Dagblaðið - 18.10.1977, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1977.
Andlát
Símon Guðmundsson, sem lézt 8.
október sl., var fæddur 11. nóvem-
ber 1887 að Klöpp í Miðnesi. For-
eldrar hans voru Margrét
Símonardóttir frá Borgareyrum
undir Eyjafjöllum og Guðmundur
Sfmonarson fra Berghyl í Ytri-
Hrepp. Simon fór ungur að
stunda sjóinn og varð formaður a
sexæringi. Eftir að hann fluttist
búferlum til Reykjavíkur arið
1929 gerðist hann togarasjómaður
og síðar landverkamaður. Vann
hann í mörg ar við bygginga-
vinnu, m.a. hja verktakafélaginu
Stoð. Símon var þrfkvæntur.
Fyrstu konu sína Halldóru
Eyjólfsdóttur fra Gufuskaium
missti hann arið 1918 fra sex
börnum þeirra. önnur kona hans
var Margrét Gústafsdóttir fra
Stokkseyri. Slitu þau samvistum.
Eftirlifandi kona Sfmonar er
Þóranna Rósa Sigurðardóttir.
Símon verður til moldar borinn i
dag fra Dómkirkjunni.
Arný Sigurðardóttir, Suðurgarði
Vestmannaeyjum, lézt í Vest-
mannaeyjum 15. október sl.
Kristinn M. Gunnarsson vélstjóri,
Álfheimum 54, lézt 15. október sl.
Einar Einarsson, Baldursgötu 4,
Keflavfk, lézt f Borgarspftalanum
15. október sl.
Asta Sigrún Vigfúsdóttir, fra
Olafsvfk, Vesturgötu 66 Reykja-
vfk, lézt 16. október sl. í Grensás-
deild Borgarspltalans.
William F. Clemens jr. lézt !
sjúkrahúsi í Hartford f Banda-
ríkjunum 9. október sl.
Guðlaugur Sveinsson frð Þverá f
Norðurardal lézt f héraðshælinu a
Blönduósi 13. október sl. Utför
hans fer fram frð Höskuldsstaða-
kirkju 22. október kl. 2 e.h.
Jóhannes Þórðarson vélstjóri,
Bravallagötu 18, verður
jarðsunginn fra Dómkirkjunni
miðvikudaginn 19. október kl.
13.30.
Hildur Jónsdóttlr, Asvegi 10,
veröur jarðsungin frð Fossvogs
kirkju miðvikudaginn 19. október
kl. 13.30.
Jóna Marta Guðmundsdóttlr,
Vfðimel 49, lézt f Borgarspítalan-
illlllllllllllllllllll
Framhaldaf bls. 19
ökukennsla—Æfingatimar.
Lærið að aka f skammdeginu við
misjafnar aðstæður, það tryggir
aksturshæfni um ókomin ðr. öku-
skóli og öll prófgögn ásamt lit-
mynd í ökuskírteinið ef þess er
óskaö. Kenni á Mazda 818. Helgi
K. Sesselíusson. Sfmi 81349.
Ökukennsla — æfingatímar.
ökukennslu ef vil fa
undireins ég hringi þá
í 19-8-9 þrja,
næ ökukennslu Þ.S.H.
ökukennsia—Æfingatímar.
Kenni a japanska bflinn Subaru
ðrg. '77. ökuskóli og öll prófgögn
ef þess er óskað. Jóhanna Guð-
mundsdóttir, sfmi 30704 kl. 12-1
og 19-20.
um 10. október sl. Utför hennar
hefur farið fram f kyrrþey að ósk
hinnar íatnu.
Jófríður Ásmundsdóttir,
Gunnlaugsstöðum, lézt að heimili
sfnu 16. október sl.
Vigdís Guðmundsdóttir lézt f
sjúkrahúsi Hólmavíkur 14.
október.
Kirkjustarf
Fermingarbörn
árið 1978
Síðastliðinn sunnudag voru síð-
ustu fermingar þessa ars f sumum
söfnuðum borgarinnar. Og nú er
þegar farið að huga að fermingar-
undirbúningi fyrir næsta ar.
