Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.01.1978, Qupperneq 24

Dagblaðið - 07.01.1978, Qupperneq 24
Hvað fá landsfeðurnir í laun? Milljón á mánuöi frfálst, nháð dagblað Feður þessa lands, eins og þeir eru gjarna nefndir, ráðherrarnir, eru að vonum dregnir til ábyrgðar eða hælt fyrir flest það sem miður fer eða vel í þessu þjóðfélagi. Það eru þeir sem bera ábyrgðina á kjörum almennings, á efna- hagsvandanum og þar fram eftir götunum, eins og alþjóð veit. Að öllu jöfnu er þetta ekki talin öfundsverð aðstaða enda verður ekki sagt að ráðherratíð þeirra manna sem nú sitja í ríkisstjórn hafi verið neinn dans á rósum. Það er hins vegar ljóst að ekki gera mennirnir þetta með tóman maga. A meðan allur al- menningur veltir vöngum yfir þvi hvernig megi framfleyta sér á um 200 þúsund kr. á mánuði og þaðan af minna sýnir lausleg könnun Dag- blaðsins að ráðherrar vorir hafa rúma eina milljón króna í laun á mánuði, bein og óbein. Bein ráðherralaun eru 392 þúsund krónur á mánuði. Þar við bætist þingfararkaup, er þeir halda óskertu, rúm 328 þúsund á mánuði. Bíl fá þeir að kaupa sér án tolla og söluskatts í upphafi ráðherratíðar sinnar og fá til þess lánaðar 350 þúsund krónur til tíu ára á 5% innflutningur: Andrésönd langvinsælastur Það erlenda blað sem selst lang- mest á Islandi er danska útgáfan af Andrési önd! I hverri viku seljast um 5000 eintök af blaðinu sem kostar 250 kr. í smásölu. Annars er fluttur hingað til lands ótrúlegur fjöldi af erlend- um tímaritum, bæði viku- og mánaðarblöðum. Haukur Gröndal hjá Innkaupasambandi bóksala sagði DB að titlar brezkra blaða væru milli 150 og 200 en ekki er ýkja mikið selt af hverju blaði fyrir sig. Time og Newsweek eru fréttablöð sem hafa dálitla sér- stöðu því þau eru að mestu seld í áskrift og ekki svo mikið i lausa- sölu. Ekki vissi Haukur gjörla um áskriftina því hún fer ekki í gegn- um fyrirtæki hans. Gizkaði hann á að um 1500 manns keyptu þessi blöð í áskrift. Ekki gat Haukur gefið upp ná- kvæmar tölur um sölu þessara blaða. Sagði hann að margir stærri bóksalar flyttu þau inn beint og væri því erfitt að segja um hve mikið af þeim seldist, einnig eru mörg seld beint í áskrift. Eitthvað er um dagblaðainn- flutning, Innkaupasambandið sér um innflutning á sjö blaðatitlum frá Danmörku og Bretlandi. Ekki eru blöð þessi flutt inn í stórum stíl en sumar bókaverzlanir hafa sérhæft sig í dagblaðainnflutn- ingi og hafa á boðstólum blöð annars staðar frá. ' Innflutningur á blöðum er al- gjörlega frjáls og ekki er greiddur tollur af blöðunum. - A.Bj. Af brezku blöðunum eru það blöðin Woman, Womans Own, íþróttablaðið Shoot og Playboy sem eru vinsælust. Dönsku vikublöðin hafa verið heimilisvinir á Islandi í fjölda- mörg ár. Langvinsælast er Hendes Verden en einnig seljast bæði Familie Journalen og Kjemmet vel. tlrval af erlendum Islandi er gríðarlega mikið en ekki seljast nema sárafá eintök af sumum. Andrés önd á metið, selst í 5000 eintökum á viku hverri. DB-mynd Hörður. H blöðum á SÍS hef ur f áraraðir fengið 2% „sölulaun” af útf