Dagblaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 6
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
ÚTVARP OG SJÓNVAR UM PÁSKANA
saman af Vésteini Ólasyni. Flytjendur meö
honum: Arnar Jónsson, Guðrún Ásmunds-
dóttir, Hjalti Rögnvaldsson og Margrét Helga
Jóhannsdóttir.
1.4.00 Óperukynning: „Predikarinn” Der
Evangelimann cftir Wilhelm Kienzl. Flytj-
endur: Anneliese Rothenbergger, Marga Höff
gen, Nicolai Gedda, Franz Crass og fleiri með
St. Wolfgang barnakórnum, kór og hljómsveit
óperunnar i Mtlnchen; Robert Heger stjórnar.
— Guömundur Jónsson kynnir.
15.00 Dagskrárstjóri i klukkustund. Guðrún
Halldórsdóttir skólastjóri ræður dagskránni.
16.00 Sónglög eftir Hallgrím Helgason. Ólafur
Þorsteinn Jónsson syngur við undirleik höf-
undar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 I Páfagarði. Ingibjörg Þorbergs segir frá
heimsókn sinni i Vatikanið (Áöur útv. 1962).
17.05 Barnatimi: Þórir S. Guðbergsson stjórn-
ar. Staldrað við i forskóladeild Mýrarhúsa
skóla á Seltjarnarnesi. Fimm unglingar úr
Langholtsskóla flytja stuttar hugleiðingar um
páskahátiðina. Rúna Gisladóttir les frum
samda sögu: Sögulegir atburðir. Séra Arngrim-
ur Jónsson flytur páskahugvekju.
18.05 Gestur í útvarpssal. Þýzki prófessorinn
Jurgen Uhde leikur pianóverk eftir Bach.
Schubert og Janácek.
18.45 Veðurfr?gnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Fréttir.
19.30 Messa I Görðum. Hákon Guömundsson
fyrrum > ilrborgardómari scgir frá stuttri dvöl i
Grænlandi í fyrra.
20.00 Sinfóníuhljómsveit Islands leikur i úl-
varpssai Sinfóniu nr. 103 i Es-dur eftir Joseph
Haydn. Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
20.30 Ótvarpssagan: „Pílagrimurinn" eftir Pár
Lágerkvist. Gunnar Stefánsson les þýðingu
sina (II).
21.05 Samleikur í útvarpssal. Pétur Þorvaldsson
og Gisli Magnússon leika á selló og pianó Són-
ötu op. 5 nr. 2 i g-moll eftir Beethoven.
21.30 Samskipti presta og almennings. Andrea
Þórðardóttir og Gisli Helgason ræða við séra
Sigurð Hauk Guðjónsson, séra Guðmund
óskar Ólafsson og Jón Ragnarsson guðfræði
nema.
22.10 Einleikur í útvarpssal: Unnur Sveinbjörns-
dóttir leikur Sónötu fyrir einleiksviólu op. 25
nr. I eftir Paul Hindermith.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir af Skíðamóti ís-
lands.
22.45 Kvöldtónleikar. Paradisarþátturinn úr
óratóriunni „Friður á jörðu" eftir Björgvin
Guðmupdsson við Ijóðaflokk Guðmundar
Guðmundssonar. Flytjendur:. Svala Nielsen.
Sigurveig Hjaltested. Hákon Oddgeirsson.
Söngsveitin Fílharmonia og Sinfóniuhljóm
sveit Islands. Stjórnandi: GarðarCortcs.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
^ Sjónvarp
Sunnudagu'/
26. mars
PÁSKADAGUR
17.00 Páskamessa i sjónvarpssal (L) Séra Þor
bcrgur Kristjánsson, sóknarprestur I Kópa
vogi, prédikar og þjónar fyrir r.ltari. Kór Kópa
vogskirkju syngur. Kórstjóri og orgelleikari
Guömundur Gilsson. Stjórn upptöku örn
Harðarson.
