Dagblaðið - 07.01.1978, Side 23

Dagblaðið - 07.01.1978, Side 23
23 Sjónvarp DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1978. 1 Utvarp Sjónvarp íkvöld kl. 21.15: Boccaccio r r SOFFIA LOREN, ANITA EK- BERG OG ROMY SCHNEIDER —fara á kostum f fyndinni mynd Bíómynd sjónvarpsins í kvöld er eiginlega frekar þrjár en ein. Hún er i þremur hlutum sem hver um sig er sjálfstæð heild. Þeir heita Freisting dr. Antonionos, Starfið og Tombólan. t heild heitir myndin Bocaccio ’70 og er ítölsk að gerð frá árinu 1962. Allir fjalla þættirnir um sam- skipti kynjanna i léttum dúr. t Freistingu dr. Antonionos leikur Anita Ekberg aðalhlutverkið, fyrirsætu. Sá hlutinn er ádeila á allan tepruskap í sambandi karls og konu. í Starfinu leikur Romy Schneider aðalhlutverkið, ófull- nægða eiginkonu. Og f þeim þriðja er það sjálf Soffia Loren sem er stjarnan, stóri vinningur- inn i tombólu ástarinnar. Þriðji hluti Boccacio ’70 fær mest lof í kvikmyndahandbók okkar en myndin í heild fær þrjár og hálfa stjörnu af fjórum mögu- legum. Sagt er að Soffia sé mjög hrífandi og er það ekki að efa. Tombólan er sögð afskaplega fyndin og um leið vel leikin. Leikstjórar myndarinnar eru þeir Federico Fellini, Luchino Visconti og Vittorio De Sica. Það þarf víst engan þeirra að kynna fyrir tslendingum. Enskt tal hefur verið sett inn á myndina eftir á. Hlýtur það óneitanlega að teljast henni til lýta þar sem alltaf er óeðlilegur blær á sllkri dubbun. Þýðandi er Öskar Ingimarsson. - DS Soffia Loren leikur eitt aðaihlut- verkið f kvikmynd sjónvarpsins f kvöld. Sjónvarp í kvöld kl. 20.30: Dave Allen lætur móðan mása Frábær grínisti Sá frábæri grínisti Dave Allen kemur á skjáinn í kvöld flestum til óblandinnar ánægju. Dave er alveg einstakur skemmtikraftur og með þeim betri sem maður hefur séð. Helztu óánægjuraddir með þátt hans koma frá þeim sem ekki eru fleygir og færir í enskri tungu því grínið fer fyrir ofan garð og neðan hjá þeim. En við þvi er lfklega ekkert að gera því ókleift hlýtur að vera að þýða það sem Dave segir á góða og fyndna íslenzku. Jóni Thor Haraldssyni tekst oftast mjög vel upp við það vandasama verk en þeir kaflar koma sem hann ræður illa við enda von. En nú breytum vér nærbuxnaskipulagi voru eins og Allan saeði f sfðasta þætti og bú- um okkur undir að njóta hans f litum og öllu. - DS 1» Dave Allen. Sjónvarp á morgun kl. 16.00: Húsbændur og hjú Stríðið tekur enda Þá er fyrri heimstyrjöldinni loksins að ljúka f þáttasyrpunni Húsbændur og hjú f sjónvarp- inu. Þátturinn á morgun nefnist Hildarleiknum lýkur. En hvernig endalokin verða skal ósagt látið. A þessari mynd af henni Georgfnu litlu, sem varla er þó hægt að kalla litla lengur virðist þó sem ekki sé allt eins og bezt verður á kosið. En hvað um það strfðinu er lokið og þetta átti að vera striðið sem endi myndi binda á allar styrjaldir þannig að vonir hljóta að vakna í brjóstum manna, karla jafnt sem kvenna. DS • x>: . Laugardagur 7. janúar 12.00 Dagskráin. Tónloikar. Tilkynn- ingar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 Vikan frannindan Bessí Jóhanns- dóttir sér um kynningu dagskrár í útvarpi og sjónvarpi. 