lutningsbótunum — viðskiptahættir sem ætla má f átíða eða einsdæmi A undanförnum árum hefur það verið föst venja, sem á hef- ur komizt fyrir tilstuðlan þeirra er mest flytja út af land- búnaðarafurðum sem útflutn- ingsuppbóta njóta úr ríkissjóði, að reikna sölulaun af fullu heildsöluverði en ekki að reikna sölulaunin af söluverði hverju sinni. Það eru tveir sláturaðilar sem leyfi hafa til kjötsölu til annarra ianda, Búvörudeild SlS og Sláturfélag Suðurlands. Hefur útflutningur Slátur- félagsins verið lftill því mest af kjöti þess hefur farið á innan- landsmarkað. Búvörudeild SlS hefur því setið næstum ein að útflutningi á lambakjöti. Tíðrætt hefur orðið um lágt verð á lambakjöti erlendis. Ríkissjóður hefur hlaupið undir bagga og greitt mismun- inn á umsömdu söluverði og heildsöluverði innanlands. Þegar íslenzkt lambakjöt er selt til annarra landa á þetta 350 til 400 krónur hvert kíló, eða hvað sem það er hverju sinni, fær söluaðilinn 2% í sölu- laun. Ætla mætti að sölulaunin væru reiknuð af þvi verði sem selt er á. Svo er nú ekki. Sölu- launin hverju sinni eru reiknuð af heildsöluverði hér. Þetta þýðir með öðrum orðum að söluaðilinn fær 2% af útflutn- ingsuppbótunum frá ríkissjóði í hverri sendingu. Þetta munu viðskiptahættir sem ekki þekkj- ast nema f sölu íslenzkra land- búnaðarafurða sem útflutn- ingsuppbóta njóta. - ASt. N0TAÐIR BÍLAR VERÐA LEYFISVARA — en rúgm jöl og sykur sett á frílista Viðskiptamálaráðuneytið hefur tilkynnt að framvegis verði unnt að flytja inn rúgmjöl og sykur án innflutnings- og gjaldeyrisleyfa. Jafnframt hefur verið ákveðið að innflutningur á notuðum fólksbifreiðum verði háður leyfum. Eftir sem áður verður leyfður innflutningur á bifreiðum í eigu þeirra, er flytjast búferlum til landsins, segir í tilkynningu ráðuneytisins. *x***Ml Gerð var könnun á áhrifum lýsingar á vetrarframleiðslu blómaplantna en slík framleiðsla gæti orðið undirstaða útflutnings- framleiðslu á þessu sviði, aó dómi vísindamannanna á-vegum stofn unarinnar. Niðurstöður tilrauna með lýsingu á crysanthemum á sl vetri hafa leitt í ljós að fram- leiðslumagn græðlinga var vanmetið við undirbúning ylrækt- arversins. Við lýsinguna fékkst 10% meira magn af græðlingum en reiknað hafði verið með og ef lýsing var enn aukin frá því sem gert var ráð fyrir í útreikningum varðandi ylræktarverið, með auknum kostnaði við lýsingu, jókst græðiingamagnið enn meira. Rafmagnslýsingin hefur því verið vanmetin og þó ekki verði af byggingu ylræktarvers í náinni framtíð geta islenzkir gróður- húsaeigendur án efa sitthvað lært og fært sér í nyt af þeim tilraun- um sem gerðar hafa verið á veg- um Rannsóknastofnunar land- búnaðarins. -ASt. HHIir undir heilsugæzlu stöðá Hvamms- því verið mjög misjöfn. Fari svo að þeir hrökklist frá völdum eru þeir ekki á köldum klaka. Eftir 5-8 ára starf fá þeir 40% af launum greidd úr líf- eyrissjóði ráðherra en eftir 8-12 ára starf allt að 60%. Þá eru ráðherrar yfirleitt í lífeyrissjóði þingmanna og fá sem slíkir 35% af þingfarar- kaupi eftir 6 ára þingsetu og hækka i