Dagblaðið - 01.11.1977, Qupperneq 15
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR t. NÓVKMBKR 1977.
DAÓBLADID. ÞRIÐ.Il’DAGUR .. NÓVKMBKR 1977.
27
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Íbréttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Handboltapunktar
Lærdómurínn frá HM í
Austurríki ekki numinn
RIOCH AFTUR
TIL DERBY?
— Everton sigraði Middlesbro 2-1 í
deildabikamum ígærkvöldi
Allar líkur benda nú til þess ad
fyrirliði skozka landsliðsins,
Bruce Rioch, hverfi aftur til síns
gamla félags, Derby. Fyrir tæpu
ári var Rioch seldur frá Derby til
Everton fyrir tæp 200 þúsund
sterlingspund og allar líkur eru á
að Tommy Docherty kaupi hann á
15 þúsund sterlingspund sam-
kvæmt fréttaskeytum Reuters.
Sala skozka landsliðsfyrirliðans
kemur mjög á óvart — og hann
var settur úr liði Everton sem lék
gegn Middlesbrough í deilda-
bikarnum í gærkvöld. Frétta-
skeyti segja að hann haldi til
Derby i dag til að ræða væntan-
legan samning við Tommy
Docherty.
Þrátt fyrir að Everton væri án
Rioch sigraði liðið engu að siður í
Middlesbrough. Tæplega 30 þús-
und manns'sáu leikinn — en áður
höfðu liðin skilið jöfn, 2-2, á
Goodison Park, í deildabikarnum.
Everton fékk fljúgandi start,
Mick Lyons skoraði fljótlega og
Jim Pearson bætti við öðru marki
fyrir Everton sem var í úrslitum
deildabikarsins i vor. David Mills
minnkaði muninn fyrir Middles-
brough skömmu fyrir leikhlé —
og látlaus sókn Middlesbrough í
síðari hálfleik gaf ekki mark. Þar
var hinn 18 ára gamli Mark Higg-
ins frábær í vörninni en þessum
unga leikmanni er þegar spáð
miklum frama f knattspyrnu —
ensku landsliðssæti. Og að baki
varnarinnar var markvörðurinn
George Woods góður, varði hvað
eftir annað á hreint undraverðan
hátt.
Forusta PSV
PSV Eindhoven hefur nú fimm
stiga forustu í hoiienzku 1. deild-
inni — eftir 1-0 sigur gegn Sparta
frá Rotterdam: Eina mark leiks-
ins skoraði landsliðsmaðurinn
Van der Kuylen á síðustu mínútu
leiksins. PSV hfur nú hlotið 23
stig að loknum 11 umferðum —
Twente Enschede og Ajax hafa 18
stig og Sparta 17 stig.
Urslit í Hollandi urðu:
PSV — Sparta 1-0
Twente — FC Haag 6-0
Haarlem — NEC 6-0
Ajax — Venlo 5-0
Utrecht — Amsterdam 2-2
Arnhem — Volendam 2-2
NAC Breda — Telstar 2-2
Feyenoord — Go Ahead 2-0
AZ ’67 — Roda 1-1
— leikreynsla lykilleikmanna fleytti okkur áf ram í A-keppnina til
Danmerkur. Landsliðsnefnd Iftur alvegframhjá þessum þætti
Nú eru sjö manuðir síðan tsland
tryggði sér sæti í úrslitum HM í Dan-
mörku í handknattleik. Sjö mánuðir
síðan tsland hreppti fjórða sætið í
B-keppninni í Austurríki, sæti sem
gaf rétt í úrslit HM. ísland gat vel við
árangurinn í Austurríki unað — þrír
sigrar, tvö töp — þar af naumur
ósigur gegn Tékkum í baráttunni um
þriðja sætið, 19-21, eftir framlengdan
leik.
