Dagblaðið - 05.07.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 05.07.1977, Blaðsíða 12
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLt 1977. Hreinn rauf 21 metra múrinn í Stokkhólmi! —og sigraði þar marga f ræga kappa — varpaði kúlunni 21,09 Hreinn Halldórsson rauf 21 lar 94:58, sett á Olympíuleikunum metra múrinn á miklu frjáls- iþróttamóti í Stokkhólmi í gær- kvöld — varpaði kúlunni 21.09 og sigraði ýmsa þekktustu kúlu- varpara heims. Hreint ótrúlegar framfarir hjá Evrópumeistaran- um — en íslandsmet hans var 20.70, sem hann raunar sló í Stokkhólmi en kastseria Hreins var sérlega glæsiiega — 20.65, 20,80, 20,57 en tvö kasta hans voru ógild utan að sjálfsögðu met- kastsins — 21.09. Ótrúlegar fram- farir. Hreinn hafnaði í fyrsta sæti — og hafði yfirjjurði í kúluvarpinu. Ölympíumeistarinn Vladislav Komar frá Póllandi hafnaði í öðru sæti — varpaði 20.62, þriðji varð Bandaríkjamaðurinn Terry Albritton, 20.19, fjórði Peter Schmock, einnig frá Bandaríkjun- um, en hann varpaði 19,94. A1 Feuerbach frá USA hafnaði í fimmta sæti — og loks varð Svi- inn Hans Ilöglund í sjötta sæti en hann varpaði 19.57. Terry Albritton er með beztan árangur í heiminum í ár, 21.50, en hann náði honum innanhúss. Olympíumeistarinn a-þýzki, Udo Bayer, á beztan árangur úti — 21.46. Finninn Stahlberg á næst- brzta árangurinn — 21.22 — síð- an kemur Hreinn með þriðja bezta árangur utanhúss — 21.09 in. Islenzkir keppendur í Stokk- hólmi létu þar ekki staðar numið — Lilja Guðmundsdóttir sigraði í 800 metra hlaupinu en hún fékk tímann 2:08.47. Agætur tfmi Lilju — og sannar enn að 800 metrarnir virðast iiggja mjög vel fyrir henni. Miirg athyglisverð afrek voru unnin á mótinu — árangur mjög góður. Heimsmethafinn og oly mpíumeistarinn í spjótkasti; Nikos Nemeth frá Ungverjalandi, var nterri heimsmeti sinu — kastaði spjótinu 94.10 — læpum 12 metruin lengra en næsti inaður. Ileimsmel Memeth í Montreal. Öðrum ólympíumeistara vegnaði ekki eins vel í Stokk- hólmi, Ný-Sjálendingnum John Walker. Hann hafnaði í fjórða sæti í mílunni —fékk tímann 3:55.5. Sigurvegari varð Tékkinn Josef Plachy, fékk tímann 3:54.7 — á undan Kenyabúanum Wilson Waigwa, 3:55.2. Thomas Wessing- hage frá V-Þýzkalandi varð priðji á 3/55.4. Heimsmethafinn í 10 km hlaupi, Kenyabúinn Samson Kim- ombwa, sigraði í 10 km hlaupinu og aftur á mjög góðum tíma eftir heimsmetið sem hann setti í Helsinki. Hann hljóp á 27:37.28. Kúbubúinn Alberto Juantorena, tvöfaldur Olympíu- meistari, sigraði að venju í 800 metra hlaupinu. Sigraði örugg- lega á 1:45.3 Kenyabúinn Peter Lemashon varð annar á 1:46.3 H jón og pör íLeirunni Opin hjóna- og parakeppni fór fram í Leirunni i Keflavík á föstudag. Þetta er hin svonefnda OSK keppni, (Olíusamlag Kefla- víkur) og var þeta fimmta árið í röð sem keppnin fer fram. Pörin slógu til skiptis en leikar fóru þannig, að Kristín Páisdóttir og Þorteinn Björnsson, Keili, sigruðu á 87 höggum. I öðru sæti urðu Guðný Ragnarsdóttir og Þor- björn