Dagblaðið - 31.05.1977, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. M Af 1977
14
g)
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Markvörður Fram slær knöttinn yfir þverslá.
DB-mynd emm.
IBK hafði ekki
heppnina með sér
HANNOVER VANN SIG
UPP í BUNDESLIGUNA
—Hef vissulega hug á að spila með íslandi, ef farið verður
fram á það, sagði Einar Magnússon
Hið unga lið ÍBK heldur enn
sama striki í I-deildinni. i stað
þess að brjótast um á botninum,
eins og margir spáðu i upphafi
leiktímabilsins, bítast þeir um
toppinn við Skagamenn. Eftir
lcikinn við Fram i Keflavík á
laugardaginn bendir ýmislegt til
að þeir muni haida því áfram,
þótt þeim hafi ekki tekizt að
hreppa nema annað stigið úr
þeirri viðureign. Heppnin var
ekki með þeim að þessu sinni.
Framarar tóku hraustlega á
móti áköfum Keflvíkingum á möl-
inni og ætluðu sýnilega ekki að
láta sinn hlut fyrr en í fulla hnef-
ana, eftir tapið fyrir Vikingum.
Nú var sem sagt að duga eða
drepast. Keflvíkingum tókst því
ekki að skapa sér nein teljandi
færi fyrstu mínúturnar nema
Ölafur Júlíusson átti fast skot
sem geigaði, — knötturinn smaug
rétt utan við marksúlu.
Þegar um það bil 10 mín. voru
liðnar af leiknum, dæmdi Arnar
Einarsson, nýr dómari i I-deild,
Akureyringur, aukaspyrnu á
tBK, rétt utan við vítateigshornið.
Eggert Steingrímsson sendi
knöttinn fyrir markið eins og
hann ætlaði samherja sínum að
reyna að koma honum í netið en
þess þurfti ekki við, — knöttur-
pumn
fótboltaskór
Sportvöruverzlun
Ingólfs
Óskarssonar
Holagarði Breiðholti
Simi 75020
Klapparstíg 44
Sími11783
inn sveif yfir illa staðsetta varnar-
menn IBK og skoppaði inn fyrir
línu, yfir handarbök Þorsteins
Bjarnasonar markvarðar sem átti
óvenjulega slakan leik, 1:0.
Þótt mistökin væru slæm, þá
létu ÍBK-piltarnir engan bilbug á
sér finna. Þeim tókst að hrinda
sóknarlotum Framara, sem
efldust mjög við markið. Ur einu
skyndiupphlaupi snart einn
Framari knöttinn með handlegg
innan vítateigs. Gísli Torfason
skoraði örugglega úr spyrnunni,
— fram hjá Þorbergi Atlasyni,
sem lék í markinu, í stað Árna
Stefánssonar sem er meiddur.
Einnig vantaði Kristin Jörunds-
son í Framliðið.
Þrátt fyrir skemmtilegan sam-
leik á köflum í rigningarúðanum
— blandað háspyrnum, — þar
sem hvorki vindur né sól höfðu
truflandi áhrif á leikmenn —
voru markfærin með fæsta móti.
Sumarliði Guðbjartsson, átti fast
skot af stuttu færi, sem Þorsteinn
varði, mjög vel. Þá áttu Ölafur
Júlíusson og Guðjón Þórhallsson
góð skallafæri, en Þorbergur
gómaði knöttinn í bæði skiptin.
Það var varamaðurinn Hilmar
Hjálmarsson, sem náði forustunni
fyrir ÍBK, snemma í seinni hálf-
leik, en hann kom inn á fyrir Karl
Hermannsson. Hilmar fékk send-
ingu úr aukaspyrnu frá, Omari
Ingvarssyni og nikkaði knettinum
yfir Þorberg og í markið, 2:1.
Eftir þetta áttu Framarar um
stund í vök að verjast og þriðja
mark ÍBK virtist liggja í loftinu.
En smám saman dró úr ákafa
ÍBK-piltanna og Frömurum tekst
að ná skipulögðum upphlaupum.
— 1 einu þeirra tekst Sigurbergi
Sigsteinssyni að vinna skallaein-
vígi og sendi knöttinn til Rúnars
Gíslasonar, sem jafnaði af stuttu
færi, — en Þorsteinn og Öskar
Færseth bakvörður, lágu báðir á
marklínunni eftir samhlaup. 2:2.
Framararnir voru öllu líflegri
seinustu mínúturnar, en tókst
ekki að knýja fram sigur. Pétur
Ormslev, Sigurbergur, Trausti
Haraldsson og Ásgeir Elíasson,
sem lék í öftustu vörninni, áttu
beztan leik I liði Fram. Sumarliði
fellur ekki enn fyllilega inn i
liðið.