Islenzka landsliðinu tókst það sem
stefnt var að i Austurríki —að komast
áfram í úrslit HM í Danmörku. Ár-
angur íslenzka liðsins í Austurríki má
fyrst og síðast þakka leikreynslu
lykilleikmanna — leikmanna er hafa
skólazt í baráttu með íslenzka lands-
liðinu í fjölda ára, hafa öðlazt dýr-
mæta reynslu, sem einmitt var lykill-
inn að velgengninni í Au-íurríki.
Leikur íslenzka liðsins i Austurríki
byggðist á reynslu Geirs Hallsteins-
sonar með 108 landsleiki fyrir ísland,
Viðar Símonarson með 103 landsleiki,
Ölafur H. Jónsson með 101, Björgvin
Björgvinsson með 98, Ólafur Bene-
diktsson 76. Axel Axelsson 60 og
fyrirliðinn Jón Karlsson með 55
landsleiki — þekking þeirra og
reynsla reyndist þung á metunum,
kom tslandi áfram í úrslit HM, jú,
samtals hafa þeir leikið 599 lands-
leiki.
Nú eru þrír mánuðir þar til úrslita-
keppnin fer fram í Danmörku — þrír
stuttir mánuðir. tslenzka landsliðið er
að leggja upp í erfitt keppnisferðalag
til V Þýzkalands, Póllands og Sví-
þjóðar. Landsliðsþjálfarinn Janusz
Czerwinski mun taka við liðinu í Pól-
landi og þá hefst strangt æfingapró-
gramm, 6 landsleikir.
Af þessum sjö leikmönnum, sem
áður voru taldir, fer aðeins landsliðs-
fyrirliðinn, Jón H. Karlsson. Björgvin
Björgvinsson og Geir Hallsteinsson
komast ekki vegna meiðsla, Ólafur H.
Jónsson og Axel Axelsson eru í
Þýzkalandi — og geta ekki tekið þátt í
æfingaundirbúningi landsliðsins fyrr
en í desember — ef landsliðsnefnd
tekur þann kostinn að velja þá.
Ölafur Benediktsson og Viðar
Símonarson hafa báðir flutzt til Svi-
þjóðar og leika þar — og ljóst er að
Viðar Símonarson verður ekki með í
Danmörku.
Landsliðsnefnd hefur valið 13 leik-
meginstofni sem hún hafði í Austur-
ríki, það er af þeim leikmönnum sem
hún hefur til umráða. Hún heldur
áfram að byggja upp Valsmennina
Bjarna Guðmundsson og Þorbjörn
Guðmundsson og Víkingana Viggó
Sigurðsson og Þorberg Aðalsteinsson,
efnilegir leikmenn, leikmenn fram-
tíðarinnar.
Ur þeim hópi, sem ekki var í
Austurríki hefur nefndin bætt við
fjórum leikmönnum — þeim Árna
Indriðasyni, Þorbirni Jenssyni, Jóni
Pétri Jónssyni og Birgi Jóhannssyni.
Árni er að sjálfsögðu margreyndur
landsliðsmaður — einn sterkasti
varnarleikmaður í íslenzkum hand-
knattleik. En hinir þrír — þeirra tími
er ekki kominn. Landsliðsnefnd bein-
línis kastar þeim út í ólgusjó erfiðra
landsleikja, þeir hafa enn ekki þá
reynslu, sem leikirnir í Danmörku
krefjast.
Sá lærdómur sem fyrst og síðast
mátti læra af HM í Austurríki var
sigur reynslunnar, sigur skynsams
leiks undir styrkri stjórn landsliðs-
þjálfarans Janusz Czerwinski. Það
kom berlega í ljós hve reynsla er
mikilvægur þáttur í erfiðri keppni;
það kom skýrast í ljós hve Viðar Sím-
onarson var mikilvægur hlekkur í
leik íslenzka liðsins þrátt fyrir að
hann hafi ekki verið í sviðsljósinu í
landsleikjum hér heima fyrir HM.
