Dagblaðið - 07.01.1978, Side 1

Dagblaðið - 07.01.1978, Side 1
4. AR<;. — LAIK;ARI)A<;1!R 7. JANÚAR 197S — 6. TBL. RITSTJORN SÍÐUMÍJLA 12. AUÍILÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11. — AÐALSlMI 27022. 21 metra pabbinn 20 marka sonurinn Hreinn var öðru sinni kjörinn íþróttamaður ársins af íþróttafrétta- mönnum dagblaðanna Fræknir feðgar — Hreinn Hall- dórsson, íþróttamaður ársins 1977, ásamt fimm mánaða syni sínum, Sindra. Hann er ekki síður mikið efni í afreksmann — var 20 marka er hann fyrst leit augum þennan heim. Sindri lítur stytt- una hýrum augum og hróðugur ber hann verðlaunapeninginn hans pabba — sem hann hlaut fyrir Evrópumeistaratitilinn í kúluvarpi innanhúss. Hreinn Halldórsson var i gær kjörinn íþróttamaður ársins 1977 — nafnbót sem hann sannarlega er vel kominn að. Hann hlaut 70 atkvæði, raunar hlaut hann öll atkvæði íþróttafréttamanna, svo sammála voru fréttamenn. Hreinn Halldórsson varð Evrópu- meistari i kúluvarpi — varpaði kúlunni 21.09 í Stokkhólmi í sumar, fyrstur Islendinga til þess að vinna það afrek. Sjá nánar um afhendingu veg- semdarinnar íþróttamaður ársins á bls. 4. - h halls DB-mynd Bjarnleifur Hvað hafa landsf eðurnir f laun? MILUÓN Á MANN — baksíða Skotfæraf undur á Langholtsvegi Undarlegustu hlutir geta fund- izt á almannafæri. Þannig bar það til í gær að ungir piltar fundu milli‘15 og 20 riffilskot á bilastæði við Brauðskálann að Langh’olts- vegi 130. Þeir tíndu skotin saman og létu lögregluna vita svo ekkert slys hlauzt af. Var þó fundardag- urinn heldur óheppilegur, sjálfur þrettándinn. Skotin voru 22 calibera riffil- skot af lengri gerðinni með odd- mjórri kúlu. - ASt. Erlend blöð og tímarit á Islandi: ANDRÉSÖND ER VINSÆLASTUR — baksíða STARFANDIRANNS0KNAR- LÖGREGLUMENN Á SKÓLABEKK ,,Eg hef lagt mikla áherzlu á þessi námskeið og alla þjálfun rannsóknarlögreglumanna og vonast til að hægt verði að halda þessu áfram,“ sagði Hall- varður Einvarðsson rann- sóknarlögreglustjóri ríkisins í samtali við fréttamann DB í gær um námskeið og námsferð- ir fyrir starfandi rannsóknar- lögreglumenn. Um miðjan desember lauk fyrsta námskeiðinu. Hallvarður sagði að meginuppistaða þess hefði verið sakamálaréttarfar og refsiréttur. Hefði hann ásamt Jónatan Þórmundssvni prófessor verið aðalfyrirlesari ■n auk þess hefði komið til ein- ■.takra fyrirlestra fjöldi lækna, ögfræðinga og prófessora. Um miðjan þennan mánuð tefst annað námskeið fyrir annsóknarlögreglumenn og verður þá fjallað um sálarfræði ig íslenzku. Hallvarður Ein- varðsson sagðist hafa ákveðið að taka íslenzku sérstaklega fyrir þar sem hann legði afar ríka áherzlu á vandaðan, réttan og skýran frágang lögreglu- skýrslna. ,,Menn geta lengi bætt sig í íslenzku, hvort sem það eru lögreglumenn eða blaðamenn," sagði hann. Þá eru þrír íslenzkir rann- ■sóknarlögreglumenn á förum •itan til náms og starfs. Gísli Guðmundsson fer um mánaða- mótin næstu til Stokkhólms og verður þar í liðlega mánuð hjá Rikskriminalpolisen og síðari hluta þessa mánaðar fara þeir Haukur Bjarnason og Guð- mundur Guðmundsson til Kriminalcentralen í Osló. Þar verða þeir í þrjár vikur við nám og starf. Hallvarður Einvarðsson gat þess einnig að ýmsir eldri starfsmenn rannsóknarlögregl- unnar ynnu um þessar mundir að ýmiss konar samantekt. svo sem tölfræðilegri, sem nauð- synleg væri og nytsöm. Einn þeirra er Njörður Snæ- hólm yfirlögregluþjónn sem vinnur að skriflegri samantekt um rannsóknaraðferðir í saka- málum, kriminalteknik. Njörður vildi f samtali við DB lítið gera úr þessu starfi sínu, sagði að um væri að ræða kennslu- og upprifjunargagn. „Það er farið í það helzta,“ sagði hann, „svo menn gleymi ekki á hverju á að byrja." Hann taldi árangur nám- skeiða og námsferða rann- sóknarlögreglumanna þegar hafa borið góðan árangur og sagðist vænta góðs af frekari skólun og þjálfun. „Til þessa hafa ekki verið til neinir pen- ingar til þessara hluta,“ sagði Njörður Snæhólm, „en nú hefur sem betur fer orðið breyting þar á til batnaðar." -ÖV Tveir í slysa- deild eftir árekstur Hörkuárekstur varð á mótum Suðurlandsbrautar og Skeiðarvogs rétt eftir há- degið I gær. Varð af bílvelta og tveir menn sem voru I sendiferðabíl voru fluttir f slysadeild eitthvað meiddir. Hinn bíllinn sem í hlut átti var af Mustang-gerð og kastaðist hann við árekstur- inn langt út f móa. Skemmdist hann mikið. - ASt. i i i

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.