Dagblaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 22
GAMLA BÍÓ
8<mJ 11475
VILLTA
VESTRIÐ
SIGRAÐ
Kvikmyndir
Austurbæjarbío: Marturinn á |)akinu kl. 5
9.15. Bönnurt innan 14 ára.
Bæjarbíó: C.ula Emanulk*. kl. 5. H. 10. Bönnuó
innan 16 ára.
Gamla bíó: Villta vostriö si«raö. kl. 5. 9.
Hafnarfjaröarbío: kjarnorkubillinn kl. 9.
Haskolabío: Orustan virt Arnhvim kl. 5 oíí 0.
Bönnuö Ix'irnum.
Laugarasbíó: (loncsis á hljómlcikum. cndur-
sýnd kl. 5. 6. 7 (»« K. Crash kl. 9 oy 11. Bönnurt
hörnum innan 16 ára.
Nýjabíó: Svifdrckasveitin. kl. 5. 7. 9. Bönnurt
innan 14 ára.
Regnboginn: A. My Fair Ladý. kl. 5. 6.40. 10.
C. Khckir kastala|>jönsins. kl. 5.10. 5.10. 7.10.
9.10. 11.10. Bönnuö innan 16ára. D. Pcrsona.
kl.5.15. 6. 7.8.50. 11.05. Bönnuöinnan I6ára.
H0WTHEWEST
7;Ki
11/
From METR0-G0LDWYN-MAYER
and CINERAMA. METROCOLOR
Nýtt eintak af þessari frægú og
stórfenglegu kvikmynd og nú
með íslenzkum texta.
Sýnd kl. 5 og 9.
Hækkað verð.
Bönnuð innan 12 ára.
Síöasta sinn.
Stjömubíó: Odcssaskjölin kl. 5. 7.30 ofi 10.
Bönnuó innan 14 ára.
Tónabíó: CauraKanKur í Kafwó: kl. 5. 7. 9.
Hjallafiskur
Merkið
sem vann harðíisknam nafn
Farst hjð:
LCLLABCÐ
Hverfisgötu
H ja llu r hf. - Sökisim12 3 4 72
Sjónvarp í dag kl. 18.35:
Hér sé stuð með Deildarbungubræðrum:
Þættirnir eru móðgun
við poppáhugafólk
Hér sé stuð heldur áfram i sjónvarpinu í dag og að þessu sinni eru
það Deildarbungubræður sem spila i þykjustunni við undirleik
nýjustu hljómplötu sinnar Enn á jörðinni. — F.vrsti þátturinn í
þessum flokki var sýndur síðasta miðvikudag og ef framhaldið er
eitthvað likt þeim f.vrsta er gerð þeirra móðgun við poppáhuga-
fólk og sjónvarpsáhorfendur yfirleitt. Undirritaður er hissa á að
Egill Eðvarðsson skuli leggja nafn sitt við slíka framleiðslu.
Æðsta boðorð sjónvárpsins um að leggja frekar áherzlu á magn en
gæði situr svo sannarlega t fyrirrúmi við gerð þáttanna Hér sé
stuð. — AT/DB-m.vnd: Arni Páll.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1978.
H
Útvarp
Sjónvarp
I
Sjónvarp í kvöld kl. 21.00: Vaka
Ljósmyndun sem listgrein
,,Þaó er ætlunin að fjalla um
ljósmyndun i þættinum í kvöld,
kanna aðferðir við ljósmyndun og
notkun ljósmynda. Munum við í
þeim tilgangi t.d. heimsækja tvær
ljósmyndasýningar sem nýlega
voru haldnar hér, þær eru Ljós á
Kjarvalsstöðum og sýning sem
Árni Páll hélt nýlega," sagði
Aðalsteinn Ingólfsson okkur.
Aðalsteinn er umsjónarmaður
Vöku, sem er á dagskrá sjónvarps-
ins i kvöld kl. 21.00.
„Einnig munum við kanna ljós-
myndir Sigfúsar Eymundssonar
frá upphafi en hann var fyrsti
atvinnuljósmyndari okkar og tðk
heimildamyndir.
hans og myndir.
„Einnig mun ég skoða ljós-
myndavélar og alls kyns tæki í
sambandi við ljósmyndun allt
frá aldamótum og fram til dagsins
í dag og ætla þeir Rúnar Gunnars-
son og Leifur Þorsteins.son að að-
Þá munum við athuga myndir
Jóns Kaldals en hann var heiðurs-
gestur ljósmyndasýningarinar
Ljós. Jón tengir á nokkurn hátt
heimildaljósmyndun og listljós-
myndun, því að margar ..portrait"
myndir hans eru heimildamyndir,
en jafnframt svo listalega teknar
að telja verður þær einnig með
listljósmyndunar."
Þá mun Aðalsteinn athuga
vinnu hinna svokölluðu ,,concept“
ljósmyndara og einnig mun hann
líta inn á auglýsingaljósmynda-
stofu og ræða þar við apg-
lýsingaljósmyndara uní starf
stoða mig við það.“ sagði Aðal-
steinn aó lokum.
Þátturinn. sem er í litum, tekur
um 40 mínútur í flutningi og er
Egill Eðvarðsson stjórnandi
upptöku.
RK
meóal þess sem fjallaó verður um í Vöku í kvöld er sýning Arna Páls.