Þennan lærdóm virðist landsliðs-
nefnd ekki hafa numið — dæmalaust
virðingarleysi hennar fyrir leikmönn-
um er hafa öðlazt reynslu í eldlínunni
fyrir ísland. Skýrast er þetta ef til vill
er Björgvin Björgvinsson meiddist.
Björgvin — frábær leikmaður. Birgir
Jóhannsson, kornungur og ákaflega
efnilegur leikmaður með Fram var
valinn til sinna fyrstu landsleikja
með íslandi — sannarlega maður
framtiðarinnar. Landsliðsnefnd kaus
að ganga framhjá einum sterkasta
varnarmanni í íslenzkum handknatt-
leik — Stefáni Gunnarssyni úr Val.
Stefán hefur að baki fiölda lands-
leikja fyrir Island, sjóaður í erfiðum
landsleikjum. Var ekki rétt að leita
að leikmanni er öðlazt hefði reynslu í
erfiðum landsleikjum. Stefán er ákaf-
lega fastur fyrir — óeigingjarn leik-
maður, leikmaður er ávallt reynir að
aðstoða samherja sfna, reynir að
blokkera fyrir stórskyttum. Framhjá
reynslu hans var litið.
Landsliðsnefnd kaus að ganga
framhjá fyrirliða íslenzka landsliðs-
ins 1975 — Páli Björgvinssyni. Allir
íslenzkir handknattleiksunnendur
þekkja hæfileika hans — hann hafði
skorað 7 mörk gegn Júgóslövum í
ólympíukeppninni 1975 þegar hann
var borinn af leikvelli, fótbrotinn.
Sér í lagi virtist val hans sjálfsagt
með tilliti til þess að Viðar Símonar-
son tekur ekki þátt í HM.
Þá má einnig jafnvel nefna Bjarna
Jónsson — margir telja að farið sé að
halla undan fæti fyrir Bjarna en
hann er þó einn sterkasti varnarleik-
maður í handknattleiknum í dag. Og
hann hefur nokkuð sem enginn annar
hefur — hann þekkir danskan hand-
knattleik út og inn, þekkir danskar
aðstæður og við mætum Dönum í
Danmörku. Hefði reynsla hans gétað
komið að notum? Þessir þrír leik-
menn eru sízt lakari en nýliðarnir —
þeir hafa reynsluna framyfir.
Nei, landsliðsnefnd hefur alveg
litið framhjá mikilvægum þætti, stóra
lærdóminum er draga mátti af þátt-
tökunni í Aústurríki. I því liði, sem
nú heldur í æfinga- og landsleikjaför
til V-Þýzkalands, Póllands og Svíþjóð-
ar eru margir ungir og efnilegir leik-
menn, leikmenn framtíðarinnar — en
þeir eru enn ekki nógu skólaðir í
erfiðum landsleikjum, sér í lagi HM-
keppni.
Þeir sjö leikmenn er nefndir voru í
upphafi greinarinnar — Geir, Viðar,
Olafur H. Jónsson, Björgvin, Ólafur
Ben., Axel og Jón Karlsson hafa nú,
leikið 599 landsleiki fyrir Island —
landsliðshópurinn sem heldur út á
morgun hefur leikið 293 landsleiki.
-hhalls.
eftir f jdrar umfer ðir. Hef ur skorað 28 mörk eða sjö mörk að meðaltali íleik.
