Dagblaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 1
Miðvikudagur
22. marz
18.00 Ævintýri sótrarans (L) Tékknesk leik-
brúðumynd. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.10 Bréf frá Karli (L) Karl er fjórtán ára
blökkudrengur sem á heima í fátrækrahverfi í
New York. Margir unglingar í hverfmu eiga
heldur ömurlegt líf fyrir höndum, en Karl og
félagar hans eru trúræknir og fullir bjartsýni.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.35 Framtíð Fleska (L). Finnsk mynd um feit-
laginn strák, sem verður að þola stríðni félaga
sinna i skólanum. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision — Finnska sjónvarpið).
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Skiðaæfingar (L). Þýskur myndaflokkur. 6
þáttur. Þýðandi Eiríkur Haraldsson.
21.00 Nýjasta takni og vlsindi (L). Umsjónar-
maður Sigurður H. Richter.
21.30 Erfiðir tímar (L). Breskur myndaflokkur 1
fjórum þáttum, byggöur á skáldsögu eftir
Charles Dickens 3. þáttur. Efni annars þáttar:
Dag nokkurn segir Gradgrínd dóttur sinni, að
Bounderby vilji kværiast henni. Hún fellst á
ráðahaginn. Bounderby býður ungumstjóm-
málamanni, Harthouse höfuösmanni, til
kvöldverðar. Greinilegt er, að hann er meira
en lítið hríflnn af Lovísu. Félagar Stephens
Blackpools leggja hart að honum að ganga i
verkalýðsfélagið, en hann neitar af trúar-
ástæðum, þótt hann viti, að hann verður út-
skúfaður fyrir bragðið. Bounderby rekur hann
úr vinnu eftir að hafa reynt árangurslaust að
fá upplýsingar um félagið. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.20 Dagskralok.
Sjönvarp
D
Miðvikudagur
22. mars
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
Sjónvarp á föstudaginn langa kl. 20.20:
Maðurinn sem sveik Barrabas
FYRSTA ÍSLENZKA
LEIKRITIÐ í LITUM
Maðurinn sem sveik Barrabas er
eftir Jakob Jónsson frá Hrauni, eins
og séra Jakob kýs að kalla sig við
samningu skáldverka. Það byggir á
frásögn biblíunnar að örlitlu leyti en
er annars skáldskapur. Sagt er frá
Barrabasi sem með flokk manna
hyggst gera uppreisn gegn hinu róm-
verska riki. En ekki fer allt eins og
ætlað var og kemur maður nokkur að
nafni Kristur mikið við sögu.
Leikurinn er látinn gerast í Jerúsal-
em pg nágrenni siðustu dagana fyrir
krossfestingu Krists. Leikstjóri er Sig-
urður Karlsson en helztu leikendur
Þráinn Karlsson, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Jón Hjartarson og Arnar
Jónsson.
Þar sem Maðurinn sem sveik
Barrabas er fyrsta leikritið sem tekið er
i litum í íslenzku stúdíói er mikið í það
borið og vandað til þess í hvivetna. En
gallinn er sá að i svart/hvitu verður
lítið eftir af allri dýrðinni. Menn verða
þvi liklega að drifa sig í heimsókn til
kunningjanna, eigi þeir ekki litsjón-
varp.
Á forsýningu sem haldin var á leik-
ritinu fyrir blaðamenn og aðstand-
endur óskaði höfundurinn sérstaklega
eftir því að þakklæti hans kæmi fram í
blaðagreinum. Sagðist hann vera ein-
staklega þakklátur fyrir þann hlýhug
og það góða samstarf sem ríkt hefði
við töku leikritsins og að án þessa
hefði ekki verið hægt að gera svo góða
hluti sem raun varð á.
DS Ragnheiður Steindórsdóttir leikur Mikal, unnustu Barrabasar.
Föstudagurinn langi er oft skelfilega
þungur og leiðinlegur hvað varðar efni
I bæði útvarpi og sjónvarpi. En þessi
verður ánægjuleg undantekning.
Fyrst um daginn er sýnd hin ágæta
mynd Þrúgur reiðinnar, gerð eftir
sögu Steinbecks. Og um kvöldið eftir
fréttir verður sýnt glænýtt íslenzkt
sjónvarpsleikrit. Maðurinn sem sveik
Barrabas og er það í litum.
14.30 Miódegi&sagan: „Reynt að gleyma” eftir
Alene Corliss Axel T horsteinson les þýðingu
sina(10).
15.00 Miðdegístónleikar. a. Janet Baker og
Dietrich Fischer-Dieskau syngja tvisöngva
eftir Franz Schubert; Gerald Moore leikur á
pánó. b. Pro Arte kvartettinn leikur Pianó-
kvartett í c-moll, op. 60 eftir Johannes
Brahms.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popphom Halldór Gunnarsson kynnir.
17.30 Ctvarpssaga barnanna: „Dóra” eftir
Ragnheiði Jónsdóttur Sigrún Guðjónsdóttir
les (19).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki, m.a. sagt frá Skiða
móti Islands.