Að venju voru það Gísii og
Ólafur Júlíusson, sem báru dálítið
af í ÍBK-liðinu og Karl Hermann-
son, meðan hans naut við. Ungu
piltarnir stóðu allir vel fyrir sínu,
— þar er vart hægt að nefna einn
öðrum fremur, en breytingar
Hólmberts Friðjónssonar þjálfara
á liðskipaninni eru til bóta.
Dómarinn Arnar Einarsson,
veifaði þrívegis gulum spjöldum í
leiknum, til Péturs Ormslev,
Eggerts Steingrímssonar, Fram,
og Ómars Ingvarssonar, IBK,
Rauða spjaldið var líka á lofti.
Ólafur Júliusson, varð að víkja af
velli rétt fyrir leikslok, fyrir að
fórna munnvatni sínu á mótherja
sem hafði lostið hönd sinni á
andlit Ólafs, en dómara og línu-
verði sást yfir það. emm.
— Það væri vissulega gaman að
spila fyrir ísland . Áhuginn er
fyrir hendi og mér skilst að iands-
liðsnefnd hafi hug á að ræða við
mig, sagði Einar Magnússon er
við spurðum hann hvort lands-
liðsnefnd hefði rætt við hann.
Einar er nýkominn frá Þýzka-
landi. Hann hefur nýlega gert
samning um að leika með
Polizei Hannover í Bundes-
Iigunni.
— Það verður gert hlé á Bundes-
ligunni í byrjun desember vegna
þátttöku v-þýzka landsliðsins. Ef
Island fer fram á að ég spili þá
mun ég hafa þarna frjálsan tíma
til að æfa og spila með landslið-
inu, hélt Einar áfram.
— Polizei vann sig upp í Bundes-
liguna um síðustu helgi. Þá
sigraði Hannover í fimm liða
keppni þar sem leikið var heima
og heiman, alls átta leikir.
Hannover hlaut 13 stig úr 8 leikj-
um sínum. Sigraði í sex leikjum,
gerði eitt jafntefliogtapaði einum
leik. Þau lið er tóku þátt voru auk
Hannover, Neuhausen, Stein-
heim, Angersmund og lið frá
Berlín.
Hannover sigraði með 13 stig,
Neuhausen komst einnig upp —
hlaut 12 stig. Hannover lék
siðasta leikinn við Neuhausen og
sigraði í Hannover 20-13. Hins
vegar getur Einar ekki hafið
keppni með Hannover fyrr en 16.
október en keppnin hefst í byrjun
september. Ástæðan er að nú
verða að líða 6 mánuðir frá því að
leikmaður skiptir um félag þar til
hann má leika með þvi.
Þetta kemur til af því að mikið
Steinunn
og Haukur
meistarar
Steinunn Sæmundsdóttir,
Reykjavík, og Haukur Jóhanns-
son. Akureyri, sigruðu i svigi og
stórsvigi á Skarðsmótinu á Siglu-
firði um helgina. Steinunn hafði
yfirburði, en Haukur átti í harðri
keppni við Einar Val Kristjáns-
son, ísafirði, í stórsvigi. Sigraði á
94.43 sek,. en EinarValur keyrði á
94.47 sek. Ilalldór Matthíasson,
Reykjavík, sigraði í 10 km. göngu
á 24.22 mín., en Magnús Eiriks-
son, Siglufirði, gekk á 25.25 mín.
Sól og blíða var báða dagana.
Steinunn og Haukur urðu
meistarar í stigakeppni Skíða-
sambandsins eftir keppni vetrar-
ins. KEP.
• í þriðja leik Philadelpia og
Portland um bandaríska meist-
aratitilinn i körfuknattieik sigr-
aði Portland með 129-107. Staðan
í keppninni eru nú 2-1 fyrir
Philadelpíuliðið.
Það þótti tiðindum sæta mcðal
islenzkra kylfinga, að hingað til
lands skyldi koma brezkur at-
vinnumaður i goifi til að reyna
sig við tslendinga. Enn meiri
tiðtndum sætti þo að íslenzkur
kyifingur skyidi vinna þennan
reynda keppnismann, Roger
Mace.
Það var á opnu Dunlop
keppninni sem fram fór á golf-
veílinum i Leiru um hvita-
sunnuna. Það var Golfklúbbur
er um að ríkari félög laði til sín
leikmenn frá þeim fátækari. Því
er reynt að sporna við. Þessi
ráðstöfun er mjög umdeild í
Teitur Þórðarson var enn á
skotskónum, þegar Jönköping iék
við Raa í 2. deild.suður, i Svíþjóð
um heigina. Hann skoraði eina
mark leiksins, sem færði Jönköp-
ing tvö stig. Halmia gerði jafn-
tefli við Mjallby 0-0 í Halmstad,
og einnig var jafntefli hjá Norrby
og Örgryte 0-0. Vilhjálmur Kjart-
ansson byrjar nú fljótlega að
leika með Norrby. Efsta liðið í
deildinni, Atvidaberg, sigraði AI-
vesta á útivelli 1-2 og var sigur-
markið skorað úr vítaspyrnu eftir
að leiktíma lauk. Atvidaberg er
efst með 13 stig. Halmia hefur 11
stig, Mjallby 10 og Jönköping og
Norrby hafa níu stig.
