Dagblaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1978. * " Viðræðufundur ASÍog vinnuveitenda: Sameinast þeir um tillög- urgagnvart ríkisvaldinu? „Kannski þeir leiti fulltingis okkar gagnvart ríkisvaldinu til framgangseinhverjum tillögum um aþ auka kaupmáttinn án beinnar kauphækkunar." sagði Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags íslenzkra iðn- rekenda, i gær um viðhorf ASÍ- manna á viðræðufundi sínum. V i 1.1 Ásmundur Stefánsson, hag- fræðingur ASl, sagði að ASÍ- menn væru reiðubúnir að skoða hvaða leiðir sem væri til að auka kaupmátt án krónutölu- hækkunar kaups. ,,Við verðum í viðræðum við atvinnurekendur að reyna að finna út, hvaða slíkar leiðir koma til greina,“ sagði Ás- mundur. ,,Við teljum ekki rétt að i)inda okkur við neitt sér- stakt." Davíð kvaðst vona, að samn- ingar í framtiðinni mundu ekki mistakast jafn hrapallega og í fyrra. Á viðræðufundi ASl- og vinnuveitenda í fvrradag var skipzt á ..orðsendingum". ASÍ setti fram kröfu um, að laun- þegum vrði bætt kjaraskerðing- in, sem efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar fólu i sér. Mótmælt var kauptöxtum, sem vinnuveitendur hafa gefið úl. sem væru ekki einu sinni í sant- ræmi við „kjaraskerðingarlög- in" heldur verri. Vinnuveitend- ur bentu á alvarlegt ástand at- vinnuvega og sögðu. að það væri ekki hagur launþega að knýja fram hærra kaup en at- vinnuvegirnir gætu staðið undir. - HH Gallerí Sólon íslandus enn á götunni: RAGNAR í SMÁRA RÉTTIR FRAM HÖND Ragnar í Smára er löngu þekkt- ur sem sannur vinur listamanna hér á landi. Núna hefur hann einu sinni ennþá sýnt að listin er löng þó að lífið sé stutt. Þegar Gallerísmenn Sólon íslandus hurfu brott úr húsnæði því sem þeir hafa leigt við Aðalstræti vegna hækkaðrar leigu réttu Ragnar og aðstandendur hans þeim strax fram höndina og buðu alla þá aðstoð sem þeir vildu nota. Síðan hafa aðrir fvlgt í kjölfarið og boðið aðstoð sína. Sagði Örn Þorsteinsson, sem er einn af gallerísmönnum, að þetta hefði verið þeim félögunum ómetan- legt. Er þá ekki sízt átt við þann siðferðilega stuðning sem þessi tilboð fela í sér. Nú eru gallerísmenn að leita sér að nýju húsnæði og ætla að halda fund í dag með fjársterkum aðilum og lögfræðingum. Reyna á til þrautar hvort galleriinu beri ekki einhverjar skaðabætur vegna svo sk.vndilegrar uppsagn- ar. í þeim upphaflegu munnlegu samningum sem gerðir voru við Valdimar Þórðarson, þáverandi eiganda hússins í Aðalstræti, var sagt sem svo, að sögn Arnar, að safnið gæti fengið að vera í húsinu í nokkur ár: Þegar hins vegar skriflegur samningur var gerður. rétt fyrir opnun fvrstu sýningarinnar, stóð í honum að hann gilti aðeins til árs. Nú er þetta ár liðið og nýr eigandi tekinn við húsinu. Það er Þorkell. sonur Valdimars. Að sögn Arnar setti hann fram kröfu um það að Galleríið borgaði rúmlega helm- ingi hærri leigu en það hafði gert (hækka átti úr 46 í hundrað þús- und) án þess að bjóða í staðinn nokkurn fastan samning. Endur- nýja átti leigusamninginn frá mánuði til mánaðar. Þessu vildu listamennirnir ekki una og fluttu út með allt sitt hafurtask eins og kunnugt er orðið af fréttum. Siðan sögðust þeir ekkert hafa heyrt frá Þorkeli og ekki náð í hann þrátt fyrir tilraunir. Örn sagði að þeir listamennirn- ir sem rekið hafa Gallerí Sólon tslandus væru ákaflega óhressir með að málum hefði lvktað þann- ig. Þegar þeir tóku húsið á leigu hafði það staðið autt í 7 ár vegna bruna. Þeir gerðu húsið upp að verulegu leyti í trausti þess að fá að vera í þvi eitthvað áfram. Vitað er að Þorkell Valdimars- son hefur önnur sjónarmið i þessu máli en listamennirnir. Hann telur að samningar hafi ekki verið brotnir því hann hafi verið í fullum rétti til þess að hækka leiguna. Fasteignagjöld hússins hafa verið