Lugi ef st og Jdn Hjaltajín hef ur skorað f jögur mörk. Olympia vann loks í 4. umf erð
„Hinn 28 ára Agúst Svavarsson
frá Reykjavík hefur fengið
kanonstart með sínu nýja félagi
Drott í Halmstad," skrifar Dagens
Nyheder um íslenzka landsliðs-
kappann úr ÍR, sem byrjaði að
leika með sænska liðinu í AU-
svenskan í haust. Ágúst hefur
skorað 28 mörk í fjórum leikjum
með Drott — og í einum þeirra,
gegn IFK Kristianstad, skoraði
hann tiu mörk. Er markhæstur
í Alpsvenskan. Drott hefur
skorað flest mörk í Allsvenskan
eða 97 — sjö mörkum meir
en Lugi frá Lundi. Lugi er
efst í Allsvenskan. Hefur
sigrað i öllum fjórum leikjum
sínum. Jón Hjaltalín Magnússon
leikur með Lugi og hefur skorað
fjögur mörk í þessum fjórum
leikjum. Þrjú þeirra voru gegn
Ölafi Benediktssyni, þegar Lugi
sigraði Olympia, liðið, sem Ólafur
leikur með, 21-11 á útivelli. Þá
skoraði Jón Hjaltalín eitt mark,
þegar Lugi sigraði AIK 23-20
einnig á útivelli. t heimaleikjum
Lugi hefur Jón hins vegar ekki
skorað. I þeim vann Lugi GUIF
22-19 og Heím 24-12.
Sænsku leikmönnunum gekk
illa að hemja Ágúst Svavarsson í
fyrstu leikjum hans í Svíþjóð.
Skiljanlegt þvi Gústi er engin
smásmíði, 102 kíló og 198 sm á
hæð. Drott sigraði í þremur fyrstu
leikjum sínum í Allsvenskan.
Hinn fyrsti var gegn meisturum
Hellas, sem heldur betur fe’ngu að
finna fyrir skotkrafti Drott-
manna. Þeir sigruðu með 28-13 og
Ágúst var markhæsti leik-
maðurinn í leiknum. Skoraði sjö
mórk. Næsti leikur Drott var gegn
Heim í Gautaborg, er í vor lék til
úrslita við Hellas um sænska
meistaratitilinn. Drott sigraði
með 21-19 og aftur var Ágúst
markhæstur. Skoraði sjö mörk.
Þriðji leikur Drott var gegn
Kristianstad og Drott sigraði með
31-23. Enn var Ágúst markhæsti
leikmaðurinn — skoraði hvorki
meira né minna en tíu mörk og
það í tólf tilraunum. Aðeins tvö
skot misheppnuðust hjá honum.
En í fjórða leik Drott gekk ekki
eins vel hjá Ágústi eða öðrum
leikmönnum liðsins. Þá var leikið
við Ystad á útivelli — og Ystad
sigraði 27-17. I fyrsta sinn var
Ágúst ekki markhæstur með
Drott eða í leik. Hann skoraði þó
fjögur mörk — tvö úr vítaköstum
— en Jörgen Abrahamsson var
Haustmót JSÍ var haldið sl.
sunnudag 30. október. þetta var
fyrsta stórmót júdómanna á vetr-
inum. Keppt var i fjórum
þyngdarflokkum. Urslit urðu
þessi:
Undir 71 kg:
1. Halldór Guðbjörnsson, JFR.
2. Baldur Jóelsson, JFR.
3. Hilmar Jónsson, A.
71—78 kg:
1. Garðár Skaptason, A.
2. Gunnar Guðmundsson. UMFK.
3. Björn Halldórsson, UMFK.
78—86 kg:
1. Bjarni Friðriksson, A.
2. Bjarni Björnsson, JFR.
3. Jónas Jónasson, A.
markhæstur hjá Drott með 5
mörk.
Olympia byrjaði illa i
Allsvenskan en liðið vann sig upp
úr 2. deild í vor. Tap í þremur
fyrstu leikjunum — en í þeim
fjórða kom loksins sigur. Þá sigr-
aði Olympia Saab með 20-16 á
heimavelli. Daninn Thomas
Pazyj, sem skoraði sigurmark
Dana gegn Svium á Norðurlanda-
mótinu nokkrum sekúndum fyrir
leikslok, var markhæstur í liði
Olympia með 5 mörk. öll skoruð
úr vítaköstum. Hjá Saab var Jan
Jonsson markhæstur með sex
mörk — þrjú víti . Björn Anders-
son, landsliðskappinn frægi, sem
leikið hefur 103 landsleiki fyrir
Svía, hefur ekki getað leikið með
Saab vegna meiðsla — og missti
einnig af Norðurlandamótinu.
