Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 13
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. JULl 1977. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGXJR 13. JÚLÍ 1977. 13 „Smekkur fólks hefur skánað mikið. Forsíðuviðtal við Finn Fróðason, innanhuss- og húsgagnaarkítekt. Megrunarkúrinn. Nú birtast hadegis- og kvöldverðaruppskriftir ásamt leikfimiæfingum Sumargetraun Vikunnar. Glæsilegir vinningar, þ.á m. ferð til Ibiza fyrir tvo. Fay Dunaway leikkona ársins. Samtalsgrein og myndir 1001 nótt Pasolinis íkvikmyndaþætti. Stutt sakamálasaga. HALLUR SlMONARSON Giles afturtil Manchester? Vliklar likur eru nú a, að Johnnv Giles fari aftur til Manc- hester. Giles, sem tvö síðastliðin ár hefur verið frainkvæmdastjóri WBA og náð hreint ótrúlegum árangri með liðið, hefur úr inörgum kostaboðuin að velja. Manchester United bauð Johnn.v Giles að taka við fram- kvæmdastjórn liðsins eftir að hafa rekið Docherty. En Giles hefur hafnað boði United — svo og hefur hann hafnað milljóna- boði um að taka við landsliði Saudi-Arabíu. bess í stað eru taldar likur á að Giles fari til hins Manchester- risans — Citv og þá sem leik- maður. Þá hafa Birmingham Cit.v og Nottingham Forest náð samkomulagi um sölu á fram- herja Birmingham, skozka lands- liðsinanninum Kenn.v Burns, fyrir 150 þúsund pund. Aðeins Burns á nú eftir að veita sam- þykki sitt. Marteinn íSvíaleikinn Við fengum skeyti frá Royale Union í gær og þar gefur belgíska félagið MaTteini Geirssyni leyfi til að leika í islenzka landsliðinu gegn Svíum á Laugardalsvelli 20. júlí. Hann þarf ekki að mæta á æfingar hjá félaginu fyrr en 23. júlí — ekki 18. eins og áður var fvrirhugað, sagði Tony Knapp, landsliðsþjáifari, í gær. Þetta eru mjög ánægjulcg tíðindi og Marteinn er einstakur piltur. Hann hefur nú eytt öllu sumarfríinu sínu frá Union til að geta leikið fyrir tsland. Æft með Fram og síðan hjá mér til að vera sem bezt undir leikinn búinn, sagði Knapp ennfremur og það var greinilegt á honum, að hann var mjög ánægður með þessi málalok hjá Union. Loksins sigur Argentinumanna — Unnu Austur-Þjóðverja 2-0 ígærkvöld Argentína sigraði Austur- Þýzkaland í landsleik í knatt- spyrnu í Buenos Aires í gærkvöld 2-0 og endurheimti við það nokkuð af fornri frægð á knatt- spyrnusviðinu. Leikurinn var hinn síðasti af sjö, sem Argen- tínumenn hafa leikið að undan- förnu til undirbúnings fyrir HM næsta ár, sem haldin verður i Argentínu. Rene Houseman náði forustu í leiknum í gær á 31.mín. og Carras- cosa, fyrirliði argentíska liðsins, gulltryggði sigurinn á 69.mín. Leikmenn Argentínu sýndu nú betri leik en að undanförnu gegn helztu knattspyrnuþjóðum Evrópu — og lék mun prúðar, enda hafa nokkrir mestu skap- mennirnir verið dæmdir í keppnisbann — allt upp í átta landsleiki — vegna framkomu í leikjunum. Áhorfendur voru 35 þúsund. Argentínska liðið hafði lengstum yfirburði gegn Austur-Þýzkalandi og lék oft mjög vel. Einkum voru þeir Carrascosa og Ardiles góðir á miðju vallarins. Vörn Austur- Þýzkaiands lék vel — og Jurgen Croy góður i marki. SINN 300. LEIK! Það hefur mikil vinna legið á bakvið að ná þessum áfanga, sagði Bergsveinn Alfonsson í gær- kvöld, en hann lék sinn 300. leik í mcistaraflokki Vals gegn Þór. Þetta er einstæður atburður í islenzkri knattspyrnusögu og fróðir menn fullyrða, að hér sé um íslandsmet að ræða. Ilvorki fyrr né síðar hafi íslenzkur leik- maður náð slíkum Ieikjafjölda með liði sínu. Bergsveinn er þó ekki nema 31 árs. Fæddur 2. febrúar 1946. Myndina að ofan tók Bjarnleifur í hófi, sem Vals- menn héldu Bergsveini í gær eftir leikinn við Þór. Eiginkona hans, Þuríður Sölvadóttir, cr með honum á