Dagblaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1978. sund í blöðum og sjónvarpi Bílavörubúðin Fjöðrin h.f. SkMÍin 2, sími 82944. 15 ára Ægisfélagi skrifar: Mig langar að koma einni spurningu á framfæri við fjöl- miðla, aðallega sjónvarpið. Teljið þið ekki sund til íþróttagreina? Einstaka sinnum hefur verið minnzt á sund í blöðum, ennþá sjaldnar í sjónvarpi og eru það þá yfirleitt smáklausur, þar sem rétt er minnzt á hvaða mót þetta var og hvar það var haldið. Síðan er talið upp hvaða fólk var í þrem fyrstu sætunum i hverri grein og búið. Þetta á þó aðeins við um stærri mótin, þessi minni er hreinlega ekkert minnzt á. Ég get tekið sem dæmi að sunnu- daginn 12. febrúar var Ung- lingameistaramót Reykjavíkur haldið. Þess var að engu getið I blöðum og útvarpi, hvað þá í sjón-varpi. Þessi Bjarni Felixson sýnir allt annað en sund í íþróttaþátt- um sjónvarpsins. í þau fáu skipti sem hann hefur sýnt sund er það yfirleitt eða alltaf bláendirinn á nokkrum grein- um og siðan hraðlestur á úrslit- um. Um daginn fóru þrír krakkar á Norðurlandameistaramót unglinga í Noregi. Þar voru sett Islandsmet og einn íslending- anna fékk tvö brons. Af þessu var sagt í blöðum, eitthvað minnzt á þetta f út- varpi og fréttaþætti sjónvarps- ins. Þar var sagt að Bjarni Felixson mundi skýra nánar frá þessu í íþróttaþættinum seinna um kvöldið. Hvílík undrun kom yfir oss. Hann minntist á sund (var neyddur til þess). Eg er viss um, að ef tími hefði verið tek- inn af honum meðan á lestrin- um stóð hefðum við eignazt annan heimsmeistara. I þetta sinn í hraðlestri. Það er ekki hægt að afsaka sig með því að lítill tími sé fyrir hendi, þvi ekki veit ég betur en það séu sýndir heilir og hálfir handknattleiksleikir, kapp- akstur og sífellt lengri myndir af skíðamótum. Og hverjum er það öðrum að kenna en fjölmiðlunum að lítil aðsókn er að sundmótum. Það er mjög sjaldan eða réttara sagt auglýst að halda eigi sundmót. Eg skora því á fjölmiðla að reyna að bæta úr þessu. Og þú, Bjarni Felixson, skrepptu nú á eitt mót, t.d. íslandsmeistara- mótið í næsta mánuði og taktu kvikmyndir af nokkrum grein- um og þeirri stemmningu, sem alltaf ríkir þar. Eitt get ég sagt þér, sundmót eru ábyggilega ekkert síðri til sýninga en íshokki og kapp- akgtur, sem fáir hafa áhuga á. HERSTEHÖVf?: 7/C '/zj/'O &/& Svo ve, TREKKJa) ufr/o/ /-/£>. OG ] A/*)/ J -

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.