Yfir 86 kg:
1. Gísli Þorsteinsson, A.
2. Karl Gíslason, JFR.
3. Hákon Halldórsson, JFR.
Þetta er síðasta opinbera mótið
sem haidið er fyrir opna
skandinavíska meistaramótið
sem haldið verður í Reykja.vik í
næsta mánuði (19.—20. nóv.).
Hér er um að ræða alþjóðlegt
mót, þ.e. öllum aðilum innan Al-
þjóöasambands júdómanna er
heimil þátttaka. Ekki er enn vitað
hversu margir erlendir júdó-
menn munu koma til mótsins, en
þetta verður fyrsta opna alþjóð-
lega júdömótið hér á landi.
Það munar miklu fyrir Saab, sem
er í neðsta sæti ásamt Heim með
eitt stig. í fyrstu umferðinni
tapaði Olympia 11-21 heima fyrir
Lugi. 1 2. umferð á útivelli fyrir
AIK 18-14 og í 3. umferðinni fyrir
Lidingö á útivelli 22-21 eftir að
Olympia hafði haft þrjú mörk yfir
í hálfleik. Daninn Pazyi er mark-
hæstur hjá Olympia með 24 mörk
— helminginn hefur hann skorað
úr vítaköstum. Hjá Lugi er
sænski landsliðsmaðurinn Claes
Ribendahl markhæstur með 20
mörk. Ágúst Svavarsson er mark-
hæstur leikmanna í Allsvenskan
eftir fjórar umferðinneð 28 mörk
og 11 af mörkum sínum hefur
Ágúst skorað úr vítaköstum.
Bengt Hakonsson, Vikingarna,
sem lék hér á NM, hefur skorað
25 mörk.
Staðan eftir fjórar umferðir er
þannig: Lugi 4 4 0 0 90-71 8
Drott 4 3 0 1 97-76 6
Ystad 4 3 0 1 79-69 6
Hellas 4 3 0 1 83-81 6
Vikingarna 4 2 1 1 86-76 5
Krist.st. 4 2 1' ' 1 83-88 5
AIK 4 2 0 2 76-75 4
GUIF 4 0 2 2 73-81 2
Olympia 4 1 0 3 66-77 2
Lidingö 4 1 0 3 76-91 2
Saab 4 0 1 3' 65-74 1
Heim 4 0 1 3 74-89 1
í viðtaii Dagens Nyheder við
Agúst er skýrt frá ferli hans. Þar
kemur fram, að 1969-1970 var
Ágúst valinn bæði i landslið
Islands í handknattleik og
Hart barist í júdó
Gummersbach
í ef sta sæti
—eftir slaka byr jun hef ur ekkert
stöðvaðbikarmeistara Gummersbach
Minden 24. október 1977.
Gummersbach — Lið helgarinn-
ar!
Bikarmeistarar 1976—1977,
Gummersbach, er það lið sem
hæst ber þessa stundina hér í
Bundeslígunni. Eftir slaka byrj-
un hefur liðið tekið stöðugum
framförum og eftir að hafa tekið
Hofweier í kennslustund síðast-
liðínn iaugardag (22. október)
situr það nú i efsta sæti með 12
punkta eftir 7 leiki. Grosswall-
stadt hefur 10 stig en eru með
einum leik minna.
t Gummersbach var aldrei
neinn vafi hvort liðið myndi
sigra. í hálfleik var staðan 9-4
fyrir Gummersbach. Vörnin var
mjög góð og markmaðurinn var
einn bezti maður vallarins. Úrslit-
in urðu 18-9 fyrir Gummersbach
og er þetta fimmti sigur liðsins í
röð. Grosswallstadt sigraði Neu-
hausen nýliðana með 17-12 á úti-
velli og er því í öðru sæti, en með
einum leik minna en Gummers-
bach. Grosswallstadt á eftir að
spila í Kiel.
