Dagblaðið - 21.11.1977, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. NOVEMBER 1977.
Nú ætti enginn að þuría
Jólaplötuflóðbylgjan er nú
komin vel af stað, sízt minni að
vöxtum en í fyrra. Dagblaðinu
telst svo til að plöturnar verði alls
27 talsins sem koma út áður en
fa'ðingarhátíð frelsarans gengur
í garð. Þegar svipað yfirlit var
tekið saman um þetta leyti i fyrra
varð niðurstaðan 25 plötur, en þá
áttu nokkrar eftir að koma. Svo
kann einnig að vera að þessu
sinni en þó mun listinn vera mjög
nærri því að vera tæmandi.
Allir munu vera sammála um
það að sala íslenzkra hljómplatna
er öllu dræmari nú en á síðasta
ári. Þrátt fyrir það virðast út-
gefendur hvergi bangnir og senda
frá sér hverja plötuna af annarri
fyrir þessa mestu verzlunarhátíð
landsins
Stór plata kostar nú út úr búð
3.480 krónur en eldri plötur eru
seldar á 3.100 kr. í fyrra kostuðu
plöturnar 2.500 krónur.
Hækkunin nemur því tæpum
þúsundkalli.
Útgáfufyrirtækin sem taka þátt
í slagnum að þessu sinni eru.tólf
talsins. Sum fyrirtækin gefa út
eina hljómplötu en sú stærsta
sendir frá sér sjö titla. Fjöldi
útgáfanna mun vera svipaður og í
fyrra.
Sjö plötur frá
SG hljómplötum.
SG-hljómplötur eru stærsti
útgefandinn fyrir þessi jól eins og
þau síðustu. Sjö plötur koma nú
út hjá útgáfunni. Nokkrar eru
þegar komnar á markaðinn, aðrar
eru á leiðinni.
Fyrst skal telja hljómplötu með
hljómsveitinni Lúdó og Stefáni.
Plata þessi er eins uppbyggð og
sú sem kom út með
hljómsveitinni í fyrra. Tekin eru
fyrir gömul erlend lög sem
nutu flest vinsælda í kringum
1960. Má þar nefna lögin Birds
And The Bees, Will You Still
Love Me Tomorrow og You’re
Sixteen, svo að nokkur séu nefnd
af þeim tólf sem eru á plötunni.
Þá skal nefna plötuna
Jörundur slær í gegn. Þar er á
ferðinni eftirherman landskunna
Jörundur Guðmundsson. Hann
flytur á plötunni nokkra
gamanþætti eftir Spóa og syngur
auk þess þrjú lög. Að sjálfsögðu
notar hann ekki eigin rödd við
sönginn heldur bregður fyrir sig
Geir Hallgrímssyni, Ólafi
Jóhannessyni og Halldóri E.
Sigurðssyni.
Stóra barnaplatan er
samansafn 24ra barnalaga, sem
komið hafa út hjá SG-
hljómplötum á undanförnum
árum. Til að gefa smáhugmynd
um fjölbreytnina má nefna lög
eins og Hláturinn lengir lífið,
Hvar er húfan mín? Sól, skín á
mig, Sagan af Gutta og Folaldið
mitt, hann Fákur.
Gísli Rúnar Jónsson sendir frá
sér plötuna Blessad stríðið sem
gerði syni mína ríka. Þar lof-
syngur Gísli hernámsárin sem
hann telur reyndar að sé ekki
lokið enn. Líki kaupendum ekki
tónlistin á plötu Gísla geta þeir
gamnað sér við að skoða umslag
plötunnar. Þar bregður hann sér í
allra stríðskvikinda líki ásamt
nokkrum ástandsmeyjum og
gangandi vegfarendum.
Arlegur viðburður hjá SG
hljómplötum er að senda frá sér
hljómplötu með söng íslenzks
einsöngvara. Að þessu sinni varð
fyrir valinu leikarinn og söngv-
arinn Jón Sigurbjörnsson. Önnur
plata fyrir svipaðan hlustendahóp
kemur einnig út hjá útgáfunni.