19.35 Gestur i útvarpssal: Þýzki pánóleikarinn
Detlev Kraus leikur Fjórar ballöður op. 10
eftir Johannes Brahms.
20.00 Af ungu fólki. Anders Hansen sér um þátt
fyrir unglinga.
20.40 „Hörpukliður blárra flalla” Jónina H.
Jónsdóttir leikkona les úr Ijóðabók eftir Stefán
Ágúst Kristjánsson.
20.50 Stjörausöngvarar fyrr og nú Guömundur
Gilsson rekur feril frægra þýzkra söngvara.
Niundi þáttur: Richard Tauber.
21.20 Réttur til starfa. Þorbjörn Guðmundsson
og Snorri S. Konráðsson stjórna viðtalsþætti
um iðnlöggjöf.
21.55 Kvöldsagan: „Dagur er upp kominn” eftir
Jón Helgason. Sveinn Skorri Höskuldsson les
(2).
22.20 Lestur Passíusálma Jón Valur Jensson
guöfræðinemi les 49. sálm.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
22.50 Svört tónlist Umsjón; Gérard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Q Útvarp
_________>
Fimmtudagur
23. marz
SKÍRDAGUR
8.00 Morgunandakt, Séra Pétur Sigurgeirsson
vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir 8.15 Veðurrregnir. Útdráttur úr
forustgr. dagblaðanna.
8.35 Morgontónleikar. a. Horntrió i Es-dúr op.
40 eftir Johannes Brahms. Gerd Seifert leikur
á horn. Eduard Drolc á fiðlu og Christoph
Eschenbach á pianó b. Píanókvartett i D-dúr
op. 23 eftir Antonin Dvorák. Menahem
Prcssler leikur á pianó, Isidore Cohen á fiðlu
Bernhard Greenhouse á selló og Walter
Tramplerá viólu.
9.35 Boðskapur páskanna Viðtalsþáttur i umsjá
Inga Karls Jóhannessonar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Morguntónleikar, — frh. Frá útvarpinu i
Baden Baden. „Te Deum” eftir Franz Xaver
Richter. Einsöngvarar, kórar og kammersveit-
in i Mainz flytja. Stjórnandi: Gúnter Kehr.
11.00 Messa I Háteigskirkju Prestur: Séra
Arngrimur Jónsson. Organleikari: Marteinn
Hunger Friðriksson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Vcðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Á
frívaktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynnir óska-
lög sjómanna.
14.30 Kristni og þjóðlif; annar þáttur Um-
sjónarmenn: Guðmundur Einarsson og séra
Þorvaldur Karl Helgason.
15.00 Miðdegistónleikar. a. Fantasia fyrir
pianó og hljómsveit eftir Claude Debussy,
Pierre Barbizet ogSinfóniuhljómsveit útvarps-
ins i Strassburg leika: Roger Albin stjórnar. h.
„Þrihyrndi hatturinn”, ballettmúsik eftir
Manuel dc Falla tisse. Romande hljómsveitin
leikur; Ernest Ansermet stjórnar.
Sjónvarp
miðvikudag
kl. 18.35:
Framtíð
Fleska
„Þetta er finnsk mynd um feitlaginn
strák, sem er stritt af skólafélögum sín-
um. Krakkarnir eiga allir sína fram-
tíðardrauma. Sumir ætla að verða
flugmenn og margar stelpurnar ætla
að verða hjúkrunarkonur,” sagði
Þótt Fleski sé feitur og klunnalegur,
leynist margt gáfulegt i kolii hans.
Jóhanna Jóhannsdóttir, en hún þýðir
myndirnar um Fleska.
Jóhanna sagði að jafnframt því sem
krakkarnir striddu Fleska, þá fengju
áhorfendur að fylgjast með hugsunum
hans um framtíðina, og væru þær oft
á tíðum mjög frábrugðnar hugsunum
hinna skólafélaganna.
Einn skóladaginn eru krakkarnir
látnir skrifa stíl, og koma þá greinilega
i Ijós framtiðardraumar og hugsanir
Fleska. Honum verður oft hugsað um
stórviðburði sögunnar. Allir dá Napó-
leon og ræða mikið um fræðgarverk
hans. Fleski vill hins vegar fá að vita
hvað allt þetta umstang í kringum
þann fræga mann hefur köstað. Hann
vill einnig fá að vita hve mikið kostar
að framleiða alla þessa bryndreka, sem
notaðir eru i hernaði, og hversu
margar ibúðir væri hægt að byggja
fyrir húsnæðislausa fyrir þá peninga.
Af þessu sést m.a. að þótt Fleski sé
feitur og klunnalegur, er mikið í hann
spunnið.
Jóhanna sagði okkur einnig að kl.
18.00 þennan sama miðvikudag hæfi
göngu sína tékknesk leikbrúðumynd.
Nefnist hún Ævintýri sótarans og
sagði Jóhanna þessa leikbrúðumynd
sérstaklega skemmtilega, enda væru
Tékkar lagnir við gerð slíkra mynda.
Bæði myndin um Fleska og Ævin-
týri sótaranseru i litum. „„