Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLl 1977.
7
Fóstureydingar
eftir þörfum”
—brezkar konurmótmæltu nýju fóstureyðingafrumvarpi
með fýlusprengjum ogklósettrúllum
Nokkrar konur söfnuðust
saman við þinghúsið í London í
Við sum sjúkrahús eru starf-
andi sérstakar deildir sem ein-
göngu sinna fóstureyðingum.
Brezkum þingmönnum er nú
tekið að ofbjóða fjöldi þeirra
kvenna sem hefur viðkomu þar.
gær og fleygðu fýlusprengjum
og kósettrúllum að þing-
mönnum. Með þessu vildu þær
vekja athygli á andstöðu sinni
við tillögur þess efnis að gera
eigi konum erfiðara en áður að
fá fóstureyðingu.
Nokkrum kvennanna tókst
að ryðjast inn í nefndarher-
bergi, þar sem þingmenn
ræddu um frumvarp, sem
kveður á um að ekki verði leyft
að eyða fóstri síðar en 20 vikum
eftir getnað. Nú mega konur
hafa gengið með fóstur í allt að
28 vikum þegar þær láta eyða
því. Fimm ungum konum var
vísað með harðri hendi út úr
herberginu. Þær æptu slagorð
eins og „fóstureyðingar eftir
þörfum“ og „konur eiga að
ákveða sjálfar.“
Lögreglan handtók nokkrar
konur og færði þær til yfir-
heyrslu. Ekki er talið að þær
verði ákærðar vegna mótmæla-
aðgerða þessara.
Ekki er talið að nýja fóstur-
eyðingafrumvarpið nái fram að
ganga fyrr en á næsta ári.
Bandaríkin:
Hleranir lang-
línusamtala rannsakaðar
Carter Bandaríkjaforseti
hefur fyrirskipað rannsókn á
því, hvernig koma skuli í veg
fyrir hleranir erlendra þjóða,
samtaka eða glæpahópa á lang-,
línusamtölum í landinu. Tals-j
maður forsetans, Jody Powell,
kvað mikil brögð vera orðin að
þessu og yrði rannsókninni
hraðað sem mest má.
New York Times skýrði frá
því um síðustu helgi að Sovét-
menn hafi yfir að ráða tækni
sem nemi örbylgjur þær sem
langlínusamtöl fara fram á.
Með ákaflega næmum tölvum
má síðan þýða samtölin yfir á
mælt mál.
Það verða Stansfield Turner,
yfirmaður CIA og Zbigniew
Brzezinski, öryggisráðgjafi
Carters, sem stjórna rannsókn-
inni.
Finnar senda
flugvélarræn-
ingjana heim
Finnska stjórnin hafði í
morgun að mestu leyti gengið frá
öllu varðandi afhendingu sovézku
flugvélaræningjanna tveggja sem
reyndu að ræna flugvél með eina
ónýta handsprengju að vopni.
Paavo Vaeyrynen, utanríkis-
ráðherra Finnlands, sagði i gær-
kvöld að að sjálfsögðu yrðu
ræningjarnir framseldir til Sovét-
ríkjanna, en ýmis skjöl og pappíra
yrði að útfylla fyrst.
Fyrir tveimur árum undir-
rituðu stjórnir landanna tveggja
samning þar sem sagt var berum
orðum að flugvélaræningja skyldi
skilyrðislaust afhenda.
Ræningjarnir, sem eru 19 og 22ja
ára gamlir, gáfust upp í gær eftir
að gíslar þeirra, 72, voru allir
sloppnir.
Flugvélin, sem rænt var hefur
nú snúið til baka til Sovét-
ríkjanna. Upphaflega vildu
ræningjarnir að hún flygi með þá
til Stokkhólms en vegna of lítils
eldsneytis varð hún að lenda í
Finnlandi. — Samkvæmt
Reutersfrétt mega sovézkir flug-
vélaræningjar eiga von á að þurfa
að dúsa í fangelsi allt frá þremur
upp í fimmtán ár.
Bandaríkin:
Framleiðendur
kynlífskvikmynda
veita verðlaun
—gefa styttu sem hlotið hef ur nafnið
„Erotica”
Bandarískir framleiðendur
kynlífskvikmynda hyggjast koma
saman í Los Angeles á morgun og
veita viðurkenningar, sambæri-
legar við óskarsverðlaunin, i
starfsgrein sinni. Strangar fyrir-
skipanir eru um að allir, sem við-
staddir verða athöfnina, skuli
vera kappklæddir.
„Við væntum þess af gestum
okkar að þeir verði i kvöldklæðn-
aðí,“ Sagði David Friedman for-
maður samtakanna, sem á
útlenzku nefnasl The Adull Film
Association of America. Hann
kvað það litið mjög alvarlegum
augum, ef einhverjir mættu í
vinnugallanum, — það er.naktir.
Aformað er að sæma bezta
leikara, beztu leikkonu, leikara í
aukahlutverkum, leikstjóra og
svo framvegis viðurkenningu.
svipað og gert er við óskarsverð-
launaafhendingu. Fólkið á þó
ekki að fá óskarsstyttu heldur
eflirmynd naktrar konu og hefur
hún hlotið nafnið „Erotica".
Lokaðfrá kl. 17.00 ídagvegna 20 ára afmælis
fyrirtækisins.
OpnumkL 10.00 ámorgun 14.júlí.
Nesti íFossvogi — Bifreiðaveitingasto
Nesti íFossvogi — Bensínafgreiðsla
Nesti v/ Elliðaár — Bifreiðaveitingasto
Nesti vElliðaar — Bensínafgreiðsla
Nesti á Ártúnshöfða — Bifreiðaveitingasto