Dagblaðið - 21.03.1977, Síða 6

Dagblaðið - 21.03.1977, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. MARZ 1977. —ernií þríðji valdamesti maður Frakklands Úrslitbæjar-og borgarstjórna- kosninga viðsvegar um Krakk- land i gær benda ótvírætt til þess að fylgi samsteypustjórnar Giscard d’Estaing forseta fari nú dvínandi. Stærsti sigur stjórnarinnar, en jafnframt ósigur forsetans sjálfs, var í París þar sem Jacques Chirac, leiðtogi Gaullistaflokksins var kosinn borgarstjóri. Bandalag kommúnista og sósíalista stóð með pálmann í höndunum að kosningunum loknum. Fögnuðurinn í her- búðum Gaullista var þó litlu minni vegna sigurs Chiracs í París. Hann er fyrsti maðurinn i heila öld til að verða kosinn borgarstjóri og er nú þriðji valdamesti maður landins — á eftir Giscard d’Estaing for- seta (fg Raymond Barre for- sætisráðherra. Forsetinn hafði sjálfur ætlað iðnaðarráðherra sínum, Michel d’Ornano embætti borgar- stjórans. D’Ornano hafði þó ekki erindi sem erfiði, þvi að hann varð þriðji í kosningunum J acques Chirac. og langt á eftir keppinautum sínum. í fyrrasumar lenti Giscard d’Estaing og Chirac, þá for- sætisráðherra landsins, heiftar- lega saman vegna ágreinings um hvernig ríkisstjórnin ætti að hefta öra framgöngu vinstri aflanna í Frakklandi. Úrslit deilnanna urðu þau að d’Estaing rak Chirac frá völdum og setti Raymond Barre í embættið í hans stað. Lokatölur lágu enn ekki fyrir í morgun um sjöleytið en þá var staðan sú að vinstrimenn höfðu hlotið 51% greiddra at- kvæða en stjórnarflokkarnir aðeins 46%. „Vinstrimen'n eru greinilega í meirihluta í Frakklandi,” sagði leiðtogi sósíalista, Francois Miterrand í nótt. Hann tapaði naumlega fyrir d.’Estaing í forseta- kosningunum 1974. — Frétta- 'menn höfðu eftir Mitterand að sigur vinstrimanna í kosning- unum að ári væri „vel möguleg- ur og jafnvel líklegur “ eins og Michel d’Ornano hann komst sjálfur að orði. fallegt sófasett Sérstaklega stilh Ríkisstjöm Callaghans íhættu Beðið um stuðning Frjálslynda flokksins í dag James Callaghan, forsætis- ráðherra Breta, ræðir í dag við alla þrettán þingmenn Frjáls- lynda flokksins. Það eru þeir, sem hafa nú í hendi sinni ákvörðunar- valdið um hvort brezka ríkis- stjórnin skuli falla eða sitja áfram að völdum. Margaret Thatcher, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, krafðist á föstudaginn nýrra þingkosninga þar sem stjórninni hefði mistekizt að ná meirihlutafylgi við ákvæðí í fjármálafrumvarpi sínu. Verka- mannaflokkurinn fer nú með minnihlutastjórn í Englandi en nýtur stuðnings Frjálslynda flokksins og átta þingmanna frá Norður-írlandi. Vantrauststillaga Thatchers verður borin upp á miðvikudaginn. Fari svo að Verkamannaflokkurinn nái ekki stuðningi Norður-lra eða Frjáls- lynda flokksins fellur stjórn hans. Byður Fordsig framáný? Gerald Ford fyrrum Banda- ríkjaforseti gaf í skyn á laugar- daginn að hann kynni að keppa að forsetaframboði að nýju. Næstu forsetakosningar verða í Bandaríkjunum árið 1980. Ford ávarpaði nokkur þúsund fulltrúa bandaríska skiðaiðn- aðarins, sem sitja