18.00 Stundin okkar (L) Umsjónarmaöur
Sjónvarp laugardag kl. 21.20: Fingralangur og f rár á fæti
„Hláturinn lengir lífið”
Það er sagt að hláturinn lengi lifið.
Þannig stuðlar sjónvarpið að því að lif
íslendinga lengist.. ð því að sýna bió-
myndina Fingralangur og frár á faeti
sem samkvæmt kvikmyndahand-
bókinni okkar er sprenghlægileg. Það
er háðfuglinn Woody Allen, sem er
ábyrgur fyrir gamninu, því hann er
höfundur handrits, leikstjóri og fer
jafnframt með eitt aðalhlutverkið.
Samleikarar hans eru Janet
Margolin, Lonny Chapman og Mark
Gordon.
Myndin er frá árinu 1969 og
nefndist á frummálinu Take the
money and run. Hún fær fjórar
stjömur í kvikmyndahandbókinni
okkar.
Þar segir einnig að einkunnarorð
myndarinnar séu tekin úr biblíunni —
„sælir eru hógværir því þeir munu
landið erfa”. — Einnig er gert
miskunnarlaust grin að myndum eins
og Bonny og Clyde og öðrum glæpa-
myndum frá árunum 1930-40.
Myndin er I litum.
Þýðandi myndarinnar er Kristmann
Eiðsson. A.Bj.
Asdis Emilsdóttir. Kynnir ásamt henni Jó-
hanna Kristin Jónsdóttir. Stjórn upptöku
RúnarGunnarsson.
Hlé.
20.00 Fréttir, veður og dagskrórkynníng.
20.20 Messías Oratoria eftir Georg Friedrich
Hándel. Annar og þriðji kafli. Flytjendur
Pólýfónkórinn og kammersveit undir stjórn
Ingólfs Guðbrandssonar. Einsöngvarar
Kathleen Livingstone, Ruth L. Magnússon,
Neil Mackie og Michael Rippon. Einleikari á
trompet Lárus Sveinsson. Konsertmeistari Rut
Ingólfsdóttir. Frá hljómleikum í Háskólabiói I
júni 1977. Stjóm upptöku Andrés Indriðason.
21.45 Húsbændur og hjú (L). Breskur mynda-
flokkur. Prinsinn. Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.35 Upprísa i Moldaviu (L). Kanadisk heim-
ildamynd um páskaundirbúning og páskahald
i Moldaviu i noröausturhluta Rúmeníu. Þar
eins og i öðrum löndum Austur-Evrópu hefur
kristin trú átt erfitt uppdráttar um hrið, (;n nú
blómlegt trúarlif i landinu. Þýðandi og þuiur
EllertSig rbjörnsson.
23.25 Dagskrárlok.
Óli H. Þórðarson cr umsjónarmaður þáttarins „Stiklur”.
Útvarpið á laugardaginn
kl. 21.30: Stiklur
„Málsháttur
fyrir alla
þjóðina”
Þátturinn Stiklur I umsjá Óla H.
Þórðarsonar c- dagskrá útvarpsins
laugardagskvölam 25. marz kl. 21.30.
Sagðist Óli m.a. hafa viðtal við
Hjört Björnsson en hann er einn elzti
úrsmiður landsins. Hann hóf nám sitt
árið 1920 og lærði hjá Magnúsi Benja-
minssyni og vann hjá honum meðan
verkstæði hans var enn starfandi. Nú
fæst Hjörtur aðallega við úraviðgerðir
heima hjá sér.
verðbólguna, þessa miklu bólgu sem
alla er að drepa.
í síðasta þætti kom Óli með fyrri
hluta ferskeytlu og bað hlustendur að
senda inn botna. Þátttaka varð
gifurleg því alls bárust ,:m 100 botnar.
Þar sem erfitt er að >„era úr um
hverjir eru beztir og einnig útilokað að
lesa þá alla upp i þættinum hefur Óli
fengið meðdómendur með sér og
munu þeir velja úr botnunum eftir
beztu samvizku.
