Dagblaðið - 21.03.1977, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 21.03.1977, Blaðsíða 28
Siglingamálastofnun telur skýríngu vamarmála- deildar ófullnægjandi „Dósirafhlustun- arsívalningum,” segir Páll Ásgeir Tryggvason „Siglingamálastofnun mun fara af stað til að athuga hvað þetta er, sem Bandarikjamenn hafa fleygt í sjóinn, í hvaða magni og hvernig pakkað,“ sagði Páll Ragnarsson aðstoðar- siglingamálastjóri í morgun. Hann kvað skýringu varnar- máladeildar ekki fullnægjandi. ,,Ég tel þó að þetta hafi enga hættu i för með sér eftir þeirri lýsingu sem deildarstjóri varnarmáladeildar hefur gefið,“ sagði aðstoðarsiglinga- málastjóri. Sennilega væri ekki hætta á veiðarfæratjóni. Spurningunni um lögbrot Bandaríkjamanna svaraði hann þannig að hann vissi ekki hvaða lög hér næðu yfir starfsemi Bandaríkjamanna. Það væri utanríkisráðuneytisins að líta á það mál. „Það voru dósir úr hlustunar- sívalningum sem Bandaríkja- menn létu henda í sjóinn á fimmtudagskvöld,“ sagði Páll Ásgeir Tryggvason, deildar- stjóri í varnarmáladeild utan- ríkisráðuneytisins, í morgun. Páll sagðist vera viss um að þarna væri ekki um nein hættu- teg efni að ræða. Hann kvaðst gramur yfir því að Bandaríkjamenn hefðu ekki látið varnarmáladeild vita en þeir hefðu hins vegar haft sam- band við lögreglustjóra og land- helgisgæzlu og fengið þar leyfi. Páll sagði að þessar dósir væru á stærð við meðal niður- suðudósir. Þær væru botninn á hlerunarsívalningum sem eru notaðir til að hlusta eftir kaf- bátum. í þeim væri hvellhetta sem springi, þegar sívalningun- um væri fleygt út úr flugvélum. Þær dósir sem nú hefði verið fleygt í sjóinn hefðu verið notaðar og engin hvellhetta i þeim. Þetta hefði safnazt fyrir á „vellinum“ og hefðu börn verið farin að leika sér með dósirnar og kasta þeim, til dæmis í bíla. „Dósirnar eru opnar i annan endann og sökkva til botns,“ sagði Páll. Hann sagði að þetta væri „búið og gert“, varnarmála- deild biði eftir skýrslu frá varnarliðinu en ekki væri að vænta frekari eftirmála. -HH Prestskosningarnar íHafnarfirði: 69,2% og 49% kjörsókn Prestskosning var í tveim- ur sóknum í Hafnarfirði i gær. I Víðistaðasókn voru 2106 á kjörskrá og greiddu 1036 atkvæði, auk þess voru 23 atkvæði sem vísað var til yfirkjörstjórnar. í kjöri var séra Sigurður H. Guðmunds- son. í Hafnarfjarðarsókn voru 3565 á kjörskrá. Alls greiddu 2461 atkvæði í kjör- deildum og auk þess 8 hjá yfirkjörstjórn. 1 framboði voru tveir prestar, séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og séra Gunnþór Ingason. Segir af siglingu: Óhljóðin dofnuðu því meir sem lækkaði í flöskunni Ekki þykir miklum tíðindum sæta þótt menn séu færðir til blóðsýnistöku vegna meintrar ölvunar við akstur. Hitt er fátíðara að menn séu teknir til sömu hluta vegna gruns um ölvun á siglingu. Þetta henti þó i fyrrakvöld nánar tiltekið suður í Vogum, — þcim umrædda stað. Forsaga málsins er sú að bátseigandi einn í höfuðborginni hafði siglt árla dags til Keflavíkur til að fá aðstoð kunningja síns við að kann torkennileg hljóð í aflvél bátsins — sem er um 10 tonn að stærð. Bogruðu þeir næstum daglangt yfir vélinni og virtist sem þeim hefði heppnazt viðgerðin. Hélt borgarbúinn hinn glaðasti af stað frá Kefla- vík undir kvöldið, enda höfðu hann og viðgerðarmaðurinn kætt sig með örlltilli brjóst- birtu. En skömmu eftir að neimsiglingin hófst, tóku óhljóðin í vélinni sig upp en þá greip sæfarinn til brjóst- birtunnar og þvi meir sem lækkaði í flöskunni, dofnuðu að skapi óhljóðin í vélinni. Eftir um stundarsiglingu taldi sæfarinn sig vera kominn 1 heimahöfn, enda greindi hann fjölda fólks í landi. Renndi. hann fleyi sínu að bryggju að hann hélt en það reyndist vera grýtt fjaran í Vogunum — fjarri öllum venjulegum lendingarstöðum. Kenndi báturinn svo hastarlega grunns að borð brast og sjór rann inn Sæfarinn gat þó gengið þurrum fótum á land, þar sem fulltrúar réttvísinnar gripu hann í hasti enda hafði fólki í landi þótt siglingarlag bátsins heldur frjálsmannlegt og haft sam- band við yfirvöldin. -emm.