Ljósm. Ragnar Th. Sig
Útvarpið íkvöld kl. 21.25: Ananda Marga
„Ananda Marga er hreyfing
sem starfar í um það bil 80
löndum og er upprunnin í
Indlandi," sagði Guðrun
Guðlaugsdóttir okkur en hún er
umsjónarmaður þáttar sem er á
dagskrá útvarpsins i kvöld kl.
21.25 og nefnist An'anda Marga.
„Félagar í Ananda Marga ''ást við
jógavisindi, sem eru fólgin i hug-
íeiðslu og réttu mataræði. Þeir
hafa sérstakan matseðil til þess.að
fara eftir og eru aðalréttirnir
grænmeti og kornmatur."
Það hefur verið i kringum 1973
sem þessi hreyfing festi rætur
hér, og í dag rekur hún leikskóla
og verzlunina Kornmarkaðurinn,
sem er á Skólavörðustíg 21 a, sem
samkvæmt boðskap hreyfingar-
innar verzlar m.a. með korn,
brauð og eitthvað af ávöxtum.
f þættinum mun Guðrún spjalla
við nokkra félaga Ananda Marga
og munu þeir segja frá
JÓGAVÍSINDI
hreyfingunni, markmiði hennar.
starfsemi leikskólans og rekstri
verzlunarinnar. Auk þess verður
leikin hljómlist, sem meðlimir
hreyfingarinnar hafa samið
sjálfir, þannig að auðséð er að
þeim er margt til lista lagt.
Samkomur eru haldnar innan
ihreyfingarinnar og hefur
bæklingum með upplýsingum um
stárfsemina verið dreift og mun
einnig hægt að fá þá í verzluninni
að Skólavörðustíg.
Þátturinn er hálftima langur.
Guðrún Guðlaugsdóttir mun ræða
við félaga í hreyfingunni Ananda
Marga í útvarpinii í kvöld kl.
21.25.
Snöggklippt Emmanuelle
Bæjarbíó: Gul Emmanuelle (Yellow
Emmanuello). Framleiöandi: Miracle Films,
London. Tónlist: Nico Fidenco. Litir: East-
mancolor. Leikstjóri: Albert Thomas.
Sá misskilningur virðist ríkj-
andi að Bæjarbíó sé nú að sýna
mynd er höfðar til kynhvatar-
innar, og lái ég engum þann
misskilning. Emmanuelle
myndirnar hafa. allar götur
fram til þessa, verið innihalds-
litlar og oftast fjallað um fall-
egar, lesbiskar stelpur sem
stríplast í fögru umhverfi.
Þessi Emmanuelle stimpill á
heiti m.vndarinnar laðar þá að
sem leita eftir kynlífssenum en
heldur frá áhugamönnum um
hinn raunverulega efnisþráð.
George Tayior (Giuseppe
Pampigri) er flugmaður sem
verður ástfanginn af dr. Emy-
Emmanuelle-Wong (Chai Lee)
dóttur kir®ersks auðmanns.
Ilann slasast og er lagður inn á
sjúkrahús þar sem Emy vinnur
(dæmigert). Og þegar hann svo
nær fyrri heilsu býðst honum
húsrúm hjá Helen sem er
„starfskraftur" saráa flugfélags
i Hong Kong. Helen veitir
honum annað og meira en hús-
rúmið eitt, hún leyfir honum að
leika eins mikið við sig og hann
lystir.
Eitt skiptið þegar þau njóta
ásta niðri á strönd, undir hljóm-
um brimrótsins og stórgóðri
Kvik
myndir
GarðarSverrisson
tónlist Nico Fidencos, er lista-
verkið skemmt meö fáránlegri
klippingu og við tekur samtal
án undirleiks. Þvílík vinnu-
brögð: Karlmaður og kven-
maður tvö ein á ströndinni með
rómantískt landslag að baki sér
og fallega tónlist, þá er klippt í
stað þes§ að leyfa áhorfendum
að njóta þess er heilbrigt getur
talizt.
Jæjfe Emy verður hrifin af
George en samkvæmt kínversk-
um venjum fer hún sér rólega
og vill kynnast honum vel áður
én lengra er haldið. Þessi af-
staða hennar ýtir vafalítið
undir hrifningu hans og honum
fer að þykja samvera sín og
Helen skammgóður vermir.
Myndin er þess eðlis að ég tel
rangt að rekja efni hennar
frekar, og fyrir alla muni lítið
ekki í leikskrána f.vrir sýningu.
Leikur (Chai) Lee getur
varla verið betri. En ' (Giu-
seppa) Pampieri kemst ekki
nógu sannfærandi frá hlutverki
sínu, þrátt fyrir góða spretti.
Nú, Nico Fidenco semur mjög
góða tónlist sem fellúr vel inní
.hinar mismunandi senur mynd-
arinnar. Fyrir utan áðurriefnda
V
<lippingu skemmdu óánægðir
strákar sýninguna, auk út-
gönguglaðra frakkakarla.
Þessi mynd er fallegt ástar-
ævintýri er gerist i fögru um-
hverfi, laus við klámfengni og
aðra ónáttúru. Hins vegar er
hún ekki alveg laus við væmni.
en er hún ekki tíður fylgifiskur
flestra ástarsagna?
Án þess að hafa séð þá frægu
mynd Love Story — hef k.vnnt
mér efnið — tel ég ekki fráleitt
að álykta Gulu Emmanuelle
stælingu á henni.
Garðar Sverrisson.