Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 2
I)A(iBLAl)It). MIBVIKUDACUR 13. JÚLt lr7.? r SPÁNVERJAR ERU EKKIAÐ HAMAST VIÐ AÐ GLEYMA GENERALISSIMO FRANSISCO FRANCO „Hvað eigum við að gera með þetta ,,democrasía“? Er það ekki bara fundið upp fyrir ger- spillta kapitalista? Hvað tekur eiginlega við eftir þessar kosningar?" Þessi orðaskipti áttu sér stað á milli margra manna á markaðnum í Malaga daginn eftir spænsku kosningarnar um daginn. „Þessi óvissa væri ekki yfirvof- andi, ef ,,afi“ væri enn á lífi — allir heilagir og guðsmóðir veri sálu hans náðug," sagði einn kappræðumanna og þerraði tár- vot augu. Það gerðu fleiri. Umræðuefnið var að vonum mjög almennt. Afgreiðslufólk tók þátt í umræðum. Útkeyrslu- maður kom með heit brauð i kassa frá bakaranum. Honum var ekki sinnt strax og sá hann að ekkert betra var gert en að leggja orð í belg. Mál manna var allt á einn veg. Fram- bjóðandi sem hefði ætlað að fljóta inn á spánska þingið með því að hallmæla Franco hefði gert mikla skyssu. Hann hefði naumast fengið eitt atkvæði. Jafnvel Carillo var þetta ljóst. Hann fekk líka fljótt kveðjuna frá Moskvu. Einkennilega stinga «C Svona var Franco fínn þegar hann sat veizlu með Ford fyrr- um Bandarikjaforseta, þegar hann kom í heimsókn til Spán- ar. Myndin var tekin 31. maí 1975. Sjúklingar vilja fleiri leikja- lýsingar í útvarpi Sjúklingur á Landspítalan- um hringdi og vildi taka undir þá óánægju sem komið hefur fram með að ekki skuli fleiri íþróttaleikjum vera útvarpað, sérstaklega landsleikjum. Sjúklingur vakti athygli á því að margir sem væru rúmliggj- andi á sjúkrahúsum vildu gjarnan fylgjast með iþrótta- keppnum. Heyrst hafa óánægjuraddir frá fólki sem telur að alltof mikið sé af íþróttum í fjöl- miðlum bæði blöðum og útvarpi og sjónvarpi. Þeir hinir sömu athuga þá ekki að til eru þeir sem gjainan vilja fylgjast með, en eru dæmdir úr leik um hríð vegna veikinda. íþróttir hafa hingað til þótt holl iðja fyrir ungmenni. Þau eru þá að minnsta kosti ekki í reykmettuðu andrúmslofti diskótekanna meðan þau eru við íþróttir. Það viðrar ekki alltaf jafnvel og daginn sem þessi mynd var lekin, en þá fengu sjúklingarnir á Landspítaianum að fara út á lóðina i rúmum sinum. Þann daginn hefðu þeir trúlega ekki hlustað á iþróttalýsingar. En aðrir dagar eru þungbúnir og þá stundum lengi að liða þegar maður kemst ekki umræður almennings á Spáni, og reyndar opinber umræða í þvi landi í stúf við linnulausan, villandi fréttaburð ríkisfjöl- miðlanna á Island um allan að- draganda breyttra stjórnar- hátta Spánverja og kosningarn- ar. _ Enda þótt ríkisfjölmiðiarnir séu hér nefndir er þetta furðulega sambandsleysi við staðreyndir eins elzta og fjöl- mennasta menningarríkis Evrópu engan veginn bundið við þá. Dagblöðin hafa flest verið á sama básnum. Guðbergur Bergsson hefur skrifað Spánargreinar í Þjóðviljann. Þær eru að ýmsu leyti skilmerkilegar og raunar fróðlegar miðað við það hug- myndalega skráargat sem hann sér gegnum. Mér þótti leiðinlegt að sjá erlenda grein í Dagblaðinu þar sem fjölyrt er um að Spánverjar séu nú önnum kafnir við að gleyma hinum látna þjóðarleiðtoga sínum, Generalissimo Francisco Franco. Hvaðan er svona vit- leysa fengin? Spánn er gamalt og gott við- skiptaland okkar Islendinga. Víst má telja, að samskipti okkar við þessa þjóð verði mikil og vaxandi. Það hlýtur að vera einhver vegur til þess að íslenzkir fjölmiðlar geti aflað réttari frétta frá Spáni en hing- að til hefur tíðkazt. Það er engin skynsamleg ástæða til þess að halda hér að íslenzku fólki þrumandi lygi um allt sem að spánskum málefnum lýtur. Það er ekki aðeins óhæfa held- ur og vonlaust til lengdar, hvaða óskiljanlegum tilgangi sem það á að þjóna. Simpatico. íslendingar geta ekki lært notkun ökuljosa B.J. hringdi: Eg get ekki lengur orða bundizt um skilningsleysi öku- manna á gildi notkunar öku- ljósa í slæmu skyggni. Nú fyrir skömmu var ég að aka ofan úr Mosfellssveit og mætti níu bílum. Þar af voru tveir lög- reglubílar. Skyggni var slæmt og fyllsta ástæða til að nota ökuljós, að mínu mati, enda lít ég svo á að sé nokkur vafi á hvort nota beri þau eða ekki beri fremur að nota þau, það skaðar ekkert og kostar ekkert. Aðeins þrír bílanna sem ég mætti voru með ökuljós. Annar lögreglubílanna var ljóslaus, en hinn, nýr Volvo, var með ein- hvers konar sterk stöðuljós log- andi sem mér skilst að kvikni á um leið og bíllinn er gang- settur, hvort sem er að nóttu eða degi. Lögregluþjónar eru ekki óskeilulir fremur en aðrir en þó vil ég gera þá kröfu til þeirra að þeir gangi á undan með góðu fordæmi í þessu máli, sem svo mjög snertir raunar starf þeirra. I umferðarþáttum í útvarpi er notkun ökuljósa í slæmu skyggni margítrekuð og lofs- verðar eru tilkynningar frá lög- regluyfirvöldum af og til þess efnis að aka beri með þeim á tilteknum stöðum vegna slæms skyggnis. Þær berast bara alltof sjaldan. Ekki veit ég hvort þess- ar tilkynningar eiga eitthvað erfitt uppdráttar I útvarpinu eða þessi yfirvöld sjái of sjald- an ástæðu til að birta þær. Þær fáu sem koma eru þó í áttina. Svo eru það hinir sem láta sér nægja að aka með stöðuljós eingöngu, ef um er að ræða slæmt skyggni um miðjan dag. Þau gera hins vegar lítið sem ekkert gagn og auk þess er bannað að nota þau í akstri. Já vel á minnzt, er þá ekki nýi ljósabúnaður Volvobílanna ólöglegur á Islandi ofan á allt, þótt hann verði heldur að telj- ast til bóta? Augijóst er hvaða gildi ökuijós hafa i skilyrðum, sem þessum. þótt Vi fram úr rúminu. DB-mynd Hörður Viihjálmsson. um miðjan dag sé.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.