Kjærbo, GS, á 90 höggum og þriðju urðu þau Guðrún Ki- ríksdóttir og Viðar Þorsteinsson, GR, á 95 höggum. Þess má geta, að Unglinga-, drengja- og stúlknameistaramót íslands fer fram í Leirunni 5. til 10. júlí nk. rl. rokinu á Egilsstöðum í 3. deild íslandsmótsins í knattspyrnu Örmagna af þreytu báðu leik- menn Hugins frá Seyðisfirði dóm- arann að flauta leikinn af er 20 mínútur voru eftir af leik liðsins við Austra á Seyðisfirði um helg- ina í 3. deild íslandsmótsins i knattspyrnu. Veður á Austfjörðum var af- skaplega slæmt— hávaðarok og úrhellisrigning. Huginn lék gegn rokinu í fyrri hálfleik — og eins og gefur að skilja fór leikurinn að mestu fram á vallarhelmingi Hugins. Fjögur mörk náðu Esk- firðingar að skora — og bættu hinu fimmta við gegn rokinu í síðari hálfieik. En svo var dregið af ieikmönnum Hugins að 5 þeirra fengu krampa og þjáifari liðsins bað dómarann að flauta ieikinn af er 20 mínútur voru eftir — leikmenn Hugins hrein- lega gátu ekki meir. Þeir voru sigraðir í orðsins fyllstu merk- ingu. Það þótti með endemum að leikurinn skyldi fara fram eins og aðstæður voru á Eskifirði um helgina — vart stætt úti. En dóm- arinn ákvað að leikið skyldi—og staðan var 5-0 er dómarinn flaut- aði leikinn af. Mörk Austra skor- uðu þeir Bjarni Kristjánsson 2, Rúnar Sigurjónsson 2 og Skúli Magnússon 1 mark. Hrafnkell Freysgoði heldur áfram sigurgöngu sinni — sigraði Hött á Egilsstöðum um helgina 2-1. Þar áttu leikmenn erfitt með að hemja knöttinn í rokinu — en þrátt fyrir það höfðu leikmenn Hattar öll tök á leiknum, réðu lögum og lofum. En ekki er alltaf spurt að því í knattspyrnu, leik- menn Hrafnkels áttu tvö mark- tækifæri og notuðu bæði. Hins vegar tókst leikmönnum Hattar aðeins að skila knettinum einu sinni í netið — þvi sigur Hrafn- kels 2-1. Hrafnkell byggir á sterkri vörn — og hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína í Austfjarð- arriðli — F-riðli. Mörk Hrafnkels skoruðu þeir Sigurður Elísson og Björn Friðgeirsson en Þorvaldur Þorvaldsson, þjálfari Hattar, svaraði fyrir heimamenn. Leiknir frá Fáskrúðsfirði átti að fara til Hornafjarðar en þar eð vegir skemmdust flestir í úrhell- isrigningu á Austfjörðum um helgina komust Fáskrúðsfirðing- ar ekki. Staðan í F-riðli er nú: Hrafnkell 3 3 0 0 7-1 6 Austri 4 3 0 1 9-2 6 Einherji 5 3 0 2 9-4 6 Huginn 5 2 1 2 5-10 5 Leiknir 3 2 0 1 4-4 4 Sindri 6 114 2-12 3 Höttur 4 0 0 4 2-5 0 S.G. E-riðill Lið Hofsóss hefur komið mjög á óvart i E-riðli 3. deildar Islands- mótsins í knattspyrnu. Hofsós sigraði um helgina lið KS- Siglufjörð 1-0 á Hofsósi. Leikur liðanna var mjög jafn — vart mátti á milli sjá hvort liðið var sterkara. Eina mark leiksins skor- aði Hreinn Ottósson. Fyrir leikinn var KS eina liðið er ekki hafði tapað stigi í riðlin- um — Hofsós hins vegar misst stig gegn neðsta liðinu í riðlinum — Dagsbrún. Á Grenivík mættust Magni og Leiftur frá Ólafsfirði. Liðin skildu jöfn 1-1 — staðan í leikhléi var 0-0. Þegar á fyrstu minútu síðari