Síðan mun Óli ræða við afmælis-
barn kvöldsins en það mun verða valið
af handahófi úr þjóðskránni.
Maðurinn bak við röddina nefnist
liður i þættinum. Mun Óli fá í
heimsókn mann sem flestir landsmenn
þekkja af röddinni en ef til vill fáu
öðru. 1 síðasta þætti kom Jóhannes
Arason þulur í heimsókn og er aldrei
að vita hver verður fyrir valinu í
þessum þætti.
Þá mun Óli taka vegfarendur í
Austurstræti tali og spyrja þá um
Þar sem fólk virðist hafa haft
gaman af þessu hefur Óli ákveðið að
koma með fyrri hluta ferskeytlu í
hverjum þætti og mun sá fyrripartur
sem lesinn verður upp í þessum þætti
vera eftir veðurfræðinginn Pál
Bergþórsson.
Þar sem þetta er nú páskahelgin,
ætlar Óli að tileinka þennan þátt
páskunum að því leyti að hann fer og
kaupir páskaegg og mun draga úr þvi
einn málshátt fyrir alla þjóðina.
RK.
Mánudagur
27. mars
ANNAR PÁSKADAGUR
8.00 Morgunandakt Séra Pétur Sigurgeirsson
vígslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.35 Morguntónleikar
9.30 Veiztu svarið? Jónas Jónasson stjórnar
spurningaþætti (lokaþáttur). Dómari: Ólafur
Hansson.
10.10 Veðurfregnir. 10. 25 Fréttir.
10.30 Morguntónleikar.
11.00 Messa í Fríkirkjunni. Prestur: Séra
Þorsteinn Björnsson. Organleikari: Sigurður
Isólfsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.20 Að eiga vangefið barn. Jóhann Guð-
mundsson læknir flytur hádegiserindi, hið
síðasta I erindaflokki um málefni vangefínna.
14.00 Gamlar lummur og nýjar.
15.20 Leikrit: „Frakkinn”, gömul saga eftir
Nikolaj Gogol. Max Gundermann bjó til út-
varpsflutnings (Siðast útv. í okt. 1970):
Þýðandi og leikstjóri: Lárus Pálsson. Persónur
og leikendur: A.A. Baschmats-Þorsteinn ö.
Stephensen: Lögreglustjóri-Valdimar Helga-
son. Hans Hágöfgi-Haraldur Bjömsson.
Ekkja-Arndis Björnsdóttir. Ostasali-Lárus
Pálsson. Skrifstofumenn-Jón Sigurbjömsson,
Steindór Hjörleifsson og Baldvin Halldórsson.
Þulur-Karl Guðmundsson. Aðrir leikendur:
Benedikt Árnason, Klemenz Jónsson, Knútur
R. Magnússon og Helgi Skúlason. Hljóðfæra-
leikarar: Vilhjálmur Guöjónsson og Jóhannes
Eggertsson.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 (Jr sjóði minninganna. Endurtekið viðtal
Gisla Kristjánssonar ritstjóra við Gunnlaug
Gíslason fyrrum bónda á Sökku i Svarfaðar-
dal. (Áður útv. í jan. 1976).
17.00 Barnatími: Jónina H. Jónsdóttir stjórnar.
Ámi Sigurjónsson segir frá stofnanda KFUM,
séra Friðriki Friðrikssyni. Heimsótt fjölskylda
í Garðabæ, Halldór Vilhelmss., Áslaug B.
Olafsdóttir og dætur þeirra tvær, Hildigunnur
og Marta sem taka lagið. Rætt er við Hildi
Þóru Hallbjörnsdóttur sveitarstjóra KFUK í
Garðabæ. Halla Margrét Jóhannesdóttir (12
ára) les frásögu.
17.50 Harmonikulög.Harmónikukvartett Karis
Grönstedts leikur. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 „Elskaðu mig__” Fimmti og síðasti dag-
skrátþáttur um ástir i ýmsum myndum.
