafnir. Uppskipunar- og afhendingargjald er hins vegar innifalið í ofangreindu verði fyrir áburð sem afgreiddur er á bíla í Gufunesi. Áburðarverksmiðja ríkisins. Við skipshlið á ýmsum höfnum umhverfis land kr. 37.100 kr. 30.500 kr. 26.500 kr. 45.300 kr. 42.200 kr. 42.900 kr. 44.100 kr. 45.300 kr. 43.600 kr. 41.500 kr. 43.500 kr. 48.600 kr. 37.900 kr. 26.300 kr. 32.500 Afgreitt á bíla i Gufunesi kr. 37.800 kr. 31.200 kr. 27.200 kr. 46.000 kr. 42.900 kr. 43.600 kr. 44.800 kr. 46.000 kr. 44.300 kr. 42.200 kr. 44.200 kr. 49.300 kr. 38.600 kr. 27.000 kr. 33.200 spænska utanríkisráðuneytinu að 3ja landið þyrfti að gerast milligönguaðili um sambandið. Ekki var nafn þess lands nefnt en tilgátur eru uppi um að Kúba fái það hlutverk. Spænsku sjómennirnir 32 voru teknir fyrir landhelgis- brot í landhelgi Angóla í janúar siðastliðnum. Þeir ganga um frjálsir ferða sinna í Luanda en mega ekki yfirgefa borgina BIADIÐ frfálst, úháðdaghlað Ritstjjórn SÍÐUMÚLA 12 Simi 83322 mest seldi bíll 1976 SKODA120 LS

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.