Þar eru Leikbræður á ferðinni.
Lögin á þeirri plötu eru sum hver
komin til ára sinna, — en gamlar
upptökur með kvartettinum sem
búið er að dubba upp á.
Loks skal getið hinnar eigin-
legu jólaplötu SG-hljómplatna.
Hún er byggð upp með svipuðu
sniði og plötur Fjórtán fóst-
bræðra voru á sínum tíma, það er
að lögin eru tekin saman í syrpur
— Flytjendur þeirra eru hver úr
sinni áttinni. Svavar Gests
auglýsti á sínum tíma eftir fólki
til að syngja á plötunni, Magnús
Ingimarsson valdi síðan úr og
stjórnar kórnum auk þess sem
hann útsetti tónlistina. Lögin á
þessari plötu hafa velflest komið
áður út á íslenzkum hljómplötum.
Fjórar plötur
fró Fólkanum hf.
Tvær þeirra fjögurra
hljómplatna sem Fálkinn stílar á
jólamarkaðinn eru komnar út, —
hinar eru væntanlegar á næstu
dögum.
Það var hljómsveitin
Mannakorn sem reið á vaðið með
plötu sína I gegnum tíðina. Öll lög
á plötunni eru eftir gltarleikara
hljómsveitarinnar, Magnús
Eiríksson, og einnig allir
Arni Tryggvason fer með hlut-
verk pabbans á plötunni um
Emil í Kattholti.
textarnir nema einn — Ræfils-
kvæðið eftir Stein Steinarr. í
gegnum tíðina er önnur platan
sem Mannakorn gerir. Hljóm-
sveitina skipa, auk Magnúsar,
Pálmi Gunnarsson, Baldur Már
Arngrímsson og Björn Björnsson.
Nú um helgina kom út platan
Eintak. Þar syngur Bergþóra
Arnadóttir ellefu lög eftir sjálfa
sig við texta úr ýmsum áttum.
Með Bergþóru leika á plötunni
þeir Kristján Guðmundsson,
Pálmi Gunnarsson, Sigurður
Karlsson, Birgir Guðmundsson og
Baldur Már Arngrímsson, sem
jafnframt stjórnaði upptökunni.
A ströndinni nefnist hljóm-
plata með Herbert Guðmundssyni
söngvara. Á henni syngur hann
lög eftir sjálfan sig. — Herbert
söng fyrr á árum með hljóm-
sveitinni Eik, Pelican og Dínamit,
en hefur ekki verið í sviðsljósinu
unt nokkurt skeið.
Loks skal getið plötunnar
Björk með ungri stúlku, Björk
Guðmundsdóttur. Hún flytur lög
úr ýmsum áttum, þar á meðal eitt
eftir sjálfa sig. Umsjón með gerð
plötunnar höfðu þeir Pálmi
Gunnarsson og Sigurður Karls-
son.
Halli og Laddi hjó
Hljómplötuútgáfunni
Hljómplötuútgáfan hf., sem
varð tveggja ára gömul í síðustu
viku, sendir þrjár plötur frá sér á
jólamarkaðinn. Sú fyrsta sem
kemur til landsins er Fyrr má nú
aldeilis fyrrvera með grínkörlun-
um Halla og Ladda. Þeir bræður
fara þar á kostum eins og fyrri
daginn og flytja efni, sem þeir
hafa samið sjálfir við erlend og
innlend lög — Þau innlendu eru
þrjú, reyndar öll eftir Ladda
sjálfan.
Jólastrengir nefnist hin
eiginlega jólaplata fyrirtækisins.
Þar kemur fram fjöldi fólks, bæði
söngvarar og hljóðfæraleikarar.
Sem dæmi um söngvara má nefna
Vilhjálm Vilhjálmsson, Ruth
Reginalds og Berglindu Bjarna-
dóttur. Karl Sighvatsson annaðist
útsetningar á lögunum sem mörg
hver hafa komið út áður á íslenzk-
um hljómplötum.
Þriðja platan frá Hljómplötuút-
gáfunni hf. er safn beztu laganna
af tíu fyrstu plötum fyrirtækisins.
