Dagblaðið - 25.08.1977, Blaðsíða 8
DA(JBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. AíJUST 1977.
----------;-----------------
Skuldir Islendinga erlendis:
Fimm manna fjöl-
skyldan skuldar
háíft íbúðarverð
Hver fimm manna fjölskylda
í landinu skuldar nú rúmlega
tvær og hálfa milljón erlendis.
Þetta er útkoman ef skuldum
—
íslendinga erlendis er deilt á
landsmenn. Þetta er næstum
helmingur af verði á lítilli íbúð.
Erlendu skuldirnar eru
520.680 krónur á hvert manns-
barn i landinu.
Skuldirnar námu í lok júní
114.550 milljónum alls, það er
um 114,5 milljörðum króna.
Ný lán hafa verið tekin er-
lendis fyrir nærri hálfa milljón
á hverja fimm manna fjöl-
-xjmK&sm
mk
Já, þau taka þessu dálítið mis-
jafrilega, þegar þeim er sagt
hvað þau eru skuldug.
skyldu á þessu ári, eins og Dag-
blaðið skýrði frá í gær.
Nýju lánin hafa alls verið
20,8 þúsund milljónir í ár. Frá
því á sama tíma í fyrra hafa
skuldirnar vaxið um nálægt 36
þúsund milljónum.
- HH
Vandi frystihúsanna:
Völlurinn og
hitaveitan
bjarga
íbyrjun
— atvinnuleysið aðeins
íVogunum
„Verulegur samdráttur í vinnu
frystihúsanna og annarra fisk-
vinnslustöðva mundi fyrst og
fremst bitna á kvenfólkinu,"
sagði Karl Steinar Guðnason for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavikur i viðtali við DB.
„Mér er kunnugt um að nokkr-
ar konur eru komnar á atvinnu-
leysisskrá hér i Keflavík, þó þær
séu ekki margar enn þá,“ sagði
Karl Steinar ennfremur.
Hann sagði að nokkur þensla
hefði verið á vinnumarkaðinum á
Suðurnesjum á undanförnum
mánuðum og töluverð eftirspurn
eftir starfsfólki, þó aðallega karl-
mönnum.
„Hefur þar aðallega verið um
að ræða störf hjá Islenzkum aðal-
verktökum á Keflavíkurflugvelli
og hjá Varnarliðinu. Nú og svo er
töluvert um að vera hérna vegna
lagningar hitaveitunnar," sagði
Karl Steinar.
Ef um alvarlega og langvarandi
stöðvun fiskvinnslustöðvanna
yrði að ræða mundi þó syrta mjög
í álinn.
,,Á okkar félagssvæði er
ástandið líklega einna verst í Vog-
unum. Þar er búið að loka öðru
frystihúsinu og nokkuð um at-
vinnuleysi vegna þess.“
Karl Steinar sagði að lokun '
frystihússins í Vogum væri sér-
staklega bagaleg vegna þess að
verkafólk ætti erfitt með að sækja
vinnu annars staðar á svæðinu
vegna f jarlægðar.
„Við vonum auðvitað að málin
snúist öll til betri vegar,“ sagði
Karl Steinar Guðnason. „En það
virðist alveg ljóst, að ef ríkis-
stjórnin gerir ekkert til úrbóta í
atvinnumálum hér á Suðurnesj-
um þá stefnir hér í atvinnulega
auðn.“
-ÓG
Flugvandræðin á
Lundúnaflugvöllum:
Fella þarfniöur
flugtil London
á sunnudaginn
Aðgerðir aðstoðarmanna flug-
umferðarstjóra á flugvöllunum
við London verða til þess að Flug-
leiðir neyðast til að draga úr
ferðum til borgarinnar. Er þetta
gert samkvæmt tilmælum flug-
vallarstjórnanna. Þannig verður
flug 214/215 til og frá London á
sunnudaginn fellt niður af þess-
um sökum. önnur flug verða flog-
in, en búast má við seinkunum og
erfiðleikum fyrir farþegana eins
og verið hefur síðustu dagana.
- JBP
Flestir bckkjarfélaganna lögðu kennslu fyrir sig, eftir að námi lauk. Héldust þeir misjafnlega við og eins og upptalningin hér að
neðan sýriir eru 14 þeirra 29 við kennslustörf í dag.
C-bekkurinn í Kennaraskólanum 1966-70:
Undanfarin ár hefur vaxandi
kennaraskortur orðið æ víðtæk-
ara vandamál um land allt.
Kennaraskortur hefur að vísu
lengi verið landlægur úti á
landsbyggðinni og hafa skóla-
yfirvöld orðið að gera mikið til
þess að fá kennara til þess að
setjast að úti á landi. En þótt
frítt húsnæði og jafnvel fæði
hafi verið í boði auk staðarupp-
bóta hefur þeim haldizt illa á
kennurum til langframa.