Umsjónarmaöur: Viðar Eggertsson.
20.00 Kórsöngur: Karlakórínn Fóstbræður
syngur á samsöng í Háskólabíói 20. þ.m.; —
fyrri hluti söngskrár. Söngstjóri: Jónas Ingi-
mundarson. Einsöngvarar: Hákon Oddgeirs-
son og Hjalti Guðmundsson. Planóleikari:
Lára Rafnsdóttir. a. Tvö lög eftir Áma
Björnsson: „Víkingamir" og „Kvöldvísa”. b.
Fimm þjóðlög: 1: íslenzk stemma i útsetningu
Jóns G. Ásgeirssonar. ‘I: „Nótt”, slavneskt
þjóðlag i útsetningu söngstjórans. .3: „Floginn
burt”, japanskt þjóðlag i útsetningu söng-
stjórans. 4 „Pétur svinahirðir”, sænskt þjóðlag.
5: Slavneskur dans. c. „Sunnudagur
selstúlkunnar” eftir Ole Bull. d. „Tónamir”
eftir Emil Sjöberg. e. Tvö lög eftir Selim
Palgren:Ikorninn” og Sæfarinn við kolgröfina”.
20.35 „Grynningar hjartans eða King Kong á
Íslandi”, smásaga eftir Vagn Lundbye.
Ingibjörg Sverrisdóttir þýddi. Karl
Guðmundsson leikari les.
21.20 Kinverskir listamenn i útvarpssal. Arnþór
Helgason kynnir.
21.50 Góð eru grösin. Þáttur um
grasalækningar í umsjá Sigmars B.
Haukssonar. Rætt við Ástu Erlingsdóttur
grasalækni og Vilhjálm Skúlason prófessor.
23.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Danslög. M.a. leikur hljómsveit Hauks
Morthens islenzk dans- og dægurlög i hálfa
klukkustund. (23.55 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
í
^ Sjónvarp
i
Mánudagur
27. mars
— ANNAR DAGUR PÁSKA
18.00 Heimsókn. Systumar / Hólminum. Fyrir
.40 árum hófu systur úr St. Fransiskusarregl-
unni rekstur sjúkrahúss i Stykkishólmi og hafa
rekið það síðan. Auk sjúkrahússins starfrækja
þær einnig prentsmiöju og bamaheimili. Um-
sjónarmaður Magnús Bjarnfreðsson. Áður á
dagskrá 30. janúar 1977.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Átján bama faöir I álfheimum (L). Þessa
kvikmynd gerðu Jón Hermannsson og
Þrándur Thoroddsen síðastliöið sumar eftir
þjóðsögunni alkunnu. Tónlist Atli Heimir
Sveinsson. Sögumaður Baldvin Halldórsson.
20.40 Þjóðarminnismerkið (L). Leikrit eftir Tor
Hedberg. Leikstjóri Bemt Callenbo. Aðalhlut-
verk Börje Ahlstedt og Lena Nyman. Mynd-
höggvaranum Erik Some hefur verið falið að
gera veglegt minnismerki. Tillögu hans er
hafnað, eftir að deilt hefur verið um hana hart
og lengi. Þessi gamanleikur Var fyrst sýndur í
Sviþjóð árið 1922 og hefur oft verið settur á
svið siöan. Þýðandi Óskar Ingimarsson. (Nord-
vision — Sænska sjónvarpið).
22.20 Á kveðjustund (L). Frá útihljómleikum,
sem söngvarinn Bing Crosby hélt í Noregi i
ágústmánuði síðastliðnum, tveimur mánuðum
áður en hann dó. I þessum þætti syngur
Crosby syrpu af vinsælustu lögum sínum.
Honum til aðstoðar eru Harry sonur hans og
jasskvartett Joe Bushkins. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson. (Nordvision — Norska sjón-
.varpið).
23.00 Dagskrárlok.