Dagblaðið - 31.05.1977, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 31.05.1977, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1977. Útg«fandi DagblaðiA hf. Framkvnmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Fréttastjórí: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. Iþróttir: Hallur Símonarson. AAstoAarfrónastjóri: Atli Steinarsson. Safn: Jón Sasvar Baldvinsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. BlaAamenn: Anna Bjarnason, Ásgair Tómasson, Bragi SigurAsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Halgi Pótursson, Jakob F. Magnússon, Jónas Haraldsson, Katrín Pálsdóttir, ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjarnleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjórí: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Síðumúla 12. Afgreiðsla Þverholti 2. Áskríftir, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðalsími blaðsins 27022 (10 linur). Áskríft 1300 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið. Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf. Ármúla 5. Myndaog plötugarð: Hilmirhf. Siðumúla 12. Prentun: Árvakurhf. Skaifunni 19. Óháð héraðsblöð Frjálsum og óháðum lands- byggðarblöðum hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum. Suðurnesjatíðindi hafa náð öruggri fótfestu á Suður- nesjum og til sögunnar hafa komið blöð á borð við Vest- firzka fréttablaðið á ísafirði, Umbrot á Akra- nesi og Dagskrá í Eyjum. Þessi blöð eru aðstandendum sínum yfirleitt til sóma. Þau bera flest af flokkspólitísku blöðunum í þessum byggðarlögum. í stað flokkspólitísks hnútukasts reyna þau að gera misjöfnum sjónarmiðum jafnhátt undir höfði. Og fréttaflutningur þeirra er yfirleitt meiri og betri en flokksblaðanna. Leiðarar flokkspólitísku blaðanna eru yfir- leitt efnislega og stílfræðilega lítið annað en uppsuða úr ömurlegu karpi móðurskipanna í Reykjavík, svo sem menn fá að heyra í útvarpinu á mánudögum. Þá fá menn hins vegar ekki að heyra leiðara frjálsu og óháðu landsbyggðarblaðanna, sem eiga þó fremur erindi til fólks en uppsuðan í flokkspólitísku blöðunum. Stjórnmálaflokkarnir reyna að breiða yfir misnotkun sína á ríkisfjölmiðlunum með því m.a. að heimila lestur úr leiðurum Dagblaðsins eins og flokkspólitísku dagblaðanna. Ef rétt- lætiskennd lægi þar að baki mundi lestur úr leiðurum óháðu landsbyggðarblaðanna einnig vera leyfður. Frjáls og óháð blöð um allt land væru til þess fallin að rjúfa þá einokun, sem stjórnmála- flokkarnir hafa hingað til haft á fjölmiðlun heima í héraði. Því meira sem slík blöð eflast, þeim mun traustara verður lýðræðið í landinu. I þessu skipta fréttirnar einna mestu. Menn eru vanir einhliða fréttaflutningi um málefni byggðarlagsins í flokkspólitísku blöðunum. Þótt hinar einhliða myndir allra flokksblað- anna séu lagðar saman, kemur ekki út nein alhliða mynd. Óháð fréttamennska gefur sannari mynd af gangi mála í byggðarlaginu. Skoðanaskiptin eru líka mikilvæg. Menn eru vanir einhliða áróðri í flokkspólitísku blöðun- um. Samanlagt gefa þessar áróðursgreinar ekki alhliða mynd, enda yfirleitt skrifaðar af flokks- sauðum af ýmsu tagi. Slíkar greinar eiga hins vegar heima innan um greinar óháðra höfunda í frjálsum héraðsblöðum. Áhugamenn um