Dagblaðið - 18.10.1977, Síða 9

Dagblaðið - 18.10.1977, Síða 9
DACiBLAÐIÐ. ÞKIÐJUDAC.UK 18. OKT0BER 1977. 9 Útlendingarnir sem strönduðu hér vegna verkfalls: Sendu BSRB þakkarskeyti I fyrradag barst Verkfalls- nefnd BSRB skeyti fra forvígis- mönnum útlendinganna, sem hér urðu strandaglópar vegna verkfallsins en fengu að fara úr landi í fyrradag. „Fyrir hönd þeirra útlend- inga, sem dvöldu lengur hér á Islandi en þeir vildu, viljum við færa Verkfallsnefnd BSRB þakkir fyrir þatt hennar í því að við fengum að fara úr landi. Við förum héðan með það a tilfinningunni, að íslendingar, þratt fyrir sín eigin vandamál, hafi hlýtt með skilningi a okkar vandamál og reynt að leysa úr þeim, þa er við fengum tæki- færi a því að ræða þau. Við förum heim með þá full- vissu í huganum, að samvinna og samstaða er möguleg, þratt fyrir landamæri tungumála og þjóða. Við munum koma aftur!“ Undir þetta rita þeir Tore Midtvedt, sem var formaður nefndar útlendinganna, og Bernt Persson, sem var ritari. - HP. BSRBogferm ingarbörnin: Hljóðfærin íkirkjunni mátti ekki færa úr stað Fáum við leyfi til að flytja til hljóðfæri Sinfóníuhljómsveitar- innar i kirkjunni þannig að ferm- ingarguðsþjónusta geti farið fram? Eitthvað þessu líkt spurðu forráðamenn Bústaðakirkju verk- fallsnefnd BSRB. SVAR: Nei! Sinfóníuhljómsveit Islands hélt tónleika í kirkjunni á föstudags- kvöldið; fékk leyfi til að flytja hljóðfærin frá Háskólabíói í Bú- staðakirkju. En þaðan fékkst ekki að flytja þau aftur, ekki einu sinni hreyfa þau til. Til að undirstrika þetta voru settir tveir verkfallverðir við kirkjudyrnar, og sátu þeir þar í bifreið aðfaranótt laugardagsins, þegar síðast fréttist til. Fermingarathöfnin fór fram á sunnudaginn. Þar voru fermd börn úr Breiðholtshverfum. Hinn viðamikli útbúnaður hljómsveit- arinnar var þó ekki aberandi liður, né til trafala, hljóðfærin voru flutt af starfsmönnum kirkj- unnar an þess að ríkisstarfsmenn væru neitt hafðir með í ráðum. - JBP- Þarna sést hluti hljóðfæranna í Bústaðakirkju, — BSRB bannaði að þau yrðu flutt úr stað. DB-mynd Sv. Þorm. Villtist á fyrsta degi rjúpnatímans Rjúpnaveiðin hotst með pompi og pragt laugardaginn 15. október. Munu margir hafa farið til fjalla og með mis- jöfnum arangri. En þegar a fyrsta degi villtist ein rjúpna- skytta á Holtavörðuheiði. Höfðu tveir menn farið saman frá bíl norðarlega a heiðinni og gengið vestanvert í 'lröíia- kirkju. Annar kom ekki til bíls þá er dimma tók eins og ráðgert var. Er bið varð a komu hans var SVFÍ-deildum gert viðvart. Fóru Hvammstangamenn a bu- um upp á heiði og beittu ljósum bifreiðanna til þess hugsanlega að visa villtum a rétta leið. Klukkan 10 um kvöldið var farið að^jndirbúa leit er hefjast átti á miðnætti. En áður en það varð kom skyttan til byggða. Hafði maðurinn séð ljós í möstrum í Snjófjöllum sem eru allmiklu suðvestar og áttaði sig. Varð honum ekki meint af göngunni enda veður gott. - ASt. Kátt á hjalla h já borgarstarf smönn um / Það var kátt á hjalla þegar lokið var 'alningu í atkvæða- greiðslunni um nýjan kjarasamn- ing Reykjavíkurborgar og Starfs- mannafélags borgarinnar á sunnudagskvöldið. Mikil smölun fór fram — eink- um af hálfu stjórnar félagsins — enda voru úrslitin í samræmi við það: 67% atkvæða voru „já“. Mjög fljótlega eftir að talning hófst lágu úrslitin fyrir — þótt raunar hefði legið í loftinu að 81 % kjörsókn þýddi yfirgnæfandi meirihluta atkvæða með sam- komulaginu. Þegar talningu var lokið börðu menn hver annan í bakið og óskuðu til hamingju með „sigur- inn“. Á neðri myndinni er verið að telja saman síðustu atkvæðin í Miðbæjarbarnaskólanum en á hinni óska þeir Hinrik Bjarnason, framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur, og Þórhallur Hall- dórsson, formaður Starfsmanna- félags borgarinnar, hvor öðrum til hamingju. -OV/DB-myndir BJ.Bj. Þrír strákar í síðdegissól „Það er flott að fá frí í skólan- um. Maður hefur gott af því að slappa svolítið af. Það má alveg standa fram að helginni verkfall- ið,“ sögðu þrír hressir strákar sem voru að hvíla sig a Austur- velli þegar sólin var komin a vesturmmimnn og sKuggarmr orðnir langir í miðbænum. Strákarnir höfðu dregið reið- hjólin fram og sögðu það hina mestu heilsubót að fá sér hjól- reiðasprett. Það er líka gott að hafa eitthvert handhægt og spar- neytið farartæki þegar almenn- ingsvagnar eru ekki lengur með 1 bæjarlífinu. Strákarnir heita, talið frá vinstri: Gunnar, er 1 Iðn- skólanum, Dagur, er í Fjölbrauta- skólanum 1 Breiðholti, og Lárus 1 Laugalækjarskóla. A.Bj./DB-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.