Dagblaðið - 21.03.1977, Page 17
IiAtiBLAÐIÐ. MANUDAGUR 21. MARZ 1977.
17
d
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróftir
i>
Loks Ármanns-
sigur í körfunni
yfir í leikhléi 49-23. Blikarnir áttu
aldrei minnsta möguleika gegn
nýkrýndum bikarmeisturum, sem
léku án Einars Bollasonar.
Gunnar Jóakimsson skoraði flest
stig KR, 29. Fyrir Blikana skoraði
Óskar Baldursson mest — 18 stig.
í gærkvöld léku Blikarnir við
Val — og enn tapaði Breiðablik
stórt, nú 67-103.
UMFN komst
ærlega í gang
Körfuknattleikur 1. deild. UMFN
— Valur, 105-60
Njarðvíkingar komust loks ær-
lega í gang eftir heldur slaka
leiki undanfarið og sigruðu Vals-
menn suður í Njarðvík með
105-60 en því miður kemur þessi
sigur þeim ekki að haldi — mögu-
leikarnir á íslandsmeistaratitlin-
um eru gengnir þeim úr greipum.
Fyrri háifleikur var fremur jafn
þótt UMFN hefði yfirleitt nokk-
urra stiga forystu. „Þetta er bezti
leikur sem ég hef séð til íslenzks
liðs, — seinni hálfleikurinn,"
sagði Vladan Marcovitch, þjálfari
UMFN, sem sat reyndar á áhorf-
endabekkjunum en lið hans tók
öll völd í sinar hendur og jók
bilið úr 37-32 í hléi í 105, eða um
40 stig. Drýgstan þátt í því átti
Kári Marisson sem skoraði 21 stig
og Brynjar Sigmundsson, 19 stig.
Einnig voru drjúgir að vanda þeir
Geir Þorsteinsson, Jónas
Jóhannesson, Þorsteinn Bjarna-
son sem skoruðu á annan tug
stiga. Nokkuð hitnaði í koiunum
undir lokin og var Torfa Magnús-
syni vísað út úr húsinu en hann
kom síðar, í gervi vatnsbera, inn í
saiinn til að brynna féiögum
sínum en var umsvifalaust vísað
út aftur af dómurum leiksins.
emm/gó.
CASI0-LCÚR
Verð frá kr. 28.350.
CASIO-LC armbandsúr
býður uppá:
• Klukkust., mín., 10 sek., 5
sek., 1 sek.
• Fyrir hádegi / eftir
hádegi.
• Mánuður, dagur, vikudag-
ur.
• Sjálfvirk dagatalsieiðrétt-
ing um mánaðamót.
• Nákvæmni +4-12 sek. á
mánuði.
• Ljóshnappur til aflestrar
í myrkri.
• Rafhlaða sem endist ca 15
mán.
• 15 sek. verk að skipta um
rafhlöðu.
• Ryðfrítt stál.
• 1 árs ábyrgð og viðgerða-
þjónusta.
STALTÆKI, Vesturveri.
Sími 27510.
—og íslandsmeistarar FH og Haukar skildu jöfn
21-21 í 1. deild íslandsmótsins
Hafnarfjarðarliðin FH og
Haukar skiidu jöfn á laugardag í
1. deild íslandsmótsins i hand-
knattleik, 21-21 og skoruðu
Islandsmeistararnir jöfnunar-
mark sitt úr vítakasti þegar
aðeins 9 sekúndur voru til loka
leiksins. Jafntefli voru réttlát úr-
slit í jöfnum og spennandi leik
sem iðulega var nokkuð vel leik-
inn en þess á milli gerðu leik-
menn sig seka um slæm mistök.
FH fékk sannkallaða óska-
byrjun — kom Haukum í opna
skjöldu á byrjun með hraða sín-
um og hve fljótir leikmenn voru
fram.Þannig skoraði FH fjögur
fyrstu mörk leiksins og hefóu
mörg lið brotnað við slíkt mótlæti
— en ekki Haukar. Þeir skoruðu
fyrsta mark sitt á 8. mínútu og um
miðjan fyrri hálfleik höfðu þeir
náð að jafna 5-5. Sannarlega yel
gert — þeir tóku sig saman í
andlitinu og börðust vel og að
baki þeim stóð Gunnar Einarsson
sig vel í markinu.
Það sem eftir var af fyrri hálf-
leik var ákaflega jafnt með
liðunum — FH komst að vísu tví-
vegis tvö mörk yfir en Haukar
höfðu engu að síður forustu í leik-
hléi 13-12 — og var 13. mark
Hauka eitthvert hið furðulegasta
sem sézt hefur í íslenzkum hand-
knattleik — skorað þegar aðeins
14 sekúndur voru til leikhlés.