Nettelstedt náði í tvo punkta í
Derschlag og var það ekki fyrir-
hafnarlaust. Derschlag átti mörg
dauðafæri sem fóru í súginn. Sér-
staklega þó í seinni hálfleik. Með
Nettelstedt spilaði nú Lazarevic,
Júgóslavinn frægi.en eftir 7 mán-
aða hvíld vegna uppskurðar á
fæti, var ekki von að mikið kæmi
út úr honum. t hálfleik var staðan
9-9, en í seinni hálfleik áttu mark-
maður Nettelstedt, Martin
Krocher (áður hjá GWD), og
hornamaðurinn örvhenti, Heiner
Möller, stórleik. Lokatölur urðu
20-18 fyrir Nettelstedt og eru þeir
nú í þriðja sæti.
Með sigri sínum yfir OSC
Rheinhausen hér í Minden 19-16
færði GWD sig úr 7. sæti upp í 4.
sætið. Lið Rheinhausen, sem helg-
ina áður hafði unnið Grosswall-
stadt á heimavelli með 15-12, kom
mjög ákveðið til leiks og reyndi
strax í byrjun að taka tvo leik-
menn GWD úr umferð. Þetta
hefur ekki verið reynt hér í
Minden áður! GWD leiddi allan
fyrri hálfleikinn með tveim mörk-
um. í hálfleik var staðan 9-7 fyrir
GWD. I byrjun seinni hálfleiks
náði Rheinhausen að-jafna og
sáust tölurnar 9-9, 10-10, 11-11,
12-12, 13-13. En þá fór að koma í
Ijós að ekki er nóg að hafa aðeins
sex leikmenn sem verða að spila
allan- jeiktímann, hjá Rheinhaus-
en ei*það einmitt vandamálið.
Ur 13-13 breyttist staðan I 18-13
fyrir GWÐ. Eftir það var aldrei
vafi á því hvort liðið myndi sigra.
Lokatölur urðu 19-16 fyrir GWD.
í næstu umferð mætast erfða-
fjendurnir Nettelstedt — GWD
(29. október). Verður það eflaust
mikill baráttuleikur og til mikils
að vinna fyrir bæði liðin.
1 Göppingen náðu heimamenn í
2 punkta gegn Húttenberg 15-12
og var það mikilvægur sigur, því
oftast hafa þeir tapað gegn
Húttenberg. Gunnar Einarsson
varð að yfirgefa leikvöllinn eftir
20 mín. leik vegna meiðsla í
ökkla.
1 fallbaráttunni deildu THW
Kiel og Dietzenbach með sér stig-
um. I troðfullri Ostseehöll, 6.500
áhorfendur, kom fyrir atvik sem
getur kostað Kiel bann við næsta
heimaleik. Einhverjir áhorfendur
kveiktu í rakettum í höllinni og
varð af mikill úlfaþytur. Varð að
stöðva leikinn í smátíma. Vegna
þess kom jafnvel til álita að flauta
leikinn af. Þrátt fyrir lélegan leik
unnu heimamenn, það er Mil-
bertshofen, neðsta liðið í deild-
inni PSV Hannover með 16-13.
Einar Magnússon spilaði sinn
fyrsta leik með PSV Hannover og
skoraði 3 mörk.
Með kveðju
Ólafur og Axel.
Viíúúúúps
„Ég sá bara skugga ljúkast um mig,“ sagði sænski kappakstursmaðurinn Ronnie Peterson eflir japanska (írand-Prix kappakslurinn. Eins og
við skýrðum frá í DB létust þrír er bíll Kanadamannsins Ailles Villeneuwe raksl á bíl Ronnie. kastaðist síðan yfir hann og inn i
áhorfendahóp. Fyrstu fréttir hermdu að tveir hefðu iátizt — en sú tala hækkaði upp í þrjá.
