Dagblaðið - 21.03.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 21.03.1977, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. MARZ 1977. UNGA FOLKIÐI BREIÐHOLTI Kjallarinn Það kann að þykja að bera í bakkafullan lækinn að ræða um æskulýðsmál og vandamál sem steðja að æskunni, og þar á ég við hina ýmsu vímugjafa, en eigi að síður verða þessi mál á dagskrá í þessari grein. Undir- rituðum þykir full ástæða til þess. Ég tel að unga fólkið hafi ekki mætt skilningi, hvorki hjá yfirvöldum né almenningi og jafnvel ekki hjá uppalendum, og það er vægast sagt alvarlegt mál sem þarf að breytast. Það er talað um Breiðholt 3 sem algert óaldarhverfi. Þar tel ég að fámennur hópur eigi sök á. Svo eru allir hinir stimplaðir. Að vísu er þetta ungt hverfi og ekki nægileg aðstaða fyrir æskuna og börnin til að eyða tómstundum sínum úti við. Hér er allt kálfkarað, máður veður moldina og lítið er um gang- stéttir, hvað þá leiktæki fyrir yngstu kynslóðina. I umræddu hverfi í Breið- holti er þjónustulengja, ef ég má orða það svo. Töluvert hef- ur borið á rúðubrotum í þessum þjónustustöðum en það er vitað BÍLASALAN BÍLVANGUR Tangarhöfða 15. Sími 85810 sölu Oldsmobile Deita 88 ’71 með öllu Toyota M2 ’74 Toyota Corolla ’74 Datsun 1200 ’73 Datsun 200L ’74 Mazda 616 ’74 Escort ’73, ’74 og ’75 Chevrolet Chevelle ’72 Volvo 144 ’74, ’71 Volvo 142 ’73 Volkswagen 1303 ’73 Volkswagen 1302 ’72 Volkswagen 1300 ’73 Volkswagen 1200 ’71 VW Variant ’72 Mercury Comet ’73 og ’74 Fiat 127 ’72 Fiat 128 ’74 Jeppar: Bronco ’74 8 cyl. Wiilys ’65, fallegur bíil. Bronco ’70 8 cyi. Hofum kaupendur að: Mazda 929 ’75 Mazda 616 ’76 Mazda 929 station Voivo 244 ’76. Glœsilegur sýningarsalur. Gott útisvœði. Bílar í salnum auglýstir sérstaklega. Höfum plóss fyrir góða bíla í sal — ekkert innigjald. sterka rvksusan... # Styrkur og dæmaiaus ending hins þýðgenga, stillanlega og sparneytna mótors, staðsetning hans oghámarks orkunýting, vegna lágmarks loft- mótstöðu í stóru ryksíunni, stóra. ódýra 1 pappírspokanum og nýju kónísku siöngunni, afbragðs sog- stykki og varan- legt cfni. ál og stál. Svona er ' NILFISK: Vönduðog tæknilega ósvik- in. gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel. ár eftir ár. með lág- marks truflunum og tilkostnaði Varanleg: til lengdar ódýrust. Nýr hljóð- deyfir: Hljóðlótasto ryksugan. Afborgunarskilmólar FÖNIX HATUN 6A SÍMI 24420 með nokkurri vissu hverjir standa að þessum verknaði. Þegar þessum fámenna hópi (hér mun vera um tvo eða þrjá pilta að ræða) er komið í sveit ber ekki á þessum rúðubrotum en eins og ég sagði áðan er allt hverfið stimplað. Það er ekki nægilegt að lög- reglustöð sé í Arbæjarhverfi. Hér aka ein eða tvær lögreglu- bifreiðar um allt Breiðholtið en það vantar nauðsynlega að- stöðu fyrir lögregluna hér í Breiðholtinu. Það myndi skapa aðhald. Það er oft talað um unga fólkið með miklum fordómum og skilningsleysi hjá hinu eldra. Ýktar sögur berast manna 1 milli og svo er hellt úr skálum reiði sinnar í lesenda- dálkum blaðanna. En hvað skal til bragðs taka til úrbóta? Eini staðurinn þar sem þetta unga fólk, sem stundum er nefnt