hálfleiks skoraði Friðrik Steinsgrímsson fyrir Magna — en Kristinn Jónsson jafnaði fyrir Olafsfirðinga á 87 mínútu. Arroðinn mætti Dagsbrún —og þar virtist aðeins eitt lið á vellin- um, Árroðinn. Til marks um yfir- burði Árroðans kom markvörður liðsins aðcins einu sinni við knött- inn allan leikinn. En mörkin urðu fjögur — staðan í leikhléi var 2-0. Mörk Árroðans skoruðu Hákon Henriksen, Magnús Sigurgeirs- son, Örn Tryggvason og Finnur Sigurgeirsson. St.A., Staðan í E-riðli er nu: Hofsós 4 3 1 0 8-5 7 Siglufjörður 3 2 0 1 8-2 4 Magni 3 1119-5 3 Árroðinn 4 112 7-9 3 Leiftur 3 0 2 1 4-5 2 Dagsbrún 4 0 1 3 3-19 1 B-riðill Grindvíkingar láta ekki staðar numið í B-riðli 3. deildar tslands- mótsins í knattspyrnu, sigruðu Víði I Garðinum 3-1 undir stjórn Hauks Hafsteinssonar, Guð- mundssonar fyrrum formanns tBK. Jósep Ólafsson kom Grindvík- ingum á sporið. Markvörður Víðis varði fast skot hans en hélt ekki knettinum, sem hrökk aftur til Jóseps. Hann afþakkaði ekki slíkt boð og skoraði 1-0. Jósep bætti öðru marki við í síðari hálfleik með langskoti efst í markið. Guðmundur Jens Knúts- son minnkaði muninn fyrir Víði um miðjan síðari hálfleik en Vil- hjálmur Guðmundsson skoraði þriðja mark Grindvíkinga — með sinni fyrstu spyrnu i leiknum en hann hafði nýlega komið inn sem varamaður. Grindvíkingar voru allan tímann fljótari á knöttinn og sýndu meiri baráttu, en slen virtist yfir Víðisliðinu. Þá víkjum við að leik UMFN og tK. Njarðvíkingar sigruðu hið unga lið Kópavogs 3-1. Það tók ÍK hins vegar aðeins 4 minútur að koma knettinum I mark UMFN. Ólafur Petersen skallaði laglega yfir markvörð eftir aukaspyrnu ÍK utan vítateigs. Næsta mark skoraði IK einnig — en öfugum megin, jafnaði fyrir UMFN. I síðari hálfleik sótti IK heldur meir Iengi framan af en vörn UMFN var föst fyrir og leið- in erfið að marki UMFN. Um miðjan síðari hálfieik tókst Þorra Guðmundssyni að skora, hljóp af sér vörn ÍK og skoraði 2-1. En í sama mund ætlaði þjáifari UMFN að taka Þorra útaf. Góðu heilli fyrir UMFN gerði hann það ekki því Þorri bætti síðar við þriðja marki UMFN skömmu fyrir leiks- lok. I Reykjavík mættust ÍR og Stjarnan á Melavellinum. — ÍR- ingar virðast alveg heillum horfn- ir — hafa enn ekki fengið stig í 3. deild Islandsmótsins. Þeir fengu ekki stig gegn Stjörnunni úr Garðabæ — Ingólfur Ingólfsson og Sveinbjörn Daníelsson skor- uðu mörk Stjörnunnar I 2-0 sigri. emm. A-riðill I A-riðli heldur Leiknir úr Breiðholti sínu striki — sigraði Þór I Breiðholtinu á laugardag 1-0. Staðan í leikhléi var 0-0 en Ragnar Ingólfsson skoraði eina mark leiksins — jafnframt sigur- mark Leiknis í síðari hálfleik. Hið unga lið stefnir því í úrslita- keppni 3. deildar — hefur unnið alla sína leiki. Helzti keppninautur Leiknis, Afturelding úr Mosfellssveit, keppti við lið Heklu frá Hellu og eftir markalausan fyrri hálfleik þar sem Afturelding iék á móti vindi létu mörkin ekki á sér standa í síðari háifleik. Aftureld- ing sigraði 4-1. Steinar