Dagblaðið - 27.04.1977, Page 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1977.
óttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
lílfarnir hafa náð sæti
sínu í 1. deildinni á ný
—eftir góðan sigur á Cardiff í gær. Geysileg fallbarátta bæði í
1. og 2. deild á Englandi. Bristol City vann QPR
Wolverhampton Wanderers,
eitt frægasta lið Englands eftir-
stríðsáranna, tryggði sér rétt til
að leika í 1. deild næsta leiktíma-
bil, þegar liðið vann góðan sigur á
Cardiff, 4-1, í Wolverhampton í
gærkvöld. Þó eiga Úlfarnir eftir
fjóra leiki og hafa hlotið 53 stig.
Aðeins Chelsea og Bolton geta
náð meiri stigafjölda — en
greinilegt, að Ulfarnir, sem féllu
svo óvænt niður í fyrravor, stefna
í öruggan sigur í 2. deildinni.
Ekki var getið í fréttaskeytum
eða í BBC hverjir skoruðu mörk
Úlfanna gegn Cardiff.
Margir leikir voru háðir á Eng-
landi — og fallbaráttan í 1. og 2.
deild er gífurleg. Úrslit í leikjun-
um urðu þessi:
1. deild
Leeds — West Ham 1-1
Middlesbro — Man. Utd. 3-0
QPR — Bristol City 0-1
2. deild
Charlton — Burnley 5-2
Orient — Southampton 2-3
Wolves — Cardiff 4-1
3. deild
Peterbro — Lincoln 1-2
Preston — Gillingham 1-0
Port Vale — C. Palace 4-1
4. deild
Newport — Exeter 0-3
Swansea — Huddersfield 2-1
Rochdale — Torquay 0-1
Bristol City hlaut ákaflega þýð-
ingarmikil stig gegn QPR á Loftus
Road í Lundúnum — og hefur
Ungt afreksfólk vakti
athygli í Haf narfirði
Það var avo sannariega veflur til útivistar í
Hafnarfirði á sumardaginn fyrsta. Skrúðganga
skátanna var óvenjufjölmenn og þegar Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar fór að leika á skólamölinni
við Lœkjarskóla streymdi fólkið bókstaflega að
úr öllum áttum og þetta annars rúmgóða
útivistarsvœði var allt of lítiö. Þegar Lúðrasveit
Haf narfjarðar haf Ai lokið við að flytja hin sígildu
sumariög undir stjórn hljómsveitastjórans Hans
Ploder, hófst Víðavangshlaup Hafnarfjarðar í
hinum ýmsu flokkum. Þátttakendur í Víða-
vangshlaupinu hafa aldrei verið fleiri en nú,
284. Þó má geta þess aö í stúlkna- og karia-
flokknum voru fáir keppondur en gott af-
reksfólk. Á meðan Víðavangshlaupið fór fram
var keppt í hástökki í karia- og kvennaflokki.
Átti sú nýbreytni óskipta athygli hátiðargesta.
Islandsmeistarinn í karlaflokki innanhúss,
Guðmundur R. Guðmundsson, sigraði og
stökk 1.90 m. Gott hjá 17 ára pilti. Þorsteinn
G. Aðalsteinsson stökk 1.80. Aðeins 15 ára.
Þriðji í hástökkinu var Sigurður P. Guðjóns-
son, 14 ára, og stökk hann 1.75. FJórði var
Hjörtur Howser, Islandsmeistarinn í sveina-
flokki, stökk 1.65. Sigurvegari í hástökki
kvenna, Lára S. Halldórsdóttir 1.45 m. Anna
Haraldsdóttir 1.40 m. Fanney B. Karlsdöttir
1.30 og Matthildur Pálsdóttir 1.25 m.
Sigurvegarar í Víðavangshlaupi Hafnar-
fjarðar í hinum ýmsu flokkum.
8 ára og yngri.
Drengir:
Gunnar K. Karlsson 4.03.0
Ef þú reykir enn, er hér ábending til þin í
fullri vinsemd: Láttu nú ekki lengur sem öllu
sé óhætt. Sjáðu að þér. Hættu aö menga
lungun i þér og þrengja æöarnar til hjartans
áður en það er orðið of seint.
Jón ö. Þorsteinsson
Ólafur Kristjánsson
Ingólfur Einarsson
Bjarni Þ. Harðarson
Viktor B. Guðmundsson
Telpur:
Björg Skúladóttir
Anna Sigurðardöttir
Elva S. Jónsdóttir
Linda B. Gunnarsdóttir
Margrét Jónsdóttir
4:09.8
4:11.8
4:14.5
4:16,6
4:17.2
2:57.8
3:00.5
3:06.3
3:10.6
3:13.5
Það öhapp vildi til i strákaflokknum að
þeir stoppuðu á miðri leið og þess vegna eru
tímarnir lakari hjá þeim en hjá stelpunum.
