Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 31.05.1977, Qupperneq 8

Dagblaðið - 31.05.1977, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1977. Sigtúni 3 Hvrtasunnumótið á Þjórsárbökkum: Fiat 128 74. Blár, ekinn 53 þ. km, ný- sprautaður. Góður bíll. Datsun dísil árg. 71. Grœnn. Toppbíll, ekinn 25 þ. km á vél, nýspraut- aður, nýir demparar o.fl. óskum eftir Dedge Dart Swinger árg. 71—74. Opið frá kl. 9-7 — Laugardaga kl. 10-4 KJÖRBÍLLINN Sigtúni 3 - Sími 14411 Lagerstjóm Óskum að ráða sem fyrst duglegan og áreiðanlegan starfsmann til að hafa umsjón með húsgagnalager og út- keyrslu. JL húsið Jón Loftsson Hringbraut 121. Óskum eftirað ráða mann til starfa í verksmiðju vorri. ETNA HF. Grensásvegi 7 — Sfmi 83519 „OLVUN EKKIMEIRI EN í SAMFÉLAGINU YFIRLEITT” Liðlega fjögur þúsund manns alls sóttu Hvítasunnumót HSK, sem haldið var á Þjórsárbökk- um, að sögn lögreglunnar á Sel- fossi. Lauk mótinu síðdegis í gær. Talsverð ölvun var á mótinu, eins og við hafði verið búizt, en „líklega ekkert meiri en er í samfélaginu yfirleitt,“ eins og Jón Guðmundsson, yfirlög- regluþjónn á Selfossi, orðaði það í samtali við fréttamann DB. Um 140 manns voru fluttir til Reykjavíkur sakir lélegs útbún- aðar og ölvunar. Á lögreglu- stöðinni í Reykjavík var vinsað úr hópnum það fólk sem hægt var að senda heim en aðrir látnir sofa úr sér yfir nóttina. Sagðist Jón Guðmundsson verá Reykjavikurlögreglunni afar þakklátur fyrir þá aðstoð sem hún hefði veitt. Þá voru 30—40 manns teknir ölvaðir við akstur í grennd við mótsstaðinn. Jón kvað útlitið á mótsstaðn- um hafa verið verra vegna þess hve túnið hafi farið illa af völdum umferðar bíla og fót- gangandi. „Allskonar óhrein- indi og slæleg umgengni gerði þetta allt heldur ótótlegra," sagði Jón. „Mótsgestir voru lík- lega flestir á aldrinum 15—20 ára og sá aldurshópur verður' oft heldur illa úti þegar hann kemst í vín, sumir kannski í fyrsta skipti. Stóráföll urðu engin, nokkur minniháttar slys. Það alvarlegasta varð á laugar- dagskvöld þegar bíll féll ofan á pilt og meiddi hann' á höfði, þannig að flytja varð hann á sjúkrahús í Reykjavík. Piltur- inn hafði tjakkað bílinn upp og var undir honum að gera við þegar tjakkurinn lét undan,“ sagði Jón Guðmundsson. Mótið sjálft, sem á var fjöl- breytt dagskrá, fór sæmilega fram, að sögn Jóns Guðmunds- sonar. Veður var gott á Þjórsár- bökkum um helgina, sólarlaust og aðeins smávægilegar skúrir. -ÖV Líf og fjör á Þjórsárbökkum um helgina. Um allt land var helgin einstaklega róleg og bar hvergi til sérstakra tíðinda, nema á Hvítasunnumóti Skarphéðins, enda var það eini staðurinn á öllu iandinu þar sem hægt var að safnast saman til útiskemmtunar.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.