eflingu lýðræðis ættu hver á sínum stað að gera sitt bezta til að auka út- breiðslu og áhrif hinna frjálsu og óháðu lands- byggðarblaða. Þessi blöð njóta ekki ríkisstyrks eins og flokkspólitísku landsbyggðarblöðin. Og þau njóta ekki auglýsingar leiðaralestrar út- varpsins eins og flokkspólitísku blöðin. Þau lifa eingöngu á vinsældum lesenda og auglýsenda. Enn vantar frjáls og óháð landsbyggðarblöð í stóra landshluta. Ekkert slíkt blað er enn gefið út á Akureyri, þótt þar ætti að vera stærri markaður en víðast annars staðar. Einnig vant- ar blöð fyrir Austurland, Suðurland og Norður- land vestra. Starfsemi nýrra og nýlegra blaða af þessu tagi á Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum gefur þó vonir um frek- ara framhald. [ Argentína: ] Víst ríkir prentfrelsi, en... Þann 6. apríl síðastliðinn fannst lík blaðamannsins Hectors Ferreiros í útjaðri Buenos Aires. Hendur hans höfðu verið bundnar fyrir aftan bak og á likama hans voru göt eftir kúlur úr stórum byssum. Ferreiros var fréttamaður TELAM — opinberu fréttastof- unnar í Argentínu. — Hann var numinn á brott af vopnuðum mönnum 31. marz og hvarf sporlaust, þar til gengið var fram á lík hans. I Argentinu er það nú orðið daglegt brauð að finna lík með hendurnar bundnar fyrir aftan bak og byssukúlur í líkaman- um. Þá er það ekki síður hvers- dagslegt að fjöldi fólks hverfi — sé ýmist numið á brott eða opinberlega handtekið. Frá þvi i marz á síðasta ári, er herinn tók við völdum, til sama tima í ár hafa um 5.000 manns horfið á þennan hátt. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja i skýrslu sinni um ástandið í Argentínu, sem kom út í marz, að á milli tvö og fimm þúsund manns hafi horfið á árinu. 1 viðauka við þá skýrslu eru talin upp nöfn 479 manna sem hurfu á tímabilinu 24. marz 1976, er herstjórnin komst til valda, til siðustu áramóta. Starfsmenn fjölmiðla týna tölunni Verkamenn, listamenn, nem- endur og háskólakennarar eru meirihluti þeirra sem horfið hafa sporlaust. — Upp á síð- kastið hefur einnig mjög aukizt að blaðamenn og aórir, sem starfa við fjölmiðlun, hafi tekið að týna tölunni, — sér í lagi á þessu ári. Ofsóknirnar ná ekki lengur eingöngu til þeirra, sem eru háðir eða grunaðir um „vinstri villu", heldur einnig til fólks og blaða, sem á einhvern hátt tengjast hernum. Það sýna þeir atburðir, sem hafa átt sér stað undanfarinn einn og hálfan mánuð. 1. apríl var Eduardo Sajon ritstjóri virts dagblaðs, La Opinion að nafni, numinn á brott á heimili sínu. Sajon hafði verið blaðafulltrúi Alejandro Lanusse hershöfðingja á meðan hann gegndi forsetaembætti í Argentínu á árunum 1971-73. Þann 14. apríl hvarf Jacobo Timmerman, ritstjóri og ábyrgðarmaður La Opinion og fréttastjóri hans, Enrique Jara, var handtekinn. Áður höfðu fjórir samstarfsmenn þeirra verið myrtir. Lanusse hershöfðingi var einnig handtekinn Lanusse hershöfðingi hefur enn talsverð völd innan hersins þrátt fyrir að hann hafi verið settur á eftiriaun. Hann reyndi án árangurs að grfpa inn í rás atburða, en var þess í stað handtekinn þann þriðja maf ásamt gömlum félögum sinum, sem steypt var af stóli árið 1973. Þeim var gefið að sök að vera flæktir í vafasöm viðskipti og peningabrask. La Opinion, sem túlkar málstað Peronista, var