Dagblaðið - 07.01.1978, Page 6
6
✓
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1978.
" '
Blaðburöarbörnóskaststrax:
Miðtún, Hátún,
Skúlagata frá 58, Fjólugata,
Sóleyjargata, Bergþórugata,
Sörlaskjól, Sunnuvegur.
Langholtsvegurfrá 1-100,
Kópavogur: Austurbær, Grundir.
Upplýsingarísíma27022
MMBIABIB
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notaöra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, til dæmis:
M. BENZ 220D 1970 SAAB 96 1966
PEUGEOT 404 1967 SKODA 110 1971
V.W. 1300 1970 SINGER VOGUE 1968
Einnighöfum viö úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Simi 11397
jazzBaLLödCaKóLi Bóru
Byrjum aftur 9. janúar.
líkofn/rcekt
Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri.
Morgun-dag- og kvöldtímar.
Tímar tvisvar eða f jórum sinnum í viku.
Sérstakir tímar fyrir þær, sem vilja hægar og
léttar æfingar.
Sérstakir matarkúrar fyrir þær sem eru í megrun.
Vaktavinnufólk athugið „lausu tímana“ hjá okkur.
Vigtun — mæling — og mataræði í öllum flokkum.
Sturtur — sauna — tæki — ljós.
Hjá okkur skín sólin allan daginn, alla daga.
Munið okkar vinsæia sóiaríum.
Upplýsingar og innritun frá kl. 1-6 í síma 83730.
, jazzBaLLetdQkóLi bópu
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Framboösfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör
stjórnar trúnaðarmannaráðs og
endurskoðenda í Verzlunarmanna-
félagi Reykjavíkur fyrir árið 1978.
Framboðslistum eða tillögum skal
skilað til skrifstofu félagsins, Haga-
mel 14, eigi síðar en kl. 12 á hádegi,
þriðjudaginn 10. janúar 78.
Kjörstjórnin.
„ÞARFASTIÞJÓNN” AKUR-
NESINGA ÚR LEIK í BILI
Akraborgin er gott sjóskip, segir afgreiðslumaðurinn í Reykjavík
og hvergi er að finna verra sjóveður en í útsynningi milli Akraness
og Reykjavíkur.
Akurnesingum og öðrum sem
hyggjast heimsækja Skaga
bregður við næstu dagana þvi
ferjan Akraborg er að fara í
slipp nú um helgina.
„Það verða alltaf einir átta til
tíu dagar sem þetta tekur,“
sagði Lárus Arnason af-
greiðslumaður Akraborgar i
Reykjavik i samtali við DB í
gær. „Það verður reynt að flýta
slippdvölinni eins og nokkur
kostur er, en það á að fara fram
vélahreinsun, báðar vélarnar
teknar upp og það tekur alltaf
sinn tíma.“
Ætlunin er að sigla Akra-
borginni norður til Akureyrar í
dag. Lárus sagði að Akraborgin
væri prýðissjóskip og engin
ástæða til að ætla annað en sú
sigling takist vel.
„Akraborgin hefur siglt
milli landa og staðið sig vel og
það getur ekki orðið verra í sjó
en á leiðinni frá Reykjavik til
Akraness I útsynningi," sagði
Lárus.
Á meðan Akraborgin verður
í slipp þurfa farþegar til og frá
Akranesi að fara með áætlunar-
bíl. Slík ferð tekur um tvo tíma.
Ferðin með Akraborginni á
milli tekur tæpan klukkutima.
Skipið fer þrjár ferðir á dag á
milli á veturna en fjórar til
fimm á sumrin. Skipið getur
tekið á fjórða hundrað farþega
og fjörutíu og fjóra bila i ferð.
I Akraborginni eru tvær
vélar og er hvor um sig 1040
hestöfl. Ganghraði skipsins er
12-13 mílur. Skipstjóri Akra-
borgar er Þorvaldur Guð-
mundsson.
Siðasta ferð Akraborgar í bili
verður frá Reykjavik kl. 15.30 i
dag.
- A.Bj.
Akstur í myrkri II:
ÞEGAR ÖKUTÆKIMÆTAST
Þegar ökutæki mætast i
myrkri, styttist sjónlengd öku-
mannsins að nokkru vegna ljós-
anna á móti og að öðru leyti
vegna þess að hann setur
sjálfur lágu ljósin á.