Tíu manns slösuðust alvarlega — og þurftu sumir að bíða upp í 20 mínútur áður cn hjálp barst. Ht orugur kappakstursmannanna slas-
a5ist en þarna skall hurð sannarlega nærri hælum hjá þeim —fórnarlömbin urðu hins vegar úr hópi áhorfenda.
Agúst Svavarsson mark-
hæstur í Allsvenskan
Agúst Svavarsson — nú mark-
hæstur í Allsvenskan.
körfuknattleik. Hann hafi valið
handknattleikinn, sem er mun
vinsælli íþrótt á íslandi. Fyrir
tveimur árum lék Ágúst átta leiki
með Malmberget í Allsvenskan —
en flutti svo á ný til Islands.
Þjálfari Drott, Bengt ,,Bengan“
Johannsson er spurður um álit á
Ágústi. Hann segir:
„Eg held að mótherjar okkar
hafi vanmetið Ágúst. Hann var
slæmur í handlegg og náði sér
ekki vel á strik á æfingaleikjum
okkar. Hann er góður skotmaður
— en ég vil ekki kalla hann
kanonskyttu. En það þarf að hafa
gætur á honum og hann hefur
mjög gott keppnisskap. En ég hef
marga aðra góða leikmenn — og
fyrst og fremst allt góða skot-
menn. Við erum með marga
smávaxna leikmenn og því var
það frábært að fá stóra Ágúst.
Þegar hann skoraði sex mörk í röð
fyrir Malmberget gegn okkur í
Drott fyrir tveimur árum þá
vaknaði mikill áhugi hjá okkur á
honum.“
Það er auðvitað ekki aðeins
Ágúst, sem gert hefur Drott að
stórllöi?
,,Nei,“ segir Bengt „leikkerfi
okkar eru farin að ganga upp Við
leikum sóknarleik — bæði í sókn
og vörn. Rólegan en árangurs-
ríkan. Með sterkum leikmönn-
um.“ -hsím.
menn til æfinga- og landsleikjafarar-
innar til V-Þýzkalands, Póllands og
Sviþjóðar — af þeim fer aðeins einn
máttarstólpanna. Landsliðsnefnd
hefur gert rétt í að skipa lið sitt þeim
Fara Svíar
ekki til
Argentínu?
Ölíklegt er þó að Svíar hætti við
þátttöku — og þess bera að minnast
að Svíar léku við Chilemenn í Davis-
Cupkeppninni i tennis fyrir tveimur
árum þrátt fyrir mikil mótmæli
heima fyrir.
Tvær þjóðir hafa nú sótt um að
halda HM í knattspyrnu 1980 —
Sovétmenn og íranbúar. HM 1986
verður i Bólivíu í S-Ameríku og árið
1982 fer hún fram á Spáni.
Svíar tryggðu sæti sitt í úrslit HM í
Argentínu í knattspvrnu um helgina
er Sviss sigraði Noreg 1-0 í Sviss.
Norðmenn áttu möguleika á að
komast áfram — en aðeins með
minnst þriggja marka mun. Slíkt var
hins vegar ekki á færi norsku leik-
mannanna þrátt fyrir góðan leik.
En nú hafa risið upp deilur í
Svíþjóð — hvort senda eigi landsliðið
til Argentínu vegna einræðisstjórnar
hersins sem hrifsaði til sín völdin á
síðasta ári. Síðan þá hefur ríkt ógnar-
stjórn í Argentínu — og Amnesty
ínternational áætlar að milli 30 og 40
þúsund manns hafi horfið þar spor-
laust.
Páll Björgvinsson — skorar fyrir ísland. Hann finnur ckki náð fyrir
auguni landsliðsnefndar.