Dagblaðið - 31.05.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 31.05.1977, Blaðsíða 9
9 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1977._ Vísitöluákvæöi í fasteigna- viðskiptum dæmd ógild —héraðsdómi áfrýjað til Hæstaréttar _________ Mörg dómsmál hafa risið að undanförnu út af ágreiningi um vísitöluskuldbindingar á kaup- verði íbúða og húsa. Hæstiréttur mun ekki hafa dæmt um þetta ágreiningsatriði. Þess . mun þó ekki langt að bíða. Héraðsdómur Kópavogs hefur kveðið upp dóm í máli sem þar var rekið. Ibúðar- kaupandi stefndi byggingarfélagi til endurgreiðslu á verðhækkun sem miðuð var við hækkun bygg- ingarvísitölu. Féllst dómurinn á röksemdir íbúðarkaupanda og dæmdi byggingarfélagið til að endurgreiða vísitöluálagið. Dóm- inum var áfrýjað til Hæstaréttar og bíður málið flutnings fyrir þeim rétti. Dagblaðinu er kunnugt um, að Ragnar Aðalsteinsson hrl. rekur nú mál gegn Kaupfélagi Hafnfirð- inga vegna 16 íbúða sem seldar voru með þeim skilmálum að verð skyldi breytast til samræmis við byggingarvísitölu. Fjöldi fasteigna hefur á undan- förnum árum verið seldur með hliðstæðum eða sömu skilmálum. Oftast hafa sættir tekizt, ef til ágreinings hefur komið. Hæsta- réttardómur kann að hafa gifur- leg hagsmunaáhrif, þegar hann verður kveðinn upp. Samkvæmt lögum um verð- tryggingu fjárskuldbindinga nr. 71 frá 1966 segir að óheimilt sé að ákveða í samningum, að fjár- skuldbindingar í íslenzkum krónum skuli breytast i hlutfalli við breytingar á vísitölu. Þar segir, að undanþágu frá þessari reglu geti aðeins Seðlabanki Is- lands veitt. Hafi slík undanþága ekki fengizt, skuli slíkar skuld- bindingar vera ógiidar. Dómsmól í Kópavogi Mál það, sem héraðsdómur Kópavogs dæmdi í, var í aðalatrið- um þannig vaxið, samkvæmt frá- sögn í stefnu: Með samningum sem nefndir hafa verið verksamningar, dags. 29. okt. 1973, keypti stefnandi íbúð þá, sem í málinu greinir, ásamt bifreiðageymslu, af stefnd- um, fyrir ákveðna fjárhæð og með ákveðnum greiðsluskilmálum. I samningum þessum segir: „Verð íbúðarinnar er háð hreyf- ingum vísitölu byggingarkostn- aðar til hækkunar eða lækkunar á byggingartimanum. Hreyfingar vísitölunnar virka ekki aftur fyrir. sig á þær greiðslur, sem verk- kaupi (kaupandi: innsk. blm.) hefur innt af hendi. Viðmiðunar- grunntala vísitölu er 853 stig.“ „Samningur þessi fylgir samningi um byggingu 2ja her- bergja íbúðar á 3. h. B hæð í háhýsi við Vallartröð í Kópavogi og fylgja honum því allir þeir sömu skilmálar og þeim samningi þar með ákvæði um að samnings- Blaðaerjur? Það fer ekki á milli mála að nokkurs konar „strið" á sér stað milli síðdegisblaðanna. Sú keppni er þó nokkuð ójöfn, því Dagblaðið hefur þar mikla og góða forystu. Kannski er þessi mynd dæmigerð fyrir þetta stríð. Annars var þetta „allt í góðu“ hjá strákunum, bara smáærsl og ekkert annað, enda hleypur fjör í mannskapinn í þessu góða vorveðri. DB-mynd Hörður Humarbátarnir láta vörubfla um stímin — yfirvinnubannið kemur verst niður á sjómönnum Humarbátar frá Eskifirði hafa fengið ágætisafla að undanförnu skammt frá Hornafirði, en þangað er 10 til 12 tíma stim frá Eskifirði. Til að spara sér það fram og aftur, hafa bátarnir landað á Hornafirði og vörubílar frá Eskifirði sótt afl- ann þangað. Eru þeir 16 til 18 tíma í ferð. Nú nýlega var þeim tilmælum svo beint ti 1- vörubílstjóranna að vinna ekki meira en átta tíma á dag og hafa þá einhverjir hætt við þennan akstur þar sem hann mun þá taka tvo sólarhring'a. Yfirvinnubannið kemur þannig út fyrir togarana Hólmatind og Hólmanes, að fyrir utan landanir á Eskifirði og Reyðarfirði verða þeir einnig að landa í Borgarfirði eystra, sem tefur skipin-og rýrir afkomu sjómannanna. - Regína/-G.S. verð sé háð hreyfingum vísitölu til hækkunar eða lækkunar. Við- miðunartala vísitölu er 853 stig.