Dagblaðið - 27.04.1977, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 19r,F.
S
Listmálari, rithöf undur, stýrimaður og
stjórnarmaður Vængja:
Ef kvartað er
yfir myndunum
— þá má reyna
bækumar!
— rætt við Jónas Guðmundsson ítilefni sýningar
á Kjarvalsstöðum
,,Eg er aö fara að sýna á Kjar-
valsstöðum," sagði Jónas
Guömundsson listmálari, stýri-
maður, rithöfundur og stjórnar-
maður Vængja í viðtali við DB í
gær. Sýningin verður opnuð
laugardaginn 30. apríl nk. og
stendur til 8. mai. „Þétta hefur
farið lágt, því ég er hlédrægur
maður og því vill oft gleymast að
geta svo merkra viðburða. ,,Að
sýningu lokinni fer ég til Þýzka-
lands, þar sem verður opnuö
sýning eftir mig í Gallerý Clasing
i Munster.
Eg hef málað til útflutnings
lengi. Astæða fyrir því aö
íslenzkum málurum hefur gengið
illa erlendis er sú að myndir
þeirra eru ekki táknrænar fyrir
neitt land sérstaklega Hvar er
Island í þessum söng? spurði
Nóbelsskáldið, þegar Karlakór
Reykjavíkur fór að þylja Vínar-
valsa og Dóná svo blá svo blá í
hlíðum Alpafjalla. Siðmenntaðar
þjóðir hafa ekki áhuga á íslenzk-
um málurum, nema Island fylgi
með. Þeir vilja þá ekki frekar en
viö vildum fá Spánverja til að
setja upp Skugga-Svein.
Menn geta ekki hengt verkt sín
á einhverja lýriska snaga í
Evrópu, þótt þeir hafi hlotið ein-
hverja staðbundna frægð úti í
Atlantshafi."
Hvar hefur þú lært að mála
Jónas? „Eiríkur á Þingeyri sagói
einu sinni. „Ég hlaut mjög gott
uppeldi, ég ól mig upp sjálfur".
Eitthvað svipað þessu hefur þetta
verið með mig. Auðvitað hef ég
gengið á listaskóla og numið hjá
víðfrægum prófessorum. Ég segi
ekki að það hafi verið beinlínis
skaðlegt en það hjálpaði ekki
neitt. Og menn geta haldið því
áfram að velta því fyrir sér hvort
Bólu-Hjálmar hefði ort betur, ef
hann hefði gengið í Bændaskóla."
Ferðastu mikið? „Já það er til
mikillar hjálpar, einkum er at-
hyglisvert að dvelja í Kína og
austurlöndum fjær, þar sem
menn vita ekki ennþá að það er
hægt að stunda listnám í skólum.
Meðan við þurfum sífellt stærri
myndflöt til að,sýna svo sem ekki
neitt, myndu Kínverjar leika sér
að því að máia allan Vestfjarða-
kjálkann með skuttogurum, bron-
kóum og öðru. Því miður kynntist
ég Kínverjum of seint en list
austurlandabúa hefur haft djúp
áhrif á mig.
Hvernig fer það saman að
skrifa bækur og leikrit og mála
myndir?
„Það er að mörgu leyti gott, því
þegar menn taka að kvarta yfir
myndunum mínum, þá spyr ég, —
hefur þú lesið bækurnar mínar?“
JH
GERT RAÐ FYRIR 50 ÞUSUND
MANNA BYGGÐ UNDIR ÚLFARSFELLI
Skobudin Sími 14190
SNORRABRAUT38 Póstsendum
NYKOMNIR
kvenskór úr
mjúku leðri
Stærðir: 37—41
Litur: Kauðbrúnn
Vefð kr. 4.300,-
Stærðir: 38—41
Litur: Brúnn
Verð kr. 3.900,-
Stærðir: 37—41
Litur: Rauðbrúnt
Verð kr. 4.300,-
Bflar
Mercedes Benz 280 SE árg.
1970 i algjörum sérflokki, alls
konar skipti.
Fiat 128special árg. 1976.
Volvo 144 árg. 1974, ekinn
aðeins 24 þúsund km, einn sá
allra bezti.
Willys Wagoneer árg. 1976, ek-
inn 17 þúsund km.
Scout árg. 1974, alls konar
skipti.
Toyota Corolla station árg.
1975, nýinnfluttur.
Audi 100 LS árg. 1974, ekinn
25 þúsund km.
Volkswagen árg. 1973-74, úr-
valsbílar.
Morris Marina árg. 1974.
Datsun 120 árg. 1974, mjög vel
með farinn.
Audi árg. 1973, sjálfskiptur
með topplúgu.