Prestar prófastsdæmisins aug-
lýsa hér með þa tfma, sem þeir
óska eftir að fa væntanleg ferm-
ingarbörn til viðtals f fyrsta skipt-
ið. En börn, sem fædd eru árið
1964, eiga rétt a fermingu a
næsta ari, það er arið sem þau
verða 14 ára gömul.
Fermingarundirbúningi prest-
anna á að vera hagað f megin-
drattum á sama hatt. Spurningar-
tímar eru vikulega fyrir hvert
barn, og eru börnunum skipað f
hópa, sem eru aldrei fjölmennari
en venjulegar bekkjardeildir í
skóla. Þar fyrir utan er eðlilegt að
ætlast til þess, að fermingarbörn-
in sæki reglulega guðsþjónustur
safnðanna. Við skfrnina eru for-
raðamenn barna hvött til þess að
veita þeim uppeldi f samræmi við
eðli skfrnarinnar, þ.e. kristilegt
uppeldi, en að auki er söfnuður-
inp.allur lýstur samabyrgur. Ekki
sfzt þess vegna er þess óskað, að
forraðamenn fermingarbarnanna
fylgi þeim í kirkju og taki þatt f
umræðufundum með prestunum
eða ræði við þa a annan hatt um
ferminguna sem eðlilegt fram-
hald skírnarinnar.
Ég leyfi mér þvf hér með að
vekja athygli fermingarbarnanna
og forráðamanna þeirra á með-
fylgjandi tilkynningum prest-
anna, og sé einhver f vafa um það,
hvaða söfnuði hann tilheyrir, er
hægt að fá um það upplýsingar a
Hagstofunni eða hjá undirrituð-
um.
Ölafur Skúlason
dómprófastur.
Fermingarbörn
Búataðakirkja: Væntanleg fermingarbörn eru
beðin um að mæta I kirkjuna föstudaginn 21.
okt. kl. 6 e.h. og hafa með sér ritföng. Séra
ólafur Skúlason.
Faila-og Hólasókn: Væntanleg fermingarbörn
komi til innritunar f safnaðarheimilið að
Keilufelli 1 föstudaginn 21. okt. kl. 4-7 e.h.
Séra Hreinn Hjartarson.
Digranesprestakall: Þau börn f Digranes-
prestakalli, sem eiga að fermast næst ar, eru
beðin að koma til innritunar í safnaðarheim-
ilinu Bjarnhólastíg 26 f dag, þriðjudag og a
morgun, miðvikudag kl. 1-3 é.h. Þorbergur
Kristjansson sóknarprestur.
Laugameskirkjs: Væntanleg fermingarbörn
eru beðin að koma til Laugarneskirkju f
kjallarasal nk. miðvikudag 19. okt. kl. 5 e.h.
Takið ritföng með. Jón Dalbú Hróbjartsson
sóknarprestur.
Langholtsprestakall: Fermingarbörn Lang-
holtskirkju vor og haust 1978 eru beðin að
mæta f safnaðarheimilinu sem hér segir:
miðvikudag 19. okt. kl. 6 innritar séra
Sigurður Haukur Guðjónsson, fimmtudag 20.
okt. kl. 6 innritar séra Arelius Níelsson
Vinsamlegast. hafið með ykkur ritföng.
Prestarnir.
Kirkja ÓhSöa safnaöaríns: Séra Emil Björns-
son biður börn sem ætla að fermast hja
honum næsta vor, að koma til viðtals og
skraningar f kirkjuna nk. laugardag kl. 1 e.h.
Héteigskirkja: Fermingarbörn arsins 1978 eru
beðin að mæta f kirkjuna föstudaginn 21. okt.
kl. 5 e.h. Takið með ykkur ritföng. Prestarn-
ir.
Ásprestakaii: Fermingarbörn arsins 1978
komi til skraningar að Hjallavegi 35 kl. 5-7
e.h. f þessari viku. Grfmur 'Grímsson sóknar-
prestur.
Arbasjarprestakall: Væntanleg fermingarbörn
Guðmundar Þorsteinssonar a arinu 1978 eru
beðin aó koma til skraningar og viðtals f
Arbæjarskóla m.ðvikudaginn 19. okt. Stúlkur
komi kl. 6 og drengir kl. 6.40 og hafi börnin
með sér ritföng.