9—12 ára telpur:
Sigríður B. Einarsdóttir 3:51.8
Margrét Agnarsdóttir 3:58.3
Laufey Baldursdóttir 4:08.7
Jóhanna K. Guðmundsdóttir 4:10.6
Guðrún Þórisdóttir 4:12.8
9—13 ára piltar:
Guðmundur S. Hartvigsson 3:53.8
Sigurður Ragnarsson 3:58.6
Viggó Þ. Þórisson 4:05.4
Rúnar Sigurðsson 4:13.5
Gunnar A. Beinteinsson 4:15.7
14—18 ára sveinar
Emil L. Sigurðsson
Yngvi Ó. Guðmundsson
Magnús Haraldsson
Sveinn Sigurbergsson
Sveinn Þrastarson
17 ára og eldri kariar
Sigurður P. Sigmundsson
Einar P. Guðmundsson
Gunnar Þ. Sigurðsson
Gestur Vigfús Helgason
13 ára og eldri stúlkur
Guðrún Árnadóttir
Anna Haraldsdóttir
Bára Friðriksdóttir
4:28.0
4:28.2
4:32.0
4:39.0
4:41.0
4:31.2
4:34.2
4:39.6
5:06.2
3:47.5
4:01.0
4:08.5
Margt af þessu afreksfólki eru margfaldir
lslandsmethafar í hinum ýmsu aldursflokk-
um. Þó má geta þess að Sigríður B. Einars-
dóttir er aðeins 10 ára. 1 14—16 ára flokki
kom nýtt nafn á afrekslista hlaupara Emil L.
Sigurðsson og í flokki 13 ára stúlkna sigraði
Guðrún Árnadóttir með glæsibrag og sleit
sigurgöngu Önnu Haraldsd., en hún hafði
sigraó í sjö ár í Víðavangshlaupi Hafnar-
fjarðar. Er það met í kvennaflokki en Viðar
Halldórsson á mötið í karlaflokki, samtals 10
sigrar.
enn allgóða möguleika á að halda
sætinu í 1. deild, sem liðið vann
sl. vor eftir um 60 ára fjarveru úr
1. deild. Sigurinn á QPR var
óvæntur, þvl ensku landsliðs-
mennirnir Gerry Francis, Dave
Clement og Dave Thomas léku á
ný með QPR eftir meiðsli. Eina
mark leiksins skoraði Tom
Ritchie á 66. mín., þegar knöttur-
inn stöðvaðist í leðjunni við mark
QPR, og Ritchie varð fyrstur til að
átta sig. West Ham náði í
þýðingarmikið stig gegn Leeds á
Elland Road. Joe Jordan náði for-
ustu fyrir Leeds, en Pop Robson
jafnaði fyrir Lundúnaliðið á 75.
min. eftir snjallan undirbúning;
Trevor Brooking. Middlesbro lék
sér að Manch. Utd. og skoraði
þrjú mörk. David Armstrong tvi-
vegis, en David Mills þriðja mark-
ið. Það er gömul og ný saga úr
ensku knattspyrnunni, að lið, sem
hefur unnið sér rétt i úrslitaleik
bikarsins og hefur ekki hagsmuna
að gæta i 1. deild, tapar nær öllum
leikjum fram að úrslitaleiknum.
Manch. Utd. ætlar ekki að verða
þar undantekning.
Staða neðstu liða í 1. deild er
nú þannig:
Stoke
QPR
Coventry
Derby
Sunderl. 38
West Ham 37
Tottenham 39
Bristol C. 36
37 10 12 15
35 11 9 15
36 9 12 15
37 7 16 14
38 9 11 18
37 9 11 17
10 9 20
9 10 17
22-39 32
41- 45 31
40-51 30
42- 53 30
40-48 29
37-60 29
43- 66 29
32-42 28
1 2. deild töpuðu þrjú af neðstu
liðunum. Þar eru átta lið enn I
fallhættu, Fulham með 33 stig (39
leikir), Burnley 32 stig (39 leik-
ir), Orient 31 stig (37), Cardiff,
Bristol Rovers og Carlisle með 31
stig (38 leikir), Plymouth 31 stig
eftir 39 leiki, og Hereford 26 stig
úr 37 leikjum.
I 3ju deild missti Crystal Palace
af öllum möguleikum að komast f
2. deild eftir tapið gegn Porti
Vale. Leikmaðurinn frægi,
George Graham, áður Arsenal,
Manch. Utd., var rekinn af velli,
en hann leikur nú með Palace-
liðinu.