útlagar þjóð- félagsins, hefur aðstöðu til að skemmta sér með dansi er i hinum svo kallaða FELLA- HELLI. Það hefur verið talað talsvert um sukk og svínarí á þessum stað. Undirritaður brá sér eitt kvöldið til að kanna þetta en varð ekki var við neitt sem unga fólkið þarf að skamm- ast sín fyrir, nema siður sé. En Fellahellir er ekki staður sem hægt er að búast við að laði að unga fólkið, sérstaklega þann aldurshóp sem kemst hvergi annars staðar inn, að minnsta kosti ekki í Breiðholtinu. Að vísu hafa ungtemplarar haldið vínlausar skemmtanir og Sesar mun vera með opið fyrir ungt fólk á miðvikudögum en undir- rituðum er ekki kunnugt um hvernig það hefur reynzt. Nú er búið að skipa nýjan mann í framkvæmdastjóra- stöðu í Tónabæ og því fylgdu þær breytingar að tveim dyra- vörðum var sagt upp. Einhver hefur verið ástæðan. Það hefur mikið að segja hvernig dyra- verðir koma fram við fólk sem leitar inngöngu á dansstaði. Undirritaður varð eitt sinn vitni að því að komið var að alblóðugum manni fyrir utan eitt samkomuhúsið og var stað- hæft að dyravörðurinn hefði leikið hann svona grátt. Hér er ég ekki að fullyrða að svona sé þetta allsstaðar en ég veit um fleiri dæmi. Það er vandasamt verk að vera dyravörður og það ber fyrst að beita rólegheitum samfara vissri sálfræði. en ekki láta vöðvaaflið stjórna strax í byrjun. Svo vikið sé aftur að Fella- helli þá vantar mikið upp á að þar sé boðlegt til dansleikja- halds, fyrir utan hve staðurinn er lítill og óvistlegur ásamt lé- legri loftræstingu. Það vantar samkomuhús í Breiðholti sem í senn gæti verið dansstaður fyrir alla aldurs- hópa, að sjálfsögðu skipt niður. Um leið þyrfti þarna að vera aðstaða fyrir kvikmyndasýn- ingar því að langt er að sækja í bæinn. Þetta samkomuhús gæti einnig, ef til kæmi, verið leigt út fyrir árshátíðir og annan mannfagnað hér í Breiðholtinu. Þetta mundi bæta mjög félags- lífið í Breiðholti sem er sama og ekki neitt. íþróttafélag er hér og það er vissulega hvatningarvert og ber að þakka þeim mönnum sem komu því á laggirnar. Það er ekki nema eðlilegt að unga fólkið vilji fá útrás og hvers vegna ekki að koma til móts við það og sjá því fyrir boðlegum dansstað hér í Breið- holtinu? Það vantar nauðsynlega fræðslu í skólum um þá hættu sem því er samfara að neyta vímugjafa. Þetta var tekið til umræðu nú nýlega í útvarpsþætti. í umræddum þætti kom fram að í einum skólanum hafði einn kennarinn af eigin þekkingu tekið þessi mál til meðferðar, en þetta er ekki kennslugrein og þá vantar mikið. Það sagði mér leigubílstjóri eitt sinn að hann hefði tekið 2 ungmenni upp í bifreið sína. Síðar kom í ljós að þeir voru með vínflösku og gáfu þá skýr- ingu að „kallinn” hefði verið dauður og þeir hefðu hirt flösk- una. Meðal æskufólks er ekki litið á það alvarlegum augum þó það smakki vín og reyki, en eiga uppalendur ekki verulega sök á því? Unga fólkið sér þetta fýrir sér frá barnsaldri og ekki virð- ast neinar varúðarráðstafanir gerðar. Eiga uppalendur hér ekki einhverja sök á? Ungviðið hefur ekki nægilegan skilning né þroska þegar það leggur út á þessa braut og það sem verst er, Til sölu