Dagblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. NÖVEMBER 1977.
Munið
Ijósa-
stillingu
1977
Bilatún hf.
Sigtúni3
Simi27760
Reykjavík
Þessi litla eðla er nýr þegn í dýragarðinum í Kaupmannahöfn enda nýlega fædd. Erfitt hefur reynst að
fá sum dýr til að geta af sér unga, þegar í dýragarða eru komin cn dýragarðurinn í Kaupmannahöfn
hefur vakið athygli fyrir að þar fæðast oftar ungar en annars staðar. A síðasta ári fæddust þar meðal
annars litiir fílar, gíraffar og nashyrningar.
Blaðburðarböm óskast
strax við
HRINGBRAUT—
MEISTARAVELLI
BIADIB
Bílapartasalan
Höfum úrval notaðra varahluta í ýmsar
tegundir bifreiða, til dœmis:
Rambler Classic V-8 Vauxhall Viva
Dodge Dart Skoda 1000
Fiat 125 Ford Fairlane.
Fiat 128 Land Rover
Hillman Hunter o.fl. o.fl.
Einnig höfum við úrval af kerruefni, til dœmis
undir vélsleða.
Sendum um land allt.
Bílapartasalan ““m
GULL-
HÖLLIN
Verzlanahöllin
Laugavegi 26
101 Reykjavík
Sími 17742
Fljöt, göð og örugg þjönusta
Eymalokkar
Hringir
Armbönd
Hálsmen
Skírnargjafír
Víravirki, handunnið
Alltímikluúrvali
Gull- og silfurviðgerðir.
Þræðum perlufestar. Gyllum — Hreinsum
Gefíðgóðargjafír, verzlið hjágullsmið
Eru íslendingar eigin-
hagsmunamenn?
Nú á dögum hittir maður varla
þann mann af yngri kynslóðinni
sem ekki er kveinandi og kvart-
andi yfir óskaplega lélegum
kjörum og að hann geti ekki veítt
sér þetta eða hitt sem hann þyrfti
nauðsynlega að eiga.
Nú er það staðreynd að hvergi í
heiminum búa menn við betri
lífskjör en á íslandi. Það þýðir
ekkert að vera að benda á það að
til dæmis i Danmörku hafi menn
hærri laun, reiknuð I íslenzkum
krónum, því að það segir ekki
nema hálfan sannleikann en
auk þess er I Danmörku þvi sem
næst tiundi hver maður atvinnu-
laus.
Almenningur á Islandi virðist
skiptast i marga mismunandi
stóra „þrýstihópa" sem allir hafa
það mark og mið að komast eins
langt og mögulegt er og hvað sem
það kostar.
í raun og veru eru það þessir
þrýstihópar sem stjórna landinu
og efnahagsmálum þess en ekki
löglega kosin ríkisstjórn. Það
virðist ekki skipta neinu máli
hvort rikisstjórn er skipuð mönn-
um lengst til vinstri eða lengst til
hægri. Sannleikurinn er nefni-
lega sá að engin ríkisstjórn getur
stjórnað þessu landi nema hugs-
unarháttur hvers og eins breytist
frá þvi sem nú er.
Sfðastliðið vor voru uppi
háværar raddir um að efna þyrfti
til kosninga til þess að koma að
dugmeiri stjórn en þessi er sem
nú situr að völdum. Þá átti allt
sem aflaga fór að stafa af stjórn-
leysi viðkomandi ráðamanna. Það
getur svo sem vel vérið að rikis-
stjórnin hafi átt einhverja sök á
þvi sem aflaga fór. Ég er ekki fær
um að dæma um það. Nú hefur
sýnt sig að kjörfylgi flokka breyt-
ist ákaflega litið í kosningum þótt
menn tali digurbarkalega i hvert
skipti sem kosningar fara í hönd.
Opinberir starfsmenn
orðnir þrýstihópur
Nú er ástandið hér á landi
þannig að hvergi í siðuðu þjóð-
félagi er önnur eins verðbólga og
i dag skulda Islendingar í erlend-
um gjaldeyri hvorki meira né
minna en 128 milljarða fslenzkra
króna. Náttúrlega á ég eða þú
enga sök á þessu. Það gera allt
aðrir menn, sennilega mjög
vondir menn. Eg vil aðeins hafa
mannsæmandi kjör, þótt raunar
enginn viti hvað við er átt þegar
talað er um mannsæmandi kjör.
Þannig er hljóðið i mönnum.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér þeg-
ar stóð yfir lokahrinan í samning-
um opinberra starfsmanna við
rikisvaldið. Sjálfur hef ég verið
opinber starfsmaður í fjörutíu ár
en er nú hættur störfum vegna
aldurs. Fyrir nokkrum árum
tiefði ég aldrei trúað þvi að opin-
berir starfsmenn ættu eftir að
vera einn þrýstihópurinn en svo
virðist nú vera.
