Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 17.08.1977, Qupperneq 24

Dagblaðið - 17.08.1977, Qupperneq 24
Manndrápið í Rauðhólum: Urskurðaður í geðrannsókn og 60 daga gæzluvarðhald Stööug lögregluvakt er yfir Einari Hirti Gústafssyni sem í fyrradag varð Halldóru Ástvaldsdóttur aö bana með þremur riffilskotum i háls og höfuð í Rauðhólum skammt ofan við Reykjavík. Einar var í gær úrskurðaður í allt að sextíu daga gæzluvarðhald og gert að sæta geðrannsókn. Það var eftir vinnutíma Hall- dóru heitinnar á mánudag að Einar Hjörtur kom til fundar við hana og fékk hana til að fara með sér í ökuferð. Ök hann síðan sem leið liggur upp í Rauðhóla. Þar stöðvaði hann bílinn, steig út og skaut þremur skotum í höfuð og háls Hall- dóru með 22 kalibera riffli inn um dyrnar bílstjóramegin. Mun hún hafa látizt samstundis, að því að talið er. Krufnings- skýrsla liggur þó ekki fyrir enn. Þau Einar Hjörtur og Hall- dóra heitin komu hingað til lands í byrjun júlí sl. frá Sví- þjóð, þar sem þau höfðu verið við vinnu siðan í maí í fyrra. Slitu þau samvistum skömmu eftir það og hélt Einar síðan aftur til Svíþjóðar. Hann kom síðan aftur til landsins sl. laugardag og hóf þegar tilraun- ir til að komast í samband við Halldóru heitna, að sögn kunn- ingja hennar. Tókst það loks á mánudag með fyrrgreindum hörmulegu afleiðingum (Mishermt var í DB í gær að þau hefðu komið saman til landsins frá Svíþjoð á laugar- daginn). Einar Hjörtur og Halldóra bjuggu í eigin íbúð á Njálsgötu 4a áður en þau héldu til Svíþjóðar en leigðu íbúðina á meðan. Hafði hún fengið sér leigt herbergi skammt frá vinnustað sínum í sumar og var fyrirhugað að selja íbúðina á Njálsgötunni vegna samvistar- slitanna. -ÓV Lögreglumenn og sjúkraliðs- menn komnir á staðinn í Rauðhólum og bera hina látnu og særða piitinn inn í sjúkrabílana. — DB-mynd DOLLARINN1230 KRONUR —til að f iskverkunin stöðvist ekki — Suðurnes jamenn f unda með fijálsl, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGUST 1977. þingmönnum sínum „Yfirlýsingar hraðfrystihúsaeig- enda verða ekki skildar nema sem bein krafa um gengisfellingu," sagði Jón Skaftason alþingis- maður í viðtaii við DB í morgun. Jón sat fjölmennan fund með fiskverkendum á Suðurnesjum ásamt fimm öðrum þingmönnum Reykjaneskjördæmis í gærkvöldi. Stóð fundurinn fram eftir nóttu. - Að sögn hans skýrðu fiskverk- endur á svæðinu frá vandamálum sinnar atvinnugreinar. Ljóst væri að flest fyrirtæki í fiskiðnaði á Suðurnesjum mundu stöðvast vegna rekstrarerfiðleika á næstu dögum eða vikum ef ekkert yrði að gert. „í fljótu bragði er ekkert annað úrræði en gengisfélling sýnilegt til lausnar vanda fiskiðnaðarins," sagði Árni Benediktsson fram- kvæmdastjóri Kirkjusands hf. í morgun. „Samkvæmt þeim útreikning- um, sem gerðir voru á grundvelli sáttatillögu sáttanefndar í kjara- samningum í vor,þarf dollarinn að fara upp í 220—235 krónur," sagði Arni Benediktsson enn- fremur. Hann taldi þó að það væri ekki forráðamanna frystihúsa að benda á úrræði til lausnar vanda í efnahagsmálum. „í venjuiegu þjóðfélagi mundu afleiðingar kjarasamninganna í júlí síðastliðnum ekki þýða annað en samdrátt og atvinnuleysi," sagði Árni. „Ég tel þó víst að flestir þeir, sem að samningum