nú ráðstefnu í Las Vegas. í ræðu sinni komst hann þannig að orði: „Kannski er ég farinn að líta fram til ársins 1980.” Ford brás sér einnig á skíði. i forsetatíðsinni varhannfræg- ur fyrír að eiga erfitt með að standa á fótunum og að sjálf- sögðu missti hann jafnvægið á skíðunum. Ilann var spurður um ástæðuna fyrir falli sinu. Forsetinn fyrrverandi svaraði: „Það er ekki fallið sjálft sem skiptir máli. Mestu varðar að komast á fætur aftur". Ráð- stefnugestirnir gerðu góðan róm að þessum orðum Fords. Verðið alveg einstakt. Verðkr. 314.000.- i ögreittkr. 282.010.- ENN EITT UNDUR FRA CASIO SKEIÐKLÚKKA 1/10 sek. miliitímar. DIGITALKLUKKA/DAGATAL Quartz kristall nákvæmni + - 15 sek/mán. sjálfvirk dagatals- leiðrétting um mánaðamót þ.m.t. hlaupár. TOLVA allar grunnreikningsaðferðir ásamt konstant o.fl. VEKJARAKLUKKA unnt er að stilla 4 mis- munandi tíma á sólarhring. ÞYNGD 148 gr. smellur i vasann, kr. 20.850. CASI0 umboðið STÁLTÆKI, Vesturveri, sími 27510 Erlendar fréttir REUTER ísrael: Verkföll í yfirfullum fangelsum Um það bil 200 Arabar sem sitja í Hebron- fangelsinu á vesturbakka Jórdanárinnar fóru í sólar- hrings hungurverkfall í morgun til að leggja áherzlu á kröfur sínar um bættan aðbúnað í fangelsinu. í tveimur ísraelskum fang- elsum hafa fangar mótmælt aðbúnaðinum síðastliðna daga. Fangarnir í Hebron eru flestir skæruliðar sem hafa verið staðnir að verki. Þeir segja að helzti ókosturinn við fangelsið sé sá að það sé yfirfullt af föngum. Stjórn fangelsisins viðurkennir það en bætti því jafnframt við að svo væri um öll fangelsi í ísrael. PETERSELLERS ERALVARLEGA VEIKUR Leikarinn Peter Sellers var í skyndi fluttur í sjúkra- hús í gær eftir að hafa veikzt hastarlega. Hann var á leið frá París til Lundúna með flugvél er hann féll skyndi- lega niður. Sjúkrabíll beið hans á Heathrow flugvelli og flutti hann i Charing Cross umsvifalaust. Sellers hlaut alvarlegt hjartaáfall fyrri 13 árum. — Hann giftist 22ja ára gamalli stúlku, Lynne Frederick fyr- ir mánuði. Þau fóru saman í leynilegt brúðkaupsferða- lag og voru að ljúka því er Sellers veiktist. Um borð í flugvélinni fékk leikarinn fyrstu sjúkrahjálp hjá flug- freyjum. Peter Sellers hefur verið giftur þrisvar áður þeim Anne Howe, Britt Ekland og Miranda Quarry. Frægur blaðamaður erlátinn: Hannsákjarn- orkusprenging- unaíNagasaki Bandaríski öiaðamaður- inn William L. Laurenee lézt í Palnta á Mallorca á föstu- dag. Laurence vann sér það til frægðar að fá að vera um borð í flugvélinni sem varp- aði kjarnorkusprengju á Nagasaki í ágúst 1945. Hann var 89 ára gamall er hann lézt. Laurence fékk tvisvar Pulitzerverðlaunin á blaða- mennskuferli sínum — önn- ur fyrir vísindaskrif sín en hin f.vrr frásögn sína af kjarnorkusprengingunni i Nagasaki. A sínum tima sá hann um visindaskrif f.vrir stórblaðið New York Timés. Arið 1968 flutti Laurence ásamt konu sinni til Mall- orca. þar sem hann evddi siðustu æviárunum i ró. Hann hafði ákveðið að rita endurminningar sínar stuttu áður en hann lézt.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.