Tómasson kom Aftureldingu yfir — en Hall- dór Lúðvíksson jafnaði fyrir Heklu. En það dugði skammt — Steinar Tóinasson bætti við öðru marki og þeir Þorvaldur Hreins- son og Hafþór Kristjánsson gull- trvggðu sigur Aftureldingar. HVH D-riðill Efstu liðin í D-riðli, Tindastóll og Vikingur, Ölafsvík, mættust á Sauðárkróki í 3. deild Islands- mótsins á laugardag. Liðin skildu jöfn — 0-0. Sjálfsagt réttlát úrslit — þó sóknarþungi Tindastóls væri heldur meiri og knötturinn hefði smollið í þverslá marks Vík- inga. Bæði lið hafa því tapað einu stigi — stefnir því í uppgjör þeirra í Ölafsvík þann 20. ágúst. I Stykkishólmi léku Snæfell og USAH — Austur Húnvetningar. Liðin skildu jöfn, 1-1, en leik HSS og Skallagríms var frestað þar sem leikmenn Skallagríms eru i keppnisferð í Færeyjum. þa C-riðill Loks er það C-riðill — en efsta liðið í riðlinum, Fylkir, lék ekki um helgina. Grótta mætti Létti frá Reykjavík á Seltjarnarnesi — og sigraði Léttir 4-3 í ákáflega jöfnum og skemmtilegum leik. En þvl miður vantar okkur hverjir skoruðu mörkin á Seltjarnarnes- inu. Hins vegar áttu Bolvíkingar ekki í vandræðum með að sigra lið Óðins frá Reykjavík er liðin mættust fyrir vestan. Bolvikingar sigruðu 4-1 og skoraði Jóhann Kristjánsson þrjú mörk fyrir heimamenn og Hjörleifur Guð- finnsson hið fjórða. SH. Sigur Ármanns íSandgerði Reynir, Sandgerði — Armann 0-2 Armann heldur enn í von um sæti i 1. deild næsta ár — eftir góðan sigur í Sandgerði gegn Reyni í gærkvöid í 2. deiid íslandsmótsins i knattspyrnu. Armann hefur því hlotið 11 stig í 2. deild — tveimur minna en forustuliðin KA og Þróttur. Þrátt fyrir erfiðár aðstæður, pollóttan völl og eðju eftir úrhellisrigningu, léku bæði lið með úrslitaleikskrafti allan leikinn. Oft brá fyrir skemmti- legur samleiksköflum en poll- arnir á vellinum settu iðulega. strik í reikninginn. Leikmenn fengu og kaldar skvettur þar sem þeir börðust í eðjunni. Þráinn Ásmundsson skoraði fyrra mark Armanns á 25. mínútu fyrri hálf- leiks — skallaði í mark eftir auka- spyrnu. Reynir fékk gullið tækifæri skömmu síðar að jafna — er Ari Arason komst einn innfyrir vörn Armenninga en skaut framhjá. Þá fóru Reynismenn illa að ráði sínu er Jón Guðmann Pétursson' komst í svipað færi skömmu fyrir leikslok — en honum brást fóta- fimin. Ármenningar sneru vörn í sókn — sendu háa sendingu ipn i vita- teig Reynis. Markvörður Reynis. Reynir Óskarsson kallaði ..hefann" — en mistókst gripið og Gunnar Guðlaugsson. sem var nýkoininn inn á sem varamaður. fylgdi vel eftir og skaut föstu skoti í netmöskvana. 0-2. Armann hafði öllu betur úti á vellinum og átti sigurinn skilið þó marktækifæri Armanns hafi verið aðeins tvö — og inörkin jafnmörg. Armannsliðið er jafnt — með Ögmund Kristinsson góðan inarkvörð, er oft greip lag- lega inní, er þurfti ekki.að beita sér að öðru leyti. þar sem skot Reyn.ismanna voru yfirleitt púðurskot. emm. Hreinn Ilalldórsson — nú kominn yfir 21 metra múrinn. DAGBLADID. ÞRIDJUDAGUR 5. JUI.t 1977. 