Gunnar Einarsson kastaði knett-
inum langt fram en Birgir Finn-
bogason komst inn í sendingu —
einn leikmanna Hauka stóð fyrir
framan Birgi, sem ætlaði að kasta
knettinum fram — hann stóð á
punktalínu. En Birgir hætti
sk.vndilega við — ætlaði að snúa
sér í hring en á ótrúlegan hátt
missti hann knöttinn sem fór i
mannlaust markið, 13-12 Haukum
í vil, ótrúlegasta sjálfsmark sem
sézt hefur í 1. deild.
Siðari hálfleikur var ákaflega
jafn — á 3. minútu var staðan
14-14 og síðan 16-16. Þá náði FH
hins vegar tveggja marka forustu
18-16. Haukar virtust vera að
brotna — gerðu sig seka um ákaf-
lega slæm mistök en enn tóku
þeir sig saman í andlitinu og
þegar 10 mínútur voru til leiks-
loka höfðu þeir náð að jafna 18-
18. Aftur náði FH tveggja marka
forustu 20-18 en seigla Haukanna
vann upp leikreynslu FH — á 27.
mínútu höfðu þeir enn jafnað 20-
20 og spennan í hámarki og áhorf-
endur með á nótunum. Sigurgeir
Marteinsson skoraði 21. mark
Hauka á 29. mínútu — FH með
knöttinn og leiktíminn að renna
út — Þórarinn Ragnarsson fór
inn úr horninu að því er virtist
óhindraður en Gunnar Einarsson
varði. Gunnar Kjartansson annar
dómari stóð alveg við atvikið og
dæmdi innkast — en Ölafur
Steingrímsson, sem stóð langt úti
á velli dæmdi vítakast og hans
dómur réð — FH slapp með
skrekkinn á hinu umdeilda vita-
kasti en úrslitin 21-21 voru sann-
gjörn þegar á heildina var litið.
Ilörður Sigmarsson var að
venju langdrýgstur Hauka —
skoraði 10 mörk, þar af 6 úr vít-
um. Ölafur Ólafsson, Ingimar
Haraldsson og Stefán Jónsson
skoruðu 2 mörk hver. Guðmundur
Haraldsson, Svavar Geirsson, Þor-
geir Haraldsson, Sigurgeir Mar-
teinsson og jú, nota bene, Birgir
Finnbogason, skoruðu eitt mark
hver.
Viðar Símonarson skoraði flest
mörk FH — 6 2 víti. Geir Hall-
steinsson og Þórarinn Ragnarss.
skoruðu 4 hvor, Janus Guðlaugs-
son og Sæmundur Stefánsson 3
mörk hvor.
Leikinn dæmdu Gunnar Kjart-
ansson og Ólafur Steingrímsson.
h halls.
núþriústig
Valur vann tvo mikilsverða
sigra í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik kvenna um helg-
ina. Á laugardag léku Valsstúlk-
urnar við FH og sigruðu 15-14.
Síðan lék Valur við Armann I
gærkvöld og enn var Valssigur —
nú 15-10.
Fram vann einnig sinn leik um
helgina — sigraði FH öruggléga
19-9 eftir að staðan í leikhléi hafði
verið jöfn — 7-7.
Staðan í 1. deild er nú:
Valur 11 10 1 0 158-93 21
Fram 10 9 0 1 136-93 18
Þór 12 7 0 5 131-118 14
FH 10 4 1 5 116-117 9
Ármann 10 4 1 5 103-111 9
KR 11 4 0 7 110-118 8
Víkingur 10 2 0 8 97-146 4
Breiðablik 11 1 1 9 99-162 3
Fram nú af hættu-
svæði 1. deildar
—sigraði Gröttu 21-16 í 1. deild íslandsmótsins f
handknattleik—og hefur nií f jórum stigum meir en Þróttur
Fram hefur nú þokað sér af
mesta hættusvæði 1. deildar
Islandsmótsins í handknattleik
eftir sigur gegn Gróttu í iþrótta-
húsinu í Hafnarfirði á laugardag
21-16. Fram hefur nú hlotið 7 stig
—aðeins stigi minna en ÍR og
fjórum stigum meir en Þróttur,
sem líklega mun keppa við KR
unt sjöunda sætið i 1. deild að ári.