“ Eftir að kaupverðið var allt greitt og auk þess sú fjárhæð, sem stefnt var út af til endurgreiðslu, krafðist stefndi (þ.e. seljandi: innsk. blm.) viðbótarvisitölu- greiðslu og neitaði jafnframt að gefa út afsal fyrir eignarhlutan- um. Stefnandi hafði hins vegar, er hér var komið, orðið þess áskynja, að vísitölubinding viðskipta þess- ara kynni að fara í bága við lög. Neitaði hann því að svo stöddu um frekari greiðslu. Þess í stað lét hann þinglýsa á eignarhlutann yfirlýsingu dags. 14. jan. 1976, um kaup sín á honum. Þessu svaraði stefndi með því að láta þinglýsa á eignarhlutann veðbréfi til handhafa að fjárhæð kr. 727.507.00. Veðbréf þetta er útgefið af stefnda 4. febr. 1976 með gjalddaga sama dag. Réttarfarsleg atriði í mólinu Við þingfestingu málsins hinn 26. febr. 1976 sótti stefndi þing. Fékk .hann þá og síðar fresti til greinargerðar. Er málið var tekið fyrir á reglulegu bæjarþingi hinn 29. apríl s. ár þingfesti stefndi gagnsök á hendur stefnanda, en án greinargerðar eða annarra skjala. Ekki kom heldur fram greinargerð af stefnda hálfu í aðalsök, þ.e. upphaflegu stefnu- máli. Ekki komu fram frekari skjöl af hálfu stefnda. Fór svo, að gagnsökin var hafin þ.e. felld niður. Stefnandi lagði eigi að síður fram greinargerð af sinni hendi varðandi gagnsökina og lagði fram skriflega sókn. Var málið þá dómtekið og dæmt eftir málsút- listun stefnanda í framlögðum skjölum og skilríkjum. Stefnandi hélt því fram, að áðurgreindir samningar hafi raunverulega verið kaupsamn- ingar. Væri hann búinn að greiða umsamið kaupverð ibúðarinnar og bílageymslu kr. 2.510.000.00 og að auki kr. 304.899.00 samkvæmt kröfu stefnda um visitöluálag. Gerði hann kröfu til að fá útgefið afsal fyrir íbúðinni og bílgeymsl- unni. Þá gerði hann kröfu til að fá endurgreidda hina ólögmætu vísi- tölugreiðslu. Niðurstaða dómsins Dómurinn féllst á það með stefnanda, að umræddir samn- ingar aðila væru fremur í ætt við kaupsamninga um fasteignir heldur en eiginlega verksamn- ínga. Af framlögðum skjölum mátti ætla, að kaup aðila hafi verið gerð fyrir milligöngu fast- eignasala á hinum almenna fast- eignamarkaði. Var þvi talið, að skuldbindingar kaupanda sam- kvæmt margnefndum samningum hafi verið fjárskuldbindingar í skilningi laganna nr. 71 frá 1966. Var þvi einnig talið, að ákvæði samninganna um vísitölubind- ingu kaupverðs brytu gegn skýr- um og fortakslausum bannákvæð- um þeirra laga og væru því ógild. I dómsorði var seljanda gert að gefa kaupanda afsal fyrir eignar- hlutanum, sem um var samið, að viðlögðum dagsektum kr. 10.000.00 á dag. Þá skal seljandi endurgreiða kaupanda vísitöluálagið kr. 304.899.00 með 13% ársvöxtum frá 12. febr. 1976 til greiðsludags. Þá er stefndi skyldaður til að aflétta veðböndum af íbúðinni, þ.e. áðurnefndu handhafaveð- skuldabréfi útgefnu af honum sjálfum. Loks skal stefndi greiða kr. 125.000,00 í málskostnað. Ólafur St. Sigurðsson, héraðsdómari, kvað upp dóminn. Lögmenn voru Kjartan Reynir Ólafsson, hrl. fyrir stefnanda, en Grétar Haraldsson, hrl. fyrir stefnda. Sem fyrr getur var máli þessu áfrýjað til Hæstaréttar. Ekki er vitað, hvenær mál- flutningur fer fram þar, en ljóst er, að efnisdómur Hæstaréttar um vísitölubindingu í fasteigna- viðskiptum er mjög mikilvægur. BS. Landsins mesta lampaúrval Utanbæjarmenn! Lrtiö við íleiðinni — U0S & 0RKA Suðurlandsbraut 12 — Sími 84488

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.