Athuganir hafa leitt i ljós að
þegar tvö ökutæki mætast á
dimmum vegi og báðir aka með
lágum ljósum, þá sér hvorugur
ökumannanna t.d. gangandi
vegfaranda í dökkleitum fötum
sem fjær er en 30 metrum
framundan, — jafnvel þótt lágu
ljósin skini lengra. Til þess að
forðast ákeyrslu innan þessara
vegalengdar verður að draga úr
hraðanum svo stöðvunarvega-
lengdin verði innan þessara 30
metra.
Með því er óhætt að segja; að
á sléttum vegi, í þurru færi,
með eðlilegum viðbragðsflýti
og hemlum sem eru I lagi, er
nauðsynlegt að minnka hrað-
ahn niður i 40 km/klst áður og
á meðan mæting á sér stað.
Með fullkominni árvekni og
þar með stuttum viðbragðs-
tíma, á þurrum vegi, með góða
hemla og gott viðnám við veg-
inn, geta menn leyft sér eilítið
hraðari akstur. Að aka hraðar
er í rauninni að aka i blindni.
í hálku, bieytu og þar sem
aur er og fita (olía) á akbraut-
inni á beygjum og niður
brekkur verður að draga til
muna úr hraða.
Eldri ökumenn verða einnig
að aka hægar vegna þess að
þeir eru viðbragðsseinni og við-
brögð augnanna ávallt hægari,
en slikt gerir vart við sig hjá
fólki þegar eftir þrítugsaldur.
Hafið ávallt stöðvunarvega-
lengdina framundan.
Þar sem ávallt verður að
draga úr hraða þegar ökutæki
mætast og þá ekki sist i myrkri
verður ökumaður ætíð að
reikna með þvi að ökutæki sem
á undan eru, hægi skyndilega á
ferðinni.
Þess vegna er nauðsynlegt að
hafa hæfilega stöðvunarvega-
lengd, — öryggissvæði — á
milli ökutækja og þá sérstak-
lega í myrkri.
Umferðarráð.
30 m
ÞRIRIGÆZLU
í HASSMÁUNU
Þrir liðlega tvltugir menn
sitja nú I gæzluvarðhaldi i
Reykjavik vegna rannsóknar á
innflutningi og dreifingu á
fikniefnum. Mestmegnis er um
hass að ræða, en einnig eitt-
hvað af amfetamfndufti.
Tveir þessara manna voru úr-
skurðaðir I gæzluvarðhald seint
í gærkvöld, annar í allt að 20
daga, hinn i allt að 30 daga. Sá
sem fyrir var hefur setið í
gæzlu síðan fyrir jól og var fyrr
i vikunni úrskurðaður til að
sitja enn í allt að 30 daga.
Fjórði maðurinn I máli þessu —
eða a.m.k. tengdur þvf — sat í
gæzluvarðhaldi um tima en
hefur nú verið látinn laus.
Allir þessir menn hafa áður
komið við sögu fikniefnamála
hérlendis. Þeir eru allir úr
Reykjavík og nágrenni.
Guðmundur Gígja, lögreglu-
maður i fikniefnadeild lögregl-
unnar, vildi i morgun engu spá
um hvert magn fikniefnanna
yrði þegar öll kurl væru komin
til grafar.
Grammið af hassi er nú selt á
1800-2000 kr.
-OV
Þingeyri:
Hvfldinni fegnir eftir mikla
vinnu á síðasta ári
„Það hefur verið frekar stopult
með vinnu hér á ‘Þingeyri siðan
um áramót, fólk er búið að vinna
einn dag á nýja árinu,“ sagði Páll
Pálsson fréttaritari DB.
„Fólk er bara almennt ánægt
með þetta þvi geysimikil vinna
hefur verið hér allt sl. ár og
aðeins fallið úr ein vika. Fólk
hefur haft góðar tekjur en það
hefur líka verið gífurleg vinna.
Þetta er fyrst og fremst frysti-
húsavinna. Hér eru nú tuttugu
útlendingar i vinnu, en það er
orðinn fastur liður í bæjarlifinu
að útlendingar vinni hér. Þetta
eru Astralíubúar og Nýsjá-
lendingar sem hafa reynzt alveg
framúrskarandi vel og gerir þetta
fólk skemmtilega tilbreytingu í
bæjarlífinu. Það hefur löng-
um fylgt Þingeyri heilmikið út-
lendingastand," sagði Páll.
-A.Bj.
Hver týndi buddu?
Lítil svört budda fannst á móts henni til skila. I buddunni voru
við Laugaveg 40 siðdegis i fyrra- nokkrir seðlar og smámynt.
dag. Finnandinn hafði samband
við DB og óskaði eftir að blaðið Upplýsingar um budduna má fá
hefði milligöngu um að koma 1 síma 13632.