myndinni. Þau ciga þrjú börn. Stahlberg varpaði 21.19 Finnski kúluvarparinn Reijo Stahlberg varpaði kúlunni 21.19 metra sl. sunnudag og sigraði Geoff Capes, Bretlandi, auðveldlega, þegár Finnar unnu Breta i landskeppni í frjálsum íþróttum. Capes varpaði 20.42 metra og átti ekkert svar við mjög góðum köstum Finnans. Þriðjl maður í kúluvarpinu varð Matti Yrjala, Finnlandi, mcð 18.87 metra, og Mike Winch, Bretlandi, varð — þegar Finnar sigruðu Breta í frjálsum íþröttum fjórði með 18.86 metra, svo þar var mikið einvígi um þriðja sætið. Finnar sigruðu í landskeppninni með sex stiga mun eftir að Bretar höfðu haft yfir eftir fyrri daginn, 57 stig gegn 49. Kúluvarpseinvígi þeirra Stahlberg og Capes var einn af hápunktum keppninnar og voru Finnar að vonum ánægðir með árangur síns manns. Með þessum sigri hefur Stahlberg sigrað alla beztu kúluvarpara heims i sumar. Finnar voru sterkari en Bretar. Hannu Poivi, Finnlandi. sigraði í sleggjukasti með 71.52 metra —og í spjótkasti og kringlukasti unnust auðvéldir sigrar. Hins vegar voru Bretar sprettharðari — Bennet sigraði i 100 m hlaupinu á 10.66 sek. — og einnig betri í löngu hlaupunum. David Black sigraði i 10000 m hlaupinu á 28:49.0 min. og Mike McLeod tryggði þar Bretum tvöfaldan sigur. Þá sigraði David Jenkins, Bretlandi, í 400 m hlaupi á 46.03 sek. og Glen Cohen. Bretlandi. varð annar á 46.91 sek., en i 1500 m hlaupinu sigraði Ari Paunonen. Finn- landi. á 3:41.5 niín. og Antti Leik- kanen varð annar á 3:42.6 min. Englendingurinn kunni. Steve Ovett. lók ekki þátt i keppninni. Revie til 115 milljónir kr. ‘x. I, ví - Afsögn enska landsliðsþjálfar- ans í knattspyrnu í gær, Don Revie, kom mjög á óvart— og forráðamenn knattspyrnusam- bandsins enska eru mjög óhressir vegna þess, að þeir lásu um uppsögn hans í blöðunum eða áður en hann tilkynnti þeim, að hann treysti sér ekki lengur til að sinna starfinu. Farinn á taugum að eigin sögn. Knattspyrnusam- bandið tilkynnti í gær, að það mundi ekki ráða landsliðsþjálf- ara strax. Ekkert lægi á. Næsti landsleikur væri ekki fyrr en í október. Jeff Powell, sem fyrstur skrifaði um að Revie væri að hætta í Daily Mail, skrifaði í gær, að Revie mundi taka við þýðingar- miklu starfi sem þjálfari í Araba- ríkjum. Honum hefði boðizt samningur í fjögur ár og fengi í laun 340 þúsund sterlingspund skattfrjálst eða um 115 milljónir íslenzkra króna. Powell segir, að Arabarnir hafi náð samningum við Revie gegnum enskan verzlunarmenn — og kannski eru þessir miklu peningar ástæðan til uppsagnar Revie. I greininni segir Powell, að Revie hafi flogið til Dubai og ekki notað sitt eigið nafn hinn 5. júní þegar enska' landsliðið var á leið til Brasilíu. Revie hafi þá beðið forustumenn knattspyrnusambandsins í UAE um frest fram í nóvember — og síðan flogið til að horfa á lands- leik Finnlands og Italíu í Helsinki. Uppsögn Revie hefur valdio miklum úlfaþyt á Englandi — og kom á óvart. Einkum þar sem enska landsliðið hafði náð sínum bezta árangri í keppnisför til Suð- ur-Ameríku, sem enskt landslið hefur náð þar. Þó hafa margir, að sögn BBC, samúð með Revie. Taugaspennan sem landsliðs- ijálfari með heldur lélegum rangri hafi verið yfirþyrmandi — enda kom það mjög fram í starfi Revie. Stöðugar breytingar á landsliði hafa aldrei reynzt vel, — og Revie var farinn að hlaupa ák eftir hverjum þeim skrifum, sem birtust í blöðum um breytingar á landsliðinu. DB-mynd Bjarnlelfur. Hart barizt í vítateig Þórs. Magnús markvörður slær knöttinn af höfði Dýra Guðmundssonar. Bikarmeistarar Vals léku sinn fyrsta bikarleik í ár á Laugardalsvell- inum í gærkvöld. Mættu þá Þór frá Akureyri — og það kom greinilega fram í leik Valsmanna