Safn þetta nefnist Bara það bezta.
Steinar senda fró
sér A vítamín
Steinar hf. senda frá sér tvær
plötur fyrir þessi jól. Sú fyrri er
komin út fyrir nokkru, — plata
Dúmbó og Steina. Hljómsveitin
leikur þar nokkur lög frá blóma-
skeiði sínu á síðari hluta sjöunda
áratugsins. Til viðbótar eru síðan
nokkur ný lög á plötunni eftir
Finnboga Gunnlaugsson gítar-
leikara Dumbó og Jóhann G.
Jóhannsson tónlistarmann og
málara.
Seinni platan frá Steinum hf.
mun bera það frumlega nafn A+.
Flytjendur hennar eru hljóm-
Samsafnsplata með lögum Lonli Blú Bojs frá 1974-76 kemur á markaðinn seinna
geta allir sungið Heim i Búðardal yfir hátíðarnar.
þessari viku. Nú
1 m
•|!f í| ViJ
H t i
f i'í ll t 1 fíj m |1 S
■ i 11«1
Hijómpíötuútgefe
koiann þráttfyrir
sveitin Fjörefni. Uppistaða
hennar eru þeir félagar Jón Þór
Gislason og Páll Pálsson, sem
samið hafa öll lög plötunnar og
eiga stóran hlut í
textum. Aðrir í Fjörefni eru
Nikulás Róbertssorí, Jóhann Þórs-
son og Eikarmennirnir Tryggvi
Híibner og Ásgeir Óskarsson.
önnur hlið plötunnar er
undirlögð Iögum um Hallæris-
planið margfræga, en á hinni eru
yrkisefnin ýmiss konar, svo
sem læralækurinn og þú.
Bókaútgófan Iðunn
með tvœr plötur
Báðar plóturnar sem Iðunn
gefur út fyrir jólin eru komnar út
fyrir nokkru. Fyrst skal þar telja
plötu Megasar, A bleikum
náttkjólum. Þetta er fjórða plata
Megasar og sú fyrsta sem Iðunn
gefur út með honum. Lista-
maðurinn er löngu orðinn þjóð-
kunnur fyrir ádeilur sínar og
skopskyn, svo að óþarfi er að
fjölyrða hér um efni plötu hans.
Spilverk þjóðanna lék inn á Á
bleikum náttkjölum með Megasi
og á stóran þátt í því, hve vel
platan er heppnuð.
Ut um græna grundu nefnist
nýja Vísnabókarplatan. Að henni
standa sömu menn og síðast, það
er Gunnar Þórðarson, Björgvin
Halldórsson og Tómas Tómasson.
Er ákveðið var að gera nýja plötu
úr Vísnabókinni, fengu þeir eina
skipun frá útgáfunni: Gerið betri
plötu en síðast. — Það hefur
tekizt. Fyrri Vísnabókarplatan,
Einu sinni var, hlaut beztar
viðtökur allra þeirra hljómplatna
sem út komu fyrir síðustu jól, —
seldist í um 18.000 eintökum.
Aðstandendur plötunnar Gamlar góð
flytja lög eins og Nú liggur vel á mér,
Ýmir býður upp ó
gamlar lummur
Ymir, hljómplötuútgáfa Gunn-
ars Þórðarsonar, sendir frá sér
eina hljómplötu að þessu sinni.
Sú nefnist Gamlar, góðar
lummur. Flytjendurnir nefna sig
I.umrnur og þau eru Ólafur
Þórðarson, Valur Emilsson, Linda
Gísladóttir, Ragnhildur Gísladótt-
ir og Jóhann Helgason. Lögin á
plötunni hafa öll komið út áður og
nutu mikilla vinsælda fyrir
nokkrum áratugum. Nægir að
nefna lög svo sem Bisa í Dala-
kofanum, Anna í Hlíð, Lóa litla á
Brú og Nú liggur vel á mér. Það
er hljómplötuútgáfan Steinar sem
annast dreifingu Lummanna.