‘ — Ung stúlka sem var farþegi hlaut nokkur meiðsl Ung stúlka úr Keflavík hlaut nokkur meiðsl — brákaðan handlegg og rif gekk inn í lunga, er bifreið sem hún var farþegi í valt á Grindavíkurveg- inum klukkan rúmlega tvö á laugardaginn. Ökumaðurinn, ungur piltur, var að aka fram úr annarri bifrc:A Taldi hann aðökumaðurinnhefði sveigt inn á aKUrautina og lirakið sig út á „öxlina“ með vinstri hjólin. Við það fataðist honum aksturinn og bifreiðin skauzt þvert yfir götuna og út af hægra megin vegar. Þar fór hún á hliðina en endastakkst síðan og fór að minnsta kosti eina veltu áður en hún stöðvaðist á réttum kili. ökumaðurinn slapp svo til ó- meiddur en bifreiðin sem var alveg ný — ekin 1610 km — er talin gerónýt. — emm Eftir ummerkjum að dæma hefur bifreiðin farið í loftköstum út fyrir akbrautina. Gluggaþéttilistar, mottur og fleira lágu á vfð og dreif á þeim 50 metrum sem bifreiðin fór utan vegar. DB-mynd: — emm. Bfllinn för íloft- köstum yf ir veginn frýálst, úháð dagbJað MÁNUDAGUR 21. MARZ 1977. Hægistum við Kröflu „Á föstudag voru skjálftar 79, á laugardag 94 en í gær 140,“ sagði Guðmundur Ingi Haraldsson jarðfræðingur í samtali við DB í morgun. Guðmundur sagði að svo virtist sem skjálftum myndi ekki f jölga í dag. Nokkrir snarpir kippir fundust bæði við Kröflu og í Kísiliðjunni. Tveir þeirra vo.ru yfir þrír á Richter, en alls var 21 skjálfti yfir tvo á Richter. Stöðvarhúsið við Kröflu hefur nú aldrei risið hærra, nú er munurinn á norður og suðurenda 9,2 millimetrar. Húsið hefur risið mest um 6,6 millimetra í janúar sl. -KP. Loðnuvertíð áll.stundu „Loðnuveiðin var ekki eins góð um helgina og oft áður enda er komið á elleftu stund vertíðarinnar,“_ sagði Andrés Finnbogasori hjá Loðnunefnd í viðtali við DB í morgun. „Á laugardag tilkynntu tólf skip um 3870 tonn og á sunnudag tilkynntu einnig tólf skip og þá 3140 tonn. Það var góð veiði á fimmtudag og föstudag en skipin voru þá nokkuð bundin í höfnum vegna löndunarbiðar. Helgarveiðinni var landað i Faxaflóahöfnum, Vest mannaeyjum og einnig fóru nokkur skip til Bolungar- víkur og einir tveir eða þrír bátar á Austfjarðahafnir. Bátarnir urðu varir við loðnu við Hrollaugseyjar sem eru um 30 mílur fyrir vestan Hornafjörð. Nokkrir bátar fengu fullfermi þar. Heildaraflinn á vertíðinni er nú kominn upp í 527 þúsund tonn, en í fyrra var heildaraflinn yfir alla ver- tíðina 330 þúsund tonn. Bátarnir munu halda áfram veiðum á meðan einhver loðna fæst,“ sagði Andrés Finnbogason. -A.Bj. Vestmannaeyjar: Skólakrakk- amir kveiktu ítóbaks- auglýsingum Krakkarnir í síðasta bekk barnaskólans í Vestmanna- eyjum gengu í sjoppur og verzlanir þar fyrir helgina, söfnuðu saman sígarettu- auglýsingum, fóru með þær út á öskuhauga og brenndu þeim. Tóku kaupmenn börnun- um vel og létu fúslega af hendi allar tóbaksauglýsing- ar. Sýnir þetta vel hvern hug barnaskólanemar í Eyjum bera til sígarettureykinga — og herferðir reykvískra barna, sem barizt hafa gegn reykingum af miklum krafti undanfarið. -EVI/R.S., Vestm.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.