einnig flækt i málið og þar með var nægileg ástæða fyrir harkalegum aðgerðum fundin. Bókaútgefendur fó sinn skammt Bókaútgefendur sæta einnig kúgun af hálfu yfirvalda f Argentínu. Daniel Divinsky og eiginkona hans Ana Maria Miler voru til dæmis handtekin 16. febrúar. Þau hlutu þungar átölur fyrir að hafa gefið út barnabókina Cinco Dedos i nóvember 1975. Bók þessi hefur komið út víða, til dæmis i Danmörku. Þá var titill hennar Fimm fingur geta orðið kreppt- ur hnefi. Astæðan fyrir óánægju stjórnarinnar með útgáfu þessarar bókar er sú, að hún er að þeirra sögn til þess samin að hvetja börnin til fjandskapar við ríkjandi stjórnarfyrirkomu- lag. — Bókaútgáfufyrirtæki Divinskys er eitt hið virtasta i Argentínu. Erlendir frétta- menn forða sér Fyrrum fréttaritari franska blaðsins Le Monde i Argentinu Þrír meðlima stjórnarinnar í Argentínu: „Engar erlendar fræðikenningar, takk.“ \ UTRYMING ÍSLENZKU SÍLDARINNAR Þessi grein er skrifuð í tilefni af kjallaragrein sem Jón L. Arnalds ráðuneytis- stjóri skrifaði í Dagblaðið mánudaginn 23. maí síðast- liðinn. A árunum frá 1957-1966 voru veiðar úr íslensku sildarstofn- unum, vorgots- og sumargots- síldarstofnunum, landinu veru- leg búbót. Arið 1957 veiddust 90 þús. tonn af vorgots- og sum- argotssild og aflinn óx síðan ár frá ári allt fram til ársins 1962, þegar hann varð 319 þúsund tonn. Aflinn fór síðan hraðminnkandi fram til ársins 1966, þegar hann varð 89 þús. tonn. Til samanburðar skal þess getið að árið 1975, sem er fyrsta árið eftir að síldveiðibanni sem tók gildi 1972 var aflétt, var veiðin úr sumargotssíldinni 13,1 þús. tonn. Vorgotssildar- stofninn var þá útdauður, en árið 1976 var veiðin af sumar- gotssíld 17,8 þús. tonn. Áætlað er að sumargots- síldarstofninn geti að hámarki gefið af sér 50-60 þús. tonn á ári þegar frá líður og er nokkur munur á þvi og 319 þús. tonrium, sem veiddust árið 1962 úr þessum sömu stofnum. Til þess að árétta enn frekar að vorgotssíldarstofninn hafi orðið fyrir mjög alvarlegu áfalli skal hér vitnað í ritið Hafrannsóknir árið 1973 bls. 22, en þar er grein þar sem fjallað er um síldarrannsóknir og þar segir eftirfarandi m.a.: „Að því er varðar íslensku vorgotssíldina, skal það tekið fram að útreikningar sýna, að hún mun hafa numið allt að 950 þúsund lestum á tímabilinu rétt fyrir 1960, en hrakaði ört eftir það. Arið 1962 er til dæmis talið að stærð vorgotssíldar- stofnins hafi verið um 500 j)ús. lestir. Fimm árum síðar árið 1967, er stofnstærðin talin 20 þús. lestir og frá árinu 1970 hefur orðið svo lítið vart við íslenska vorgotssíld í þeim sfldarsýnum sem rannsökuð hafa verið, að ekki hefur reynst unnt að reikna út stærð þessa síldarstofns með neinni nákvæmni, en allt bendir þó til þess, að hann sé mjög lítill og sennilega innan við 10 þús lestir." Á árunum 1962-1964 var árleg heildardánartala í íslensku síldarstofnunum um 50%, þar af voru 30-35% af völdum veiðanna en 15-20% af völdum náttúrunnar. Dánar- talan hækkaði hins vegar verulega á árinu 1965 eða í allt að 65% og var hlutur veiðanna um 45-50%. Sambærilegar tölur fyrir norska síldarstofn- inn eru 35-40%, en þar af eru 20-25% af völdum veiðanna. Þetta kemur fram í tíma-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.