Dagblaðið - 31.01.1978, Side 4

Dagblaðið - 31.01.1978, Side 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1978. Vegagerðarmenn á Austfjörðum mótmæla rangsleitni hins pólit'ska skipunarvalds í Reykjavík „Mig vantaði ekkert nema fram- sóknarstimpilinn og hann fæ ég aldrei,“ sagði Páll Elísson, vegg- verkstjóri á Reyðarfirði í viðtali við DB í gær. „Þess vegna var gengið fram hjá mér við skipun i starf rekstrarstjóra Vegagerðar ríkisins á Austfjörðum", bætti Páll við. Fastir starfsmenn Vegagerðar- innar á Austfjörðum héldu fund á Reyðarfirði sl. föstudag. Sam- þykkti fundurinn einróma að lýsa stuðningi við umdæmisverkstjór- ann á Reyðarfirði, Einar Þor- varðarson. Hann mælti með Páli í starfið, sem þrír menn sóttu um í desember sl. Fundurinn samþykkti einnig að mótmæla þeirri ráðstöfun sam- gönguráðuneytisins að ganga 'fram hjá tveim reyndum starfs- mönnum Vegagerðarinnar í áður- greinda stöðu, þvert ofan i tillögu umdæmisverkstjóra og Vegamála- skrifstofunnar. í stöðuna var skipaður yfirlýstur framsóknar- maður, Guðjón Þórarinsson raf- virki á Reyðarfirði. „Ég neita því ekki, að mikil óánægja sé með þessa skipun,“ sagði Einar Þorvarðarson umdæmisverkstjóri í viðtali við DB í gær. Hann vildi ekki stað- festa að hann hefði sagt upp stöðu sinni í mótmælaskyni við ákvörðun samgönguráðherra í þessu máli. Hann vildi raunar ekki tjá sig um málið á þessu stigi. Egill Jónsson umdæmisverk- stjóri lét af störfum fyrir aldurs sakir. Losnaði þvi staða hans. Var hún auglýst til umsóknar. Þrír menn sóttu: Páll Elísson, sem starfað hefur hjá Vegagerðinni í 16 ár, Sigurjón Ölafsson verk- stjóri, sem starfað hefur hjá Vegagerðinni í yfir 20 ár, þó ekki óslitið, og loks Guðjón Þórarins- son rafvirki. Hann var ekki meðal starfsmanna Vegagerðarinnar. „Framsóknarmenn hér eystra eru hvað harðastir i mótmælum sínum gegn ráðstöfun samgöngu- ráðherra," sagði Páll Elísson. Talið er að margir þeirra hafi sagt sig úr Framsóknarfélaginu á Reyðarfirði út af þessu máli. „Það er þess vegna rétt að það komi skýrt fram að mótmæli við rangs- leitni skipunarvaldsins" eru almenn og ekki bundin við flokka," sagði Páll Elísson. „Hér er heldur ekki verið að ræða verðleika mannsins sem stöðuna hlaut að öðru leyti en því að hann er tekinn fram yfir reynda starfsmenn Vegagerðar- innar vegna pólitískra skoðana sinna,“ sagði Páll. „Það er siðle.vsi veitingavaldsins sem verið er að mótmæla. Ég hefi að sjálfsögðu sagt upp starfi mínu hjá Vega- gerðinni,“ sagði Páll að lokum. BS ffiíoBi Ilitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í að b.vggja þjónustuhús f.vrir varmaorkuver við Svartsengi. Húsið er 2 hæðir, 666 ferm að grunnfleti og að mestu leyti reist í forsteyptum einingum. Verkinu skal lokið á þessu ári. Útboðsgagna má vitja gegn 50 þús. kr. skilatr.vggingu frá og með miðvikudeginum 1. febrúar á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut 10 A, Keflavík eöa á Verkfræðiskrffstofunni FJARHITÚN H/F ALFTAMÝRI 9 Rvík. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja . þriðjudaginn 14. febrúar 1978 kl. 14. >---------- í HITAVEITA SUÐURNESJA íMj fit/fr i MENN t síöasta sinn gefst kostur á 'B-námskeiði fvrir verðandi atvinnuflugmenn eftir gamla laginu. Skilyrði: Einkaflugpróf og 120 flugtímar þ. 15. jan. sl. ÞETTA TÆKIFÆRI GEFST ALDREI AFTUR. NAMSKEIÐIÐ HEFST í BYRJUN FEBRÚAR. Innritun í sima 28122. PEY5UDEILDIN Sérverzlun, kjallaranum, Miðbæjarmarkaðnum, Aðalstræti 9, sími 10756. Með vonda samvisku Sjónvarp: PÓKER Sjónvarpskvikmynd eftir Björn Bjarman Leikstjóri: Stefán Baldursson Stjórn upptöku: Tago Ammendrup Björn Bjarman sækir allt sitt skáldskaparefni suður á Völl, til mannlífs i kringum kanann í Keflavík. t sjónvarpsleikriti sínu á sunnudagskvöld var hann enn að fást við frásagnar- efni sem í rauninni var aldrei á enda kljáð í hinum fyrri sögum hans, smásögunum í heiðinni og skáldsögunni Tröllin.