13 -Bikarmeistarar Vlanchester United — Tommy Dochert.v framkvæmdastjóri er lengst til vinstri í annarri röð. Hins vegar er Laurie Brown - hvers konu Dochertv tók — efst til hægri í öftustu röð. Docherty sagt að taka pokann sinn frá United Sprengja féli í enska knatt- sp.vrnuheiminum í gærkvöld — Tommy Docherty, framkvæmda- stjóra bikarmeistara Manchester United var sagt upp störfum hjá félaginu vegna sambands síns við Mary Brown, konu nuddara félagsins, en þau ætla að stofna til hjúskapar. Frú Brown, er 31 árs og tveggja barna móðir. „Eg elska Tommy," sagði frú Mary Brown á blaðamannafundi i síðustu viku er hún hélt ásamt eiginmanni sinum. Þetta mál hefur vakið mikla athygli — en Tommy Docherty neitaði að segja af sér í síðustu viku vegna þessa máls — sagðist þá hlakka til að hefja æfingar með iiðið þann 2. júli — eða um helgina. Docherty er fjögurra barna faðir — og 49 ára gamall. Hann tók við Manchester United fyrir fjórum árum en liðið féll I 2. deild sama keppnistímabil. Þetta fræga félag vann sæti sitt I 1. deild þegar árið eftir — og keppnis- tímabilið 1975-76 var liðið með í baráttunni um Englandsmeistara- titilinn og í úrslitum enska bikarsins. Manchester United. tapaði fyrir Southampton i úrslitum 1-0* En Docherty kom með United aftur síðastliðið vor — þá gegn meisturum Liverpool — og nú vann Manchester United 2-1. Bikarinn I höfn — fyrsti bikarsigur Tommy Docherty. Stöðugur orðrómur hefur verið í vor og suinar um að Dochert.v færi frá United og var nafn hans lengi tengt Derby. Docherty vildi þó heldur vera áfram hjá United — vinna áfram að því verki að Það eru mikil vonbrigði — vissulega — að nú eru nánast engar likur á landsleik við Fære.v- inga í knattsp.vrnu fyrir Svíaleik- inn hinn 20. júlí, sagði Tony Knapp, landsiiðsþjálfari, þegar blaðið ræddi við hann í morgun. Mér skilst að tvö beztu félagslið Færeyja séu nú í Danmörku og því treysta þeir sér ekki í lands- leik við okkur á næstunni. Slíkur leikur nú hefði verið mjög rnikils- verður. Þar hefðum við getað litið á nokkra leikmenn í iandsleik — eina sex-sjö leikmenn, sem alveg eru við íslenzka landsiiðið, og myndu standa vel fyrir sínu. Það er nauðsyniegt að ungu piltarnir fái reynslu í landsleikjum — fái gera United aftur að stórveldi. Sir Matt Busby var fjarverandi í síðustu viku er Docherty neitaði að segja af sér — og í raun var beðið eftir komu hans til að kveða upp úrskurð. Og sprengjan féll í gærkvöld — Docherty verður að landsleikjabragð ef svo má að orði komast, og þá heizt í ieikjum, sem ekki eru of erfiðir. Það reyndist vel i f.vrra gegn Luxem- borg og í leiknum við úrvaislið Bobb.v Charlton fyrr í sumar, sagði landsiiðsþjálfarinn enn- fremur. Hins vegar er ekki rétt að vera með marga nýliða, þegar um erf- iðan landsleik er að ræða — landsleik eins og leikurinn við Svía verður áreiðanlega. Þeir eru með lið í heimsklassa eins og árangur þeirra um langt árabil í heimsmeistarakeppninni ber með sér. Og enn einu sinni