að erfitt verður fyrir önnur félög að ná bikarnum frá Hlíðarenda í haust. Já, Valsmenn byrjuðu bikarvörn sína með glæsibrag — það var vörn, sem sagði sex. Sex sinnum hafnaði knötturinn í marki Þórs áður en yfir •lauk og Valsmörkin hefðu alveg eins getað orðið tíu-tólf í leiknum. Svo miklir voru yfirburðir liðsins. Hins vegar var Þórshamarinn þungur í höndum Akureyringa. Hann var ekki reiddur hátt til höggs eða fimlega barizt. Þó tókst Þór að skora eitt mark. Úrslit. Valur 6 — Þór 1. Valsliðið sýndi oft snilldartakta í leiknum. Hraði — leikni — samleikur var aðall leikmanna, og þegar líða tók á leikinn var vörn Þórs svo sundur- tætt, að þar stóð ekki steinn yfir steini. Eftirleikurinn var auðveldur Valsmönnum, og mörkin hrönnuðust upp. Þórsliðið er heldur ekki erfiður mótherji. Þó liðið leikí í 1. deild hafa leikmenn liðsins ekki þá hæfni, sem þar þarf — enda virðist leiðin liggja beint niður í aðra deild á ný. Þessi leikur hafði þó ekki áhrif á stöðuna i 1. deild, en bætir varla úr hjá Þórsurum. Þar kom aðeins enn betur í ljós en áður hve Þór er langt á eftir okkar beztu liðum. Það reyndi ekki mikið á Valsvörn- ina í gær — en hún stóð vel fyrir sínu og á miðjunni var Hörður Hilmarsson hreint frábær. Atli Eðvaldsson, Guðmundur Þorbjörnsson og Ingi Björn Albertsson hver öðrum betri í framlínunni — og Albert Guðmunds- son drjúgur í feyki-erfiðri stöðu. Þá má ekki gleyma hlut Bergsveins Alfonssonar, sem lék sinn 300. leik í meistaraflokki Vals. Akaflega traustur leikmaður, sem aldrei gefur eftir þumlung, leikmaður með mikla knattspyrnugáfu. Football-brain eins og Bretinn segir. Valur byrjaði með krafti í gær. Þrívegis varði Magnús Þorvaldsson, markvörður Þórs, snilldarlega á fyrstu tíu mínútunum, það svo, að maður hélt, að Akureyringar væru kominn með nýjan snilling í mark sitt. Annað átti þö eftir að koma í ljós. Á 13. mín. skoraði Valur sitt fyrsta mark — Hörður Hilmarsson skoraði með þrumufleyg eftir hornspyrnu, þar sem Magnús Bergs skallaði knöttinn til Harðar. En það óvænta skeði. Þór jafnaði. Það var á 23,mín. Eftir fallegt upphlaup fékk Öskar Gunnarsson knöttinn frá Pétri Sigurðssyni og við fast skot hans réð Sigurður Dagsson ekki Tíu mín. síðar náði Valur forustu á ný — eftir mikil mistök línuvarðar og dómara, því Jón Einarsson var greinilega rangstæður, þegar knötturinn var gefinn fyrir mark Þórs. Dró að sér tvo varnarmenn — og Guðmundur Þorbjörnsson fékk knöttinn á auðum sjó. Skoraði með föstu skoti neðst í markhornið — innan á stöng. Staðan í hálfleik 2-1. Á 49, mín. kom Ingi Björn Alberts- son Val í 3-1. Skoraði með lausu skoti af stuttu færi, Magnús markvörður greip knöttinn, en missti hann í markið. Fjórða mark Vals var þrumu- fleygur Alberts Guðmundssonar á 67, mín. eftir glæsilegt upphlaup, Atli, Guðmundur, Hörður áður en Albert rak endahnútinn á það. Á 81. mín. kom Guðmundur Val í 5-1. Sendi knöttinn í autt Þórs-markið eftir ævintýralegt úthlaup markvarðar og Bergsveinn hélt upp á daginn með því að skora sjötta markið á 85,mín. — og þar fékk hann afmælisgjöf frá Aðalsteini Sigurgeirssyni. Þessi leik- maður Þórs, sem var i hópi betri leikmanna liðsins, lagði knöttinn fyrir Bergsvein rétt utan markteigs — og Magnús markvörður enn einu sinni i skógarferð. Auk þess fengu Valsmenn mörg góð tækifæri í leikn- um — og þar er hvað minnisstæðast snilldarsending Harðar á Inga Björn, sem komst frír að marki Þórs, en spyrnti knettinum beint í markvörð- inn. Dómari Arnþór Óskarsson. hsím. Bikarvörn Vals héfst ígær: 0G ÞAÐ VAR VÖRN SEM SAGÐISEX! — Valur sigraði Þór frá Akureyri 6-1 á Laugardalsvelli

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.