um launin stóðu þá, hafi treyst á að samning- arnir yrðu meira og minna ógiltir í raun,“ sagði Árni Benediktsson að lokum. Jón Skaftason benti á að sam- kvæmt fyrri reynslu væri gengis- lækkun mjög tvíeggjuð leið til lausnar efnahagsvanda. „Sjávarútvegurinn fengi þá að vísu smáforskot en síðan kæmu hækkanir "á launum, hráefni og rekstrarvörum fljótlega í kjöl- farið þannig að gengislækkunin leysti engan vanda til frambúðar". Þjóðhagsstofnun kannar nú tiltæk gögn um afkomu fiskverk- unar. Ekki er Ijóst hvenær-niður- stöður hennar munu liggja fyrir. ÓG. Tveir utan til náms i borholuviðgeröum „Við erum að leggja höfuðin í bleyti hér á meðan erlendu sérfræðingarnir kenna okkar mönnum á stjórntækin," sagði Einar Tjörvi verkfræðingur við Kriiflu í viðtali við Dagblaðið í morgun. „Tveir menn frá okkur, annar frá Jarðborunum og hinn frá Orkustofnun, fara til Skotlands í dag þar sem þeir munu kynna sér viðgerðir olíu- borunarmanna þar á borholum og í ljósi þeirra upplýsinga sem þá fást og þeirra athugana, sem við erum að gera núna, verður hafizt handa við að bora í holu 10 eða 7 núna í vikunni." Sagði Einar að lokaborun yrði gerð á holu 9 i dag en lokið var við að setja toppstvkkið á hana í gær. Á hún því að gefa fulla orku innan skamms og' sagði Einar að ákvörðun um afltilraunir yrðu teknar síðar í þessari viku! HP Vaðandi sfld íNorð- fjarðarflóa Bátar frá Norðfirði hafa undanfarið verið að fá stóra síld í þorskanetin, svokall-' aða demantssíld sem er 34—37 cm á stærð. Síldin hefur fengizt í flóanum út af Norðfjarðarvitanum. Sjó- menn, sem komu inn á bát í gær, sáu vaðandi síld í flóan- um og fréttaritari DB hafði tal af gömlum sjómanni sem var að koma að og hafði dregið í gegnum þykka síldartorfu. Þetta þykja góð tíðindi á Neskapstað en þar hefur ekki sézt síld í fjölda ára. Ekki er vitað hvaðan síldin gengur. Veiðar netabáta á Neskaupstað hafa gengið vel og hafa þeir fengið 3,5—5 tonn í róðri út af Rauðu- björgum. - JH/Friðjón. Krafla: Hola ellefu „datt niður” „Hola ellefu datt niður hjá okkur í gær og það kann að valda okkur einhverjum töfum,“ sagði Einar Tjörvi, yfirverkfræðingur við Kröflu, í viðtali við Dag- blaðið í morgun. „Þeir voru að setja hana í gang en neðra hitakerfið í holunni, sem er heitara en það efra af tveimur kerfum í holunni, virðist ekki geta lyft af sér vatnssúlunni." Sagði Einar að þetta hefði nokkrum sinnum komið fyrir áður „og það er eins og hún sé að íáta okkur vita að það sé hún sem ræður, ekki við.“ Hola ellefu er sú hola sem tengd er gufuveitunni og gufa frá henni hefur verið notuð við tilraunirnar á vélasamstæðunni við Kröflu að undanförnu. - HP Lentu íhjól- sögog sláttuvél Slysaaldan var minni í Reykjavík sl. sólarhring en hinn næsta þar á undan, enda var mál að linnti. Tveir menn munu þó lengi minnast gærdagsins vegna óhappa er þeir urðu fyrir. 1 smíðasal Gamla kompanísins rak maður handlegg í hjólsög. Varð af mikið sár en hve alvarlegt lá ekki fyrir i morgun. Annar var að slá með vél- knuinni garðsláttuvél i Engjaseli. Eitthvað lét vélin ekki vel að stjórn og káfaði maðurinn undir hana. Vél tók móti hendi hans eins og grastoppi og fór höndin illa. ASt.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.