— Þetta var slakur leikur hjá
Union í La Louviere og tap 3-0,
svo möguleikarnir á að liðið kom-
ist i 1. deild eru sáralitlir, sagði
Stefán Halldórsson, þegar blaðið
ræddi við hann i morgun. Eisden
og Waterschei gerðu jafntefli 1-1
og staðan eftir 3 umferðir af sex
er sú, að La Louviere er efst með
5 stig. Waterschei hefur 4 stig,
Union tvö og Eisden eitt.
Við Marteinn Geirsson gátum
hvorugur tekið þátt í leiknum
Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi,
setti nýtt íslandsmet i 100 m flug-
stundi á Afmælissundmóti Ægis í
Laugardalslaug á laugardag.
Synti vegalengdina á 1:09.2 mín.
og bætti met sitt frá Olympíu-
leikunum í Montreal um fjögur
sekúndubrot.
Þórunn vann bezta afrek
mótsins, þegar hún synti 200 m
fjórsund á 2:37.3 mín. Það gaf 872
stig, en Sonja Hreiðarsdóttir,
Ægi, var skammt á eftir. Hlaut
870 stig fyrir 2:56.2 mín. i 200 m
bringusundi. Var aðeins tveimur
sekúndubrotum frá islandsmeti
sínu.
Suöurnesja sem sá um þessa
keppni i sjöunda sinn. 104
keppendur voru skráðir til
keppninnar en 98 mættu til leiks
og er það mesti fjöldi sem tekið
hefur þátt i þessum mótum frá
því að núverandi f.vrirkomulag
tók gildi.
Urslit mötsins urðu annars
þessi: Án forgjafar: 1. Magnús
Halldórsson, GK 152 högg. 2. Þór-
hallur Hólmgeirsson, GS 154
högg. (Roger Mace var á sama
Þýzkalandi. Polizei Hannover
mun hefja æfingar þegar í byrjun
júní og Einar heldur utan um
miðjan júní. h. halls.
Halmia á að leika við GAIS 13.
júni og sama sagan er komin upp
og í fyrra. Forráðamenn liðsins
vilja ekki gefa Matthíasi Hall-
grímssyni frí til að leika við
Norður-íra 11. júni. Segja að það
verði eini landsleikur íslands,
sem þeir geti ekki leyft Matthíasi
að leika. Það er þó ekki alveg
útséð hvernig þetta mál fer, því
að Matthías er harður á því að fá
að leika gegn Norður-írum. Hins
vegar er ekkert til fyrirstöðu, að
Teitur geti leikið, forráðamenn
Jönköping aðeins ánægðir með að
Teitur sé valinn í íslenzka lands-
liðið.
vegna meiðsla, sagði Stefán enn-
fremur.Marteinn fórtil læknis nú
í morgun og svo kanq að fara, að
hann verði skorinn upp. Ég veit
ekki hver niðurstaðan verður fyrr
en Marteinn kemur frá læknin-
um, en eins og staðan er í dag eru
ekki miklar líkur á, að hann geti
leikið gegn Norður-írum 11. júní.
Af mér er það að frétta, að ég
verð frá leik næstu vikurnar
vegna meiðsla í læri, sagði Stefán
að lokum.
Sveitir Ægis settu tvö íslands-
met í boðsundum. Karlasveitin
synti 4x200 m skriðsund á 8:41.1
mín., en eldra met Ægis-sveitar
var 8:42.7 sek. Kvennasveit Ægis
synti 4x100 m skriðsund á 4:38.9
mín. Eldra metið var 4:39.4 mín.
Keppt var um marga bikara á
þessu 50 ára afmælismóti Ægis og
mótið tókst í alla staði mjög vel.
Sigurður Ólafsson, Ægi, synti 100
m skriðsund á 57.5 sek. Hermann
Alfreðsson, Ægi, 200 m bringu-
sund á 2:46.9 mín. og Bjarni
Björnsson, Ægi, 200 m baksund á
2:26.1 mín.
skori en keppti ekki til verðlauna
heldur sem gestur). 3. Björgvin
Þorsteinsson, 156 högg. Með for-
gjöf: Jón Pálmi Skarphéðinsson.
141, 2. Björgvin Hólm, 143 högg,
og í þriðja sæti urðu þeir Kári
Knútsson, Þorsteinn Björnsson og
Guðlaugur Kristjánsson með 145
högg en Kári vann hlutkesti.
Nánar verður sagt frá þessu
glæsilega golfmóti síðar hér I
Dagblaðinu.
- rl.
Góður gestur á opna Dunlop-mótinu í Leiru:
Ungur íslendingur vann
brezka atvinnumanninn
Enn skorar Teitur
— Matthfas í deilu
Marteinn frá leik
Þrjú Islandsmet á
afmælismóti Ægis