eru þeir komnir í úrslitakeppni HM. Við verðum án atvinnumann- fara frá Manchester United vegna brots á samningi, sagði í stuttri tilkynningu frá félaginu. Þess var og getið að félagið vonaðist iil að ráða nýjan framkvæmdastjóra fljótlega og auglýsti eftir umsókn- um. "anna í leiknum við Svía — jafn- vel þriggja eða fjögurra — og því eru það mikii vonbrigði að ekki verður af leiknum við Færeyinga. Það hefði verið góð æfing fyrir Svíaleikinn að leika við Fære.v- inga, auk þess, sem það hefði gef- ið nokkrum ungum piltum reynslu í landsleik — og einnig annað sem er nauðsynlegt. Tæki- færi til að kynnast piltunum i landsliðshópnum betur. Já þetta eru vonbrigði — eins og það hefur líka verið að ekki hefur gefizt tækifæri á að stiila upp landsliði leikmanna 21 árs og yngri eins og ég hef haft mikinn áhuga á, sagði Tony Knapp að lokum. Haukarunnu á Selfossi Ilaukar frá Hafnarfirði þokuðu sér nær forustuliðuin 2. deildar — Þrótti og KA með sigri á Selfossi í gærkvöld, 4-0. Haukar voru ávallt mun friskari í heldur slökum leik þó sigur þeirra hafi ef til vill verið í stærsta lagi. Urhellisrigning setti sín mörk á leikinn er fór fram á grasinu á Selfossi. Þrátt fyrir að Haukar leiki að öllu jöfnu á möl náðu þeir betri tökum á leiknum á grasinu — áttu betra með að fóta sig. Haukar hófu leikinn af krafti — og eftir 10 mínútur lá knötturinn i neti Selfyssinga eftir að Loftur Eyjólfsson hafði skallað í netið, 0-1. Haukar sóttu mun meir en Selfyssingar — sem voru mjög daufir en náóu þó nokkrum upphlaupum er sköpuðu hættu í fyrri hálfleik. En kraftinn vantaði — og á 46. mínútu fyrri hálfieiks juku Haukar forustu sína er Ólafur Jóhannsson skoraði af stuttu færi — vörn Selfoss bókstaf- lega fraus . Siðari háifieikur var heldur tilþrifalítill — á 30. mínútu skoraði Loftur aftur laglegt mark eftir að hafa komizt inn i sendingu Selfyssinga. Selfoss átti eitt marktækifæri í síðari hálfleik. Guðjón Arngrímsson fyrir opnu marki en laust skot hans var auðveldlega varið. Haukar sóttu stíft siðustu mín- útur leiksins — og á 43. mín- útu var dæmd vitaspyrna á Selfoss sem Ólafur Jóhanns- son skoraði örugglega úr, 0-4. Ötrúlegt áhugaleysi virðist ríkja hjá Selfyssingum — og verða þeir að athuga sinn gang ef liðið á ekki að falla í 3. deild. Baráttuleysi og áhuga- leysi. Leikinn dæmdi Viili Þór þokkalega en hann virtist ekki átta sig á hagnaðarbrotum. Of oft hagnaðist það lið er braut — og var svo jafnt á báða bóga. BG. Staðan í 2. deild Staðan í 2. deiid er nú: Þróttur, R 8 6 1 1 17-8 13 KA 8 6 1 1 18-10 13 Haukar 8 4 4 0 13-4 12 Armann 8 5 1 2 14-5 11 tsafjörður 8 2 2 4 8-10 8 Reynir, S 8 3 1 4 12-16 7 Völsungur 8 2 1 5 7-11 5 Selfoss 8 2 1 4 6-12 5 Þróttur, N 8 1 3 4 7-14 5 Reynir, Ar 8 0 1 7 5-17 1 Vonbrigði að ekki verður landsleikur við Færeyjar — sagði Tony Knapp, landsliðsþjálfari í morgun forsala aðgöngumiða að söngskemmtun Ríó-tríósins í Austurbæjarbíói er hafin.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.