Dagblaðið - 09.09.1977, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 09.09.1977, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1977. SLÖKKTU Á TÆKINU ÞOR-FINNUR Opiðtil kl.7 íkvöld 9-12 la Lára Guðbrandsdóttir hringdi: Mig langar til að svara Þor- finni unga ef hann er ekki búinn að átta sig á hvers konar grein hann á í DB 5. sept. Þar hefur hann Jón Múla til skýjanna, en bannfærir Pétur Pétursson. Já, aumingja litli Þorfinnur hefur hann ekki annað að gera en að hlusta á morgunútvarpið og vega og meta þulina. Þar að auki búinn að fá meirihluta þjóðarinnar til liðsinnis við sig að hans sögn. Þetta hefur alveg farið fram hjá mér og mínum Þakkir til Péturs H.H. hringdi: Mig langar að koma á fram- færi þakklæti til Péturs Péturs- sonar útvarpsþular fyrir góð lög á morgnana. Þessir ungling- ar vilja ekkert annað en popp en ég og fleiri kunnum vel að meta gömlu lögin. Pétur hefur lag á að blanda þessu tvennu saman á mjög góðan og skemmtilegan hátt. og held ég þó að ennþá tilheyri ég þjóðinni. Og engan hef ég talað við sem séð hefur þetta bænaskjal. En þetta örvænting- aróp er svo ámáttlegt að það runnu á mig tvær grímur. Það fólk sem ég talaði við hló að barnagauli þínu. Hefur þér aldrei dottið í hug að slökkva á tækinu þínu þegar þú heyrir að það er Pétur Pétursson sem í það skiptið er þulur? Reyndu það nú Þorfinnur litli og skeyttu þínu morgunsúra skapi ekki á útvarpsþulnum Pétri Péturssyni þvl hann er líklega bezti útvarpsmaður og þulur sem við eigum. Jón Múli er einnig ágætur, en heyrt hef ég hann spila rúss- nesk þjóðlög, jass og kórlög strax á morgnana. En hvað kallar þú meirihluta þjóðarinnar. Ert það þú og vinir þínir í svipuðum dúr eða ert það bara þú? Því skrifar þú ekki undir fullu nafni? Það vantar föður- nafn. Ég sé að þú vilt bara bera nafnið Þor-finnur. Finnur hefði dugað. Eg segi, Þor- finnur, að þú standir ekki undir nafni en mér finnst á öllu að þetta nafn muni vera gervinafn. MEIRA AF JOLALOGUMI MORGUNÚTVARPIÐ, PÉTUR Pétur er líka góður Markús Þorgeirsson skipstjóri i Hafnarfirði hringdi: Þorfinnur ungi skrifar i DB 5.9. Hvar er Jón Múli? Ég er ekki sammála ummælum sem hann hefur um okkar vinsæla útvarpsmann, Pétur Pétursson. Ég get ekki, sem hlustandi út- varps, gert upp á milli þessara tveggja manna sem ræsa þjóðina á hverjum morgni. Þeir eru báðir ómissandi. Enn fremur vil ég færa Páli Heiðari sérstakar þakkir fyrir þætti hans um menn og málefni, ekki sízt úr sjómanna- stétt. Jónasi Jónassyni þakka ég einnig og get ekki sem hlust- andi gert upp á milli þeirra. Um Svavar Gests vil ég aðeins segja að hann er ómissandi húmoristi. OUT skrifar: Alveg er ég steinbit á þessum Þorfinni unga, sem skammast út í Pétur Pétursson, þann yndislega útvarpsþul, I Dag- blaðinu á mánudag. Og það er bara alls ekki satt að hann spili eintóma rússneska bassasöngv- ara, karlakóra eða leiðindasarg. Til dæmis spilaði hann nokkur jólalög núna um daginn, sennilega rétt fyrir mánaða- mótin ágúst/september og ég er viss um að maður vaknar ekki betur við neina tónlist á þeim árstíma. Mér er líka minnisstætt um daginn, þegar Pétur lék heila siðu af nýju sólóplötunni hans Gunnars Þórðarsonar. Reyndar voru öll lögin eftir Ólaf Þórðar-' son, sem söng þau jafnframt, en ég er viss um að hann hefur verið undir áhrifum frá Gunnari þegar hann samdi þau. Það skiptir ekki heldur máli þó að Gunnar hafi hvergi komið nálægt gerð þessarar sólóplötu sinnar, söm er gerðin. Að lokum, um leið og ég óska Pétri Péturssyni gleðilegra jóla, skora ég á hann að fara nú að bursta rykið af einhverri páskamúsik. Og endilega leiktu nú Uti I bæ á öskudag og ein- hver jólalög sem fyrst, Pétur minn, það eru ekki nema fjórir mánuðir þangað til jólin koma. Pétur og Presley Guðmundur Gottskálksson á Selfossi skrifar: Mig rak í rogastanz, ef svo má að orði komast, þegar einhver ungur höfðingi sem nefndi sig Þorfinn unga skrifaði í Dag- blaðið og ákallaði Jón Múla og sagði að þjóðin heimtaði hann en fordæmdi Pétur Pétursson þul. Þar finnst mér að sá hái herra hafi heldur betur skitið I buxurnar. Þó að Jón sé góður á sína vfsu þá er ekki þar með sagt að þjóðin heimti hann. Hins vegar veit ég að Pétur Pétursson er mjög vinsæll í morgunútvarpinu og það á við um alla aldursflokka þjóðarinnar og ekki sfzt þá sem eru á mínum aldri og eldri. Þarf ekki að gera eitthvað fyrir þálíka? Ég held að ef Pétur Péturs- son hrykki allt i einu upp af yrði svipað með hann og Presley, hann yrði guð f augum þjóðarinnar. Svo yrði sennllega með þá báða þulina og ég held að útvarpið sé mjög vel sett að hafa þessa menn i morgunút- varpi. Pétur Pétursson útvarpsþulur. Raddir lesenda Umsjón Dóra Stefánsd. Landsmálasamtökin STERK STJORN Laugavegi 84 - Sími 13051 Opiðkl. 5-7 alladaga

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.