Peugeot 504 dísil árg. 1975, vel
með farinn einkabíll.
bilqsaÍQ
GUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3 — Reykjavík
Simar 19032 & 20070
Laaríð
akyndihjálp!
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Maharishi Mahesh Yogi
KERFIÐ INNHVERF ÍHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION PROGRAMME
verður í kvöld kl. 20.30 í Arkitektasalnum Grensásvegi 11 (yfir verzlun-
inni Málaranum). Tæknin sem er auðlærð og auðæfð, víkkar tilfinninga-
og vitsmunalíf. Hún losar um djúpstæða streitu, veitir mjög djúpa bvíld,
eykur skýrleika hugsananna, skapar innra jafnvægi og stöðugleika.Þetta
staðfesta vísindalegar rannsóknir. Ollum heimili aðgangur.
íslenzka í'nugunarfélagið.
— áætluð f jölgun Reykvíkinga 17 þúsund á næstu
tuttugu árum, þaraf 2000 ígamla bænum, þar
sem fækkað hefur um 3700 á sl. 15 árum
Borgarstjórn samþykkti í
fyrrinótt ályktanir skipulags-
nefndar borgarinnar um endur-
skoðun á aðalskipulagi Reykja-
víkur til 1995.
Tillaga um nýtt íbúðahverfi
við Úlfarsfell, þar sem fyrir-
hugað er að 50 þúsund manns
hafi búsetu, var samþykkt með
12 atkvæðum Sjálfstæðisflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks. Alþýðubandalagið
greiddi ekki atkvæði.
Tillaga um endurskipulagn-
ingu eldri hverfa var samþykkt
með 11 atkvæðum gegn 3. Full-
trúar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks greiddu at-
kvæði með tillögunni, fulltrúar
Alþýðubandalags gegn en full-
trúi Alþýðuflokks sat hjá.
Borgarstjórnarfundurinn
stóð fram undir morgun.
Ágreiningur var aðallega um
hvort ætti að ráðast í byggingu
og framkvæmdir svo stórs og
dýrs svæðis, sem Úlfarsfells-
svæðið er, eða hvort leggja ætti
áherzlu á enduruppbyggingu
eldri hverfa, að sögn Björgvins
Guðmundssonar, borgarfull-
trúa Alþýðuflokksins.
Andstaðan við Úlfarsfellstil-
löguna var mest og nær ein-
göngu af hálfu fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins, sem töldu að
frekar ætti að stefna aukinni
byggó Reykjavíkur suður á
bóginn í samvinnu við ná-
grannasveitárfélögin.
„Skoðun mín um tillögu
skipulagsnefndar um eldri
hverfin er sú,“ sagði Björgvin
Guðmundsson í samtali við DB í
gær, „að hún gengi allt of
skammt. Með eldri hverf-num
er átt við öll borgarhverfi að
Snorrabraut. Þar er gert ráð
fyrir tvö þúsund íbúa aukningu
á næstu tuttugu árum, en til
hliðsjónar má geta þess að
íbúum þar hefur fækkað um
3700 á undanförnum fimmtán
árum. Það ætti því að mínu viti
að örva byggð á þessu svæði og
gera róttækari ráðstafanir um
uppbyggingu ,og endurnýjun
þessara íbúðahverfa."
Björgvin Guðmundsson sagði
að á næstu tuttugu árum væri
reiknað með að íbúum Reykja-
víkur fjölgaði um sautján
þúsund manns. Enn mætti
byggja nokkuð í Breiðholts-
hverfum, auk þess sem óbyggt
væri í Selási og á Eiðisgranda.
„Mín skoðun er sú,“ sagði
Björgvin, „að það sé fullkomið
ábyrgðarleysi að nýta ekki eldri
borgarhverfin betur en gert er
og fyrirhugað er að gera. Skólar
í sumum hverfanna eru hálf-
tómir, en þar eru fyrir hendi
allar þjónustustofnanir, sem
nýta má miklu betur með rétt-
um aðferðum. Til dæmis má
gera fólki auðveldara að fá lán
til íbúðakaupa í eldri borgar-
hlutum. þannig að yngra fólk
með börn vilji heldur fl.vtja
þangað, jafnframt því sem lóða-
eftirspurn verður fullnægt,"
Þriðji hluti breytingartil-
lagna skipulagsnefndar Reykja-
víkurborgar fjallaði um gild-
andi skipulag aðalgatnakerfis-
ins. Um þær tillögur urðu til-
tölulega litlar umræður, en
Alþýðubandalagsmenn lögðu
áherzlu á þá skoðun sina að
draga ætti úr notkun einka-
bifreiða og nýta almennings-
vagnakerfið mun betur en
gert er. OV.
Smurbrauðstofqn
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Sími 15105