Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.04.1977, Qupperneq 9

Dagblaðið - 27.04.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1977. Verkföll f Ijótlega eftir 10. maí? Landvernd, ráðstefna um útilíT: Hvaða rétt áttu á jörð- inni sem þú stendurá? Ef ekki verður mikil breyting á gangi samninganna telja forystumenn verkalýðs- félaganna ákaflega líklegt að verkföll verði fljótlega upp úr 10. maí. Samningarnir ganga úr gildi 1. maí. í samningunum í fyrra leið þó hálfur annar mánuður áður en til verkfalla kom en nú er annað uppi á teningnum, segja forystumenn félaganna. Viðbrögð félaganna eru á allt annan veg en var í fyrra og miklu harðari. Stefnt er að því að félögin hafi aflað sér verkfallsheimilda fyrir 1. mai og með hverjum degi fjölgar þeim sem það hafa gert. Alþýðusambandið hefur ekki neina heildarskrá yfir þessi viðbrögð en í stuttu máli má segja að öll verkalýðs- félögin að kalla verði komin með þessa heimild upp á vas- ann fyrir helgina. Síðan er sjö daga fyrirvari og gert ráð fyrir að boðun verkfalla yrði ekki fyrr en hinn þriðja, þannig að verkfall gæti tæknilega orðið strax hinn tíunda. Auðvitað kann staðan í samningunum að breytast og þeir gætu komizt úr þeirri ,,biðstöðu“ sem þeir voru í við upphaf samningafundar- ins i gær. Því ‘gætu forystu- menn Alþýðusambandsins ákveðið, þegar til kemur, að fresta boðun verkfalla eitthvað. Forystumenn ASÍ hafa ekki gert upp við sig hvort verða skyldu allsherjarverkfall eða „skæruverkföll“, þannig að nokkur félög fari í verkfall hverju sinni til skiptis, HH Verkföll eru ekkert grín. Lík- lega minnast menn mjólkur- leysis, samgönguleysis, lömunar á öllum sviðum þjóð- lífsins. Þessi mynd er úr verk- fallinu í febrúar í fyrra. Bræðurnir Sigurður og Magnús með rósina góðu, en hún hafði að geyma gjöf Dagblaðsins til Hort stórmeistara. (DB-myndir Bjarnieifur) Hort og rósavöndurinn: „Hvaða rós á að opna?” — það er ein spurningin sem svarað verður á ráðstefnunni Margur útilífsmaðurinn hefur komizt að þvi full- keyptu þegar hann hefur í grandaleysi farið inn á lendur manna, sem telja sig eiga þúfuna þar sem hahn hefur tyllt sér. Ferðafólk er oft og einatt ðvelkomið í löndum ann- arra. Á ferðamálaráðsstefnu sem Landvernd gengst fyrir 30. apríl nk. verður gefið yfir- lit um almannarétt og þá fyrst og fremst er varðar eignar- og umráðarétt á landi og um- ferðarrétt almennings í sam- bandi við útivist hvers konar.' Landvernd hefur um skeið unnið að ráðstefnuhaldinu með ýmsum aðilum. Náttúru- verndarráði, Ferðamálaráði og nokkrum félögum sem vinna að útivistarmálum. í frétt frá Landvernd segir að upplýsinga hafi verið aflað frá allmörgum aðilum um þróun hvers útivistarsviðs fyrir sig. Verður gefið yfirlit yfir þróun mála á hverju sviði fyrir sig á ráðstefnunni. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Loftleiðum, ráðstefnu- salnum, og hefst kl. 9 fyrir hádegi á laugardaginn. JBP Það vakti mikla athygli í hóf- inu, sem bæjarstjórn Seltjarnar- ness hélt Vlastimil Hort í fyrra- dag, þegar honum barst blóm- vöndur frá Dagblaðinu, þakk- lætisvottur fyrir að láta apríl- gabbið okkar rætast. Trúlega er þetta í fyrsta sinn sem slíkt gabb rætist, — og það i sama mánuði og það birtist. > Blómvöndurinn reyndist sumsé ekki neinn venjulegur vöndur af fallegum rauðum rósum. Ein rós- anna var nefnilega þannig gerð, að ef ýtt var á litla fjöður, opn- aðist blómið og innan í því var forláta hringur úr gulli, skreyttur taflmönnum úr platínu. Blár safírsteinn prýddi hringinn sem skein af þegar rósin loks opnaðist. En það vafðist fyrir niönnum fyrst í stað að finna leynifjöðrina á rósinni góðu. Hort skrýddist þegar hringnum góða á blaðamannafundi eftir veizlu þeirra Seltirninga, en hringnum fylgdu góðar óskir til stórmeistarans um gott gengi á Hringinn og búnaðinn snjalla utan um hann, áttu þeir bræó- urnir Sigurður og Magnús, gull- smiðir og eigendur Gulls og Silfurs á Laugavegi. Þeir tóku til að hanna hringinn á laugardag og luku smiðinni yfir helgina. Að vísu unnu þeir ekki af slíku ofur- kappi sem Hort við skákborðin en þeir lögðu nótt við dag og luku við sitt verk timanlega. skáksviðinu og í einkalífi sínu um ókomin ár. JBP JuDO Byrjunarnámskeið fyrir herra hefst 2. maí nk. Japanski þjálfarinn Yoshihiko Yura kennir. Innritun og uppl. í síma 83295 alla virka daga frá kl. 13 -22. JÚDÓDEILD ÁRMANNS ÁRMÚLA 32

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.