Átta sigrar Þórs,
en sex hjá KA
Akureyri, 21. apríl. 1977.
Fyrir skömmu lauk Akureyrar-
mótinu í handknattleik. Þór
sigraði í 8 leikjum en K A í 6.
Úrslít í einstökum leikjum urðu
sem hér segir:
2. flokkur kvenna Þór-KA, KA
gaf leikinn.
3. flokkur kvenna
Þór—KA 2-3
MFL. kvenna
Þór—KA 28-8
6. fl. karla c-lið
Þór—KA 8-1
6. fl. karla b-lið
Þór—KA 5-1
6. fl. karla a-lið
Þór—KA 4-3
(Eftir framlengdan leik)
5. fl. karla c-lið
Þór-KA 5-9
5. fl. karla b-lið
t)Or—KA 5-1
5. fl. karla a-Iið
Þór—KA
4. fl. karla
Þór—KA
3. fl. karla
Þór—KA
2. fl. karla
Þór—KA
1. fl. karlar
Þór—KA
MFL. karla
Þór—KA
3-13
5-4
6-13
18-16
14-16
20-25
Allir sigurvegarar fengu fagra
gripi að leikjunum loknum og
voru það hinar einstöku stofnanir
og fyrirtæki á Akureyri sem
sýndu þessu móti mikinn heiður
með sínum framlögum.
Að lokum skal það til gamans
gert að minnast á árangur KA í
Tslandsmóti, norðurlandsriðli, en
þar sigraði KA í öllum karla-
flokkum sem í var keppt.
-STA.
Hart barizt í markteig Vikings í síðar
bjarga. En hvar er dómarinn? Jú, lenj
Ódýr mi
inn eins
— StaöaFramíRe
viðV
Ekki einu sinni Hollendingar gætu
sýnt knattspyrnu á þessum velli.
Það er eins og að leika á steinsteypu
og svo bætist kuldinn og rokið ofan á,
sagði Tony Knapp, landsliðsþjálfari,
eftir leik Fram og Víkings á Mela-
vellinum í gærkvöld. Jafntefli varð
2-2 og staða Fram er nú mjög góð í
mótinu — Reykjavíkurmeistara-
titillinn blasir við leikmönnum
liðsins.
Það var ekki hægt að ætlast til
þess, að leikmenn liðanna sýndu
einhverja knattspyrnu við þær
aðstæður, sem þeir léku. Mörk af
ódýrustu gerð sköpuðu spennu — og
oft sáu leikmenn ekki knöttinn í
sandbylnum á skraufþurrum vellin-
um. Og dómarinn fraus í kuldanum,
ekki síður en áhorfendur.
Víkingar léku undan norðanrokinu
í fyrri hálfleik. Eftir 16. mín. var
staðan orðin 2-0 fyrir Víking — og
flestir bjuggust við, að liðið mundi ná
í aukastig í leiknum. Svo varð þó ekki
og Fram jafnaði.
Helgi Helgason, miðvörður
Víkings, skoraði furðulegt mark á 8.
mín. Spyrnti á mark Fram af miðjum
velli. Knötturinn small niður í mark-
teig og hoppaði. Svo virtist sem Árni
Stefánsson hefði öll tök á að verja —
en svo missti hann knöttinn yfir sig í
markið. Furðulegt hjá þeim snjalla
markverði. Átta mín. síðar stakk
Öskar Tómasson varnarmenn Fram
af. Komst einn frir að marki og
skoraði með fastri jarðarspyrnu í
gagnstætt horn. Eina mark leiks, sem
fallega var að unnið — og fallega
skorað. Víkingar sóttu mun meira —
en tókst ekki að skapa sér færi. Svo
minnkaði munurinn.
Það var á 38. min. að Fram fékk
hornspyrnu, er Pétur Ormslev tók
vcl. iiarður atgangur í markteig
Víkings — og illa brotið á markverði
Víkings, Diðrik Ólafssyni, þegar hann
hugðist handsama knöttinn og Ágúst
Guðmundsson ýtti knettinum í mark.
Það hvarflaðiekki að mér þar sem ég
stóð fyrir altari Víkingsmarkið að
mark yrði dæmt—en dómarinn, Grét-
ar Norðfjörð, illa staðsettur eins og
oftast í leiknum, sá ekkert athuga-
vert. Yfirferð hans sáralitil. Jú, mér
var hrint, sagði Diðrik i leikhléinu.
í síðari hálfleik nutu Framarar
aðstoðar norðangarrans og jöfnuðu
strax á 51. min. Skrítið mark. Sigur-