Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 13.07.1977, Blaðsíða 1
I dagblað 3. ARG. — MIÐVIKUD. 13. JÚLI 1977. — 148. TBL. RITSTJÓRN SIÐUMULA 12. AUGLVSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 27022 MIKIÐ UM UNDIRMÁLSHSK HJÁ FÆRABÁTUM VESTRA Aflamagnið á við af la tíu togara Verulegur undirmálsfiskur er 1 afla handfærabáta á Vest- fjörðum. Eftirlitsmaður sjávarútvegsráðuneytsisins fór nýlega um Vestfirði og kom þetta þá í ljós. Jakob Magnússon forstjóri Hafrannsóknastofnunar sagði að þeim væri kunnugt um málið en aðgerðir væru óvissar. Verið er að kanna afla hand- færabáta fyrir norðan og aust- an. Mjög margir bátar stunda handfæraveiðar um þetta leyti árs. Kunnugir benda á að ekki sé fjarri, að 100 bátar stundi handfæraveiðar frá Vest- fjörðum og jafnist afli þeirra á við 10 skuttogara. Hér sé því um svo mikinn afla að ræða að taka verði tillit til hans við á- kvörðun um aflatakmarkanir. Jóhann Guðmundsson, for- stjóri Framleiðslueftirlits sjávarafurða, sagði að þeim hefði ekki borizt nein vitneskja um þessi mál. Framleiðslueftir- litið á að fylgjast með stærð landaðs fisks og láta vita ef smáfiskur er úr hófi mikill.-ÖG. Rússn- k eskur í ,0nedin’ í heimsökn Stórglæsilegt rússneskt skóla- skið sigldi inn á ytri höfnina kl. rúmlega 10 í morgun. Þarna er á ferð hið fræga skip Kruchenshtern, sem er milli 3 og 4000 tonn að stærð, þriggja mastra. Skipið er 114 metra langt og eins og er er ekkert rúm fyrir það í höfn, sagði Einar Thorodd- sen yfirhafnsögumaður. Talið ! er að um eða yfir 200 sjómannsefni séu um borð. Skipið var eitt þeirra sem tóku þátt í Atlants- hafssiglingunni miklu í fyrra. DB-mynd Bjarnleifur. Spánarfarar fá nú 6000 pesetum meira Spánarfarar fengu glaðning við gengisfellingu pesetans í gær. Samkvæmt upplýsingum hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans sagði að gjaldeyrisyfirfærsla til ferðamanna væri bundin við íslenzkar krónur. Núna fást fleiri spánskir pesetar fyrir krónurnar en áður. Nemur það um það bil 6000 pesetum, sem meira fæst fyrir gjaldeyrisskammtinn en áður. Þessi upphæð skiptist síðan milli einstaklinga og ferðaskrifstof- unnar til greiðslu kostnaðar. ÖG Kristján Thorlacius formaður BSRB: „VIÐ VILJUM JAFNRÉTTI” — opinberir starfsmenn geta nú sveiflað verkfallsvopninu í fyrsta sinn „Megininntakið i stefnu okkar samtaka er launajöfnun- arstefnan, auk þess sem við krefjumst jafnréttis opinberra starfsmanna í launum miðað við aðrar stéttir á vinnu- markaðinum," sagði Kristján Thorlacius^formaður BSRB. Kröfur Bandalagsins eru frá 115 þúsundum upp í 280 þúsund króna mánaðarlaun. Mismunur milli launaflokka samkvæmt kröfunum er 5000 krónur. Samkvæmt lögum yrði samið til 2 ára, að sögn Kristjáns. Opinberir starfsmenn vilja fá það ákvæði inn í nýju samningana að þeir séu upp- segjanlegir ef veruleg röskun verði á vísitöluuppbótum eða kaupmætti launa, jafnframt sé þeim þá heimilt að nota hin nýfengnu verkfallsréttindi. Ef ekki verður samkomulag I viðræðum við stjórnvöld um launakjör og samninga má BSRB boða til verkfalls með 15 daga fyrirvara. Verkfallsréttur opinberra starfsmanna var lögfestur í fyrra. Sáttanefnd er þó heimilt að fresta verkfallinu í 10 daga. Torfi Hjartarson, ríkissátta- semjari hefur nýverið skipað þá Jón Erling Þorláksson, tryggingafræðing og Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóra I sáttanefnd. Sjálfur er hann formaður nefndarinnar. Þessi nefnd er síðan skyldug að leggja fram sáttatillögu sem greiða skal atkvæði um meðal allra félaga I samtökurr, opinberra starfsmanna. Ef sú tillaga á að teljast felld, verður kosningaþátttaka að nema I þ.m. 50% af þeim sem á kjörskrá eru. Af þeim þurfa síðan 50% að vera sátta- tillögunni andvígir. Kristján Thorlacius sagði að vegna þessa þyrftu opinberir starfsmerin að fylgjast vel með' til að vera tilbúnir að taka af- stöðu ef til kæmi. Sameiginleg nefnd kannar nú stöðu rlkis og bæjarstarfs- manna miðað við aðrar stéttir en viðræður munu hefjast eigi síðaren 15. ágúst n.k. -ÓG. „Orkustofnun hefurekki sannfært mig ennþá” - segir yfirverk- fræðingur Kröflu- 111 ffgl Veðurspáin rættist ekki íReykjavík ígærdag — og afleiðingarnar urðu... — siáblp.8 20 þúsund laxaseiði drápust í klakstöðinni við Eliiðaár Skúli á Laxalóni með pálmann í höndunum?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.