Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.04.1977, Qupperneq 23

Dagblaðið - 27.04.1977, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1977. 23 <§ Útvarp Sjónvarp Sjónvarp íkvöld kl. 20,45: Margs konar bílanýjungar, betri sáraumbúðir og fuil- komnir björgunarbúningar í Nýjasta tækni og vísindi Frá sýningu i Reykjavikurhöfn i fyrra, þegar nýi bandaríski björgunarbúningurinn var sýndur. Fljótt á litið virðist hann iíkur þeim brezka sem kynntur er í Nýjasta tækni og vísindi í kvöid. DB-mynd Árni Páll. Þátturinn Nýjasta tækni og vísindi er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 20.45. Umsjónarmaður er Sigurður Richter. I þættinum verða sýndar átta brezkar myndir. Sú fyrsta heitir Láðs- og lagarbíll og sýnir módel af bifreið sem á að geta ekið jafnt á láði sem legi, eins og nafnið bendir til. Eru hjól bifreiðarinnar sérstaklega útbúin til þess að geta flotið. önnur myndin er Bill fyrir fatlaða. Þar er sýndur bíll sem ætlaður er mikið fötluðu fólki. Er hjólastólnum hreinlega ekið inn í bílinn og verður það með að bílstjórasæti. Þriðja myndin heitir Gúmmí. Þar greinir frá rannsóknum á viðloðun gúmmís. Eru þessar rannsóknir i sambandi við að reynt hefur verið að finna upp bíldekk sem hafa betra vegagrip en þau sem til eru. Fjórða myndin er einnig um bíla og nefnist hún Hring- laga bíll. Skólapiltar í Bretlandi smíðuðu þann bíl, sem er bæði óvenjulegur að allri gerð, útliti og aksturseiginleikum. Fimmta myndin heitir Plast- ský og segir þar frá stórum plastbelg sem sólarhitinn þen- ur út og síðan er hægt að láta svífa yfir jörðinni og tjóðra hann niður. Þannig er belgurinn notaður við gróður- farslegar og veðurfarslegar rannsóknir. Sjötta myndin nefnist Upp- blásnar sáraumbúðir. Plastpoki er settur utan um sár og inni í pokanum er sótthreinsað loft með tempruðu raka- og hita- stigi sem leikur um sárið. Sjöunda myndin er einnig varðandi sjúklinga, en hún heitir Sjúkrahylki. Þar er sýnd tilraun 'sem gerð hefur verið til þess að nota eins konarhylki til þess að flytja sjúklinga í, í staðinn fyrir venjulegar sjúkra- börur. Þannig er sjúklingurinn betur verndaður fyrir hnjaski, kulda og öðrum óþægindum. Áttunda og síðasta myndin nefnist Flotasamfestingur. Þar segir frá samfestingi sem sjómenn geta verið í við vinnu sína, en hann hefur þá eigin- leika að hann flýtur á vatni og getur borið uppi og þar að auki er samfestingurinn góð einangrun frá kulda í sjónum. Á sl. ári var kynntur banda- rískur björgunarbúningur hér á landi, sem virðist ekki ósvipaður þessum, nema að því leyti að sá átti að geymast í björgunarbátnum þar til á hon- um þyrfti að halda. -A.Bj. Smáu verkin ekki veigaminni enþau stærri Útvarp ídag kl. 15,45: Vorverkin ígörðunum Sjötta erindi Jóns H. Björns- sonar skrúðgarðaarkitekts um vorverk í skrúðgörðum er á dagskrá útvarpsins í dag kl. 15.45. „Ég hef nú ekki lokið við að semja erindið,“ sagði Jón er DB hringdi og spurði um hvað hann ætlaði að fjalla í dag. „En ég býst við að tína til Fagrir skrúðgarðar eru víða í höfuðborginni. Sums staðar getur að líta ótrúlega hugvits- semi, sem þarf ekki að kosta voðalega mikið. Þetta er bútur af steinröri sem útbúið hefur verið á þennan skemmtilega hátt. Þetta er úr garði við Skarphéðinsgötuna. DB-mynd Björgvln. En það er ekki að íbúar höfuðborgarinnar hugsi vel um garðana sína heldur eiga sumir til að hjálpa til aðskreytasjálft borgarlandið.fbúar við ofanverðan Rauðalæk tóku sig saman í fyrravor og gróðursettu trjáplöntur á opnu svæði við Rauðalæk og Dalbraut. Borgin lagði tilplönturnar. DB-mynd Arni Páll. ýmislegt smávegis sem ég hef hlaupið yfir í fyrri erindum minum, þannig að þetta verður samtíningur. Annars mun ég bráðlega fara að fjalla um skipulagningu skrúðgarða, því mér finnst alveg kominn tími til þess,“ sagði Jón. I þáttum sínum um vor- verkin hefur Jón rætt ýmislegt sem garðeigendum má að gagni koma, eins og t.d. í siðasta þætti þegar hann ræddi um áburð og hvernig gera má rotþró í garðinum og búa til sfna eigin gróðurmold. Einnig hefur hann rætt um hvernig búa má til vetrargarða eða gróðurhús á svölum húsa. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.