Nú er hins vegar svo komið,
að orðið hefur vart við kennara-
skort á höfuðborgarsvæðinu.
Er það i fyrsta sinn í mörg ár,
enda eru skólar í Reykjavik og
nágrenni almennt taldir betur
búnir tækjum og aðstaða til
kennslu yfirleitt talin betri en
víðast hvar annars staðar.
Á árunum 1966-72 voru eitt-
hvað á annað þúsund J<ennarar
útskrifaðir frá Kennaraskóla
lslands. Skólinn hafði þá ný-
verið verið „opnaður“ eins og
sagt var, takmörkunum á nem-
endafjölda var aflétt að ein-
hverju Ieyti og möguleiki á þvi
aðtaka stúdentspróf frá skólan-
um varð að veruleika.
Nú er sagt að um 300 kenn-
ara vanti til þess að allar lausar
kennarastöður verði fullskip-
aðar. Segja skólayfirvöld að
fyrirsjáanlegt sé að ekki takist
að ráða tilskilinn fjölda kenn-
ara fyrir haustið.
Og hvað veldur? Flestir sem
hætt hafa kennslu segja auð-
vitað: launin. Byrjunarlaun
kennara með kennarapróf eða
stúdentspróf er í dag 109.988
krónur, fyrir 33 stunda kennslu
í yngri deildum en 30 í hinum
eldri. Síðan fer þetta stighækk-
andi og flestir kenna eitthvað í
yfirvinnu. Samt verða þetta
ekki talin há laun og starfið er
lýjandi.
C-bekkurinn 1966-70
Mánaðarlaun þeirra kennara,
sem útskrifuðust árið 1970, eru
að meðaltali um 125 þúsund
krónur, án nokkurrar eftir-
vinnu. Því er talað hér um
kennara frá 1970 að hér birtist
mynd af C-bekknum í Kennara-
skólanum 1966-70. Myndin er
tekin skólaárið ’66-’67 og með
því er hægt að skýra hár-
greiðsltt og klæðaburð þessa
föngulega hóps. En sú spurning
vaknar, hversu margir þessara
nemenda stunda kennslu í dag?
Blaðamaður DB fór á
stúfana, kannaði málið og
vonar, að fyrrum bekkjar-
félagar hans fyrirgefi honum
þessa myndbirtingu. Og hér
kemur upptalningin:
. Efsta röð f.v.: Eyvindur
Bjarnason vinnur við tré-
smiðar, Guðmundur B. Krist-
mundsson æfingakennari og
kennir við Kennaraháskólann.
Guðjón Skúlason viðskipta-
fræðingur, Öniar Garðarsson
hvarf frá námi og er lögreglu-
þjónn í Vestmannaevjum. Páll
Björnsson nemur liigfræði.
Magnús Júliusson kennari i
Hafnarfirói, Helgi Pétursson
blaðamaður hjá Dagblaðinu.
Snorri Jóhannesson hvarf frá
námi og er bóndi og Gunnar Kl.
Gunnarsson stundar nám i
félagsráðgjöf.
Miðriið f.v.: Arni Magnússon
sölumaður, Jou Þórarinsson
kennari í Reykjavík, Kolbrún
Þórðardóttir kennari, Helga
Reinhards hvarf frá námi og er
húsmóðir, Agnes Björnsdóttir
húsmóðir, Guðrún Þ. C.uð-
mannsdóttir húsmóðir. Björg-
vin Bjarnason starfar við Spari-
sjóðinn á Bolungarvík, Albert
Steingrímsson kennari í
Hafnarfirði og Daði Ingi-
nuindarson skólastjóri á Pat-
reksfirði.
Neðsta röð f.v.: Sigríður
Ölafsdóttir kennari á Sel-
tjarnarnesi, Rannveig Lund
kennari i Revkjavik. Sigrún
Ásta Sigurðardóttir kennari i
Reykjavík, Valgerður Eiriks-
dóttir kennari í Reykjavík.
Asgerður Olafsdóttir kennari i
Ves t tn an n aev j u m. G u ð r ú n
Kristjánsdóttir húsmóðir i Sví-
þjóð. Svanborg Siggeirsdóttir
kennari i Stykkishólmi.
Stefania Júliusdóttir húsmóðir
i Þýzkalandi og Kristrún
Stephensett kennari í Hafnar-
firði.
A myndina vantar Sigurlin
Sveinbjarnardóttur sent
stundar háskólanám. - IIP
Hversu mörg hlýða
sínu kalli og kenna?