Neskirkja
Væntanleg termingarbörn næsta ar, 1978,
vor og haust, sem fermast eiga f Neskirkju,
eru beðin að koma til innritunar f kirkjuna
nk. fimmtudag 20. október kl. 6 sfðd. og hafa
með sér ritföng. Börn af Seltjarnarnesi verða
boðuð sfðar er skólinn tekur aftur til starfa.
' — Prestarnir.
Minningarsplölci
Minningarkort Áskirkju
í Ásorestakalli
/^st hja eftirtöldum: HoltsapótekiJ
Guðrúnu S. Jónsdóttur, sími 32195, Astu
Maack, sfmi 34703, Þurfði Agústsdóttur, slmi’
81742, Bókabúðinni víð Kleppsveg 150, Guð-
mundi Petersen, sfmi 32543, Stefanfu, sfmi
33256 og Hólmfrfði, sfmi 32595.
Iþróttlr
íþróttir í dag
íslandsmótið í handknattleik 1.
deild karla
Laugardalshöll.
Armann-FH kl. 21.00
íslandsmótið í handknattieik 1.
deild kvenna.
FrapvHaukar kl. 20.
Höggmyndasafn
Ásmundar Sveinssonar
Við Sigtún er opið þriðjudaga*. fímmtudaga og
^augardaga frá kl. 2-4/
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga,'
þriðjudaga og -fimmtudaga fra kl. 1-4. Að-
gangur ókeypis.
Stjórnmélafundir
Alþýðubandalagið
Borgarnesi:
MuniÆspilakvöld Alþýðubandalagsins í Borg-
amesi f samkomuhúsinu, þriðjudaginn 18.
okt. kl. 21. Stjórnandi Garðar Steinþórsson.
Alþýðubandalagið
Reykjavík.
Funaur starfsnefndar um atvinnumai verður,
haldinn I kvöld þriðjudag að Grettisgötu 3 kl.
20.30.
Fundurinn er opinn öllum, sem hafa ahuga a
stefnumótun í atvinnumaium Reykjavfkur.
Aðalfundur
Félag Sjaifstæðismanna f Langholti heldur
aðalfund sinn manudaginn 24. október kl.
20.30 að Langholtsvegi 124.
Dagskrð:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins verður Jónas Haralz,
bankastjóri, sem fjallar um nokkur viðhorf í
alþjóðaefnahagsmaium.
Aðalfundir
Kvenfélag
Bœjarleiða
heldur aðalfund sinn að Sfðumúla ll f kvöld
kl. 20.30.
Félag einstœðra
foreldra
Aðalfundur félgsins verður að Hallveigar-
stöðum við Túngötu miðvikudaginn 19. okt.
kl. 21. Venjuleg aðalfundarstörf, skemmti-
atriði og kaffiveitingar að þeim loknum. Fé-
lagar eru beðnir að mæta vel og stundvfslega.
Fundir
Skýrslutœknifélag íslands
Fyrsti félagsfundur vetrarins verður haldinn
f Norræna húsinu þriðjudaginn 18. okt kl.
14.30.
A fundinum verður fjallað um tölvuunnin
gagnasöfnunarkerfi. Erindi flytja dr. Oddur
Benediktsson og Gunnar Ingimundarson,
verkfræðingur.
Starfsmenn ríkisstofnana
Starfsmannafélag ríkisstofnana auglýsir dag-
lega félagsfundi kl. 14—16 að Hótel Esju,
meðan á verkfalli rfkisstarfsmanna stendur.
Allir félagsmenn SFR eru hvattir til að mæta
á fundunum, til að fræðast og fræða aðra um
framkvæmd verkfallsins — og gang samn-
ingaviðræðna.
Tilkynningar
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
heldur vetrarfagnað f Domus Medica laugar-
daginn 22. okt. kl. 20.30.
