Dagblaðið - 31.05.1977, Side 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1977.
Algert bann við úðunarbrúsum
framundan
gasmengunin talin hættuleg
Ríkisstjórn Bandarikjanna
hefur nú boðað frumvarp um
algert bann við framleiðslu og
notkun úðunarbrúsa, „aerosol-
spray“, sem fluorcarbon er
notað í. Þetta er sú gasblanda
sem notuð er í alla slíka úðara,
svo sem hárlakksbrúsa, skor-
dýraeitur, lykteyðandi og ilm-
efni hvers konar.
Vísindalegar rannsóknir
benda ákveðið til þess að gas-
tegundin fluorearbon eyði þeim
efnum, sem hamla gegn útfjólu-
bláum geislum frá sólinni.
Óhindruð geislun þeirra er ban-
væn öllu lífi jarðarinnar.
Framleiðsla alls konar
úðunarbrúsa er fyrir löngu
orðin mjög verulegur iðnaður í
fjölmörgum ríkjum heims. 1
Bandaríkjunum einum eru
framleiddir meira en þúsund
milljónir slíkra brúsa árlega.
Áætlað er að bann við þessari
framleiðslu í Bandaríkjunum
taki gildi í aprílmánuði árið
1979, en þaðan fáum við Islend-
ingar talsvert af úðunar-
brúsum. Telja má víst að aðrar
iðnaðarþjóðir taki þetta mál til
atliugunar. BS
Háskólabókasafnið kaupir
færri bækur með hverju árinu
Árið 1976 fækkaði þeim bókum
sem Háskólabókasafnið keypti
um 600 frá árinu áður og er ekki
annað séð að svipaða sögu verði
hægt að segja hvað þetta ár
varðar. Þetta kemur meóal ann-
ars fram í ársskýrslu Háskóia-
bókasafnsins fyrir árið 1976.
Tímaritum fjölgaði hins vegar
Landhelgisgæzlan afhendir Hafrannsóknastofnun skuttogarann Baldur
Erffitt að vera þorskur í dag
— segir Pétur Sigurðsson, forstjöri Landhelgisgæzlunnar
Landhelgisgæzlan afhenti Haf-
rannsóknastofnun skuttogarann
Baldur fyrir helgina. Baldur
hefur verið i viðgerð i Hafnarfirði
undanfarna mánuði. en hann var
illa skemmdur eftir ásiglingar
brezkra herskipa í þorskastríðinu.
Bókfærður kostnaöur við viðgerð-
ina er kominn yfir fjörutíu
milljónir en ljóst er að hann
verður allmiklu hærri þegar allt
hefur verið gert upp.
Frá afhendingu Baldurs. Þórður
Asgeirsson skrifstofustjóri
sjávarútvegsráðuneytisins, Pétur
Sigurðsson forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar og Jón Jónsson for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar.
DB-mynd Hörður.
Nú þegar Hafrannsóknastofn-
un hefur tekið við skipinu verður
tekið til við nauðsynlegar breyt-
ingar á því, svo það henti sem
rannsóknarskip. Breyta þarf öllu
dekkinu og spilum skipsins og út-
búa það fyrir flottroll. Líka þarf
að bæta rannsóknaraðstöðu um
borð. Utboðslýsing hefur verið
gerð en ekki er ljóst hvað þessar
breytingar munu kosta en
kostnaður mun þó skipta
milljónatugum.
Jón Jónsson forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar sagði að til-
koma Baldurs vaéri vissulega
mikil búbót. Hafþór væri orðinn
gamall og hið nýja skip væri stórt
og mikið. Baldur væri að vísu
mun dýrari í rekstri, auk
kostnaðar við breytingar, en fjár-
veiting væri fyrir hendi.
DB spurði Pétur Sigurðsson
forstjóra Landhelgisgæzlunnar
hvort Gæzlan mætti við því að
missa skipið. Pétur sagði að eins
og sakir stæðu væri allt rólegt á
miðunum. „t dag hvílir okkar
gæzla mikið á flugi og svo verður
áfram,“ sagði Pétur. „Það er
ómögulegt að komast yfir allt
þetta hafsvæði á skipum. Áður
' fylgdu skipin botninum, en nú
veiða þau fisk upp um allan sjó.
Það er erfitt að vera þorskur í
dag. En ef eitthvað breytist þá
eru hæg heimatökin. Maður veit
hvar skipið er,“ sagði Pétur að
lokum.
- JH.
Sjúkrahótal Rau&a krosains
aru á Akurayrí
og í Raykjavík.
RAUOIKROSSISLANDS
nokkuð og nemur fé það sem til
kaupa á þeim er varið helmingi
fjárveitingar til safnsins. At-
hyglisvert er að fjárveiting til
safnsins stendur í stað á meðan
bækur hafa hækkað gífurlega í
verði svo og allur kostnaður.
Nokkuð af bókum hefur safn-
inu verið gefið erlendis frá, og
skiptir það einnig við aðrar þjóðir
á bókum.
Útlán á árinu voru alls 8.461
þar af mest í sagnfræði, 1.314.
Stúdentar hafa fengið langmest-
an hluta lánsbókanna.
Kennsla í bókasafnsfræði fer
einnig að nokkru leyti fram við
safnið.
DS
HUS-
byggj-
endur
Fyrirliggiandi:
Glerullar-
einangrun
Glerullar-
hólkar
Plast-
einangrun
Steinullar-
einangrun
Spóna-
plötur
Milliveggja-
plötur
Kynnið ykkur
verðið - það er
hvergi la^gra
JÓNIOFTSSONHR
Hrihgbraut 12tÆ? K)«00
Stórkostlegt
tilbob
á framköllun—örugglega það bezta
1... -.2.
ALLIR sem búa í fjölbýlis-
húsum kannast við þetta
VANDAMÁL...
Ný litfilma
INTERCOLOR II:
Með hverri framköllun fáið þér án
nokkurs aukagjalds nýju Intercolor II
litfilmuna sem tryggir bjartari og
betri iitmyndir en nokkru sinni fyrr.
Myndaalbúm
Og hér er aukabónus: Þér fáið i hvert
sinn mjög skemmtilegt vasamynda-
albúm án aukagjalds.
3_____________
Allar myndir
framkallaðar ó
^rfíatt
nýja matta pappírinn sem atvinnuljós-
myndarar nota til að tryggja bezta
árangur.
Sjóið verðlistann:
Við bjóðum yður örugglega beztu kjör-
in og beztu þjónustuna. Og við ábyrgj-
umst það!
Framköllun 20 myndir.
Verðiisti með iitfilmu og vasamynda-
albúmi innifalið:
Venjulegt búðarverð:
2.890
OKKAR VERÐ
2.450
Verzlið hjá okkur, það borgar sig
myndiðian
Vandinn er leystur með
sjálfvirkrisorptunnufærslu!
STÁLTÆKIsf. sími27510
Vfi
,0OOy *rU8
ÁSTÞÓRf
Hafnarstræti 17og Suðurlandsbraut 20