Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.04.1977, Qupperneq 3

Dagblaðið - 27.04.1977, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRlL 1977. 3 Þeir gætu heldur ekki lifað af 70 þús. kr. mánaðarlaunum Það er alltaf verið að bera okkur saman við Dani en mikilvægum staðreyndum er haldið leyndum fyrir ókkur segir f óvægri gagnrýni á þátttakendur í sjónvarpsþætti Guöný Árnadóttir skrifar: I gær hinn 19.4 settist ég stundvíslega kl. 8 fyrir framan sjónvarpið. Varla var við miklu að búast, þar sem dagatalið sýndi þriðja dag viku. Að visu fengum við að sjá framhalds- fiokkinn Colditz, sem að minu mati er vel gerð mynd, sem sýnir að einnig Þjóðverjar eru og hafa verið afskaplega mann- legir og að heimsstyrjöldin var ekki síður erfið þeim en banda- mönnum. Einnig þeim hlýtur að hafa verið ljóst að í hernaði er aðeins um tvennt að velja, að duga eða drepast. íslendingar hafa löngum talið sig til hinna meiriháttar friðelskandi þjóða. En þýðir það.að menn eins og Davíð Scheving Thorsteinsson og Kristján Ragnarsson geti komið fram í sjónvarpi með aðrar eins rangfærslur og þeir gerðu hinn 19.4 1977. Bjóst við réttri mynd af mólunum Velvitandi að um þjóðmál yrði fjallað í þætti næst á eftir Colditzsatég áfram. Vonandi að þar sem ekki var um þingmenn að ræða, fengjum við rétta mynd af ástandinu í dag. En hvað gerist? I sjónvarpssal mæta tveir fulltrúar vinnuveit- enda og tveir fulltrúar laun- þega. Þá ósk ætti ég að Björn væri talsmaður alþýðu, því fáir forystumenn hafa komizt nær sannleikanum en hann, þegar hann sagði: Ég er hræddur um að enginn okkar gæti lifað af 70 þús. kr. í mánaðarlaun. Spursmálið er kannski ekki beint hver launin eru, heldur hvað þarf fólk til að geta lifað mannsæmandi lífi. 1 þessum þætti kom það fram hjá Davíð Scheving að vinnuvikan væri 37 stundir. Þar held ég að Davíð Scheving Thorsteinsson fari villur vegar. Vinnuvikan á Island er 40 stundir, 35 s.tundir í dagvinnu og 5 stundir í eftir- vinnu. Óréttlótur samanburður Davið Scheving Thorsteins- son ber okkur íslendinga saman við nágrannaþjóðir. Þar á hann við Svía, Norðmenn og Dani. Hann tekur sem dæmi verkfall það sem geisað hefur hjá prenturum í Danmörku nú undanfarið. Hefur Davíð Scheving dvalið í Danmörku nýlega? Það hef ég. Til við- miðunar fyrir íslenzkan al- menning vil ég taka dæmi. Erfitt mun að lifa af sjötíu þúsund krónum á mánuði. Myndin sýnir hafnarverkamenn í Reykjavik. I janúar 1975 voru laun íslenzks kennara í dönskum krónum 2300 á mánuði. I janúar 1975 voru laun dansks kennara er starfað hafði í 20 ár í dönskum kr. 8000. Fyrir sína kennslu hafði íslenzki kennarinn sem sagt 2300 en sá danski 8000. Svo leyfir Davíð Scheving sér að bera saman í prósentum kaupkröfur íslendinga og Dana. I Dan- mörku telst sá lágiaunaniaður er hefur 2600 danskar kr. hálfs mánaðarlega. Þ<tð e:u 5200 mánaðarlega. Hrædd er ég um að kaupkröfur Dana yrðu öllu hærri að prósentutölu, væru laun láglaunamannsins þau sömu og hér. Danskir lóglaunamenn fó húsaleigustyrk Þessir menn, sem svo tamt er að bera okkur saman við Norðurlöndin, ættu að skammast sín og það á raunhæfan hátt. Þeir ættu t.d. að láta það koma fram, að danski láglaunamaðurinn fær húsaleigustyrk þurfi hann að leigja. — Borgi hann t.d. 1000 fcr. danskar í húsaleigu á mánuði, fær hann allt upp í helming í styrk frá bæjar- félaginu. Yfir þessu þegja þeir sem sí og æ reyna að telja hin- um almenna borgara trú um að allt sé mest og bezt hér. Eg er hrædd um að Dönum blöskraði þyrftu þeir að borga 40 kr. danskar fyrir einn kjúkling, þar sem þeim þykir mikið að borga 12 kr. í dag. Talsmaður útgerðarinnar ó móti hœkkun lóg- markslauna Mér þykir skömm fyrir út- gerðarmenn að hafa sem tals- mann Kristján Ragnarsson. Maður sem segir blákalt frammi fyrir alþjóð, að hann sé á móti hækkun lágmarkslauna í 100 þúsund vel vitandi að mannsæmandi lífi er ekki hægt að lifa hér á landi á lægri tekjum en 150 þús. Eg tek undir með Birni Þórhallssyni og segi: Ég er hrædd um að hvorki Davíð né Kristján lifðu á 70 þúsund kr. á mánuði. Raddir lesenda Umsjón: Jónas Haraldsson Hnífsdælingur hringdi: Við fórum nokkur úr Rækjuvinnslunni í Hnifs- dal í Iðnó a föstudagskvöldið til að sjá Skjaldhamra. Það gerðist þegar um jtað bil tuttugu mínútur voru liðnar á leikritið að kerling frá Suður- eyri upphóf mikið garg og sví- virðingahróp á leikarana, eins og að þeir væru ljótir og leiðin- legir, gætu ekkert leikið og að hún væri bara farin. Auðvitað var hún drukkin en það er engin afsökun, þótt menn noti sér það gjarnan til afsökunar að þeir hdfi verið undir áhrifum. Það var náttúr- lega farið fram með kerlinguna og skömmu síðai kom hún aftur og þagði það sem eftir var. Það er andskoti hart að geta ekki farið í leikhús án þess að eiga svona ófögnuð yfir höfði sér — ekki sízt þégar um er að ræða jafn stórkostlega Sýningu og við vorum á þarna. Helga Bachmann og Þorsteinn Gunnarsson i hlutverkum sínum i Skjaldhömrum Jónasar Arnasonar. IMIÐJU LEIKRITI FÓR FULL KERL- ING AÐ GARGA Spurning dagsins Reykir þú? Olafur M. Pálsson pipulagningar- maður: Já. — En það væri gott að geta hætt en ég veit ekki hvort ég hef nógan viljastyrk til þess. Guðrún Tryggvadóttir nemi í MT: Nei, ekki að staðaldri. Ég fæ mér þó 1-2 sígarettur þegar ég er að skemmta mér og ætla að halda því áfram á meðan ég get haldið því í hófi. Bergur Bjarnason iögfræðingur: Nei, ég hætti fyrir 4 árum. Ég hef ekki hugsað mér að byrja á því aftur. Eg ráðlegg öllum að hætta hið fyrsta. Asdís Þorláksdóttir húsmóðir: Já, en ég hef hugsað mér að hætta og það jafnvel í kvöld. Það er þó ekki alveg ákveðið. Kristín Ölafsdóttir nemi: Nei. — Aldrei byrjað og ætla ekki að byrja. Þetta er alger óþarfi. Lotta Backman frá Finniandi: Mjög sjaldan — bara um helgar. Ég reyki svo sem einn pakka á viku en ég ætla að hætta.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.