15.00 Miðdagistónnlaikar: Spssnsk svita gftir Albaniz-da Burgos. Nýja fíl- harmóniusveitin i Lundúnum leikur; Rafael Frílbeck de Burgos stjórnar. 15.40 islanzkt mál. Dr. Jakob Benedikts- son flytur þáttinn. 16.00 Fréttir. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Vinsaalustu popplögin. Vignir Sveinsson kynnir. 17.00 Enskukannsla: (On Wa Go) Leiö- beinandi; Bjami Gunnarsson. 17.30 Söngvar í léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 „Drangurinn og maíblómiö" asvintýri »ftir Eriing DaviAsson. Höfundur les. 19.55 A óparattukvöldi: „Nótt i Fanayjum" eftir Jóhann Strauss. Guðmundur Jónsson kynnir. Flytjendur: Elisabeth Schwarzkopf. Emmy Loose, Hanna Ludwig. Nicolai Gedda, Erich Kunz, Peter Klein. Karl Dönch, Fil- harmóníukórinn og hljómsveitin. Stjórnandi: Otto Ackermann. 21.00 Taboð Sigmar B. Hauksson tekur til umræðu matargeröarlist (gastrono- mi). Þátttakendur: Ib Wessman. Balt- hazar og Gunnar Gunnarsson. 21.40 Úr visnasafni Útvarpstíðinda Jón úr Vör les. 21.50 Létt lög Svend Ludvig og hljóm- sveit hans leika. 22.10 Úr dagbók Högna Jónmundar Knútur R. Magnússon les úr bókinni „Holdió er veikt“ eftir Harald A. Sigurössonar. 12.30 Veöurfregnir. Fréttir. 22.45 Danalög. 23.50 Fréttir.Dagskrárlok. Sunnudagur 8. janúar 8.00 Morgunandakt. Pétur Sigurgeirs- son vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 VeÓurfregnir.Útdrátt- ur úr forustugreinum dagbl. 8.35 Morguntónlalkar. 9.30 Vaiztu svarið? Jónas Jónasson stjórnar spurningaþætti. Dómari: ólafur Hansson. 10.10 Veöurfregnir. Fréttir. 10.30 Sónata nr. 1 I G-dur op. 78 aftir Johannas Brahms. Yehudi Menuhin og Louis Kentner leika. 11.00 Massa I Dómkirkjunni. Séra Ingólf- ur Astmarsson prestur á Mosfelli i Grimsnesi predikar. Séra Hjalti Guö- mundsson dómkirkjuprestur þjónar fyrir altari. Fluttur veróur messu- söngur eftir Ragnar Björnsson dóm- organista. Dómkórinn syngur. Organ- leikari: Ragnar Björnsson.. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.15 Út fyrir takmarkanir tölvisinda. ólafur Proppé uppeldisfræöingur flytur erindi um aðferðir við rann- sóknir i uppeldisfræði og mat á skóla- starfi. 14.00 Miðdagistónlaikar: Frá útvarpinu f Badan-Badan. Sinfóníuhljómsveit út- varpsins leikur. Einsöngvari: Halina Lukomska. Stjómandi: Ernest Bour. a. Þýzkir dansar eftir Schubert. b. Fjórir söngvar op. 13 eftir Anton Webern. c. „Altenberg-ljóð“ op. 4 eftir Alban Berg. d. Sinfónia nr. 8 I h-moll eftir Franz Schubert. 15.00 Svart, hvftt og Arabar. Þáttur um pflagrlmaflug milli Afriku og Saudi- Arabfu. Umsjón: Steinunn Sigurðar- dóttir fréttamaður. 16.00 Létt lög fré austurriaka útvarpinu. 16.15 Veóurfregnir. Fréttir. 16.25 „Sólin fyrst, Aþana fyrst og Mikis mlHjónasti". Friðrik Páll Jónsson tekur saman þátt um grfska tónskáld- ið Þeódórakis (Áðurútv. á jóladag). 