Lofthreinsitæki og frystitæki úr veitingahúsinu Röðli. Til sýnis á staðnum. Radíóbúðin Skipholti 19. Sími 23800. Raftækjaúrval — Næg bflastæði JAFNVEL BETRAEN HEIMABAKAÐ HAFRAKEX ..SANNKÖLLUD KJARNAFÆDA Benedikt Viggósson aldurinn, sem „fiktið” byrjar við. færist sífellt neðar. Mikið hefur að segja hvernig uppeldið er frá byrjun. Það er eins og þegar er verið að planta afleggjara af blómi. Hann verður að vökva og sólin þarf að ná til þessa litla vísis sem síðar verður að blómi ef nægilega vel er hugsað um hann. Það verður að vera sól í hjört- um barnanna í uppvextinum og hún þarf að koma frá uppalend- unum. Ef börnin njóta ekki hlýju og skilnings ásamt sjálf- sögðum aga er hætt við að miður fari. Það hefur mikið að segja hvernig heimilisaðstæður eru. Töluvert mikið er um hjóna- skilnaði á íslandi og mikið um einstæðar mæður sem eiga fullt í fangi með að ala ungviðið upp eins og æskilegast má teljast. Þetta er auðvitað misjafnt og það er ekki verið að setja neinn stimpil á þennan hóp þjóðfé- lagsins. En til eru dæmi um að unglingar, sem ekki hafa notið föður og móður eða upp- alandinn hefur verið úr hófi fram drykkfelldur, hafi leiðzt út í óreglu og jafnvel siðar meir afbrotaferil. Ég get nefnt ný- legt dæmi, þegar þetta sann- aðist, en það er of viðkvæmt mál. Undirritaður hafði nýlega samband við fíkniefnalögregl- una til að leita upplýsinga. Mér var tjáð að staðan í vímugjafa- málum væri allskuggaleg og það yrði að bæta mikið aðstöðu þessarar deildar lögreglunnar. Þau fíkniefni, sem ungt fólk er tekið fyrir neyzlu á eru aðal- lega hass og maríjúana ásamt amfetamíni. Þá hefur einnig borið á því að ungt fólk hafi verið tekið undir áhrifum LSD, en það er stórhættulegt. Algengasti aldursflokkurinn er frá 18-25 ára en mér var tjáð að þeir hefðu einnig haft ein- hver afskipti af unglingum allt ofan í 15 ára aldur. LSD var notað erlendis við geðveiki en horfið var frá því. „Við fylgjumst með grunuð- um,“ sagði heimildarmaður minn, „ og reynum að hafá sem mest eftirlit til að fyrirbyggja innflutning á þessum efnum en það verður seint hægt að hindra allan innflutning.” Mér var einnig tjáð að hass- hundarnir hefðu reynzt vel en hvort fleiri slíka þyrfti sagðist viðmælandi minn ekki vera I aðstöðu til að fullyrða neitt um. Þá var mér tjáð að erfiðleik- um ylli hvað þessi mál væru þung í vöfum. „Þegar búið er að dæma fíkniefnaneytenda í gæzluvarðhald þarf málið að fara í gegnum svo marga aðila að við neyðumst til að sleppa viðkomandi úr gæzluvarðhaldi og þá er algengt að viðkomandi sökkvi sér ofan i fíknilyf á ný. Þetta getur líka haft slæm áhrif ef fleiri eru viðriðnir málið.” Þetta tjáði mér heimildar- maður minn hjá fíkniefnalög- reglunni. Þótt liass sé talið tiltölulega skaðlausast fíkniefna er hætta á því að það sé blandað sterkari efnum sem geta valdið heila- skémmdum. Dómsvaldið þyrfti að bæta aðstöðu fíkniefnalögreglunnar og senda lögreglumenn utan á námskeið þvi einskis má láta ófreistað til að koma í veg fyrir að þessi ósómi breiðist út meira en or^ið er. Benedikt Viggósson hárskeri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.