þrepum upp i 70%. Auk þessa eru ráðherrar gjarna í öðrum lífeyrissjóðum og eru dæmi til þess að fyrrver- andi ráðherra fái laun úr allt að 3-4 verðtryggðum lífeyris- sjóðum. -HP. LAUGARDAGUR 7. JAN. 1978. vöxtum. Ríkið greiðir síðan allan rekstur bílsins og laun bílstjóra en samkvæmt upplýsingum, sem DB aflaði sér hjá FlB, mun rekstur amerískrar bifreiðar, eins og þeim sem flestir ráðherranna eiga, kosta um 200 þúsund krónur á mánuði. Laun bíl- stjóra erú 160 þúsund kr. á mánuði. Bílana mega þeir selja á frjálsum markaði eftir þrjú ár og er hagnaðurinh skattfrjáls, en þeir fá ekki lán til nýrra bílakaupa nema einu sinni. Með embættinu fylgir svo frír sími og risna er greidd sam- kvæmt reikningi. Hún getur Ylræktarverið: Raflýsingar- þátturinn var vanmetinn Tilraunir sém gerðar hafa verið á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Keldum hafa sýnt að afkoma ylræktarvers ^á tslandi hefði verið betri en búízt var við og reiknað var með á sínum tíma þegar umræður um ylræktarver stóðu sem hæst. » Borgardómari 1977: HJÓNASKILNAÐAR- MÁLUM FÆKKAÐI — og heldur meiri gætni virðist vera í réttum greiðslum víxla Leyfum til skilnaðar að borði og sæng fjölgaði nokkuð við borgardómaraembættið f Reykja- vík árið 1977 miðað við árið á undan. Sl. ár voru veitt 204 leyfi til skilnaðar að borði og sæng hjá embættinu. Árið 1976 voru veitt 188 slík leyfi. Til borgardómaraembættisins bárust 561 skilnaðarmál árið 1977 en 652 árið 1976. Hjónavígslur voru 183 á sl. ári hjá embættinu en 181 árið 1976. Þingfest voru 5.578 mál árið 1977 en 5.641 árið áður. tanga Skriflega flutt dómsmál skipt- ust þannig sl. ár: Dæmd 2.197 á móti 2.186 árið áður. Askorunar- mál 2.005 á móti 2.109 árið 1976. Yfirgnæfandi fjöldi þessara mála voru víxilmál. Sátt var gerð í 397 málum á móti 562 1976. Hafin voru 483 mál 1977 á móti 347 árið 1976. Munnlega flutt mál skiptust þannig að dæmd voru 197 en sætt- ir tókust i 116 málum. Flest munnlega flutt mál eru skaða- bótamál. - BS „Öhemju mikið hefur verið byggt hér á Hvammstanga á undanförnum árum,“ sagði Karl Sigurgeirsson fréttaritari DB. „Byggð hafa verið um tíu hús á ári, næstum því allt einbýiishús. Sveitarfélagið hefur látið byggja eitt hús með fjórum íbúðum sem eru leigðar út. Mikið stendur til í heilsugæzlu- málum okkar. Við erum búnir að fá inn á fjárlögin 20 milljón króna fjárveitingu til þess að hefja framkvæmdir við heilsugæzlustöð af svonefndri H-II gerð. Þar er gert ráð fyrir tveimur læknum. ,Búið er að ákveða teikninguna og er það Jón Haraldsson arkitekt sem hannaði stöðina. Verður hún af sömu stærð og stöðvarnar á Höfn og Dalvík. Annars hefur okkur haldizt vel á læknum siðastliðin ár og hafa tveir læknar verið starfandi hér á Hvammstanga. En þeir starfa við mjög erfið skilyrði f ófullkomnu og gömlu húsnæði. Fjárveiting þessi er árangur af margra ára nuddi og baráttu fyrir að fá þessum málum hrundið af stað. Við vonum innilega að á þessu nýbyrjaða ári verði framkvæmdir hafnar," sagði Karl. - A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.