17.30 Útvarpssaga bamanna: „Hottabych" aftfr Lazar Lagfn. Oddný Thorsteinsson les þýðingu sfna (13). 17.50 Harmonikulög. Amstein Johansen, Swerre Cornelius Lund og Horst Wende leika. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Um kvikmyndir; — þriðji þéttur. Umsjónarmenn: Friðrik Þór Friöriks- son og Þorsteinn Jónsson. 20.00 Slnfónfa fyrir sautján hljóðfssri aftfr Jossph Gossac. Sinfónfuhljómsveitin f Liege leikur; Jacques Houtmann stj. 20.30 Útvarpssagan: „Silas Mamar" aftfr Gaorga Eliot. Þórunn Jónsd., þýddi. Dagný Kristjánsdóttir les (16). 21.00 islanzk ainsöngslög 1900-1930. 1. þáttur. Nfna Björk Elfasson fjallar um Sveinbjöm Sveinbjörnsson. 21.25 Gufuaft og gufuskip. Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri flytur er- indi. 21.50 Kórsöngur f útvarpssal. Selkórinn syngur erlend lög. Söngstjóri: Sigur- óli Geirsson. 22.10 iþróttfr. Hermann Gunnarsson sér um þáttinn. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.45 Kvöldtónlaikar: Fré hollanzka útvarp- inu. Metropolhljómsveitin o.fl. leika létt lög eftir Laws, Parker, Ellington o.fl.; Dolf van der Linden stjómar. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Útvarp annað kvöld kl. 19.35: Um kvikmyndir Áróðursgildi kvikmynda Loksins virðast verá að koma þeir timar á íslamii að kvik- myndalistinni er sýnd svipuð virðing og öðrum iistgreinum. Meira að segja ríkisfjölmiðlarn- ir hafa nú tekið kvikmynda- þætti upp á sína arma. t útvarp- inu eru það þeir Friðrik Þór Friðriksson og Þorsteinn Jóns- son sem sjá um þátt um kvik- myndir og er sá þriðji af slíkum á dagskrá annað kvöld eftir fréttir eða klukkan 19.35. í fyrsta þættinum voru tekn: ar fyrir kvikmyndir út frá hag- fræðilegu sjónarhorni. t öðrum var svo fjallað um kvikmyndir á íslandi út frá þeim sem sýna þær og vinna við að velja þær til sýningar. Þá var rætt við Friðfinn Ölafsson forstjóra Há- skólabíós. En í þættinum í kvöld er svo komið að neytandanum. Þá verður talað um það áróðurs- gildi sem kvikmyndir hafa og áhrif almennt. Vitnað verður í tilraunir sem gerðar hafa verið á þessum þáttum. Að vfsu er það svo að á áhrifum kvik- mynda á fólk erfitt að gera til- raunir sem svo má heimfæra upp á raunveruleikann. t til- raunastofum eru menn við allt aðrar aðstæður en annars i lif- inu. Þær tilraunir sem núna teljast marktækar hvað þessi atriði varðar eru nokkuð við aldur og kann þvl eitthvað að hafa breytzt síðan þær voru gerðar. Og þeim verðúr að taka með fyrirvara enda settar fram sem slíkar. Þorsteinn Jónsson hefur eins og allir vita lfklega menntað sig mikið i kvikmyndagerð og var meðal annars við nám f Japan f mörg ár. Friðrik Þór sagðist hins vegar vera einungis áhuga- maður um kvikmyndir og vinna á vegum Fjalakattarins, kvik- myndaklúbbs menntaskólanna og Háskólans. Hann er einnig. ritari Listahátfðar og vinnur nú við að skipuleggja kvikmynda- hátfð f tengslum við hana núna í sumar. - DS

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.