hækkuð veru- lega og stóð fyrri leiga h’vergi nærri undir að greiða þau. -ns EITTHVAÐ SEM ENGINN VEIT Leikfélag Kópavogs: VAKNIÐ OG SYNGIÐ Leikrit eftir Clifford Odets Þýðing: Ásgeir Hjartarson Leikstjórn: Haukur J. Gunnarsson Leikmynd: Björn Björnsson Hvað skyldi það vera sem um þessar mundir togar hug leikhús- fólks vestur til Ameríku og aftur á fjórða tug aldarinnar?, Eitthvað er það. Eftir Refina í Iðnó á dög- unum kom Leikfélag Kópavogs um helgina með Vaknið og svngið Leiklist OLAFUR JÓNSSON / %$■■ m W Mv i Æ lals? ■■i%\% * Pg" ■ \ ■ Svanhildur Jóhannesdóttir og Konráð Þórisson í hlutverkum. eftir Clifford Odets. bæði tvö ann- álsfræg frá því fyrir stríð. Clifford Odéts var fyrir eina tíð talinn með heldri leikritahöfund- um í Bandaríkjunum og þá einatt nefndur í sömu andránni og Tennesse Williams. Arthur Miller. En það er langt orðið síðan og mér er nær að halda að hann hafi aldrei staðið til fulls við þau fvrirheit sem þóttu felast í fvrstu leikjum hans. Helst þeirra er Vaknið og svngið, frá 1935, og gerist á kreppuárunum í New York. sem Williams fjallar utn í Glerdýrunum, Miller löngu síðar í Gjaldinu Nema hér er kreppu- tímanum lýst í návigi samtíðar. Það er satt að segja örðugt að ráða í verðleika eða gildi leiksins á þeirri tíð án þess að hafa annað fyrir sér en sýningu Leikfélags Kópavogs. En ætla má að leikur- inn eigi allt sitt komið undir raun- sæislegri persónugerð í hlutverk- unura. að i krafti rauntrúrra mannlýsinga og aldarfars eigi að kvikna skáldlegur skilningur mannlífs og örlaga og ljóðræn andagift í leiknum. En því fór viðs fjarri. því miður. að neitt slíkt eða þvílíkt skeði í Knpavogi á laugardaginn. Að leiknum loknitm er manni satt að segja óskiljanlegt hvaða erindi leikfélagið hefur talið sig eiga að rækja við hina fertugu kreppu- lífslýsingu — og raunar ósýnt. þótt tekist hefði að blása rvk af orðræðu og hugmvndaheimi leiks- ins, til hvers þá hefði verið að vinna. Hlins og til tókst varð sýn- ingin með einhverjum hætti hjá- róma frá bvrjun, uppgerð og inn- antóm og alls andvana. En bágt er að sjá af hverju svona þurfti að fara. öll ástæða að ætla að leik- endur eins og Guðriður Guð- björnsdóttir. Svanhildur Jóhann- esdóttir. Viðar Eggertsson, Kon- ráð Þórisson gætu að réttu lagi megnað miklu trúverðugri per- sónusköpun í nokkrum helstu hlutverkum leiksins. Án staðfestu í raunheimi er enginn fótur fyrir 1 jóðrænni tilfinningalýsingu fólksins sem leikurinn virðist- stunda eftir. Þá fótfestu hafði leikstjóra og leikhóp hreint ekki tekist að finna leiknum í Kópa- vogi. Það er leitt að svona skyldi tak- ast-Þvrað þrátt fvrir sín hrapal- legu mistök á efninu, þótt aldrei tækist að vekja því líf og anda í leiknum. virtist heilmikil alúð hafa vérið lögð við sýninguna. Og það er tvíma'lalaust rétt stefnt að efla í leikfélaginu samvinnu áhugafólks og ungra skólageng- inna leikara eins og hér var reynt. En forustan brást. Það var eins og enginn vissi af hverju verið væri að leika þennan leik, né þá hvern- ig ætti að fara að þvi. Nemendaleikhús4-S, L.Í. Leikst jóri: Bríet Héðinsdóttir. Leikmvnd: Guðrún Svafa Svafarsdóttir. sýnir leikritið Fansjen eða Umskiptin 'eftir David Hare í Lindarbæ. 2. sýning miðvikudaginn 15. niarz kl. 20.30. 3. sýning fimmtudaginn 16. marz kl. 20.30. 4. sýning föstudaginn 17/marz kl. 20.30. NÝIR UMBOÐSMENN: SÚÐAVÍK Bjarni GuðjónssonTúngötu 18, sími6945 BREIÐDALSVÍK Höskuldur Egilsson Gljúf raborg, sími 5677 mmiAÐW LEIKFÖNG í ÚRVALI Hin vinsælu PLAÝ M0BIL leikföng fást hjá okkur. Einnig búsáhöld og falleg- ar enskar leirvörur o.fl. o.fl. Við höfum innanhússbílastæði. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. LEIKB0RG Hamraborg 14. Kópav. Sími 44935.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.