Að vísu er það staðreynd að
opinberir starfsmenn hafa búið
við lakari kjör en ýmsir aðrir í
sambærilegu starfi. Þrátt fyrir
þetta tel ég það mikla skammsýni
af forráðamönnum ríkisstarfs-
manna að fallast ekki á sfðara
tilboðið ríkisstjórnarinnar, það
sem boðið var um það leyti er
verkfall var yfirvofandi. Eg vil þó
ekki ktnna forystumönnum opin-
berra starfsmanna um hvernig
fór. Þeir eru aðeins oddamenn I
ákveðnum hópi. Annars kostaði
þetta verkfall alla aðila ógrynni
fjár. Um þetta þýðir raunveru-
lega ekkert að tala. Þetta er svona
og því verður ekki breytt.
Kjallarinn
Magniís Sveinsson
Margir hugsa eins og faríseinn:
„Guð, ég þakka þér fyrir að ég er
ekki eins og aðrir menn.“ Bæði ég
og þú hugsa þannig. Erum við
ekki öll því marki brennd að
hugsa eingöngu um eigin hag en
líta aldrei á veginn framundan?
„Arðrœningjarnir“
Ýmsir þeir sem ég hef talað við
virðast hafa áhuga á einhverju
nýju stjórnarformi. Hvaða stjórn-
arform er það? Er það einræði til
hægri eða vinstri? Vilja menn
sams konar einræði og I Austur-
Evrópu eða vilja menn svipað
einræði og i Suður-Ameríku?
Önnur hvor stefnan hefur ávallt
orðið ofan á þar sem öfgahópar
verða alls ráðandi. Þetta er
íhugunarefni fyrir íslendinga.
Það er staðreynd að % hlutar
alls mannkyns eru vannærðir.
Sjálfsagt finnst ykkur það ekki
koma íslendingum neitt við. Við
eigum kröfu á því að eiga jafndýr
húsgögn . og jafnmarga bíla og
fjölskyldan í næsta húsi. Allir
sem ekki sjá mér fyrir þessum
gæðum eru arðræningjar og
óþokkar. Atvinnuvegirnir mega
ekki eignast neina varasjóði til
þess að halda atvinnurekstrinum
gangandi. Svona er hugsunar-
hátturinn í dag. Alltaf eru gerðar
meiri og meiri kröfur til þess
opinbera enda þótt allir viti að
ríkissjóður er eign þjóðar og til
þess að safna peningum í þennan
sjóð verður að fara í vasa al-
mennings.
Mörg hin sfðari ár hafa átt sér
stað stöðugt hjaðningavíg vissra
hagsmunahópa, endurvakin
Sturlungaöld eins og á þrettándu
öld þegar Islendingar misstu
sjálfstæði sitt fyrir fullt og allt
árið 1262. Það þýðir ekkert að
kenna neinum ákveðnum stjórn-
málaflokki um ástandið eins og
það er. Eiginhagsmunirnir eru
alls ráðandi og hver og einn hugs-
ar mest um þau gæði og verðmæti
sem hann á einn eða annan hátt
hefur eignazt.
Hvað œtla íslend-
ingar að gera?
Nú virðast íslendingar vera
orðnir svo fákunnandi, að
minnsta kosti hinir yngri að þeir
vita ekki hvað þjóðin hefur mátt
þola á liðnum öldum. Vita menn
almennt um þau kjör og það alls-
leysi sem almenningur bjó við
fram yfir síðustu aldamót? Nú
eru aðeins rúmir tveir áratugir
eftir af þessari öld og vitanlega
vitum við ekkert um veðurfar á
komandi árum. Þó má minna á að
sagan getur endurtekið sig. Það
geta komið svipuð ár á siðustu
tugum þessarar aldar eins og var
á harðindaskeiðinu um og eftir
1880.
Spyrja mætti eftirtalinna
spurninga: Hvað ætla Islendingar
að gera: 1. Ef hafís leggst að
Norður- og Austurlandi svo að
engri fleytu verði komið á flot?
2. Ef grasspretta verður í algeru
lágmarki, þannig að fella verður
búpening í stórum stíl? 3. Ef afla-
brestur verður vegna kólnandi
veðurfars eins og átt hefur sér
stað á liðnum öldum? 4. Ef
markaðsmöguleikar versna frá
því sem nú er?
Þetta eru allt spurningar sem
vert er að fhuga í fullri alvöru.
Vitanlega er ég ekkert með
neinar hrakspár en það er
nauðsynlegt að vera við öllu
búinn og til þess að mæta svona
erfiðleikum þarf sameiginlegt
átak allra tslendinga. Ég er þó
þeirrar skoðunar að til þess að svo
megi veröa þurfi hugsunarháttur
þorra manna hér á landi að taka
miklum breytingum frá því sem
komið er.
Magnús Sveinsson,
fyrrv. kennari
frá Hvítsstöðum.