Grótta virðist hins vegar dæmd til
að falla — liðið er hvorki fugl né
fiskur, áberandi lakara en önnur
lið 1. deiidar.
Leikur Fram og Gróttu á
laugardag var jafn lengst af og
það var ekki fvrr en langt var
liðið á síðari hálfeik að Fram náði
afgerandi forustu og tryggði
sigur. Grótta byrjaði á að skora
fýrsta mark leiksins en jafnt var á
öllum tölum upp í 5-5 — þá náði
Frani tveggja ntarka forustu 7-5.
Þá voru eftir sjö minútur af f.vrri
hálfleik en Grótta skoraði þrjú
síðustu ntörk hálfleiksins —
Fram ekkert og Grótta hafði yfir í
leikhléi 8-7.
Framan af síðari hálfleik náði
Grótta tveggja marka forustu, 11-
9 og síðan 12-10 en á 18. mínútu
var staðan jöfn — 15-15. Þá náði
Fram að skora fjögur mörk í röð á
stuttum tima — breyta stöðunni í
19-15 og úrslit voru ráðin — sigur
F'raih 21-16.
Leikur liðanna á laugardag var
slakur — bæði lið vantar til-
finnanlega það sem mest prýðir
sterk handknattleikslið — góðar
skyttur og sterka línumenn. Hins
vegar hefur Andrés Bridde komið
sterkur upp í tveimur síðustu
leikjum Fram, skorað fallegmörk
auk þess að vera öruggur i víta-
köstum. Pálmi Pálmason er hins
vegar i mikilli lægð. Þeir Arnar
Guðlaugsson og Jón Árni Rúnars-
son skoruðu góð mörk á mikilvæg-
um augnablikum og tryggðu liði
sínu sigur.
Hjá Gróttu bar mest á Birni
Péturssyni — átti sinn bezta leik í
langan tíma. Árni Indriðason
stóð að venju fyrir sínu — barðist
vel bæði í vörn og sókn.
Mörk Fram skoruðu: Andrés
Bridde 7 — 4 víti. Pálmi Pálma-
son skoraði 4 mörk — 1 víti.
Sigurbergur Sigsteinsson, Jón
Árni Rúnarsson og Arnar Guð-
laugsson skoruðu 3 mörk hver.
Arni Sverrisson skoraði 1 mark.
Björn Pétursson skoraði 6 mörk
Gróttu — 3 víti. Gunnar Lúðvíks-
son skoraði 4 mörk, Arni Indriða-
son og Þór Ottesen 2 hvor. Grétar
Vilmundarson og Georg Magnús-
son skoruðu 1 mark hvor.
Leikinn dæmdu Kristján Örn
og Geir Thorsteinsson —
auðdæntdan leik dæmdu þeir vel.
Eftir fjóra tapleiki í röð tókst
íslandsmeisturum Armanns loks
að binda enda á tapferil sinn
þegar Armann sigraði Fram í 1.
deild körfuknattleiksins í gær,
91-84. Ekki var leikur liðanna
góður, nei síður en svo, en þó að
Artnann eigi nú ekki möguleika á
íslandsmeistaratitlinum hlýtur
sigurinn í gær engu síður að vera
kærkominn.
Leikurinn var lengst af i jafn-
vægi, Ármann hafði yfir í leikhléi
44-41 og um miðjan síðari hálfleik
varð Jón Sigurðsson að fara af
leikvelli með 5 villur. Þetta virtist
ætla að brjóta Ármenninga,
Símon Ólafsson var heldur ekki
mpð þar sem hann meiddist ný-
lega og verður ekki meira með.
Skömmu eftir að Jón fór af leik-
velli komst Fram í fyrsta sinn yfir
— en Ármann reyndist sterkara á
lokasprettinum og sigraði 91-84.
Atli Arason skoraði flest stig
Ármanns, 23, Jón Björgvinsson 19
og Jón Sigurðsson 15. Birgir örn
Birgis lék með Ármanni og kom
reynsla hans og yfirvegun Is-
landsmeisturunumtil góða á loka-
sprettinum.
Guómundur Böðvarsson
skoraði flest stig Fram, 17, Jónas
Ketilsson og Þorvaldur Geá’sson
16 hvor.
KR sigraði Breiðablik á föstu-
dag með 105-69 eftir að hafa haft
Forusta Vals
Geir Hallsteinsson með knöttinn í baráttu við Hörð Sigmarsson, Haukum, en Guðm. Stefánsson fylgist
með. DB-mynd Bjarnleifur.
FH jaf naði úr vafa-
sömu vfti í lokin!