Eru í óskilum
Svört læða, hvft a haisi og tam, með hvíta
rönd sem myndar haifhring a trýni, hefur
haift haisband. Staipaður högni stórbröndótt-
ur eða mynztraður, hvftur a trýni, kviði og
fótum, með biatt haisband. Kattavinafélagið
sfmi 14594.
LANDSMALAFELAGIÐ VÖRÐUR EFNIR TIL FUNDAR UM:
Staða einkaframtaksins i atvinnulifinu - Hlutverk Sjálfstæðisflokksins
Landamálafélagiö Vöröur. samband félaga sjálfsfæöismanna i hverfum Reykjavikur efnir til fundar um stööu
einkaframtaksins i atvinnulifmu — hlutverk Sjálfslæöisflokksins. þriöjudaginn 18 október
kl 20.30 i Valhöll. Háaleitisbraut 1.
MÁLSHEFJENDUR: Eyjólfur Konráö Jónsson, alþingismaöur
Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
# A fundmum veröur kosin 3ja manna kjörnefnd
til uppstHI»n(j;ir i n.cslti sfjórn V.irönr
# runfftirmn <?r ollnm opinn
# KatlivoifnKjar a boösfóhim
ÞRIÐJUDAGUR 18. 0KTÓBER - KL. 20.30 VALHÖLL, HÁALEITISBRAUT 1.
------- .... .. . --- Stjóm Varðar__
Þann 31. júli voru gefin saman
af séra Vigfúsi Ingvarssyni í
Egilsstaðakirkju Ragnhildur
Jónasdóttir og Flosi Magnús-
son. Heimili þeirra er að
Hamraborg 8, Kópavogi. Ljós-
myndastofa Gunnars Ingimars,
Suðurveri.
Þann 16. júlf voru gefin saman I
hjónaband af séra Jóni Þorsteins-
syni i Búðakirkju Snæfellsnesj
ungfrú Emilía Karlsdðttir og
ölafur Hjftlmarsson. HeimíH
þeirra er að Hverfisgötu 51, Hafm
arfirði. Ljðsmyndastofa Gunnar^
Ingimars, Suðurveri.
Opnuð hefur verið að Hrlsateigi
47 I Reykjavík ný verzlun, EPAL,
sem verzlar með gluggatjaldaefni
og áklæði, kókos- og sfsalteppi
iauk ýmissa gerða húsgagna. Sér-
stök áherzla er lögð á náttúrleg
efni í verzluninni. Verzlunin er
opin frá kl. 14 til 18 mánudaga til
föstudaga og laugardaga frft,
10—12. Myndin sýnir Eyjólf Pftls-
son framkvæmdastjðra sýna við-
skiptavinum vöruna.
GENGISSKRANING
NR. 197 — 17. október 1977.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 208,70 209,20
1 Sterlingspund 370,00 370,90'
1 Kanadadollar 188,90 189.40-
100 Danskar krónur 3431,00 3439.20*
10O Norskar krónur 3820,20 3829,40*
100 Swnskar krónur 4374.80 4385,30*
100 Finnsk mörk 5048,40 5060,50
100 Franskir frankar 4321.80 4331,10*
100 Belg.frankar 591.90 593,30’
100 Svissn. frankar 9225,70 9247,80*
100 Gyllini 8611,50 8632,10'
100 V.-Þýxk mörk 9232,70 9254,80’
100 Lírur 23,70 23.76*
100 Austurr. Sch. 1292.30 1295.40-
100 Escudos 515.40 516,60
100 Pesetar 251,30 251.90’
100 Yen 82,75 82.95*
* Breyting frá siðustu skráningu.
Norroena húsið
Daninn Tom Krestesen heldur sýningu á
verkum sínum 1 Norræna húsinu dagana
15.-30. okt. Hann hefur haldið sýningar vlða a
Norðurlöndum, I Ðerlln, London og New
York.
Sólon íslandus
Magnús Kjartansson sýnir nú 40 teikn-
ingar og smámyndir I Galleri Sólon tslandus.
Myndirnar eru allar gerðar á þessu ari og eru
allar til sölu og kosta fra 20—110 þús. króna.
Þetta er önnur einkasýning Magnúsar. en
hann hefur tekið þatt I mörgum samsýning-
um. bæði heima og erlendis.