Það er svo sem ekki víst að hann sé í Póker kominn neitt nær endan- legri úrlausn þess en áður i sögunum. Aftur á móti leiddi sjónvarpið frásagnar- og úr- lausnarefni höfundarins einkar skilmerkilega fyrir sjónir. Eftirtektarverðast við Póker (og kemur heim við ýms önnur leikverk í sjónvarpi að undan- förnu) var raunar vaxandi vald leikenda og tæknimanna á þessum miðli, sjálfbjarga myndrænni frásögn. Iðulega fannst manni í Póker lýsing fólks og atvika, manngerða og kringumstæðna alveg ,,rétt“ — það sem hún náði. En texti leiksins, orðræða fólksins kom ekki allskostar heim við mynd þess á skjánum, nægði kannski til að segja frá eða sýna fram á það, en ekki til að sanna það sem lifandi fólk og gera þar með vanda þess ljóslifandi fyrir áhorfendum. Gá ber samt að því að kvikmyndarar og leik- arar komast aldrei lengra en efniviður höfundarins leyfir þeim. Úrlausnarefni þeir'ra í leik og mynd er fólgið í textan- um þótt ófullkominn sé. ög Póker varð, þrátt fyrir allt, á ýmsa lund ásjálegt verk í sjón- varpinu. Alli bílstjóri í Póker er eins og hinar fyrri söguhetjur Björns Bjarmans maður með vonda samvisku. Hann er kominn að vestan, utan af sjó, en lifir á snatti kringum kanann og Völlinn lifi sem honum finnst ekki sæma. Hann er til þess knúinn að leggjá allt sitt undir í spili sem hann getur ekki nema tapað — rétt eins og forþenustan úr akstrinum, snattinu, sm.vglinu gengur öll upp í pókerspili. við félaga hans á stöðinni. Þótt þáu Sigmundur Örn Arngrímsson og Valgerður Dan: konan hans, Þóra, kæmu prýðilega vel fyrir í hlutverkunum varð samt lýsing þeirra langsamlega óskýrust í leiknum. Þegar kom að því að láta uppi hug þeirra og tilfinningar voru þau óðara farin að tala upp úr vondri bók. Samt er sá vandi sem þau eiga við að fást, ánetjuð verðmæta- mati sem þau innst inni hafna, lífsháttum sem eru þeim um megn, eiginlegt úrlausnarefni Björns Bjarmans í Póker eins og áður í sögum hans. Þessi mannlýsing (og hún var bara ein þótt hjónin væru svo sem tvær manneskjur) var í Póker látin uppi í frásögn sem var broslegri en hún var beiskjuleg, allt að farsaleik með köflum. Og það var raunar hversdagslýsing leiksins sem f langhelst gaf honum gildi. Þar er sagt frá harki Alla i kringum Völlinn, harðsvíruðum félögum hans á stöðinni sem plokka hann i póker, stelpum i snatti kringum kanann, og frá viðskiptamanni Alla, Jensen kana og kvennaraunum hans í Reykjavík. Þar var farsinn alveg orðinn ofan á i meðferð efnisins, en Róbert Arnfinns- son: Jensen og Kristbjög Kjeld: Rósa frilla, fóru þann veg með hlutverkin að það varð ekki tómur skrípaleikur, þau voru reyndar manneskjur lika. Birni Bjarman lét í Póker til muna betur að lýsa fólki og manngerðum af því tagi sem nú var nefnt, en alvarlegum tilfinningalegum vanda Alla og Þóru. Og leikarar og tæknilið komu frásagnarefni hans lipur- lega og ásjálega fram í sjón- varpinu. 1 þeim atburðum leysist líka vandi Alla. Þegar hann getur sjálfur blöffað í póker, þá er hann orðinn að manni. Klandrið með Jensen verður til að banda honum burt frá spillingarsvelgnum á Vellinum þar sem hann vill hvort sem er ekki vera . í öku- túr í kirkjugarðinn í Keflavík (atriði sem var alveg merkilega vel gert, hverjir léku eiginlega þessa jarðarför?) er líf hans við að snúast í martröð. Þá snýr hann bara frá, drífur sig aftur á sjóinn þar sem hann á líka best heima, stendur uppi í stafni í lokin, og á lífið framundan. Þessi lausn var nú dálítið eins og límd upp á leikinn þótt hún hentaði svo sem frásagnar- efni og frásagnarmáta hans að öðru leyti. Til að hún orkaði l sannfærandi, geymdi lausn á raunverulegum vanda en ekki bara leik. hefði til þurft miklu nánari lýsingu Alla og þeirrar kreppu lífshátta og tilfinninga sem vanda hans skapar. Alli er þrátt fvrir allt ekki einn urn hana. Leiklist . —t. i ’vmm 'wsm: w Frá upptökunni á Póker: Stefán Baldursson leikstjóri ræðir við Margréti Helgu Jóhannsdóttur leikkonu. DB-mynd: — emm.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.